Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims 2008-2026 (IV. tímabil)
—
Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar 4
Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs og ört vaxandi ófriðarútlits. Þetta er fjórða og síðasta grein. Fyrri greinar má sjá hér, hér og hér.
*****
Heimsvaldastefnan eins og annað afturhald, skoðuð inn í kjarnann, séð frá langtíma sjónarhorni, verður að skoðast sem það sem hún er – pappírstigrisdýr. Á því verðum við að byggja strategíska hugsun okkar. Á hinn bóginn er hún líka lifandi tigrisdýr, járntigrisdýr og raunverulegt tigrisdýr sem étur fólk. Á því verðum við að byggja taktíska hugsun okkar. (Maó Tsetung. Ræða fyrir framkvæmdanefnd Kommúnistflokksins, haldin í Wuchang 1. desember 1958)
Bæði innri þróun og ytri aðstæður heimsvaldasinnaðs kapítalisma hafa kallað fram ákveðnar breytingar á heimsvaldastefnunni á 21. öld. Í fyrsta lagi: Fjármálakreppan 2008 fór á margan hátt illa með efnahagskerfi Vesturlanda. Í öðru lagi: Um líkt leyti varð það augljóst glöggum greinendum að stefna Washington-heimsveldisins – kennd við Wolfowitzkenningu – að ætla að fyrirbyggja að komið gætu fram á sviðið valdakjarnar/ríki sem væru keppinautar Bandaríkjanna myndi ekki takast.
Í því að greina þróun heimsvaldastefnunnar á þessu síðasta tímabili, 2008-2026, styð ég mig allmikið við greiningar indverska marxistans Vijay Prashad (f. 1967) sem er sagnfræðingur og prófessor í Bandaríkjunum og höfundur yfir 40 bóka. Hann er að auki framkvæmdastjóri rannsóknarstofnunar, Tricontinental: Institute for Social Research. Sú stofnun lagði árið 2024 fram rannsóknir sínar í bíkinni Hyper-Imperialism: A Dangerous Decadent New Stage (sem útleggst svo: Óðaheimsvaldastefna: hættulegt, úrkynjað nýtt stig).
Efnahagslegt undanhald – og keppinautarnir stíga fram
Samkvæmt The Tricontinental hefur hlutur G7 ríkjanna (sem eru sex helstu iðnveldi Vestursins + Japan) af landsframleiðslu alls heimsins, umreiknaðri í kaupmátt, dalað jafnt og þétt síðustu þrjá áratugi – frá 46% árið 1993 niður í 28% árið 2025. Það munar um minna.
Einföld Google-leit upplýsir að keppinauturinn BRICS+ (11 lönd alls) hafi aukið hlut sinn af landsframleiðslu heimsins úr 27,5% árið 2008 í 44,5% árið 2026. Þróunarlínurnar eru því augljósar og skýrar, og niðurdrepandi fyrir G7 löndin.
Keppinautarnir stigu fram – þeir komu úr hinu Hnattræna Suðri. Þyngdarpunktur heimshagkerfisins hafði færst austur til Asíu – og það varð líka ljóst að alvarlegasti keppinauturinn var ekki Rússland heldur Kína.
Árið 2008 getur markað umskiptin þegar Kína tók fram úr Bandaríkjunum á sviði iðnaðar og framleiðslu. Stór hluti af framleiðslufyrirtækjum Bandaríkjanna var þá í rauninni horfinn austur til Kína eftir brautum hnattvæðingar. Bandarísku auðhringarnir græddu við þetta alveg gríðarlega.
Í fyrstu bauð Kína bauð sig fram sem vettvang fjárfestinga og bauð fram ódýrt vinnuafl og lág aðstöðugjöld. Með tímanum höfðu bandarísku auðhringarnir í gróðasókn sinni líka rennt hátækni-fyrirtækjum sínum þangað austureftir (tölvutækni, vopnaframleiðsla, róbótaframleiðsla, geimvísindatækni, gerfigreind…). Gróði hringanna var óskaplegur.
En með sínu sterka ríkisvaldi og sterka fullveldi náði Kína samt að snúa þessari þróun sér í vil, og af því hlaust með tímanum mikið bakslag fyrir Vestrið: Kínverjar náðu sjálfir tökum á tækninni, þeir byggðu upp eigin framleiðslu í viðkomandi geirum og greinum, og fluttu síðan þá framleiðslu út til annarra landa og heimshluta eftir sömu brautum hnattvæðingar – endurbætta tækni á lægra verði – og kepptu nú galvaskir við Vestrið um heimsmarkaðinn.
Kína hefur síðan á skömmum tíma orðið leiðandi á heimsvísu, ekki aðeins í iðnaðarútflutningi almennt heldur líka í þróun nýrra tæknigreina – og brunað fram úr Bandaríkjunum á hverju sviðinu af öðru. Ein vísbending: Mælikvarði á tæknilega þróun er fjöldi rannsóknargreina frá einstökum löndum í virtustu vísindatímaritum heims, og þar eru Kínverjar komnir langa leið fram úr Bandaríkjunum. Sjá t.d. hér.
Síðasta áratuginn hefur iðnaðarforskot Kína bara aukist. Þróun í sömu átt (þó hægari sé) hefur orðið á fleiri stöðum í hinu hnattræna Suðri, sérstaklega í Asíu (Indlandi, Indónesíu, Malasíu) en einnig víðar (Brasilíu, Mexíkó).
Í Rússlandi höfðu líka „slæmir hlutir“ gerst, séð vestan frá. Öðru vísi þó: Viðhlæjandi og þjónn Vestursins, Boris Jeltsín, lét af völdum í Rússlandi árið 2000. Í stjórnartíð hans gekk pólitíkin út á sjokkeinkavæðingu – undir forsjá AGS og vestrænna fjármálastofnana – með fullu sjálfræði ólígarka og útbreiddri sölu eigna/fjármagnsflótta úr landi.
Með nýjum forseta, Vladimir Pútín, tók þróunin aðra stefnu, sem helst verður kennd við við rússneska þjóðernisstefnu. Undir hans forustu var sterkt ríkisvald og ríkisrekstur endurreist, sérstaklega í orkugeiranum, og ríkishagsmunir/efnahagslegt sjálfstæði Rússlands haft að leiðarljósi. Ólígarkar fengu almennt að halda ríkidæmi sínu – gegn því að þeir hættu pólitískum afskiptum. Útbreiddri afiðnvæðingu 10. áratugarins var að nokkru leyti snúið við og mikilvægum iðnaði, einkum stóriðnaðinum, komið í ríkiseigu á ný.
Rússland, sem á 10. áratug virtist vera að lenda í hálfnýlendu-stöðu gagnvart vestrænni heimsvaldastefnu, var með þessu hrifið úr því banvæna faðmlagi. Það munu vestrænir heimsvaldasinnar aldrei fyrirgefa hinum seku, enda ræður Rússland yfir meiri auðlindum en nokkurt annað ríki.
Rússland er stórveldi, m.a.s. kjarnorkustórveldi, og vissulega kapítalískt land. Hins vegar er staða Rússlands í auðvaldskerfinu í meginatriðum ekki staða heimsvaldaríkis. Rússland fjárfestir lítið utanlands og rússneskar vörur og fjármagn keppa lítt við önnur veldi um markaðsaðild og stöðu á heimsmarkaði. Það er land með veik einkenni imperíalisma og veika imperíalíska hvata, myndi Lenín líklega segja.
