Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB
—

Thomas Fazi
4. sep, ’26

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. Kjörsókn var 82,5 prósent. Meira en fjórir af hverjum fimm Íslendingum fóru á kjörstað til að svara spurningu sem flestir evrópskir kjósendur hafa aldrei fengið að svara – og ríkisstjórnin hefur, henni til mikils hróss, lýst því yfir að hún muni virða niðurstöðuna. Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir Ísland. Reyndar hefur landið sjálft, í fortíðinni, fært fram betri rök gegn ESB en nokkur grein gæti gert.

Þýðing eigin gjaldmiðils

Þegar fjármálakreppan skall á árið 2008 varð Ísland fyrir harðari skelli en nær nokkurt annað land í Evrópu. Níutíu prósent af bankakerfi þess hrundu. Og samt náði það sér hraðar og betur á strik en nánast nokkurt annað land. Hvers vegna? Vegna þess að landið bjó yfir nokkru sem evruríkin höfðu afsalað sér: fullveldi.

Ísland gat leyft gjaldmiðli sínum að aðlagast; það gat leyft bönkum sínum að falla, í stað þess að vera þvingað af Seðlabanka Evrópu til að bjarga þeim á kostnað borgaranna; það gat, að eigin frumkvæði, komið á gjaldeyrishöftum og aflétt þeim aftur samkvæmt eigin tímaáætlun – sem það gerði ekki að fullu fyrr en árið 2017. Og það gat spurt sína eigin þjóð hvað hún vildi: Tvisvar sinnum – í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunum 2010 og 2011 – neitaði íslenska þjóðin að axla einkaskuldir fallinna bankamanna.

Berum þetta saman við Grikkland, Írland, Portúgal eða mitt eigið heimaland, Ítalíu: lönd sem, föst í evrunni, þjáðust árum saman undir harkalegum niðurskurðaraðgerðum, fjöldaatvinnuleysi og félagslegri eyðileggingu, sem ókjörnir tæknikratar í Brussel og Frankfurt lögðu á þau. Ísland stóð kreppuna vel af sér einmitt vegna þess að, hlutfallslega séð, var það mun frjálsara land. Það var lærdómurinn af 2008 – og hann á betur við í dag en nokkru sinni fyrr.

Hve hátt hlutfall af löggjöf ESB er innleitt í EES?

Meginröksemd „já“-fylkingarinnar – og allra Evrópusinnaðra álitsgjafa sem nú halda því fram að niðurstaðan sé misráðin – var sú að valið sem í boði var væri tálsýn, Ísland væri þegar hluti af Evrópska efnahagssvæðinu (EES), samningi sem það á aðild að ásamt Noregi og Liechtenstein og sem víkkar út innri markað ESB til þriggja ríkja sem ekki eru ESB-lönd. Samkvæmt „já“-röksemdinni innleiðir Ísland þess vegna þegar megnið af löggjöf ESB án þess að hafa neitt um samningu hennar að segja. Sú útgáfa þessarar fullyrðingar sem mest var á lofti í kosningabaráttunni setti hana fram með áþreifanlegum hætti: að frá 1994 hefðu nærri 9.000 lagagerðir ESB – það er 75 prósent af lagaramma ESB – verið innleiddar á Íslandi, og aðeins landbúnaður, sjávarútvegur, tollamál og evran væru utan gildissviðsins. Aðild myndi einfaldlega bæta við atkvæðisrétti. Hvers vegna myndi maður hafna sæti við borð þar sem maður er nú þegar?

