Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu
—
„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta stríð“ sagði Juliia Mendel í skörulegu ávarpi sem hún flutti, þann 16. september 2026, í hópi þingmanna á Evrópuþinginu.
Juliia Mendel er úkraínskur blaðamaður sem var fjölmiðlafulltrúi og opinber talsmaður Volodymyrs Zelenský frá 2019 til 2021.
Juliia Mendel segist hafa fundið sig knúna til að koma fram og segja skoðun sína á stríðinu, hversu hræðileg áhrif það hefur haft á land og þjóð og hvað það væri mikilvægt að koma á friði strax, áður en það verður of seint.
Juliiu var meinuð innganga í húsakynni Evrópuþingsins í Strassborg, sem hún telur hafa verið fyrir tilstilli Zelenskys sem hafði beitt hana sérstökum lagalegum refsiaðgerðum nokkrum dögum fyrr. Henni var boðið til þinghússins af flokksmönnum þýska AfD sem er raunar eini flokkur á þýska þinginu (Bundestag) sem talar fyrir friðarsamningum í Úkraínu. Reynt var að koma í veg fyrir flutning ávarps hennar af upptöku en það tókst að komast fram hjá því.
Þannig hefur Juliia Mendel náð eyrum mikils fjölda manna víðsvegar um Evrópu. Ávarpið birtist á netinu og hefur síðan birst á áhrifamiklum hlaðvörpum, þ.á.m. á Unter den Strom hjá hinum kunna þýska blaðamanni Patrick Baab sem einnig tók viðtal við hana.
Í maí í vor birtist viðtal við hana hjá Tucker Carlsson sem náði þannig til Bandaríkjamanna og alls heimsins. Sjá hér. Og nú þann 29. september, birtist annað athyglisvert viðtal við hana hjá Tucker. Hún hefur líka birt það á prenti á eigin vefsvæði, og einnig skrifað grein um sama efni í breska tímaritið The Spectator. Í viðtalinu nýja segir Juliia að mjög stór hluti Úkraínumanna styðji þá skoðun hennar að algjört lífsspursmál sé fyrir landið að gera friðarsamning við Rússa. Vandinn sé hins vegar sá að slíkar raddir séu brennimerktar heima fyrir og þaggaðar. Þetta seinna viðtal við Tucker má sjá hér.
Ávarp Juliiu
Aftur að ávarpinu: Bandaríski stjórnmálafræðingurinn John Mearsheimer greinir ávarpið á hlaðvarpi sínu Offensive Realism. Hann telur upp fimm atriði sem hún fjallar um og geri það að verkum að Úkraína sé raunverulega að þrotum komin:
Mannfjöldakreppan, en Júlía segir að landið hafi misst 50 % íbúanna, sem hafi flutt til annarra landa auk þess sem hundruðir þúsunda hermanna hafi fallið og fjöldi óbreyttra borgara látið lífið. 600 þúsund manns flytji eða flýi úr landi árlega og fjórum sinnum fleiri deyi en þeir sem fæðast. Hún telur þetta ekki ásættanlega fórn og stríðinu verði að ljúka strax. Hún spyr hvernig þær 25 milljónir Úkraínubúa sem eftir eru í landinu, þar sem helmingur er á eftirlaunum, eigi að fara að því að verja 500 milljónir Evrópubúa gegn 140 milljónum Rússa.
Fjármálakreppan sem lýsir sér í mikilli eyðileggingu innviða og því að landið er nær algjörlega háð erlendri aðstoð og safnar miklum skuldum sem m.a. verða til við gífurlega há lán sem Evrópusambandið er að veita og fer að mestu í vopnabúnað en ekki til uppbyggingar.
Landfræðilegt tap. Úkraína hefur nú misst um 20 % lands síns í hendur Rússlands. Mearsheimer telur útilokað að það náist til baka.
Stjórnmálaleg vandamál sem lýsa sér í stríðsmiðaðri stjórnun landsins, þar sem kosningar eru ekki haldnar, takmörkuðu málfrelsi, þvingunum og valdbeitingu af hendi yfirvalda. Botnlaus spilling sem illa gengur að ráða við og óhæfur forseti.
Öryggis- eða varnarleysi. Úkraína á ekki annars kost en að verja sig sjálf en stendur frammi fyrir ofurefli. Natóaðild hefur verið tekin útaf borðinu og kemur ekki til greina ef það á að ná friðarsamningum við Rússland. Bandaríkin hafa dregið sig í hlé og vafasamt að þau veiti öryggisvernd og Evrópulönd hafa litla burði í átökum.
Hvert þessara atriða er mjög erfitt út af fyrir sig en þegar þau koma öll saman eru þau nær óviðráðanleg og gefa ekki bjarta framtíðarsýn.
Juliia hefur ekki trú á stefnu núverandi forseta, sem hún telur að hafi ekki áhuga á friði þrátt fyrir yfirlýsingar um það. Ótal tilraunir hafi verið gerðar til að ná friðarsamningum en Zelensky hafi gefið þær allar uppá bátinn og talið sig geta náð betri árangri í stríðinu. Hún lýsir raunar þakklæti til Bandaríkjamanna sem hafi ítrekað reynt að ná raunhæfum samningum um frið. Júliia spyr hvernig það hafi komið til að þeir sem vilji ná samningum um frið í Úkraínu séu taldir ólýðræðislegir og standa með Rússum? Það geti bara ekki staðist. Að semja um frið í Úkraínu sé eina leiðin út úr þessari kreppu sem sé að drekkja okkur og mest af öllu fólkinu í Úkraínu.
