Móðir allra hernaðarlegra glappaskota
—

John J. Mearsheimer
9. sep, ’26

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá mig til að útskýra hvers vegna ég teldi Íransstríðið vera mesta hernaðarlega glappaskot í sögu Bandaríkjanna. Það er auðvitað mikið sagt þegar maður gerir sér grein fyrir því að það á sér að minnsta kosti tvo meiri háttar keppinauta frá lífsskeiði okkar Chris: Víetnamstríðið og Íraksstríðið.

Íranstríðið hefur samt vinninginn að mínu mati, vegna þess að

  1. Við fórum í það stríð á þeirri fölsku forsendu/fullyrðingu að Íran væri alveg við það að eignast kjarnorkuvopn;
  2. Við höfðum siguráætlun – að loftárásir einar og sér myndu leiða til valdaskipta – nokkuð sem hefur aldrei virkað og virkaði ekki heldur í þetta sinn;
  3. Við höfðum enga varaáætlun út frá þeim möguleika að Íran myndi loka Hormússundi;
  4. Okkur mistókst að ná neinu af fjórum meginmarkmiðum okkar – stjórnarskiptum, að binda enda á getu Írans til kjarnorkuauðgunar, að binda enda á getu Írans til að smíða langdrægar eldflaugar og að binda enda á stuðning Írans við Hamas, Hezbollah og Húta;
  5. Sundinu var lokað, sem hefur þegar valdið alþjóðahagkerfinu verulegum skaða og gæti valdið miklu meiri skaða – munum að Trump forseti hefur áhyggjur af því að feta í fótspor Herberts Hoover [sem var forseti Bandríkjanna 1929-33, í heimskreppunni, mistókst að fást við hana og féll fyrir F.D. Roosevelt 1932];
  6. Við grófum mjög undan vandlega uppbyggðu bandalagskerfi okkar við Persaflóa;
  7. Nánast allar herstöðvar okkar á svæðinu hafa annaðhvort skemmst mikið eða verið eyðilagðar, svo mjög að við höfum flutt flestan herútbúnað okkar burt af Persaflóasvæðinu og munum líklega ekki geta snúið aftur;
  8. Við höfum gengið svo á birgðir okkar af lykilvopnum að við höfum veikt fælingarmátt okkar í Austur-Asíu, Evrópu og jafnvel á vesturhveli jarðar;
  9. Við höfum valdið orðspori okkar sem traustur og vís bandamaður gríðarlegum skaða;
  10. Við höfum bætt hernaðarstöðu Írans á Persaflóasvæðinu verulega; og
  11. Það virðast ekki vera miklar líkur – ef til vill engar – á því að við náum neins konar kjarnorkusamningi við Íran, sem eitt sinn var þó talið afar mikilvægt. Reyndar eru talsverðar líkur á því að Íran muni eignast kjarnorkuvopn. Trump forseti hefur svo sannarlega gefið írönskum leiðtogum – og öðrum leiðtogum kjarnorkuvopnalausra ríkja um allan heim – öflugan hvata til að komast yfir kjarnorkufælingarmátt.

Það er erfitt að ímynda sér stærra hernaðarlegt glappaskot.

Hér má sjá viðtal Chris Hedges við Mearsheimer:

Sótt á Substack Mearsheimers https://mearsheimer.substack.com/ þann 1. september 

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.