Við nánari skoðun stenst þessi röksemd þó ekki. Árið 2012 birti norska ríkisstjórnin 900 blaðsíðna skýrslu um samskipti sín við Brussel – og niðurstöður hennar eru markverðar, þar sem Noregur, sem EES-aðili utan ESB, er í nákvæmlega sömu stöðu og Ísland. Í samantekt skýrslunnar var komist að þeirri niðurstöðu að Noregur hefði tekið upp um þrjá fjórðu hluta af löggjöf ESB. Hins vegar kemur einnig fram í sömu skýrslu að á meðan Noregur hefur tekið upp um 70 prósent af tilskipunum ESB, hefur landið aðeins tekið upp 17 prósent af reglugerðum ESB. Reglugerðir eru mun fleiri en tilskipanir. Ef báðir flokkar eru teknir saman fellur talan niður í tæp 30 prósent. Þetta er í grófum dráttum í samræmi við væntingar: af þeim um það bil 23.000 gerðum ESB sem nú eru í gildi eiga um 5.000 við í EES-ríkjunum.

Og það sem er undanskilið er engan veginn aðeins spurning um tæknileg smáatriði. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan gildir ekki um Ísland, sem setur sína eigin aflakvóta í eigin lögsögu – einmitt málið sem var kjarni kosningabaráttunnar. Sameiginlega landbúnaðarstefnan (CAP) gildir heldur ekki og Ísland viðheldur landbúnaðartollum sem eru með þeim hæstu í heimi – sem er ekki lítilvægt mál fyrir landbúnað á svo norðlægum slóðum. Landið stendur utan tollabandalagsins og utan sameiginlegrar viðskiptastefnu og semur því um sína eigin viðskiptasamninga, þar á meðal einn við Kína, sem ekkert aðildarríki ESB fengi að undirrita.

Það sem kannski skiptir mestu máli er að skattlagning, peningamálastefna og gjaldmiðillinn eru áfram undir stjórn Íslands, sem og seðlabankinn sem hefur umsjón með þeim sviðum.

Í utanríkis- og öryggismálum fylgir Ísland afstöðu ESB ef það kýs svo, en er ekki skuldbundið til þess. Og svo er það lagaramminn sjálfur, þar sem hinn raunverulegi munur liggur. EES-ríkin eru ekki háð Evrópudómstólnum (ECJ); þau eru háð EFTA-dómstólnum, en álit hans eru formlega ráðgefandi fyrir innlenda dómstóla og ekki bindandi. ESB-réttur hefur ekki sama forgang og bein réttaráhrif á Íslandi og í aðildarríki. Og samkvæmt 102. grein EES-samningsins halda EFTA-ríkin formlegum rétti til að neita að taka upp nýja gerð – pólitískt kostnaðarsamur valkostur, sjaldan notaður, en raunverulegur valkostur sem er ekki lagalega í boði fyrir neinn aðila að Evrópusambandinu.

Þannig að, nei: Ísland fylgir ekki enn öllum reglunum. Það fylgir reglugerðum innri markaðarins sem það hefur skuldbundið sig til og hefur haldið öllu öðru. Þess vegna hrynur röksemdin við nánari skoðun, röksemdin um að „þið hafið þegar reglurnar, svo þið gætuð allt eins fengið að hafa áhrif á ákvarðanatöku“. Íslendingum var ekki boðinn rétturinn að kjósa. Þeim voru boðin sex af 720 sætum á Evrópuþinginu og eitt af 28 atkvæðum í ráðinu – í skiptum fyrir sjávarútveg sinn, landbúnað, viðskiptastefnu og – þar sem ekkert ríki sem gekk í sambandið eftir Maastricht hefur undanþáguákvæði Danmerkur – grundvallarskyldu til að taka upp evruna. Svíþjóð hefur sýnt að hægt er að fresta þessari skyldu meira og minna um óákveðinn tíma, en óákveðin frestun sem stofnanirnar þola er ekki það sama og neitunarréttur.

Í staðinn hefði Ísland (hugsanlega) notið góðs af örlítið ódýrari innflutningi og lítilsháttar aukningu í ferðaþjónustu, en um leið orðið nettógreiðandi í fjárlög ESB.

