Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“
—
Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. Í greininni er viðtal við kúbverskan hermann sem gætti Nicolás Maduro og lýsir því hvernig venesúelskir hermenn sem áttu að sinna gæslunni með þeim, hafi yfirgefið þá á meðan hann og félagar hans reyndu af hugrekki að verjast árásinni. Þetta segir blaðamaðurinn Max Blumenthal á Twitter/X í gær.
Að sögn Blumenthals hafa stjórnarerindrekar Venesúela ráðist harkalega að Petro, en á sama tíma steinþagað um frásagnir Trumps, sem hafi gortað sig af því að láta ræna Maduro 3. janúar. Hér á eftir fer íslensk þýðing viðtalsinis við kúbverska hermanninn.
—
Yohandri Torres var í lífvarðasveit Nicolás Maduro þegar bandarískar þyrlur lentu í höfuðborg Venesúela. Þegar hann tjáði sig í fyrsta sinn við minningarathöfn um 32 fallna félaga sína sagði hann: „Við ollum þeim meira mannfalli en þeir viðurkenna.“
Yohandri Varona Torres er kúbverskur hermaður. Þann 3. janúar 2026, þegar Bandaríkin réðust á Venesúela og rændu forseta landsins, hafði hann aðeins þjónað í lífvarðasveit Nicolás Maduro í tvo mánuði og sex daga. Með þjónustu sinni hélt hann í heiðri hefð alþjóðahyggju í heimalandinu sem Fidel Castro og kúbanska byltingarstjórnin höfðu beitt sér fyrir.
Föstudaginn 16. janúar tók hann þátt í minningarathöfn um 32 landa sína sem féllu í innrás Bandaríkjahers. Athöfnin fór fram í viðhafnarsalnum Nicolás Guillén í heimaborg hans, Camagüey. Hann var fáorður, en tókst þó að lýsa atburðarásinni í skotbardaganum sem vakti óhug um heim allan.
Á miðnætti hafði hann tekið sér stöðu; komið var að hans sex klukkustunda vakt. Þótt allt virtist með kyrrum kjörum vissi Yohandri að mesta hættan fælist í því að slaka á verðinum. Þess vegna var hann það vel á verði að jaðraði við óhóflega varfærni.
Um klukkan tvö um nóttina sá hann fyrstu þyrluna sem flutti bandarísku sérsveitarmennina sem áttu eftir að lenda í Caracas undir morgun og ræna þjóðhöfðingja Bólivaríska lýðveldisins.
Hann hafði naumlega tíma til að yfirgefa varðstöðina, leita skjóls nokkrum metrum frá og hefja skothríð. Þeirri ákvörðun á hann líf sitt að launa — að viðbættri heppni. Rétt eins og árásarmennirnir hefðu hárnákvæmt kort til að styðjast við beindu þeir skothríðinni að varðstöðinni sem hann hafði yfirgefið örfáum sekúndum áður.
„Þeir höfðu miklu meiri skotkraft en við,“ segir Yohandri. „Við höfðum aðeins létt vopn. Annað sem kom þeim til góða var að þeir virtust vita hvar allt var. Þeir skutu því á varðstöðvarnar og svefnskálana þar sem við Kúbverjarnir vorum, og tókst að drepa yfirmennina meðal þeirra fyrstu.“
Þrátt fyrir 23 ára reynslu af störfum í deildinni sem annaðist öryggisgæslu og stöðu fyrsta undirforingja hafði hann aldrei upplifað neitt þessu líkt. En hann hafði hlotið góða þjálfun og þennan morgun tæmdi hann hvern skotgeyminn á fætur öðrum í skothríð gegn óvininum. „Við urðum að halda áfram að skjóta. Verjast og drepa,“ sagði hann.
„Við börðumst þarna gegn flugvélunum sem létu skothríðina dynja á okkur. Þótt við værum verr vopnum búnir hættum við ekki að berjast, heldur tókum beint á móti þeim. Ég hef fengið þjálfun og kann að berjast, en þeir höfðu yfirburði. Á þeirri stundu hugsaði ég aðeins um að berjast. Ég varð að skjóta og byrjaði strax á því,“ sagði hann.
„Það var niðamyrkur,“ hélt hann áfram. „Þegar þyrla kemur beint yfir mann getur maður ekkert annað gert en skotið á hana og varið sig. Þannig var það. Við skutum alveg fram á síðustu stundu.“
„Þótt þeir hefðu yfirburði í skotkrafti er ég viss um að við ollum þeim mannfalli. Meira en þeir viðurkenna. Við börðumst af hörku. Héldum áfram að skjóta þar til næstum allir okkar menn voru annaðhvort særðir eða í valnum,“ segir hann.
Bardaginn var hvorki stuttur né auðveldur, eins og Trump og talsmenn hans reyndu í fyrstu að láta líta út fyrir. Eftir því sem dagarnir liðu varð ljóst að ekkert nema dauðinn og skotfæraskortur hafði megnað að binda enda á mótspyrnu Kúbverjanna.
Yohandri man allt með skelfilegri nákvæmni. Það er eins og hver myndin á fætur annarri birtist honum aftur fyrir hugskotssjónum. Hann grætur. Grætur af reiði. Hann segist aldrei munu gleyma bardaganum, og þó allra síst klukkustundunum á eftir, þegar þeir sem lifðu af þurftu að bera burt lík fallinna félaga sinna.
„Við bárum þá inn í byggingu sem hafði orðið fyrir skemmdum, en þar var þó hægt að koma þeim í skjól. Það var mjög erfitt, því þetta voru menn sem við þekktum, menn sem við höfðum búið með þar til örfáum klukkustundum fyrr. En við tókum þá alla með okkur; við skildum engan eftir.“
„Félagar okkar voru allri Kúbu til sóma. Þeir voru bræður mínir. Þeir störfuðu við hlið mér. Ég sá þá falla og bar þá alla. Við fengum enga aðstoð þarna, en ekki eitt einasta lík var skilið eftir á vígvellinum. Við komum þeim fyrir í einum svefnskálanum okkar. Ég get ekki lýst þeim sársauka. En enginn varð þó eftir í Venesúela. Hér eru þeir, í heimalandi okkar.“
„Þegar sprengjurnar byrja að falla hugsar maður ekki um annað en að berjast. Til þess vorum við þarna og það gerðum við. Eftir situr aðeins sársaukinn yfir því að hafa ekki getað stöðvað þá. Og þennan sársauka,“ sagði hann og barði sér á brjóst, „verð ég að láta bitna á óvininum.“
Þann 6. janúar birti kúbverska ríkisstjórnin nöfn þeirra 32 Kúbverja úr hernum og innanríkisráðuneytinu sem féllu í Venesúela. Meðal þeirra voru tveir ofurstar, einn undirofursti, fjórir majórar og menn í öðrum stöðum yfirmanna, á aldrinum 26 til 67 ára. Allir höfðu þeir verið í innsta hring lífvarðasveitar leiðtoga chavista og allir voru hækkaðir i tign eftir dauðann.
„Land mitt mun alltaf vera reiðubúið að mæta óvininum hvar sem þess gerist þörf. Það kenndi yfirhershöfðinginn okkur. Og félagar mínir mega ekki hafa fallið til einskis,“ sagði Varona Torres að lokum.
Rómanska Ameríka í hnotskurn, 6. október 2026.









