Þrjú höfuð eru betri en eitt
—

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. Tillagan felur í sér breytingu á reglum um forystu sambandsins, þar sem varaforsetum yrði fækkað úr þremur í einn. Þessi breyting, sem virðist tæknilegs eðlis, myndi þó hafa veruleg áhrif á valdajafnvægi og fulltrúaskipan innan ASÍ. Verði tillagan samþykkt gæti það orðið til þess að minna heyrist í röddum sem eru nauðsynlegar fyrir öfluga og baráttuglaða verkalýðshreyfingu. Ég hvetfulltrúa á þinginu til að hafna þessari tillögu.

Til að skilja hvers vegna þetta skiptir máli þarf fyrst að skilja hvernig ASÍ starfar í dag. Sambandinu er stýrt af miðstjórn sem telur 15 manns og kemur reglulega saman – yfirleitt tvisvar í mánuði – til að marka stefnu í meginatriðum. Dagleg forysta og úrlausn brýnna mála er hins vegar í höndum framkvæmdahóps: forseta og þriggja varaforseta. Frá því að embætti þriðja varaforseta var stofnað hafa þessir fjórir einstaklingar hist reglulega sem samheldinn forystuhópur. Þessi fjögurra manna hópur er ekki formlega skilgreindur í reglum ASÍ, en hann mótar dagskrá miðstjórnarfunda, ræðir stefnumál og getur undirbúið mál áður en þau koma fyrir miðstjórn. Í reynd fylgir miðstjórnin oft þeirri dagskrá sem þessi forystuhópur setur.

Núverandi samsetning þessa hóps er ekki tilviljun. Forsetinn og þriðji varaforsetinn koma úr röðum félagsmanna ASÍ sem hafa hærri laun. Fyrsti og annar varaforsetinn koma hins vegar úr röðum þeirra sem hafa lægri laun. Þessi dreifing tryggir að hagsmunir og kröfur skrifstofufólks og iðnaðarmanna sem og kröfur verkafólks fái framgang á æðsta stigi. Hún hefur einnig leitt til þess að kynjahlutfallið eru nú þrjár konur á móti einum karli. Í stuttu máli felur fjögurra manna nefndin í sér viðkvæmt jafnvægi milli stétta og kynja sem endurspeglar fjölbreytileika félagsmanna ASÍ. Ef tillagan verður samþykkt og varaformönnum fækkað í einn, myndi þetta jafnvægi raskast verulega. Þeir tveir leiðtogar sem eftir stæðu – forsetinn og eini varaforsetinn – gætu t.d. báðir komið úr röðum þeirra sem hafa hærri laun. Félagsmenn í láglaunastörfum, sem mynda stóran hluta ASÍ, myndu þá ekki hafa neinn þar til að gæta hagsmuna þeirra og væru algjörlega hunsaðir af forsetateyminu.

Að fækka varaforsetum myndi auka líkur á slíku ójafnvægi. Félagsmenn með lægri laun gætu misst sæti sitt við borð forystunnar. Forystunefndinni, með sín fjölbreyttu sjónarmið, yrði skipt út fyrir tveggja manna framkvæmdastjórn sem líklega yrði einsleit hvað varðar stéttarlegan bakgrunn og hófsemi í aðferðum. Hér er ekki um hagræðingu að ræða, heldur völd.

Við verðum líka að vera hreinskilin varðandi þær hvatir að baki þessari tillögu sem eru síður en svo til eftirbreytni. Þetta er tilraun til að einangra og útiloka þá félagsmenn innan ASÍ sem vilja beita róttækari aðferðum. Getur verið að hér sé um að ræða ráðabrugg fólks sem sækist eftir eigin frama með því að ýta hinum baráttusinnuðu til hliðar? Stuðningsmenn þessarar breytingar tala kannski um hagræðingu, en raunverulegt markmið þeirra virðist þó vera að lama róttækan arm verkalýðshreyfingarinnar og tryggja að ASÍ haldist örugglega í höndum annara en fulltrúa verka og láglaunafólks.

Við þurfum fleiri raddir frá félagsmönnum ASÍ í lægri launaflokkum, ekki færri. Við þurfum það kynjajafnvægi sem núverandi forysta tryggir. Við þurfum þá stéttalegu fjölbreytni sem tryggir að hagsmunir alls launafólks sé gætt. Og við þurfum þau mismunandi sjónarhorn í umræðu um aðferðir sem fjögurra manna nefnd býður upp á.

Þrjú höfuð eru betri en eitt. Fella ætti tillöguna um að fækka varaforsetum í einn. ASÍ verður að halda áfram að vera lýðræðislegt og baráttusinnað samband sem endurspeglar fjölbreytni félagsmanna. Of mikið er í húfi til að gera annað.

Höfundur er fulltrúi á þingi ASÍ og stjórnandi í Eflingu.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.