Eitt mikilvægt merki um efnahagslegt undanhald Bandaríkjanna þarf að nefna: Staða dollarsins sem gjaldmiðils alþjóðaviðskipta hefur löngum tryggt að hvers konar viðskiptahagnaður í alþjóðaviðskiptum rataði inn í bandarískar/vestrænar fjármálastofnanir og efnahagslíf, en sú drottnandi staða hans veikst mjög á þessari öld (úr 70% í 56% alþjóðaviðskipta segir Google). Hornsteinn í því valdakerfi heimsdrottnarans var og er olíudollarakerfið. OPEC-lönd hafa löngum selt alla olíu sína í dollurum – og önnur olíuframleiðsluríki yfirleitt líka – og veittu þeim ógnarfjárstraumi gegnum bandarískt/vestrænt fjármálakerfi, og fjárfestu auk þess stóran hluta þess á bandarískum hlutaréfamarkaði. Valdastaða dollarsins hefur í meira en hálfa öld greitt niður bandarísk bandarísk lán og fjárlagahalla, og kostað styrjaldir Bandaríkjanna.
Til að tryggja að tryggja að olíu- og orkusala fari áfram fram í dollurum og fari gegnum vestræna banka þurfa Bandaríkin/Vestrið því nauðsynlega að hafa pólitísk yfirráð á viðkomandi svæði – í þessu tilfelli Miðausturlöndum – sem að lokum þýðir hernaðarlegt vald.
Á síðasta áratug hafa einkum BRICS-löndin (Kína, Rússland, Indland, Íran fremst í flokki) í vaxandi mæli keypt og selt olíuna á snið við dollarann. Jafnvel OPEC-lönd eins og Sameinuðu furstadæmin og Sádi-Arabía hafa að einhverju leyti farið að gera hið sama. Stríð Bandaríkjanna við Íran (líkt og t.d. stríðið við Írak á sínum tíma) stendur því að stórum hluta um olíudollarakerfið. Ef stríðið tapast verður það meiri háttar högg fyrir allt það mikla valdakerfi.
Áframhaldandi fjármálavæðing og afiðnvæðing
Útvistun framleiðslunnar til hnattræna Suðursins, þ.e.a.s. svæða sem töldust jaðarsvæði, og svo fjármálavæðing í kjarnalöndum heimsvaldakerfisins eru tvær hliðar á sama peningi. Fjármálamiðstöðvar kjarnalandanna framleiða í æ ríkari mæli auð sinn með fjármálalegum aðferðum: spákaupmannsku, lánastarfsemi, fjármálatengdum gjöldum og eignarstýringu. Sá ofsprottni síðkapítalismi sem um ræðir er „úrkynjaður“, hann er afæta og sníkjudýr sem hefur fátt að bjóða þjóðum heims.
Í Bandaríkjunum sjálfum og bakgörðum þeirra (ekki síst í Evrópu) hafði hnattvæðingin smám saman virkað til að veikja iðnaðinn og frameiðslukerfið, éta það innan frá. Það sem kom í stað iðnaðar þar um slóðir var fjármálavæðing – iðnaðarkapítalismi breyttist í fjármálakapítalisma. Fjármálavæðingin hafði tekið stökk á 10. áratugnum, og hélt áfram í stórum skrefum. Staða dollarsins sem gjaldmiðils alþjóðaviðskipta hefur til þessa gefið Bandaríkjunum fjármálalegan gróða og gríðarlegt vald. Tök Bandaríkjanna og bandarísks fjármagns á alþjólegu fjármálakerfi voru áfram afar sterk, sem vóg að nokkru á móti hinum tapaða iðnaðarkrafti.
Vestræn, fjölþjóðleg fjármálafyrirtæki og bankar breiddu starfsnet sitt vítt um lönd með hlutafjáreign og samfléttuðu eignarhaldi, og hafa þannig getað stjórnað óteljandi minni og meðalstórum fyrirtækjum en einnig helstu efnahagslegu slagæðum heimsins.
Taka skal fram að áður en útvistunarþróunin fór á mikinn skrið var fjármálavæðingin þegar orðin staðreynd í vestrænum kapítalisma (lengst komin í Bandaríkjunum). Marxistinn John Bellamy Foster segir hana einkenni á staðnandi kapítalisma í „almennri kreppu“. Þegar risa-fjármálafyrirtækin sem ráða ríkjum mynda mun meira umframfjármagn heldur en arðsamir fjárfestingarmöguleikar eru fyrir í „raunhagkerfinu“ þá leiðir það af sér fjármálavæðingu. Útvistunin er þá líka ákveðin lausn á þeim vanda. Sjá Foster The End of Rational Capitalism.
Hagfræðingurinn Michael Hudson skilgreinir hinn fjármálavædda vestræna/bandaraíska kapítalisma sem „rentukapítalisma“: auðurinn myndast gegnum efnahagslega rentu fremur en gegnum framleiðslu á vöru eða þjónustu. Sjá hér.
Hið „rentusækna“ (rentseeking) fjármálaauðvald auðgast ekki á því að búa til verksmiðjur og framleiða eitt eða neitt, heldur á því að lána fé, taka fjármálatengd gjöld, einokunarrentu, álögur og þóknanir, hagnýta hugverkarétt, einkaleyfisrétt vörumerkja, fasteignagjöld o.s.frv. Sem framleiðslukerfi var þessi kapítalismi því staðnaður – tala má um úrkynjaðan sníkilskapítalisma eða afætukapítalisma – og ekki bara það, hann felur læika í sér afiðnvæðingu. Sjá hér. eða hér.
Þarna er um að ræða yfirþjóðlegt fjármálavald, og tilheyrandi fjármálaelítu. Þó hún sé orðin yfirþjóðleg þá situr hún einnig á tindum valdsins í Bandaríkjunum (sem hafa enn yfirtök á fjármálakerfi heimsins, sérstaklega gegnum stöðu dollarans). Sömuleiðis er hún nátengd evrópskri fjámálaelítu og býrókratíinu í ESB.
Afiðnvæðingin er enda ekki bundin við Bandaríkin: hún er verri í Evrópu. Að nokkru leyti fylgdi hún sama farvegi fjármálavæðingar og Bandaríkin. En einkum fór hún þó á skrið sem afleiðing af bandarískri utanríkisstefnu, stríðinu og refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Evrópa glataði þá aðgangi að ódýrri rússneskri orku og þurfti að kaup helmingi dýrara fljótandi jarðgas frá Bandaríkjunum.
Það er ljóst að mesti taparinn í refsiaðgerðunum gegn Rússlandi er Evrópa og evrópskur iðnaður sem hætti að vera samkeppnishæfur. Þýska iðnframleiðslan fer að sístækkandi hluta úr landi – fyrst og fremst til Bandaríkjanna. Trump herti loks á afiðnvæðingu Evrópu með því að semja við ESB um tolla á evrópskar vörur og auðmýkjandi ójöfn viðskipti.
Efnahagsstríðið við Rússland hefur gengið betur séð frá Washington. Einkum sá hluti þess sem beindist að því að undirsetja Evrópulönd. Með stríði sínu við Rússland sló Washington nefnilega nokkrar flugur í einu höggi: undirsetti Evrópu efnahagslega og gerði hana háðari Bandaríkjunum en áður og gerði um leið Evrópulönd að framlínuríkjum í bandarísku stríði. Sjá hér: og hér.
Þróun Kína hélst sem sagt í hendur við fjármálavæðinguna og stöðnunina í vestrænum kapítalisma. Það sem að nokkru leyti var lausn á bandarískum/vestrænum fjárfestingarvanda kom aftur sem bakslag þegar Kína tók að storma fram sem keppinautur á heimsmarkaði.