ESB miklu meira en stór viðskiptasamningur

Djúpstæðari vandi  við röksemdafærsluna um ESB er hins vegar sá að hún meðhöndlar Evrópusambandið eins og það væri lítið annað en mjög stór viðskiptasamningur; samansafn tæknilegra staðla sem ákveða merkingu á sultu og stærð ávaxa; og að aðild þýddi bara að einu atkvæði væri bætt við. En ESB er ekki einungis samansafn reglna; þetta er pólitísk, stofnanaleg og hugmyndafræðileg risavél og vald þess yfir aðildarríkjum nær langt út yfir það hlutfall tilskipana sem eru innleiddar. Lönd sem ganga í ESB taka í raun upp „efnahagslega stjórnarskrá“ sem bindur þau við nýfrjálshyggjuramma sem engin lýðræðisleg atkvæðagreiðsla getur hnekkt – og sem stofnanir ESB framfylgja miskunnarlaust.“

Þetta er sérstaklega augljóst í löndum evrusvæðisins. Í nóvember 2010 hótaði forseti Seðlabanka Evrópu, í einkabréfi til írska fjármálaráðherrans, að stöðva neyðar-lausafjárfyrirgreiðslu til írskra banka ef ríkisstjórnin myndi ekki gangast undir björgunaráætlun. Í ágúst 2011 skrifaði Seðlabanki Evrópu til ítalska forsætisráðherrans og lýsti í smáatriðum hvaða lög um vinnumarkað og lífeyri ríkisstjórn hans yrði að samþykkja – og innan þriggja mánaða var sú ríkisstjórn farin frá og tæknikrati hafði tekið við.

Í júní 2015, þegar Grikkland var komið að þjóðaratkvæðagreiðslu um skilmála eigin niðurskurðaráætlunar, setti Seðlabanki Evrópu þak á neyðar-lausafjárfyrirgreiðslu og lokaði gríska bankakerfinu á meðan kosningabaráttan stóð yfir. Grikkir kusu engu að síður „nei“ með 61 prósenti atkvæða – en samt innleiddi ríkisstjórnin nýja bylgju niðurskurðaraðgerða að fyrirmælum ESB.

Hins vegar er einnig hægt að halda aftur af aðildarríkjum sem hafa haldið eigin gjaldmiðli með ýmsum þrýstiaðferðum. Undir fyrrverandi þjóðernisíhaldssömum ríkisstjórnum í Póllandi og Ungverjalandi hélt framkvæmdastjórnin eftir gríðarlegum fjárhæðum frá báðum löndum – um 137 milljörðum evra í tilfelli Póllands og um 32 milljörðum evra í tilfelli Ungverjalands, sem hvort um sig nam um einum sjötta hluta af landsframleiðslu þeirra. Þessir fjármunir komu bæði úr venjulegri fjárlagagerð og úr „Næstu kynslóð ESB“ (Next Generation EU) endurreisnarsjóðnum – að því er virðist á grundvelli réttarríkisins.

Stjórnarandstaðan í báðum löndum gerði síðan einmitt þetta að kosningatrompi: „Kjósið okkur og peningarnir fást leystir út.“ Í báðum tilfellum virkaði það eins og lofað var. Þegar kosningarnar í Póllandi í október 2023 komu Evrópusinnuðu samsteypustjórn Donalds Tusk til valda voru fjármunirnir leystir út innan fárra mánaða. Og þegar Ungverjar kusu Viktor Orbán frá völdum í apríl á þessu ári fagnaði Ursula von der Leyen niðurstöðunni með því að segja að Ungverjaland hefði valið Evrópu og framkvæmdastjórnin hófst strax handa við að losa um fjármunina fyrir nýju ríkisstjórnina undir stjórn Péters Magyar.

Peningar voru ekki eina tækið sem notað var. Bæði löndin voru einnig skotmörk áróðursvélar ESB, sérstaklega CERV-áætlunarinnar (Borgarar, jafnrétti, réttindi og gildi þessi tæki hafi líklega gegnt hlutverki í þeim „stjórnkerfisbreytingum“ sem áttu sér stað í þessum löndum – og þetta hefur jafnvel verið viðurkennt opinskátt af sumum þeim heimamönnum sem), þar sem um 40 milljónum evra var veitt til hvors lands fyrir sig eftir 2021 – til frjálsra félagasamtaka, hugveitna og sveitarfélaga til að stuðla að „gildum ESB“ og, í nokkrum tilfellum, til aðgerða sem beindust nokkuð beint að því að grafa undan sitjandi ríkisstjórn. Það er réttmætt að ætla að bæði verkfærin hafi skipt máli í „valdaskiptunum“ sem áttu sér stað í þessum löndum – og það er m.a.s. opinskátt viðurkennt af nokkrum þeim sem hlut áttu að máli heima fyrir. Sjá hér.

