Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum
—

Billy Bob
10. okt, ’26

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við hana: Hver eru þau? Hvað vilja þau? Hvers vegna? Og hvernig?

Hver eru þau?

Fjölþjóðlega vestræna fáveldið – auðstéttin sem áður hafði höfuðstöðvar sínar í Evrópu en hefur þær nú í Washington. Eftir síðari heimsstyrjöldina erfðu Bandaríkin skikkju heimsveldisins. Eftir kalda stríðið virtist einpóla drottnun loks innan seilingar.

En þeim varð á afdrifarík skyssa. Á áttunda áratugnum reyndu þeir að nýta sér klofninginn milli Kína og Sovétríkjanna með því að opna á samskipti við Kína – í von um að etja sósíalísku risunum tveimur hvorum gegn öðrum. Þess í stað hjálpuðu þeir til við að skapa skilyrðin fyrir uppgangi Kína. Þegar þeir svo snerust gegn Rússlandi eftir upplausn Sovétríkjanna ráku þeir Rússland og Kína í óaðskiljanlegt strategískt bandalag, bandalag gegn vestrænni drottnun.

Hvað vilja þau?

Örþrifatilraun vestræna heimsveldisins til að tryggja heimsyfirráð gegn fullveldis-andspyrnunni undir forystu Kína, Rússlands, Írans, Norður-Kóreu og hverju því ríki sem krefst fullveldis og neitar að beygja sig sem vestrænt lénsríki/leppríki.

Þetta er ekki stríð milli þjóða. Þetta er stríð milli deyjandi heimsveldis og fjölpóla heims sem er að verða til. Heimsveldið getur ekki sætt sig við umskiptin. Þess vegna reynir það að koma í veg fyrir þau með valdi.

Hvers vegna?

Vegna þess að alþjóðlegt kerfi einokunarkapítalismans er núllsummuleikur, andstæður ósættanlegar [ávinningur annars aðilans óhjákvæmilega á kostnað hins]. Fámennisstjórnin getur ekki leyft núverandi þróun að halda óhindrað áfram. Ef Kína heldur áfram að rísa, ef hnattræna suðrið heldur áfram að byggja upp valkosti, ef þróunin færist áfram frá dollarakerfinu – þá mun kerfið sem er grundvöllur auðs þeirra, valda þeirra og forréttinda hrynja.

Þeir geta ekki keppt á forsendum framleiðslu og velja því árásarstefnu og tortímingu.

Hvernig?

Áætlunin blasir við hverjum þeim sem fylgist með.

Fyrst var ráðist á Rússland. Síðan var ráðist á Íran. Brátt verður ráðist beint á Kína. Þetta eru ekki abstrakt, óreiðukennd fyrirbæri. Við erum ekki að horfa á röð óheppilegra tilviljana. Þetta er samhæfð viðleitni vestrænu auðstéttarinnar til að tryggja sér og viðhalda alhliða yfirburðum [full spectrum dominance] 21. öldina á enda.

Á hverjum degi sjáum við átök breiðast út og renna saman. Stríðið í Úkraínu. Stríðið í Mið-Austurlöndum. Spennan í Suður-Kínahafi. Efnahagshernaðurinn. Tæknibönnin. Áróðurinn. Þetta eru ekki aðskilin átök. Þetta eru nokkrar vígstöðvar í einu og sama stríðinu.

Vesturlönd gera sér grein fyrir því að hagkerfi heimsins sjálft verður að líða fyrir það ef einangra skal Kína og halda því í skefjum. Áætlunin er að ráða niðurstöðunni á grunni styrkleika, sem byggist á yfirráðum í orkumálum. Þetta eru ekki getgátur. Þetta er yfirlýst stefna. Og stefnunni er hrint í framkvæmd fyrir augum okkar.

Kjarni áætlunarinnar er sem sé að ná orkueinokun og beita henni sem vopni.

Jarðgas er ekki auðskiptanleg vara. Það krefst vinnslustöðva til að koma því í fljótandi form, sérhæfðra flutningaskipa og stöðva til að breyta því aftur í gas. Þegar ríki er orðið bundið bandarísku fljótandi jarðgasi (LNG) með langtímasamningum og sérhæfðum innviðum verður það háð Bandaríkjunum í áratugi. Bandaríkin eru stærsti útflytjandi fljótandi jarðgass í heiminum. Þau geta beitt þessu ósjálfstæði annarra sem vopni. Þau geta hótað að skrúfa fyrir afhendingu. Þau geta neytt bandamenn til að fylgja sér að málum.