Á árinu 2013 tóku leiðtogar Kína að ræða áform um „Nýja Silkiveginn“. Þeir stofnuðu það sama ár „Belti og braut-framtakið“ sem fór á skrið 2015. Það hefur skapað gríðarlegt vöru- og fjárfestingaflæði milli Kína og landanna í vesturátt. Nokkuð sem er einkennandi fyrir Belti og braut-framtakið er að stór hluti þess fer í uppbyggingu innviða, svo sem járnbrauta, hafna, orkumannvirkja, skóla, sjúkrahúsa m.m., í samvinnu við þarlend stjórnvöld og þarlent fjármagn. Árið 2026 nær Belti og braut orðið yfir um 150 lönd þ.e.a.s. nærri 80% af löndum heimsins. Einföld spurning til Google (júní 2026) um hlut Belti og braut-framtaksins af heildar-landsframleiðslu heimsins (mælt í kaupmætti) gefur eftirfarandi stutt svar:
Belti og braut framtakið (BRI) inniheldur u.þ.b. 40% til 50% af heildar-landsframleiðslu heimsins ef miðað er við kaupmatt (PPP), eftir því hvaða lönd strangt tekið teljast þátttakendur.
Af-hnattvæðing og vígvæðing eru röklega samhangandi
Markaðsfrjálslynd hnattvæðing var meginverkfæri og vopn bandarískra/vestrænna heimsvaldasinna árunum eftir 1990 – í því verkefni að „ameríkanísera“ heiminn. Vopnið hefur síðan snúist í höndum þeirra. Í hinni efnahagslegu samkeppni eru heimsvaldasinnar greinilega ekki að sigra heiminn. Og þeir horfast í augu við þá augljósu staðreynd að með aðferðum markaðsfrjálsrar hnattvæðingar munu þeir ekki vinna efnahagskeppnina.
Samkvæmt kenningum Kindlebergers sem nefndar voru í þripju grein byggðist frjálslynt hagkerfi – og friður og stöðugleiki – á tilvist eins óskoraðs heimsdrottnara. Og fyrstu tvo áratugina eftir 1990 var heimsdrottnarinn öruggur, hnattvæðingin æddi þá áfram án teljandi hindrana. Dagskipanirnar voru: Allir noti dollarann sem heimsgjaldmiðil! Allir noti SWIFT-millibanka greiðslukerfi! Kína er boðið í WTO! Öllum verslunarleiðum skal haldið opnum í skjóli Pax Americana! Allir hafi aðgang að helstu tækni! Verslunarfrelsi og tollfrelsi skal aukið ár frá ári!… Það þurfti bara að beygja sig undir eitt og sama drottinvald, og það gerðu flestir – nema fáein „bandingjaríki“ (rouge states).
Smám saman komu engu að síður nýju valdakjarnarnir fram – BRICS var stofnað 2009, Belti og braut var hleypt af stokkum 2013 – efnahagslega samkeppnin fór að verða óhagstæð, keppinautar risu upp og efldust. Ef stöðugleiki og friður eru komin undir óskoruðu valdi eins einum heimsdrottnara – hvað gerist þá ef heimsdrottnarinn fær samkeppni og hættir í reynd að vera óskoraður drottnari? Jú, þá hættir heimsdrottnarinn að vera „velviljaður“, þá fer friðurinn og stöðugleikinn líka forgörðum.
Einmitt þannig fór það. Hnattvæðingin var komin yfir hátindinn (og farin að dala niður skuggamegin). Heimsdrottnarinn með bandamönnum fór að beita öðrum meðulum: Þvingandi aðferðir tóku við í vaxandi mæli, efnahagsþvinganir og refsiaðgerðir voru lagðar á sífleiri þjóðir en sligandi verndartollar á aðrar, í vaxandi mæli var farið að hindra orkuflutninga til andstæðinga, gullforða þeirra stolið, útvaldir andstæðingar skrímslavæddir en agi hertur á bandamönnum, þeir látnir borga fyrir herverndina og kostnað heimsveldisins, bandalög vígvædd, tekinn upp „hernaðarlegur keynesismi“. Sá keynesismi á að búa til eftirspurn og stuðla að enduriðnvæðingu, en kemur augljóslega niður á félagsþjónustu og velferðarkerfi. Og þegar frjálslynt hagkerfi bakkar svo mjög lætur frjálslynt lýðræði undan síga líka (sem og „rules based order“). Einhverjar útgáfur af alræði og fasisma taka við.
Í stað útbreiðslu hnattvæðingarfrjálshyggju fer heimsdrottnarinn sem sé að beita aðferðum „hernaðarlegs keynesisma“. Keynes boðaði hallarekstur ríkissjós og lántökur á samdráttartímum. Hernaðarlegur keynesismi felur í sér að stjórnvöld búa til eftirspurn með þeim umframútgjöldum sem beint er til hernaðargeirans.
Í stað efnahagslegrar samkeppni býður heimsveldið upp á efnahagslegt stríð. Í síauknum mæli beitir heimsveldið pólitísku og hernaðarlegu valdi. Það sem það hefur fram að bjóða er nefnilega ekki efnahagsleg uppbygging, ekki bygging innviða eða neitt slíkt. Það getur þó boðið skjólstæðingum sínum upp á eitt: að kasta EKKI á þá sprengjum, beita þá EKKI efnahagslegum refsiaðgerðum eða, hækka EKKI á þá tollana enn frekar – ef þeir sýna hlýðni. Vilji þeir hins vegar ekki vera tryggir skjólstæðingar gæti þurft að sprengja þá og brenna allt ofan í ösku.
Ofannefnd viðbrögð og háttarlag heimsveldisins eru í rökréttu samhengi við bæði innri efnahagslega þróun þess og ytri aðstæður heimsvaldakerfisins.
Hernaðarlega strategían – að fyrirbyggja fjölpólun
Vijay Prashad skrifar:
Heimsvaldastefnan undir bandarískri forustu hefur náð nýju og herskárra stigi – sem við köllum óðaheimsvaldastefnu… Óðaheimsvaldastefna þessi er knúin áfram af tiltölulegri, efnahagslegri og pólitískri, hnignun Hnattræna Norðursins.
Heimsvaldastefnan hefur náð herskárra stigi! Mönnum þótti Bandarískt stýrða heimsveldið alveg nógu herskátt fyrir, og ekki á það bætandi. Nú er árásarhneigðin orðin yfirgengileg.
Því má í fyrsta lagi slá föstu að öll meiri háttar stríðsátök samtímans eru runnin undan rifjum heimsdrottnarans eina.
Í öðru lagi: eftir að Kína, síðan einnig Rússland, Indland og fleiri lönd í hinu Hnattræna Suðri stigu fram sem „keppinautar“ heimsdrottnarans – þ.e.a.s. bandarískt stýrða Vestursins/Norðursins – og fóru að boða „fjölpóla“ heimsskipan varð það yfirskyggjandi aðalatriði í allri hernaðaraðferð heimsdrottnarans að stöðva Kína og að hindra framvöxt fjölpólunarinnar. Viðfangsefnið varð sem sé: stríð gegn fjölpóla heimi.
Í þágu þess stríðs þurfti m.a. að undirsetja bandamennina, þjappa þeim saman og herða á þeim tökin, mynda blokk, gera heimsvaldakerfið heildstæðara, gera það straumlínulagað.