Juliia segir 60 % íbúa Úkraínu vilja semja um frið strax þó það muni kosta einhverjar fórnir og 11 % séu óákveðnir. Sjálf hafi hún fengið mikinn stuðning við sjónarmið sín frá fólki í Úkraínu. Hún telur líka að stór hluti almennings í Evrópu vilji semja um frið, enda hafi þeir flokkar sem hafa það á stefnuskrá hlotið mikla fylgisaukningu. Evrópubúar séu ekki tilbúnir að senda sín eigin ungmenni í stríð.
Vitanlega hefur hún af sumum verið kölluð Rússavinur og svikari fyrir málflutninginn en lætur það ekki hafa áhrif á sig, enda er hún síður en svo að verja athæfi Rússa sem hún segir óverjandi og miskunnarlaust. Það verði samt að finna raunhæfar lausnir til friðarsamninga.
Hún segir tilgang sinn eingöngu þann að tala fyrir friði og eina leiðin til að stuðla að honum sé að semja. Það muni eflaust kosta einhverjar fórnir fyrir Úkraínu en það sé aðeins um tvennt að velja, að semja eða að Úkraína verði ekki lengur til sem ríki.
Það er augljóst af því sem Juliia segir að hún telur Zelensky með öllu óhæfan forseta. Spillingin í kringum hann og í landinu sé óskapleg. Hann sé nú að drónavæða landið á kostnað íbúanna. Stór hluti fjármagns sem komi frá Evrópulöndum fari í drónafyrirtæki hans og annarra sem græða á tá og fingri. Þeir séu að byggja sér lúxusvillur og fjárfesta í eignum í útlöndum á meðan almenningur líði skort. Ungmenni eru elt uppi hvar sem til þeirra næst og send á vígvöllinn nema aðstandendur þeirra hafi efni á að borga mútur. Hún segir Zelensky ekki hafa nokkra möguleika á að vinna kosningar ef þær yrðu haldnar.
Juliia segir að þó hún telji að Rússar eigi sannarlega skilið að kynnast stríðinu af eigin raun, séu árásir inn í Rússland ekki að gagnast Úkraínu. Margir Evrópubúar virðist hafa mestan áhuga á því að veikja og drepa Rússa. Hún segir að það sé útilokað að Úkraínumenn og Rússar verði vinir í bráð en spyr hvort það sé nauðsynlegt að þeir haldi áfram að drepa hver annan.
Nató hafi verið tekið af borðinu fyrir Úkraínu og fólk láti sig ekki dreyma um að komast þar inn. Hún telur að það sé óraunhæft að landamærin verði aftur eins og 1991. Nefnir Finnland í því sambandi og telur ekki óásættanlegt að Úkraína verði hlutlaus og í svipuðum sporum og Finnland var eftir seinni heimsstyrjöld.
Juliia Mendel er úkraínskur blaðamaður frá Kherson og vann sem blaðafulltrúi Zelenskys í tvö ár fyrir innrás og er höfundur tveggja bóka um störf sín á þeim tíma. Hún hefur snúið við blaðinu og er nú einbeittur andstæðingur stjórnarhátta hans í Úkraínu. Hún hefur skrifað greinar í þekkt dagblöð í Bandaríkjunum og dvelur þar. Hún getur ekki snúið heim við núverandi ástand og þvinganir gegn sér.
Lýsingar Juliiu á kjörum almennings í Úkraínu og ástandinu þar eru átakanlegar og láta engan ósnortinn. Hvort sem fólk deilir skoðunum með henni eða ekki, ætti það ekki að neita sér um að hlusta á það sem hún hefur að segja.
Ávarp Juliiu Mendel á Evrópufundi 16. september 2026 má sjá hér:
Aðrar heimildir:
Mearsheimer, John: Is Ukraine committing National Suicide? Hlaðvarp á Offensive Realism í september 2026. https://www.bing.com/videos/riverview/relatedvideo?q=mearsheimer%20is%20ukraine%20committing&mid=AAC8BD79DB543EE94147AAC8BD79DB543EE94147&ajaxhist=0
Mendel, Juliia: Ávarp í prentútgáfu á vefsvæði hennar á Substack sept. 2026. https://iuliiamendel.substack.com/p/they-tried-to-ban-my-speech-i-gave
Mendel, Julia: Zelensky´s strategy is national suicide. The Spectator 15. sept. 2026. https://spectator.com/article/zelenskys-strategy-is-national-suicide/
Viðtal Tucker Carlsson við Juliiu Mendel í maí 2026 https://www.bing.com/search?q=tucker+carlsson+julia+mendel&form=ANNTH1&refig=6aba927878b542d6816323375dd961ea&pc=U531
Ólöf Benediktsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur á eftirlaunum, friðarsinni með áhuga á pólitík og náttúruvernd. Starfaði lengst af á Árnastofnun.