Stjórn Trumps hefur beinlínis sett „yfirráð í orkumálum“ fram sem tæki til að neyða bandamenn til að hverfa frá endurnýjanlegri orku og fylkja sér að baki Washington. Á öryggisráðstefnunni í München sagði Marco Rubio utanríkisráðherra að hnattræn umskipti yfir í endurnýjanlega orku væru „uppspretta áhrifavalds gegn Washington“ – og að bandamenn Bandaríkjanna „verði að fylgja þeim í að breyta um stefnu“. Stjórnin hefur þrýst á ríki að hafna endurnýjanlegri orku og falla frá loftslagsmarkmiðum en skuldbinda sig jafnframt til langs tíma til að kaupa bandaríska olíu og fljótandi jarðgas. ESB, Japan og Suður-Kórea hafa brugðist við með því að heita því að kaupa bandaríska orku eða fjárfesta í orkuframleiðslu Bandaríkjanna.

Þetta snýst ekki aðeins um orkumarkaði. Þetta snýst um hernaðarlegt áhrifavald. Heimsveldið byggir upp hnattrænt kerfi ósjálfstæðis gagnvart fljótandi jarðgasi.

Áætlunin beinist gegn Kína númer eitt

Eins og greinendur Chatham House [áhrifamikil bresk hugveita, stofnuð 1920 sem Royal Institute of International Affairs, þýð] benda á er orkustefnan hönnuð til að tryggja „athafnafrelsi í alþjóðastjórnmálum“. Atlantic Council hefur beinlínis lýst þessu sem áætlun gegn Kína: með því að hafa áhrif á kostnað og öryggi orkuflæðis getur Washington óbeint haft áhrif á kostnaðarforsendur gervigreindaruppbyggingar Kína og grafið undan forskoti Kína í umhverfisvænni tækni.

Þetta eru ekki marxískar heimildir. Þetta eru greinendur heimsveldisins sjálfs að lýsa áætluninni á mannamáli.

Þetta er þá áætlunin: að eyðileggja orkuútflutningsgetu keppinauta, haldleggja orkuforða, loka mikilvægum siglingaleiðum. Neyða bandamenn til að verða háðir fljótandi jarðgasi. Nota það ósjálfstæði til að aga þá. Og nota þá orkueinokun sem af hlýst – á olíu og gasi – til að kyrkja Kína.

Mið-Austurlöndum verður brátt rústað sem einu helsta orkuútflutningssvæði heimsins. Það mun steypa hagkerfi heimsins í langvarandi kreppu, svo að eftirspurn í heiminum eftir kínverskri framleiðslu þornar upp. Í kjölfar þess verður orkuviðskiptabannið hert og staðgengilsstríðin stigmögnuð.

Stríðið breiðist út

Nú sjáum við Sádi-Arabíu, Tyrkland og Pakistan ganga til liðs við stríðið við hlið Vesturlanda gegn Jemen og Íran. Þetta er sú „deiling byrða“ og „verkaskipting“ sem fjallað er um í stefnuskjölum og ræðum – allt frá tilskipunum Hegseths til Evrópu í febrúar 2025 til þjóðaröryggisstefnunnar frá 2025. Forystuaflið neyðir leppa sína til að heyja stríð sín.

Á sama hátt er Evrópa neydd til að taka að sér stærra hlutverk í staðgengilsstríðinu gegn Rússlandi. Brátt munum við sjá Filippseyjar, Japan og Taívan taka að sér stærra hlutverk í væntanlegu staðgengilsstríði gegn Kína.

Allt tekur á sig skýrari mynd fyrir augum okkar. Þetta er vísvitandi og opinská viðleitni aldagamalla vestrænna heimsvaldasinna til að ná drottnun með því að eyðileggja og undiroka þau ríki sem krefjast fullveldis.

Með hverjum stendur þú?

Með heimsveldinu sem hótar að tortíma jörðinni vegna þess að það óttast að það geti ekki stjórnað henni?

Eða með andspyrnunni sem berst fyrir framtíð fjölpóla heims, friðar, þróunar og velmegunar sem byggist á virðingu fyrir fullveldi og viðskiptum sem gagnast öllum aðilum?

Ósigur vestrænnar heimsvaldastefnu er nauðsynleg forsenda framfara mannkyns og þess að tímabili heimsvaldaarðráns ljúki.

Birtist á X heimasíðu Billy Bob 6. október.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.