Prashad heldur áfram að greina helstu hreyfiöfl hinna hnattrænu átaka sem svo:
Bandaríkin eru áfram hið miðlæga drottinvald innan sameinaðrar heimsvaldablokkar sem við lýsum sem hinu Hnattræna Norðri [hugtakið sem Prashad notar er nálægt því sem annars staðar kallast Vestrið]. „Aukið NATO“ (þ.e.a.s. NATO + Japan, Ástralía, Nýja Sjáland og Ísrael) hefur beygt undir sig önnur vestræn ríki. Þetta bandalag undir forystu Bandaríkjanna leitast við að halda aftur af öllu því sem það lítur á sem áskoranir við yfirráð sín yfir hinu Hnattræna Suðri [var áður nefnt Þriðji heimurinn] – svo sem uppgangur Kína.
Þessi blokk óðaheimsvaldastefnu stefnir að því að viðhalda nýnýlenduyfirráðum sínum yfir hinu Hnattræna Suðri og tryggja hernaðarleg yfirráð sín yfir rísandi stórveldum í Evrasíu (Kína og Rússlandi). Með „auknu NATO“ og yfirráðum sínum yfir helstu fjármálastofnunum eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) leitast Bandaríkin við að bæla niður fullveldi þjóða og standa gegn hvers kyns áskorunum við hagsmuni sína – eins og sést í stríðinu í Úkraínu og þjóðarmorðinu á Gaza.
Fyrir óðaheimsvalda-blokkina undir forystu Bandaríkjanna er brýnasta forgangsmál að snúa tilbaka umskiptunum sem urðu þegar þungamiðja heimshagkerfisins færist frá Norður-Atlantshafi til Asíu. Rannsóknir okkar sýna fram á hvernig Hnattræna Suðrið – undir forystu Kína og annarra nýþróaðra ríkja – hefur farið fram úr Hnattræna Norðrinu í vergri landsframleiðslu (VLF) miðað við kaupmáttarjöfnuð (KMJ) og er því raunveruleg ógn við efnahagslegt forræði Vesturlanda.
Þetta núverandi stig heimsvaldastefnunnar eykur mjög líkurnar á beinum átökum af hennar völdum, og ógnar stöðugleika í heiminum. Með hnignandi efnahagslegu og pólitísku valdi Bandaríkjanna hafa beint hervald og fjölþátta-aðferðir orðið aðaláherslur Washingtonvaldsins í viðleitni þess að viðhalda hinum hnattrænu áhrifum sínum.
Minna má á álit Leníns 1916, sem nefnt var í upphafi greinaflokksins. Álit hans var þetta: Það sem framkallað hafði stríðið 1914 var „MISRÆMI“ MILLI EFNAHAGSLEGRAR GETU HELSTU HEIMSVELDANNA ANNARS VEGAR OG ÁHRIFASVÆÐA ÞEIRRA HINS VEGAR. Alveg sömu þættir voru aftur að verki árið 1939.
Staðan í dag er hreint ekki ólík þessu. Augljóslega hefur þróun framleiðslaflanna verið miklu hraðari hjá hinum nýþróuðu ríkjum og framvaxandi keppinautum. En gömlu heimsveldin, og heimsdrottnarinn í Washington sérstaklega, hafa enn náð að hindra að áhrifasvæði þróist í samræmi við það. Helsti munurinn miðað við 1914 og 1939 er að þá var það hið vaxandi veldi, „hungraða“ veldið – veldið sem hafði meiri efnahagsgetu en áhrifasvæði – sem vildi „laga misræmið“ með hernaðarlegum aðferðum. Í dag er það hins vegar öfugt: það er hnignandi veldið, veldið sem hefur minni efnahagsgetu en áhrifasvæði, sem reynir kappsamlegast að „varðveita misræmið“ með hernaðarlegum aðferðum.
Imperíalistinn er aðeins einn
Prashad skilgreinir heimsvaldakerfið þannig að vestrænn imperíalismi myndi eina heild, eina heildstæða blokk, efnahagslega og hernaðarlega blokk, sem skipulögð er í byggingar eins og G7, NATO og Níu augun (vestræna samvirka leyniþjónustunetið) – en hefur samt ekki eitt sameiginlegt ríkisvald eða stjórnkerfi.
Lönd imperíalsimans, sem Prashad nefnir einfaldlega Hnattræna Norðrið, mynda valdapýramída eða blokk nokkurra hringja út frá kjarna. Toppur pýramídans/kjarni blokkarinnar eru Bandaríkin með sitt hernaðarkerfi, standandi vörð um hagsmuni bandarísks einokunarauðvalds. Utan í kjarnanum standa einnig Bretland og enskumælandi landnámsríki þess (auk Ísraels) sem og Vestur-Evrópa/elsti kjarninn í ESB. Smærri ríki Vestur-Evrópu auk Japans koma næst. Neðst í þessum valdapýramída eru fyrrum kommúnistaríki AusturEvrópu.
Eins og fram hefur komið er innri gerð og ytri staða Rússlands eða Kína í auðvaldskerfinu í meginatriðum ekki staða heimsvaldasinna. Og enn síður staða annarra ríkja í Hnattræna Suðrinu. Imperíalistinn er orðinn einn, hann myndar heild og hann myndar blokk, þó svo að sjáist í henni sprungur.
Strategían eftir 2008: að ENDURHEIMTA einpóla skipan
Hið mikla grundvallarverkefni heimsvaldastefnunnar og heimsdrottnarans, eftir 1990 var að hindra að fram kæmu keppinautar, að fyrirbyggja fjölpólun. Eftir ca. 2008 var ákveðin fjölpólun engu að síður orðin stareynd. Þá var strategíunni lítillega breytt: og síðan hefur hún gengið út á að endurheimta hina einpóla heimsskipan.
Viðbrögðin við verðandi breytingum eru sem sé þau að neita að horfast í augu við eigin efnahagslega stöðnun og efnahagslega hnignun. Heimsvaldastefnan og heimsdrottnarinn eiga ennþá allmörg sterk trompspil á hendi sem mögulega gætu bætt þá hnignun upp. Ennþá er gamla heimsveldið ríkjandi í alþjóðlegum (pólitískum og diplómatískum) valdastofnunum, einnig í yfirþjóðlegum fjármálaheimi. Og enn hefur það mikla yfirburðastöðu í upplýsingahernaðinum. En númer eitt: Ennþá hefur það mesta hernaðargetu. Hernaðargetan er trompspilið sem öllu öðru fremur á að bæta upp hina efnahagslegu hnignun.
Leyniþjónusta heimsveldisins í bland við fjölmiðlaherferðir og beint hernaðarofbeldi stendur fyrir valdaskiptaagerðum. Bara á þessu ári 2026 hefur heimsveldið framkvæmt tvær „afhöfðunaraðgerðir“ gegn óþægum stjórnvöldum, annað hvort með ráni á æðsta leiðtoga viðkomandi lands (Venesúela) eða einfaldlega með fjöldadrápi á sitjandi stjórnvöldum (Íran).
Í áðurnefndu stríði gegn fjölpóla heimi mynduðust fljólega nokkrir „heitir reitir“ sem eru strategískt mikilvægari en aðrir og þar sem átök fara fram eða hanga yfir. Sem stendur eru „heitu reitirnir“ þrír: Úkraína, Persaflói, Suður-Kínahaf. Það er af því Rússland, Íran og Kína eru þau helstu ríki sem nú um stundir láta ekki setja sig undir heimsdrottnarann, og leiða í stað þess andstöðu gegn honum á heimsvísu. Auk þess eru áherslur heimsdrottnarans á Evrasíu, í samræmi við þá gamalkunnu geostrategísku sýn Mackinders og Brzezinskis, að yfirráðin yfir Evrasíu, „Hjartalandinu“ væru grundvallarspurningin varðandi heimsyfirráð. Við skulum þá fara skjótlega yfir hina þrjá „heitu reiti“ heimsvaldastefnu og andheimsvaldabaráttu nú um stundir.
