Heimsvaldastefnan og styrjaldir hennar
—
Hér á Neistum hafa undanfarnar vikur birst fjórar greinar um heimsvaldastefnuna, tímabilaskiptingu hennar og styrjaldir hennar. Hér er þessum fjórum greinum steypt í eina. Heimsvaldasinnaður kapítalismi er heildstætt efnahagskerfi á heimsvísu og samhangandi sögulegt fyrirbæri. Þess vegna er æskilegt til skilnings á honum að reyna að nálgast hann sem heild.
Efnið er vissulega tröllaukið svo kastljósinu er hér beint á ákveðna mjög mikilvæga þætti, ákveðna drætti heildaramyndarinnar. Einkum tvennt: Annars vegar er það grundvallandi efnahagslegu þróunarlínurnar. Hins vegar er það geópólitískar meginlínur og sérstaklega hvernig heimsvaldastefnan elur af sér stríð – og er helsti orsakavaldur styrjalda á öllu tímabilinu.