Vígvæðing sambandsins

Þetta allt sýnir að þótt það hafi þegar verið slæm hugmynd að ganga í ESB fyrir tuttugu eða þrjátíu árum, er það nú óendanlega mikið verra. Því ESB árið 2026 er jafnvel ekki lengur ESB ársins 2008. Fáveldis-vél sambandsins  – niðurskurðarpólitík, teknókratía og fyrirlitning á lýðræði – hefur breyst í nokkuð miklu óhuggulegra: fullþroskaða stríðsvél. ESB hefur hleypt af stokkunum 800 milljarða evra vopnaáætlun sem kallast „Endurvopnun Evrópu“ („ReArm Europe“), sem var í flýti endurnefnd „Viðbúnaður 2030“ („Readiness 2030“) – til viðbótar við þær skuldbindingar sem samþykktar voru á NATO-fundinum í Haag um að auka hernaðarútgjöld í 5 prósent af landsframleiðslu. Manfred Weber, leiðtogi stærsta stjórnmálaflokksins á Evrópuþinginu, talar opinskátt um meira en sex billjónir evra í evrópsk hernaðarútgjöld á komandi áratug og krefst þess að þessi stækkun verði lögfest svo að – eins og hann orðar það – engin framtíðarstjórn geti snúið henni við.

Og hver ætlar að borga fyrir þetta? Eftir að hafa fengið að heyra í tuttugu ár að það væru engir peningar til fyrir sjúkrahúsum, skólum og lífeyri – að skera þyrfti niður félagslegar bætur í nafni „sjálfbærni í ríkisfjármálum“ – hafa peningarnir birst á kraftaverkakenndan hátt, þó aðeins fyrir flugskeyti, dróna og skotfæri. Financial Times orðaði hinn ósagða sannleika: Evrópa verður að skera niður velferðarríki sitt til að byggja upp stríðsríki (cut back welfare state to build a war state).

Því má halda fram, að Ísland sé þegar aðili að NATO og geti hvort sem er ekki komist hjá þessum örlögum. En það er of einfölduð sýn – og Ísland sjálft hrekur hana. Landið hefur verið aðili að bandalaginu síðan 1949 og hefur ennþá engan fastaher: 77 ára aðild, ekki einn einasti íslenskur hermaður. NATO hefur varla nein úrræði til að þvinga lönd til að fylgja fyrirmælum sínum. Að ganga í ESB er allt annar handleggur. Það þýðir að afhenda fulla stjórn á eigin efnahag til þess sem er í raun orðinn pólitískur armur NATO – armur sem mun ekki hika við að beita öllum tiltækum ráðum til að koma aðildarríkjum í takt við stefnu ESB og NATO.

Hernaðaruppbygging ESB er réttlætt sem leið til að verjast meintri „rússneskri ógn“, sem engar trúverðugar sannanir eru fyrir, eins og jafnvel æðsti yfirmaður NATO í Bandaríkjunum viðurkenndi – tilbúin ógn sem hefur ekki það raunverulega hlutverk að verjast, heldur að aga.

Hin hlið vígvæðingar: kúgun inn á við

Því þetta er hin hliðin á þessari hervæðingu: kúgun innan eigin lands. Samfélag sem er virkjað til stríðs getur ekki umborið andstæðar skoðanir og ESB lætur ekki einu sinni sem svo sé. Sambandið er byrjað að beita eigin borgara refsiaðgerðum – blaðamenn og sérfræðinga eins og Hüseyin Doğru og Jacques Baud – frysta bankareikninga þeirra, setja á þá ferðabann og eyðileggja lífsviðurværi þeirra, án ákæru, án réttarhalda og án þess að nokkur dómstóll hafi nokkurn tíma úrskurðað um málið. Refsing með skrifræðislegri tilskipun – fyrir það brot að gagnrýna stefnu ESB og NATO.