„Heitur reitur“ – Rússland/Úkraína
Í bók sinni „Taflborðið mikla“ (The Grand Chessboard, 1997) útskýrði Brzezinski hvernig Úkraína væri „geopólitískur hverfipunktur“ á taflborðinu/Hjartalandinu – Evrasíu. Hann hélt því þar ítrekað fram að án Úkraínu „hætti Rússland að vera evrasískt stórveldi“. Og hann sagði líka: „ef hin nýja Evrópa á að vera áfram geópólitískur hluti af hinu „evróatlantíska“ rými þá er útvíkkun NATO höfuðatriði.“ Allar ríkisstjórnir beggja flokka í Washington hafa haldið rígfast við þá stefnu síðan.
Eftir að NATO hafði þanið sig til austurs í þremur skömmtum hófst þetta nýja tímabil (2008-2026) á leiðtogafundi NATO í Búkarest árið 2008, þar sem samþykkt var, eftir þrýsting frá George W. Bush Bandaríkjaforseta, að Úkraína og Georgía „munu verða aðilar að NATO.“ Mánuði fyrr hafði bandaríski sendiherrann í Moskvu þó skrifað stjórnvöldum í Washington að innganga Úkraínu í NATO væri „skærast allra rauðra strika“ fyrir Rússa og myndi líklega leiða til hernaðaríhlutunar þeirra í Austur-Úkraínu. Vel að merkja: óskin um NATO-aðild kom alls ekki frá Úkraínu, hlutfallslega lítill stuðningur var við hana þar um þær mundir. Hún kom frá Bandaríkjunum, og bandarísk stjórnvöld vissu vel að það var vísasta leiðin til ófriðar.
Á þeim árum sýndi hluti evrópskrar elítu ennþá svolítinn vott af sjálfstæði í varnarmálum. Frakkland og Þýskaland leiddu andstöðu gegn þessari stefnu og töldu hana allt of ögrandi fyrir Rússland. Það eina sem sú andstaða náði þó að hindra var að umsóknin væri strax sett í tímamarkað aðildarferli (sjá hér).
Í næstu forsetakosningum í Úkraínu, í janúar 2010, sigraði Viktor Janúkóvitsj sem boðaði hlutleysi landsins. Það samræmdist ekki hinum bandarísku áformum. Janúkóvitsj var bolað frá völdum í valdaráni 2014, sem var stýrt og kostað af CIA en framkvæmt af hægriöfgahópum í Kiev öðrum fremur.
Með þessu höfðu Washington og NATO komið sér upp staðgengli, þ.e.a.s. harkalega andrússneskum stjórnvöldum í Kiev, sem óðara hófu stríð við rússneskumælandi austurhéruð landsins, sem brátt lýstu yfir sjálfstjórn. Á móti yfirtóku Rússar Krím (eftir þjóðaratkvæðagreiðslu) til að missa ekki einu suður-flotastöð sína til NATO. Hernaðaruppbygging NATO í Úkraínu hófst.
Í fyrstu voru Evrópulönd, ekki síst Þýskaland, treg til að taka þátt í efnahagsstríðinu gegn Rússlandi, sem var auðskilið í ljósi mikils og vaxandi efnahags- og orkumálasamstarfs milli Rússlands og Þýskalands. Þáverandi varaforset Joe Biden, fór yfir það í ræðu 3. október 2014 hvernig Bandaríkin höfðu þá beygt Evrópu undir vilja sinn. Enda er það annar megintilgangur Bandaríkjanna með því að koma á stríði í Úkraínu að skera Rússland frá Evrópu og hindra samvinnu og viðskipti milli Rússlands og Þýskalands.
Eftir átt ára borgarastríð í Donbass kröfðust Rússar viðræðna og öryggistrygginga. Þeir settu fram kröfur um hlutleysi og „ekkert NATO“ í Úkraínu, og hótuðu innrás að öðrum kosti. Þessu höfnuðu Bandaríkin og NATO algjörlega, vitandi að viðbrögð Rússa yrðu hörð og líklega innrás. Sem var það sem Washington-menn óskuðu eftir.
Stefna Bandaríkjanna á stríð hafði líka birst í skýrslu/áætlun fyrir bandarísk hermálayfirvöld frá 2019, unninni af hugveitunni RAND-corporation: „Extending Russia – Competing from Advantageous Ground “ (Að teygja Rúsland – keppt á hagstæðum grunni). RAND er líklega mikilvægasta hernaðarlega hugveita Bandaríkjanna og leggur fram áætlanir fyrir Bandaríkjaher. Áætlunin gekk út á að skapa „álag á her og hagkerfi Rússlands eða pólitíska stöðu stjórnvalda, heima sem utan lands… og láta Rússland yfirteygja sig hernaðarlega eða efnahagslega og láta stjórnvöld þar tapa virðingu og áliti heimafyrir og alþjóðlega”, eins og þar stendur.
Af „geopólitískum aðgerðum“ í RAND-áætluninni sem eiga að „yfirteygja og veikja“ Rússland er efst á blaði og mikilvægust sú að kynda undir borgarastríðinu í Úkraínu: „Að sjá Úkraínu fyrir hernaðaraðstoð.” Síðan er útskýrt hvernig vopnaaðstoð við Úkraínu muni flækja Rússa meira í deilunni, sem væri mjög æskilegt:
getur leitt til þess að Rússland auki beina þátttöku í átökunum… Það að auka bandaríska aðstoð við Úkraínu, þ.á.m. hernaðaraðstoð, mundi væntanlega auka kostnað Rússlands, bæði í blóði og peningum, við það að reyna að halda Donbass-héruðum.
Margar aðrar aðgerðir eru nefndar, s.s. að „hindra olíuútflutning“ Rússa, og Nord Stream leiðslan nefnd í því sambandi. Áætlun þessi er sem sé frá 2019, fimm árum áður en borgarastríðið hófst en þremur árum fyrir innrás Rússa, svo segja má að sú innrás hafi verið pöntuð.
Chas W. Freeman starfaði lengi í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna, m.a. sem aðstoðarvarnarmálaráðherra undir Bill Clinton. Hann útskýrir að frasinn um að innrás Rússa hafi verið „án tilefnis“ sé ein „grófasta og hættulegasta lygi okkar tíma.“
Á þessu tímabili [eftir 2014] vopnaði NATO her Úkraínu og þjálfaði hann, og þegar Rússar gerðu innrásina í febrúar 2022 mættu þeir úkraínskum her upp á 780.000 manns, þeim stærsta í Evrópu fyrir utan þann tyrkneska, stærri en herir Bretlands, Frakklands og Þýskalands samanlagðir, sem var þjálfaður samkvæmt gæðakröfum NATO. Og hvar var sá her í febrúar 2022? Hann var staddur við landamæri hinna rússneskumælandi yfirlýstu Alþýðulýðvelda í austurhluta Úkraínu. Svo að rússneska innrásin var ekki bara viðbragð við höfnun Vestursins á öllum viðræðum, hún var líka viðbragð við yfirvofandi árás í rússneskumælandi héruðin.
