„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað
—
Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið tvo flugræningjanna í sína þjónustu og síðan staðið í vegi fyrir rannsókn málsins.
Í aðdraganda aldarfjórðungs afmælis 11. september í þessum mánuði var víða greint frá því að væntanlegt einkamál fyrir héraðsdómi í New York gegn hinum alræmda sádi-arabíska stjórnarerindreka Omar Bayoumi myndi færa „óyggjandi“ sönnunargögn sem tengdu Ríad [höfuðborg Sáda] beint við árásirnar. Sannfærandi vísbendingar um að sádi-arabíska leyniþjónustan hafi ekki aðeins stjórnað nokkrum flugræningjanna sem útsendurum, heldur gert það sem „staðgengill“ fyrir CIA, hafa legið óathugaðar fyrir allra augum í mörg ár. Samt sem áður er óhugnanlegur skuggi bandarísku leyniþjónustunnar enn fjarri allri umfjöllun fjölmiðla, þrátt fyrir vaxandi viðurkenningu á hlutverki Ríad.
Bayoumi hefur lengi verið sakaður af stórum fréttamiðlum og bandarískum embættismönnum um að hafa viðhaldið nánu og grunsamlegu sambandi við flugræningjana Nawaf Hazmi og Khalid Mihdhar, strax við komu þeirra til Bandaríkjanna í janúar 2000. Í síðari rannsókn FBI, sem nefndist Operation Encore, var komist að þeirri niðurstöðu að „50/50 líkur“ væru á því að Bayoumi – og þar með sádi-arabíska konungsættin – hefði haft nákvæma fyrirframvitneskju um árásirnar 11. september. Þessi eldfima niðurstaða var ekki gerð opinber fyrr en í mars 2022.
Hins vegar þögðu fjölmiðlar þunnu hljóði ári síðar þegar sprengjueldfimt skjal frá Skrifstofu hernaðardómstólanna [Office of Military Commissions, OMC] – þeirri stofnun sem hefur yfirumsjón með saksóknum á hendur sakborningum 11. september – var birt. Skjalið tekur saman leynileg gögn frá stjórnvöldum og einkaviðtöl við nafnlausa háttsetta bandaríska leyniþjónustumenn. Innihald þess varpar áður óþekktu ljósi á það hvernig CIA réð að minnsta kosti Hazmi og Mihdhar, ef ekki fleiri sem tóku þátt í árásunum 11. september, „í gegnum samstarfssamband“ við höfuðleyniþjónustu Sádi Arabíu (GID).
Sama skjal varpar ljósi á hvernig störf 11. september-nefndin voru vísvitandi torvelduð af formanni hennar, Philip Zelikow, sem persónulega reyndi að „slæva“ rannsóknir á „þátttöku Sáda í gerðum flugræningjanna.“ Samhliða því var háttsettum embættismönnum FBI sem falið var að rannsaka árásirnar bannað að yfirheyra sádi-arabíska ríkisborgara, þrátt fyrir að „margar“ vísbendingar bentu beint á sendiráð Sáda í Washington DC. Það er engin furða – það að rannsaka þau tengsl hefði rækilega leitt í ljós hvernig GID starfaði sem „milliliður“ fyrir CIA í öllum leynilegum samskiptum sínum við 11. september-flugræningjana. Hér má sjá klippu úr þessu skjali OMC:

_____
Háttsettir embættismenn FBI sem vitnað er í í skjalinu ræða hvernig GID var lengi „staðgengill“ CIA, sem leyniþjónustan beitti fyrir sig þegar það var „óráðlegt eða óhagkvæmt … að framkvæma aðgerð beint.“ Þessi þörf var sérstaklega brýn í tengslum við leynilegar aðgerðir CIA „á bandarískri grund.“ Eftir 25 ár virðist sem Ríad gæti loksins þurft að taka á sig sökina fyrir illræmda aðgerð CIA sem á einn eða annan hátt leiddi til 11. september. Eins og áætlað var, eru litlar líkur á að leyniþjónustan sjálf lendi á sakamannabekk.
