Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin
—

4. ágú, ’26

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála Ali um að öll sem kæmust til valda í evrópskum samtíma yrðu framkvæmdaaðilar nýfrjálshyggjunnar og heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Ég var vongóð um niðurstöðu Ali; alþýðufólk væri að byggja upp varnir, myndi svo geta sótt fram til að breyta gangi mála. Í nýju tölublaði Catalyst segir sagnfræðingurinn David Broder ályktun Ali hafa reynst ranga. Hugsjónin um raunverulegar breytingar dó – yfirstétt evrópskra stjórnmála komst af.

Í kjölfar fjármálahrunsins 2008 vaknaði trú á að fram færi lýðræðislegt endurmat á hlutverki stjórnmála; eru þau stjórntæki auðvaldsins eða skal reka mannsæmandi samfélag fyrir venjulegt fólk? Um alla Evrópu, einnig hér, mynduðust hreyfingar og flokkar þar sem fólk kom saman til að stunda stjórnmál fyrir fólk, ekki fjármagn. Róttæklingar og popúlistar sameinuðust gegn niðurskurði og því að almenningur yrði látinn axla ábyrgð á sturlun kapítalismans. Frjó og innihaldsrík gagnrýni á stofnanir Evrópusambandsins heyrðist í álfunni; hægt er að breyta Evrópusambandinu innan frá!

Broder segir spá Ali ekki hafa ræst. Auðmýking Syriza í Grikklandi er saga af pólitískri refsingu – setja varð hrikalegt fordæmi sem öll evrópsk alþýða skildi. Vandamálin við Brexit urðu svo yfirgengileg að enginn hefur lengur áhuga á að feta sambærilega slóð (þetta viðurkenndi Kristrún Frostadóttir í ágúst 2024; að hætta í ESB er pólitískur ómöguleiki). Hugmyndin um breytingar á ESB að innan er horfin – aðeins þau fáfróðu trúa því enn að slíkt sé hægt.

Stóra breytingin er sú að þau sem kölluð voru öfgahægrið hafa gengið til liðs við stofnanir ESB. Meloni og Le Pen tala ekki lengur um úrgöngu – þær vilja sæti við borðið enda er þar hægt að ná miklum árangri í að gera aðflutt fólk ábyrgt fyrir öllum vandamálum álfunnar. Svokallað cordon sanitaire er horfið; valdastéttin opnaði faðminn og gerði baráttumálin að sínum.

Erfitt er að vera ósammála niðurstöðu Broder. Í Evrópu hefur umræða um reglur og stofnanir ESB að mestu horfið. Sáttmálar sambandsins sem áður voru umdeildir eru nú taldir sjálfsagðir. Vinstrið berst ekki lengur gegn þeim, hvað þá sambandinu sjálfu; aðeins er eftir örvæntingarfull tilraun til að veita sundurnöguðum stofnunum velferðarkerfisins örlítið skjól. Engin sókn, aðeins vörn; það er hinn raunverulegi sigur valdastéttarinnar.

Spurningin sem vinstra fólk á Íslandi stendur nú frammi fyrir er þessi: Er uppgjöf óumflýjanleg eða er til einhvers að berjast?

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.