Þegar Pútín lét loks ögra sér til innrásar 2022 bjó Washington strax til þá frásögn að innrásin væri „án tilefnis“. Joe Biden sagði þetta vera hreina heimsvaldastefnu: innrásin „snýst um nakta árásarhneigð, um löngun Pútíns í heimsveldi“!
Úkraínustríðið er heimsvaldastríð, rétt er það, en fyrst og fremst heimsvaldastríð af hálfu Bandaríkjanna. Segja má að stríðið hafi hafist 1989, með falli Berlínamúrsins og Járntjaldsins, sem kalt stríð, varð svo að heitu stríði 2014 og magnaðist í bál árið 2022. Markmið stríðsins er annars vegar að veikja og sigra Rússland og hins vegar að skera Evrópulönd frá Rússlandi.
Tal Donalds Trums um frið og samninga við Rússa er leikaraskapur með tvöfaldan megintilgang: a) að kaupa Úkraínu og NATO tíma til að endurbyggja og skipuleggja heraflann fyrir framhaldsstríð (líkt og í Minsk-samningum eða samkomulagi í Anchorage) og b) fá Evrópu til að „stíga fram“, svo Bandaríkin geti í meiri mæli útvistað Úkraínustríðinu þangað – af því þau hafa fleiri brýnum hnöppum að hneppa í stríðinu um heimsyfirráðin. Þetta hefur skilað árangri: Evrópulönd NATO „stigu fram“. En þau stíga fram sem fullkomin lénsríki lénsherrans í vestri. Úkraína á áfram að leggja til kjötið í hakkavélina, en ef evrópsku lénsmennirnir dragast inn í bein átök munu einnig þeir berjast með Bandarískum vopnum og undir bandarískri yfirstjórn. Þannig virkar Úkraínustríðið eins og Washington ætlar því að virka.
„Heitur reitur“ – Íran/Miðausturlönd.
Miðausturlönd höfðu mikinn geopólitískan forgang á stjórnarárum George W. Bush (2001-2009) eins og komið hefur fram. Hin svæðisbundnu yfirráð í Miðausturlöndum voru lykilatriði í nýju strategíunni frá 1990 – sem gekk út á heimsyfirráð. Wesley Clark upplýsti heiminn um áformuð „sjö stríð á fimm árum“ í þeim heimshluta. Íran var síðast í röð fórnarlambanna – og stóri vinningurinn.
Ísrael var og er í lykilhlutverki sem staðgengill Bandarikjanna á þessu strategíska lykilsvæði. Það eru aðeins Bandaríkin sem gera árásarhegðun síonistaríkisins mögulega, halda því uppi og vopna það. Jafnframt útvega Bandaríkin sér gegnum hinn herskáa staðgengil sinn „trúverðuga afneitun“ og „trúverðuga afsökun“ í verstu voðaverkunum sem beita þarf – og geta þá kennt Ísrael um.
Að öðru leyti er meginaðferð Bandaríkjanna til að tryggja vald sitt og umsvif í Miðausturlöndum að blása á glæður ófriðar og átaka þjóða og trúarhópa sem allra mest – og deila og drottna á öllu því svæði – sem er klassísk hernaðaraðferð allra heimsvelda.
Þegar leið frá Kalda stríðsárunum breyttust áherslur Bandaríkjanna nokkuð í því að deila og drottna. Áður hafði áherslan legið á það að „hreinsa upp gömlu skjólstæðingsríki Sovétríkjanna“ eins og Wolfowitz orðaði það, en eftir aldamót færðist áherslan yfir á baráttuna við strategíska andstæðinginn Íran og bandamenn hans svo sem Sýrland. Vegna áhrifa Írans gekk aðferðin ekki síst út á það að draga taum súnní í öllum átökum við sjía. Á þessa áherslubreytingu benti Seymour Hersh í merkri grein frá 2007, og hann bætti við:
Hliðarafurð þeirrar starfsemi hefur verið það að styrkja súnnííslamska öfgahópa sem reka herskáan íslamisma, eru andstæðingar Ameríku en hliðhollir Al Kaída.
Íslamska lýðveldið Íran varð smám saman helsta bólverk andstöðunnar gegn heimsvaldastefnunni í Miðausturlöndum, sem er hliðstætt hlutverki Víetnams á sínum tíma (fyrir 1979 var Íran ásamt Ísrael nánasti bandamaður Bandaríkjanna í Miðausturlöndum, t.d. alstærsti kaupandi bandarískra vopna í heiminum). Auk þess að reka vestræna auðhringa út úr íranskri olíuvinnslu gerðist Íran eftir byltingu leiðandi í andspyrnunni gegn bandarísku heimsvaldastefnunni, og leiðandi í því sem smám saman varð að Andspyrnuöxullinn í Miðausturlöndum, ekki síst í stuðningnum við Palestínu. Hin gríðarlega herstöðvauppbygging Bandaríkjanna í Miðausturlöndum u.þ.b. 1985 – 2005 beindist gegn Íran/írönsku byltingunni númer eitt.
Þessi barátta heimsveldisins/Vestursins gegn Íran með bandamönnum hefur síðan geisað, opinber sem leynileg, efnahagsleg sem hernaðarleg. Beiting súnnííslamskra öfgahópa var hvergi meiri en í Sýrlandi. Og Bandaríkin – ásamt ESB – beita Íran sem kunnugt er grimmasta efnahags-umsátri í formi refsiaðgerða.
Árið 2009 var stefnuplagg samið fyrir Pentagon, strategía framtíðarátaka við Íran, samið af Brookings Institution (hugveita fjámögnuð af bandaríska ríkinu og nokkrum stærstu fjármálafyrirtækjum, hermálageiranum, einkahringum og tæknirisum, og endurspeglar þess vegna þyngstu hagsmunina vestur þar, í Washington og Wall Street. Skýrslan nefndist – Which Path to Persia? Options for a New American Strategy Toward Iran:
Í skýrslunni (155 bls alls) er fjallað um margvíslegar aðferðir sem beita megi Íran til að kollvarpa stjórninni (allar aðferðirnar miða að því) og endurreisa leppstjórn. Það er meira en sláandi hversu margar af aðferðunum sem ráðlagðar voru 2009 hafa síðan verið notaðar og framkvæmdar ein af annarri – sem sýnir að þetta var grundvallar-stefnuplagg. Rauði þráður skýrslunnar er að “leiðin til Persíu” sé valdaskiptaaðgerð og/eða stríð.
Í fyrsta hluta plaggsins sem heitir „Diplomatic options“ er mælt með því að semja við Írani um kjarnorkuáætlun þeirra (gegn afnámi refsiaðgerða) en kenna þeim síðan um brigðir og brot á samningnum og geta þá aftur sagt samningnum upp og notað það sem yfirvarp og tilefni hernaðaraðgerða. „Fyrir þá sem kjósa valdaskipti eða beitingu hervalds er mög ráðlegt að prófa þessa aðferð fyrst“, stendur þar (bls. 19). Þessu var fylgt skref fyrir skref, Obamastjórnin samdi við Íran um kjarnorkuáætlunina 2015 (JCPOA-samningurinn) en Trumpstjórn sagði honum síðan upp 2018 og kenndi Íran um brigðirnar. Í stefnuplagginu er sagt berum orðum að þetta sé hugsað sem gildra til að réttlæta stríð við Íran, ekki aðferð til að forðast stríð.