„CIA-teymið“
Meðal sprengjuþrungnustu/eldfimustu kafla OMC-skjalsins er vitnisburður sérfræðings FBI, sem starfaði hjá Alec Station – einingu CIA sem fylgdist með Al-Kaída og bar ábyrgð á að ráða Hazmi og Mihdhar sem heimildarmenn. Þegar sérfræðingurinn komst að því í janúar 2000 að þeir tveir – þekktir liðsmenn Al-Kaída undir nánu eftirliti CIA og NSA – hefðu vegabréfsáritanir til Bandaríkjanna sem giltu fyrir margar ferðir, samdi hann skýrslu til að vara höfuðstöðvar FBI við. Sending hennar var hins vegar stöðvuð af ónefndum sérfræðingi CIA.
Sami sérfræðingur fékk ekki aðeins GID til að hafa samband við Hazmi og Mihdhar við komu þeirra, heldur fullyrti hann ranglega við síðari rannsóknir bandarískra stjórnvalda á 11. september að hann hefði persónulega upplýst FBI um veru þeirra í Bandaríkjunum. Sérfræðingur FBI varð persónulega vitni að því þegar George Tenet, forstjóri CIA, og James Pavitt, aðgerðastjóri leyniþjónustunnar, stærðu sig af því hvernig þeir „sömdu um að hindra 11. september-nefndina“ með því að leyna starfsemi og auðkennum sérfræðingsins fyrir rannsakendum.
Í því ferli var óvenjulegur, áður óþekktur þáttur í sambandi Ríad við flugræningjana kyrfilega látinn óathugaður. Sérfræðingur FBI hélt því þá fram að Hazmi og Mihdhar hefðu sérstaklega fengið bandarískar vegabréfsáritanir frá bandarísku ræðismannsskrifstofunni í Jeddah, „til að auðvelda aðgerðina sem Sádíska GID og CIA-teymið stjórnuðu.“ Þessi uppljóstrun er enn meira spennandi í ljósi þess að 14 af 19 flugræningjum fengu allir vegabréfsáritanir sínar frá sömu ræðismannsskrifstofu. Í mörgum tilfellum hefðu umsóknirnar alls ekki átt að vera samþykktar. Skjal OMC heldur áfram:

_____
Til að auka á leyndardóminn voru 12 af 14 vegabréfsáritunum samþykktar af einum ræðismannsfulltrúa, að nafni Shayna Steinger. Næstum strax eftir að hún var skipuð á ræðismannsskrifstofuna í Jeddah í júlí 2000, án nokkurs diplómatísks bakgrunns, byrjaði hún að stimpla umsóknir verðandi 11. september-flugræningja. Á þeim tíma voru vinnubrögð ræðismannsskrifstofunnar við útgáfu vegabréfsáritana ströng, sem sérstaklega tengdist staðbundnum áhyggjum af „hryðjuverkum.“ Innri leiðbeiningar kváðu á um að umsækjendur – sérstaklega ungir sádi-arabískir karlmenn – skyldu alltaf teknir í persónulegt viðtal og hafa skýrar ástæður fyrir ferðum sínum.
Hins vegar tók Steinger það persónulega að sér að snúa þessari stefnu við. Þar að auki gaf hún út vegabréfsáritanir til framtíðarflugræningja 11. september þrátt fyrir að umsóknir þeirra væru oft ófullnægjandi eða með villum, byggðar á fölsuðum skjölum og innihald þeirra gæfi ríka ástæðu til gruns. Steinger tók engu að síður viðtal við Hani Hanjour, sem er sagður hafa flogið flugi 77, sem skall á Pentagon. Eftir það hafnaði hún umsókn hans um þriggja ára vegabréfsáritun til Bandaríkjanna, vegna augljósra efasemda um yfirlýstan tilgang hans í landinu. Engu að síður samþykkti Steinger endurnýjaða umsókn Hanjour tveimur vikum síðar.
Í síðari opinberum rannsóknum gaf hún mjög misvísandi frásagnir af því hvers vegna vegabréfsáritanir flugræningjanna voru veittar. Í tilfelli Hanjour hélt Steinger því upphaflega fram að hann hefði lagt fram umbeðin fylgiskjöl. Hún viðurkenndi síðar að hann hefði í raun ekki gert það, en „millistéttarbakgrunnur“ hans hafi að sögn fengið hana til að álykta að hann væri traustsins verður.