Við þetta bætist bann gegn rússneskum fjölmiðlum, ritskoðunarbatterí kringum Digital Services Act (DSA), tillögur um að skanna öll einkaskilaboð á meginlandinu sem hluta af „spjallstýringu“ (Chat Control), kerfisbundin afskipti stofnana ESB af landskosningum, bein ógilding forsetakosninga í Rúmeníu árið 2024 og sakamálarannsóknir á stjórnarandstöðupólitíkusum frá Frakklandi til Þýskalands.

Þegar þessir þættir eru teknir saman er myndin sem birtist af bandalagi sem er ekki aðeins í stríði við Rússland, heldur fyrst og fremst við eigið fólk.

Og það sem skiptir öllu máli er að ekkert af þessu er tilviljun, né heldur er þetta „hnignun“ þess sem eitt sinn var göfugt verkefni. Allt frá upphafi var þessu verkefni ætlað að skilja valdið frá lýðræðinu – að færa lykilákvarðanir úr höndum kjósenda þjóðríkjanna. Í dag nær þetta jafnvel til ákvarðana um stríð og frið.

Í gegnum kosningabaráttuna var Íslendingum sagt að 400.000 manna þjóð gæti ekki staðið ein í hörðum heimi; að á tímum samkeppni um norðurslóðir og ófyrirsjáanleika Bandaríkjanna væri aðeins vernd Evrópusambandsins nægjanleg. Það er athyglisvert hversu lítið talsmenn ESB tala nú um velmegun og hversu mikið um ótta og ógn.

Fullveldið ekki úrelt heldur lykilatriði

En þegar við lítum í kringum okkur í heiminum er það ekki fullveldi þjóða sem virðist úrelt, heldur frekar ESB og sýn þess á yfirþjóðlegt heimsveldi. Löndin sem dafna eru þau sem vinna saman innan ramma sveigjanlegra samninga sem virða fullveldi – svo sem BRICS-ríkin, ASEAN og, í þessu samhengi, EFTA sjálft: samstarf frjálsra þjóða, ekki heimsvelda. Í þrjá áratugi hefur Ísland sýnt fram á að lítið land getur haft fullan aðgang að Evrópumarkaði en um leið haldið sjávarútvegi sínum, landbúnaði, gjaldmiðli, viðskiptastefnu og rétti sínum til að taka eigin ákvarðanir.

Það er eitt annað sem Ísland hefur varðveitt, laugardagurinn sannaði það: þau réttindi að vera spurður álits og að svar manns sé virt. Grikkir voru spurðir álits árið 2015 og svari þeirra var ýtt til hliðar innan viku. Íslendingar voru spurðir álits á laugardaginn og ríkisstjórn þeirra hefur samþykkt niðurstöðuna.

Greinin birtist fyrst á þýsku 2. september í NachDenkSeiten

Thomas Fazi er ítalskur. Hann skrifar um sjálfan sig: „Ég er blaðamaður/rithöfundur/þýðandi/sósíalisti. Ég ver tíma mínum að mestu í Róm. M.a. er ég meðhöfundur að  Standing Army (2010), verðlauna-heimilda-langmynd um bandarískar herstöðvar, ásamt Gore Vidal og Noam Chomsky; og höfundur bókanna The Battle for Europe: How an Elite Hijacked a Continent – and How We Can Take It Back (Pluto Press, 2014) og Reclaiming the State: A Progressive Vision of Sovereignty for a Post-Neoliberal World (meðhöfundur hennar er Bill Mitchell; Pluto Press, 2017).“ Þess má svo geta að Fazi var einn þátttakenda á fundinum „Raddir að utan í Safnahúsinu“ 8. ágúst sl., skipulögðum af Ögmundi Jónassyni.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.