Annar hluti kallast „Hernaðaraðgerðir“ (Military options). Þar stendur valið um „Lofthernað“ og „Innrás“, báðir kostir tíundaðir ítarlega, og ekki síður er síðasti kosturinn útlistaður: „Leave it to Bibi. Allowing or Encouraging Israeli Military strike“ (Láta Bíbí um það. Leyfa eða hvetja Ísrael til árásar). Sem sagt að nota Ísrael til þess að koma af stað stríði við Íran, sem Bandaríkin myndu síðan dragast inn í „nauðug“ (byggir á því að stríð við Íran er óvinsælt í Bandaríkjum en vimsælt í Ísrael). Í slíku stríði muni Bandaríkin leita sátta og koma fram sem málamiðlari! Þessum fyrirskriftum hefur í öllum megindráttum verið fylgt.
Oft er í plagginu talað um að framkvæma eitthvað það sem vakið geti hörð viðbrögð og hefndaraðgerðir Írana – helst „ofviðbrögð“, með því móti sé auðveldara að svara hernaðarlega. Í því samhengi má til dæmis skoða dráp Bandaríkjahers á æðsta foringja Byltingarvarðarins og næstvaldamesta manni Írans, Qasem Soleimani, í bandarískri árás í Bagdad 2020 og dráp margra foringja Byltingarvarðarins í árás á Íranska konsúlatið i Damaskus 2024 (ísrelski staðgengillinn fenginn til þess verks). Búist var við að slíkar ögrunaraðgerir myndu egna Íran til hefndaraðgerða en þær urðu yfirvegaðar og minni en vonast var til.
Samanburður við Úkraínu er eðlilegur þar sem ögrunaraðgerðir í Donbass, auk ögrandi útþenslu NATO, ögruðu Rússum loks til árásar.
Síðasti hluti plaggsins Which Path to Persia? nefnist „Valdaskiptaaðgerðir“ og fjallar um stuðning við innri ólgu og uppþot í Íran sem búist er við að klerkastjórnin berji niður af hörku, þannig að hún liggi þá vel við höggi á eftir. Og Trumpstjórnin í samvinnu við Ísrael gerði einmitt valdaskiptatilraun í fjórum þáttum í Íran, með hápunkt í janúar í ár. Mjög er það eftir uppskriftinni sem lýst er í stefnuplagginu frá 2009. Sjá hér.
Undanfarið eitt ár hafa Bandaríkin (og Ísrael) hafið tvö árásarstríðstríð gegn Íran: í Tólf daga stríðinu í júní 2025 var Ísrael í aðalhlutverki en Bandaríkin sjálf í Operation Epic Fury frá því í febrúar 2026 (sem Íranir nefna Ramadamstríðið. Helstu þáttum plaggsins Which Path to Persia? hefur verið fylgt: „Valdaskipti“ reynd, með afhöfðunaraðferð, reynt að „láta Bíbí um það“, síðan kom „lofthernaður“ Bandaríkjanna sjálfra. „Innrás“ er sífellt áformuð en ekki enn fundist heppilegar aðsdtæður fyrir hana.
Strategía Bandaríkjanna í Miðausturlöndum/Persaflóa er sem sagt óbreytt frá plagginu Which Path to Persia? Stríð Bandaríkjanna við Íran snýst enn sem áður um að reyna að slá út þennan strategíska keppinaut og vinna full svæðisbundin yfirráð – sem er meginhlekkur í stríðinu gegn fjölpólun, og fyrir heimsyfirráðum.
Hin yfirlýstu stríðsmarkmið eru hins vegar breytilegri: fyrst voru þau valdaskipti í Íran, næst stöðvun kjarnorkuáætlunar Írana og loks siglingafrelsi. Taktíkin er ennþá breytilegri. Þar skiptast á beinar hernaðarárásir, hótanir um að „afmá siðmenningu“ og svo samningaviðræður.
En það er þó eintóm froða. Glópar einir trúa að Bandaríkin meini alvöru með samningaviðræðum. Diplómatí fyrir Bandaríkin er aðeins truflunartaktík til að vinna tíma, til að teyma andstæðinginn á asnaeyrum, hvort sem það er Rússland eða Íran, til að geta endurskipulagt sig og hafið árásir aðnýju.
En stríðsgæfan? Sjálft stríðið gengur illa fyrir heimsvaldasinna. Íran svaraði árásunum með því að yfirtaka stjórn á siglingum um Hormúzsund, og í öðru lagi með því að gera fjölda Bandarískra herstöðva við flóann ónothæfar með flugskeytaárásum. Hernaður Írana er bæði harkalegri og háþróaðri en heimurinn bjóst við. Og Íran stefnir nú á það fullum fetum að ýta Bandaríkjunum út úr Persaflóa, varanlega. Það gerir Íran í samstillingu við aðra í Andspyrnuöxlinum (sem eru Jemena, andspyrnan í Írak, Hizbollah, Hamas). Hinum megin standa einræðis-leppstjórnirnar á svæðinu sem hýsa bandaríska heri. Af þeim hefur Sádi-Arabía ein tekið virkan þátt í stríðinu með árás á Jemen. Því hefur Jemen strax svarað með krók á móti bragði. Yfirstandandi lota hjá Íran beinist einkum að bandarískum hernaðarlegum skotmörkum. Önnur lota gæti mögulega beinst að bandarísku leppríkjunum á svæðinu, jafnvel innviðum þeirra – og Ísrael.
„Heitur reitur“ – Kínahaf/Kyrrahafssvæðið
Barack Obama ákvað „snúning til Asíu“ (Pivot to Asia) sem meiri háttar stefnubreytingu í bandarískri utanríkispólitík árið 2011. Sem þýddi að snúa yrði fókusnum umtalsvert frá Miðausturlöndum og Evrópu og beina honum að Indó-Kyrrahafssvæðinu og Kína.
Iðnaðarveldið Kína hefur á þessari öld orðið langstærsti vipskiptaaðili landanna í suðaustanverðri Asíu. Það hefur skapað grundvöll fyrir blómlegt efnahagslíf í heimshlutanum, efnahagslíf í örri framför. Við það geta Bandaríkin hvorki ráðið né keppt á viðskiptagrunni. Þau hafa ekki önnur ráð betri en reyna að að trufla þau viðskipti sem mest þau mega, búa til staðgengilsríki (í stíl Úkraínu) úr skjólstæðingsríkjum sínum umhverfis Kína, ekki síst Filipseyjum, Japan, S-Kóreu og eylendunni Taiwan, og treysta enn sem áður á hernaðartrompið.
Spurður um fjölda bandarískra herstöðva umhverfis Kína svarar Google: „Um það bil 300–400 af alls ca. 750–800 bandarískum herstöðvum utanlands umkringja Kína í því sem almennt er kallað „strategísk unkringing“ eða „fyrsta og önnur eyjakeðjan.““ Það þýðir að um helmingur bandarískra utanlands-herstöðva miðar á Kína.