Þökk sé OMC vitum við nú að í raun og veru fengu verðandi flugræningjar 11. september inngöngu í Bandaríkin svo CIA gæti ráðið þá til sín við komuna, sem bendir til þess að Steinger hafi farið eftir skipunum stofnunarinnar.
„Staðbundnir andófsmenn“
Þegar Hazmi og Mihdhar lentu í Los Angeles í janúar 2000 rákust þeir nánast strax á Omar Bayoumi á veitingastað á flugvellinum. Í skýrslum FBI sem vitnað er í í dómsskjölunum kemur fram að vitni sem fylgdist með fundi þeirra hafi séð Bayoumi „missa blað“ nálægt borði þeirra og „hefja síðan samræður við þá“ á þann hátt sem virtist „óeðlilegur“. Vitnið gaf FBI þá frásögn árið 2002 en hún var aldrei gerð opinber.
Í yfirheyrslum hjá rannsóknaraðilum Operation Encore árum síðar hélt Bayoumi því fram að fundur hans með Hazmi og Mihdhar hefði verið hrein tilviljun. Hin óvenjulega aðstoð sem hann veitti þeim strax á eftir – þar á meðal að finna þeim íbúð, ábyrgjast leigusamning þeirra, stofna fyrir þá bankareikninga og gefa þeim umtalsverðar fjárhæðir til að greiða leiguna – var einfaldlega góðgerðarstarfsemi fyrir aðra múslima sem gátu varla talað ensku og voru ókunnugir vestrænni menningu, fullyrti Bayoumi. En OMC-skjölin veita fjölmarga sláandi innsýn í myrkan veruleika samskipta hans við verðandi flugræningja.
Til dæmis virðist sem Bayoumi hafi verið falið í leyni að ráða Hazmi og Mihdhar til sín í ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í Los Angeles, af öfgaklerknum og embættismanni Sádi-arabíska ráðuneytis íslamskra mála, Fahad Thumairy. Í dómsskjölunum er vitnað í sönnunargögn sem benda til þess að Bayoumi hafi sjálfur verið í Kaliforníu til að „njósna um staðbundna andófsmenn“ af sádi-arabískum uppruna. Hann sást með 11. september-flugræningjunum tveimur „við fjölmörg tækifæri“ og skipulagði á einum tímapunkti „samkvæmi fyrir flugræningjana“. Við getum aðeins getið okkur til um hverjir aðrir kunna að hafa verið viðstaddir.
Önnur sláandi uppljóstrun í dómsskjölunum varðar það að Hazmi og Mihdhar bjuggu hjá Abdussattar Shaikh, uppljóstrara og heimildarmanni FBI til langs tíma, frá og með september 2000. Það hefur verið vitað í mörg ár að Shaikh gaf ekki upp eftirnöfn þeirra til tengiliðs síns þrátt fyrir að hafa verið beðinn um það. Sameiginleg rannsókn „leyniþjónustunefnda“ þingsins og öldungadeildarinnar á 11. september komst að þeirri niðurstöðu að dvöl þeirra hjá Shaikh hefði verið „besta tækifæri leyniþjónustusamfélagsins [US intelligence community] til að leysa úr flækjunni í kringum samsærið 11. september“. Það kann að hafa verið beinlínis markmið hans að verja Hazmi og Midhar fyrir eftirliti FBI.
Í OMC-skjalinu kemur fram að Shaikh sjálfur „fékk fjármagn“ frá Ríad, á sama tíma og hann starfaði sem uppljóstrari fyrir FBI. „Áhrifamiklir“ Sádi-Arabar „dvöldu í gistiheimili Shaikh þegar þeir heimsóttu Kaliforníu,“ segir þar. Hlutverk hans var „að fylgjast með athöfnum [sádi-arabískra] borgara meðan þeir voru erlendis“. Hani Hanjour bjó einnig hjá Shaikh ásamt Hazmi, eftir að Mihdhar sneri aftur til Sádi-Arabíu síðla árs 2000. Svo virðist sem flugræningjarnir hafi á öllum stigum dvalar sinnar í Bandaríkjunum verið í nánum tengslum við einstaklinga tengda sádi-arabísku leyniþjónustunni.
Í ljósi þess að hin sádi-arabíska GID starfaði beint fyrir hönd CIA, vekja þessi samskipti augljóslega upp þá spurningu hvort stofnunin – í gegnum „staðgengil“ sinn í Ríad – hafi beint fylgst með ferðum Hazmi, Midhar og Hanjour, ef ekki annarra sádi-arabískra flugræningja, frá því þeir komu til Bandaríkjanna á vegum stofnunarinnar og allt fram að 11. september. Að hvaða marki CIA gat haft áhrif á gjörðir þeirra, hegðun og ferðir er óþekkt, en svigrúmið var augljóslega gríðarlegt.
„Aðkoma Sádi-Araba“
Alec Station leyndi allan tímann vísvitandi veru Hazmi og Mihdhar í Bandaríkjunum fyrir FBI, þar til það var of seint. Í dómsskjölunum er skráð hvernig fulltrúar stöðvarinnar sýndu háttsettum embættismönnum FBI í júní 2001 ljósmyndir af þremur liðsmönnum Al-Kaída, þar á meðal Hazmi og Mihdhar. Hins vegar neitaði CIA að svara spurningum um einstaklingana á myndunum eða veita auðkennandi upplýsingar. Hefðu þeir gert það hefði FBI auðveldlega getað fundið nöfn og heimilisföng Hazmi og Mihdhar í símaskrá San Diego. OMC-skjalið áfram:

_______
Þetta var augljós beita, bersýnilega ætluð til að kanna vitneskju FBI um hverjir einstaklingarnir á myndunum væru og veru þeirra í Bandaríkjunum. Í dómsskjölunum kemur einnig fram að FBI hafi framkvæmt sérstaka gagnnjósnarannsókn á Omar Bayoumi fyrir 11. september, vegna gruns um að „hann starfaði sem leyniþjónustumaður“. Samt sem áður, þegar FBI hafði samband við CIA til að fá upplýsingar um Bayoumi, var þeim sagt að stofnunin „hefði engar skrár“ um hann – sem var ósatt.
Í raun og veru geymdi CIA fjölmargar „aðgerðaskrár“ um Bayoumi, sem „voru aldrei afhentar FBI“. Slík ósvífin þvergirðing hélst lengi eftir 11. september. Þegar FBI komst að því að tugþúsundir dollara hefðu verið sendar frá Haifa bin Faisal, eiginkonu sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum, Bandar bin Sultan, til eiginkonu Bayoumi, reyndi stofnunin að krefjast fjárhagsskýrslna þeirra frá Riggs Bank í Washington DC. Samkvæmt dómsskjölunum „komu embættismenn hjá Riggs í veg fyrir tilraunir FBI til að fá skrárnar í heilt ár“.
Riggs Bank – sem taldi meðal viðskiptavina sinna forseta Bandaríkjanna og einræðisherrann Augusto Pinochet sem CIA kom til valda í Chile – hrundi í kjölfar stórra peningaþvættishneyksla árið 2005. Rannsóknir eftir 11. september leiddu í ljós fjárhagslegt misferli á reikningum í eigu nokkurra auðugra Sádi-Araba – þar á meðal skort á nauðsynlegum bakgrunnsskoðunum og stöðugt vanrækslu á að tilkynna eftirlitsaðilum um stórar færslur sem brutu í bága við alríkisbankalög. Fall Riggs endurspeglar nákvæmlega hinn snautlegu endalok margra staðfestra leppbanka CIA í fortíðinni, svo sem Bank of Credit and Commerce International, sem aðstoðaði við glæpsamlegt leynimakk, þar á meðal Íran-Kontra hneykslið.
Það kemur kannski ekki á óvart að í dómsskjölunum er skráð hvernig „pólitískum þrýstingi“ var beitt á FBI til að rannsaka ekki hin ótalmörgu tengsl Ríad við 11. september. Fulltrúum FBI sem báru vitni fyrir sameiginlegri rannsóknarnefnd um árásirnar var þar að auki „skipað að upplýsa ekki um alla aðkomu Sádi-Araba að Al-Kaída“. Háttsettir embættismenn í höfuðstöðvum FBI vissu „bæði um tengsl Bayoumi við sádi-arabísku leyniþjónustuna og … um tilvist aðgerðar CIA til að ráða Hazmi og Mihdhar,“ en „bældu niður rannsóknir“ á þeim brýnu málum.