Ennfremur hafa CIA og „mannréttindsamtök“ eins og m.a. National Endowment for Democracy (NED) og tilheyrandi fjölmiðlar og vefsíður skipulagt og kostað fjölmargar valdaskiptatilraunir á svæðinu. Valdaskiptiatilraunir nefnast „litabyltingar“ ef þær ganga upp, að öðrum kosti er þeim ætlað að valda upplausn, jafnvel að eyðileggja tæta sundur lönd, líkt og Líbía eða Sýrland voru eyðilögð. Á undaförnum árum hafa verið gerðar valdaskiptatilraunir, aðallega að undirlagi CIA, svo sem í Hong Kong 2019, Myanmar 2020, í Thailandi, Nepal og Bangaladesh, allar árið 2025 – og ekki síst í Indónesíu árin 2025 og 2026. Aðferðin er að notfæra sér landamæradeilur og önnur misklíðaefni, oftast gagnvart Kína, til að skapa ólgu í viðkomandi löndum. Allt er þetta á jaðarsvæðum Kína og minnir sterklega á tilsvarandi vinnubrögð á jaðarsvæðum Rússlands (svo sem í Úkraínu, Georgíu, Hvítarússlandi, Armeníu…). Gamall landamæranúningur Kína við Indland er auðvitað líka átakaefni sem Bandaríkin hafa lengi alið á og munu nýta eins og framast þau geta.
Í áróðrinum gegn Rússlandi, og að nokkru leyti gegn Íran, hafa Bandaríkin dulbúið yfirráðastefnu sína sem varnarviðbrögð við útþenslu- og árásarstefnu óvinarins. Það er erfitt að beita slíkum áróðri gegn Kína sem ekki hefur verið í stríði við nokkurt land í hálfa öld, svo að gegn Kína þarf að ganga aðeins hreinna til verks og viðurkenna að einfaldlega um stórveldapólitik og áhrifasvæði sé að tefla, baráttu gegn keppinaut („peer compeditor“). Það að hindra að fram kæmu keppinautar við Bandaríkin var nákvæmlega það sem Wolfowitz-kenningin gekk út á. „Fyrsta verkefni okkar er að koma í veg fyrir að til verði nokkur hnattrænn keppinautur“, sagði skýrslan. En nú blasir Kína við sem ógnvænlegur keppinautur. Í höfuðstöðvum NATO í Brussel ávarpaði Pete Heggseth svokallaðan. „Samskiptahóp um varnir Úkraínu“ í febrúar 2025, og mælti: Sjá ræðuna hér.
Bandaríkin standa frammi fyrir ógn sem steðjar að heimalandi okkar. Við verðum að – og erum að – leggja áherslu á öryggi landamæra okkar. Við stöndum frammi fyrir jafningja-keppinaut [peer compeditor] frá hinu kommúníska Kína, sem hefur getu og ásetning til að ógna heimalandi okkar og kjarna-þjóðarhagsmunum okkar á Kyrrahafssvæðinu. Bandaríkin forgangsraða nú í þágu þess að aftra stríði við Kína á Kyrrahafssvæðinu, viðurkenna þann veruleika að skortur er fyrir hendi og forgangsraða þess vegna öllum gögnum og gæðum til að tryggja að fælingarstefnan bregðist ekki. Fælingin má ekki bila, okkar allra vegna.
Á sama tíma og Bandaríkin setja í forgang að takast á við þær ógnir verða bandamenn þeirra að taka á sig forustuhlutverk. Í sameiningu getum við komið á verkaskiptingu… í Evrópu annars vegar og Kyrrahafssvæðinu hins vegar.
2% [af vergri landsframleiðslu til varnarmála] duga ekki. Trump forseti hefur kallað eftir 5%.
Þetta var herkvöð. Heggseth talaði að vísu um „fælingu“, deterrence, um það að „aftra stríði“ en meinti auðvitað hið gagnstæða, að koma á styrjöldum og ófriði. Helst af öllu þarf að ögra Kína til árásar á einhverjum stað, í líkingu við árás Pútins á Úkraínu. Einmitt það atriði hefur hefur til þessa gengið illa. Það hefur almennt gengið illa að efna til ýfinga og illdeilna við Kína. Best gengur það þó á Filipseyjum.
Ein mikilvæg hernaðaraferð Bandaríkjanna til að einangra Kína er margþáttað stríð til að trufla og skera á orkuöflun Kína. Ekki síst með bandarísku áhrifavaldi yfir siglingaleiðum, einkum á Malakka-sundi en einnig Hormúzsundi og Rauða hafi að stöðva flæðið frá Miðausturlöndum. Líklega er nauðsynlegt að koma af stað styrjöldum til að þjóna því markmiði.
Bandaríkjunum liggur á: Þau vita að Kína siglir fram úr þeim efnahagslega og sýnist brátt geta gert það hernaðarlega líka. Vita þá líka að möguleiki þeirra til að viðhalda hnattrænni yfirráðastöðu er tímatakmarkaður. Hið ofurherskáa háttarlag Bandaríkjanna skýrist nefnilega helst af því að þau eru að falla á tíma.
Nokkrar ályktanir
Megindrættir í myndinni fyrir þetta tímabil (2008–2006) eru eftirfarandi:
– Imperíalismi okkar daga er samþjappaður í eina efnahagslega og hernaðarlega blokk undir bandarísku foræði.
– Vestrænn kapítalismi samtímans er hnignandi fjármálavætt sníkju- og afætukerfi.
– Hlutdeild heimsvaldablokkarinnar í landsframleiðslu á heimsvísu lækkar ört.
– Svar heimsvaldastefnunnar við hnignuninni er fyrst og fremst hernaðarstefna, endar liggja yfirburðir heimsvaldablokkarinnar ennþá helst í hernaðarlegum styrk. Heimsvaldastefnan hefur aldrei sýnt aðra eins árásarhneigð og nú um stundir, alla vega ekki frá tíma Hitlers-Þýskalands.
– „Her-iðnaðar samsteypan, sem nú inniheldur Silicon Valley [kallast gjarnan digital-military-industrial complex] ræður bandarískri utanríkisstefnu þvert á vilja bandarísku þjóðarinnar. Markmiðið er bandarískt forræði/yfirráð í merkingunni óskoraður auður, vald og forréttindi bandarískrar elítu, án taumhalds frá neinum þjóðum eða samtökum þjóða.“ (tilvitnun í Jeffrey Sachs júlí 2026)
– Heimsvaldastefna þýðir stríð.
– Heimsvaldasinnar hafa upplifað dvínandi stríðsgæfu á yfirstandandi tímabili. Nægir að nefna Afganistan, Úkraínu og Íran. Stríðin í Úkraínu og Íran eru sögulega örlagarík, þau að því leyti ólík fyrri stríðum heimsveldisins (Júgóslavíu, Afganistan, Írak, Líbíu…) að heimsveldið ræðast þar ekki gegn vanmáttugum fórnarlömbum heldur stórveldum með vel búnum herjum og vel samstæðum og skipulögðum þjóðum að baki. Í hnattrænni hernaðarstefnu sinni yfirteygir heimsvaldastefnan sig, og er að því núna.
Endurteknir hernaðrlegir ósigrar nægja samt ekki til að stríðsvélin hægi á sér eða bakki að sinni, eða að Bandaríkin semji um frið. Friður er óhugsandi fyrir heimsdrottnarann, af því sérhver friður fæli það í að Bandaríkin létu af stefnu sinni um heimsyfirráð.
Merkileg ósáttfýsi skýrist af því að strategistar heimsveldisins sjá og skilja að stríð þeirra eru við fjölpóla heim. Samanber það að hörðustu stríðin nú eru háð við tvo af öflugustu fulltrúum fjölpóla heims, Rússland og Íran. Heimsyfirráðasinnar meta það svo að þetta séu tilvistarstríð fyrir heimsvaldakerfið sjálft.
Endurteknir ósigrar draga máttinn úr tigrisdýrinu smám saman. Og þeir flýta því líka að bandaríska þjóðin endurheimti vald sitt frá Her-iðnaðar samsteypunni. Þá fyrst er hægt að vænta friðsamlegri tíma.