Í skjalinu er að lokum tekið fram að Bayoumi hafi verið handtekinn í Bretlandi vegna brota á innflytjendalögum strax eftir 11. september og að yfirvöld hafi fundið „öfgakennd rit í íbúð hans“. Mikilvægi þessara upplýsinga hefur farið algjörlega fram hjá öllum síðan 2022. Það er ekki fyrr en nú, vegna dómsmálsins í New York, sem fjölmiðlar hafa viðurkennt hvernig innan fárra daga frá árásunum var lagt hald á „byltingarkennd“ sönnunargögn sem bendluðu Bayoumi beint við 11. september á heimili hans í Bretlandi af hryðjuverkalögreglunni, sem síðan var deilt með FBI, sem stakk upplýsingunum fullum fetum undir stól.
Það er með ólíkindum að meðal hinna saknæmu muna og rannsóknargagna hafi að sögn verið símaskrá með nöfnum yfir tuttugu og fjögurra sádi-arabískra embættismanna í Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu; flughermihugbúnaður; flugmiðar og ferðaskilríki; og minnisbók með skissu af flugvél. Í meðfylgjandi minnisblaði frá breskum hryðjuverkalögreglumanni stóð um það síðastnefnda: „inniheldur handskrifaðar athugasemdir, stærðfræðilega útreikninga varðandi flughæð flugvéla.“ Meðlimur í lögfræðiteymi fjölskyldna fórnarlamba 11. september sem stendur að baki dómsmálinu fullyrti djarflega við BBC: „þetta eru stærðfræðilegir útreikningar á árásinni [á Pentagon].“
Þann 22. september 2001 var þessi að því er virðist óhrekjanlegi fengur kominn í hendur FBI. Sama gilti um afar upplýsandi heimamyndbönd af Bayoumi á ferli um Washington D.C. árið 1999, þar sem hann bendir á öryggisráðstafanir við þinghúsið, ræðir opinskátt um Reagan-flugvöllinn í nágrenninu og vísar í ótilgreinda „áætlun“ á myndavél. Á öðrum myndböndum sést Bayoumi í nánum samskiptum við háttsetta menn innan Al-Kaída, svo sem Anwar Awlaki, sem var ráðinn af dögum í drónaárás Bandaríkjamanna í september 2011.
Þótt breskir rannsóknarlögreglumenn hafi að því er virðist talið sig hafa „meira en næg sönnunargögn“ til að fá Bayoumi framseldan til réttarhalda, fyrirskipuðu stjórnvöld í Washington að honum yrði sleppt og hann sneri aftur til Sádi-Arabíu. Andstaða bandarískra yfirvalda er skiljanleg í ljósi yfirgnæfandi magns sönnunargagna sem benda óhjákvæmilega til þess að CIA hafi að minnsta kosti á virkan hátt greitt fyrir árásunum 11. september, ef ekki framkvæmt þær, og notað Sádi-Araba sem blóraböggla. Ákveðni fjölmiðla í að forðast að minnast á hvernig Bayoumi og félagar störfuðu sannanlega sem „staðgenglar“ fyrir CIA sýnir að yfirhylmingin heldur áfram enn í dag.
Grein þessi birtist á vefsíðu Kit Klarenberg þann 11. september sl. https://www.kitklarenberg.com/p/cia-proxy-unravelling-saudi-arabias Þýðandi: Þórarinn Hjartarson
***
Athugasemd þýðanda: Kit Klarenberg er rannsóknarblaðamaður sem rannsakar starfsemi og áhrif leyniþjónustu á stjórnmál. Hann skrifar m.a. reglulega í The Grayzone. Hann hefur áður skrifað margt um atburðina í New York þann 11. september 2001.
Elías heitinn Davíðsson skilaði mikilli rannsóknarvinnu um 11. september, gaf m.a. árið 2020 út bókina America´s Betrayal Confirmed. 9/11: Purpose, Cover-up and Impunity sem Jón Karl Stefánsson skrifaði um hér á Neistum. Þá hefur þýðandi sjálfur skrifað nokkuð um 11. september-atburðina, svo sem þessa grein hér sem birtist á Friðarvefnum árið 2007.









