Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?
—
28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið fluttar árlega árum saman. Þótt enn sé yfirgnæfandi meirihluti fylgjandi tillögunni hefur fylgið þó minnkað umtalsvert á undanförnum tveimur árum.
Nú féllu atkvæði þannig að 130 ríki greiddu atkvæði með tillögunni, 17 á móti en 25 sátu hjá, samtals voru þannig 42 ríki sem ekki greiddu atkvæði með tillögunni. Fulltrúar 21 ríkis voru fjarstaddir en alls eiga 193 ríki aðild að Sameinuðu þjóðunum.
Það má velta fyrir sér með því að greina hvernig atkvæði féllu hvort þetta segi eitthvað og hvað þá um heimsástandið, einkum með því að líta til Rómönsku Ameríku annars vegar og Evrópu hins vegar og þá sérstaklega Evrópusambandsins.

Afstaða Evrópu
7 Evrópuríki, þar á meðal Úkraína, greiddu atkvæði gegn tillögunni, þar af 4 ESB-ríki. 13 Evrópuríki sátu hjá, þar af 10 ESB-ríki. Samtals greiddu sem sagt 14 ESB-ríki atkvæði gegn tillögunni eða sátu hjá. Það gerir rúman þriðjung þeirra ríkja sem ekki greiddu atkvæði með tillögunni.
Það vekur athygli að meðal þeirra ESB-ríkja sem sátu hjá voru þrjú ríki sem kalla má kjarnaríki ESB, það er að segja meðal upphaflegu ríkjanna sem áttu á sínum tíma aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu, Þýskaland, Ítalía og Holland. Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem þau greiða ekki atkvæði með tillögunni. Flest hinna ríkjanna eru fyrrverandi austantjaldsríki auk Grikklands. Þess má geta að Bretland greiddi atkvæði með tillögunni.
Rétt er að hafa í huga að Evrópusambandið sem slíkt kom ekki að þessari atkvæðagreiðslu enda eiga aðeins einstök ríki aðild að Sameinuðu þjóðunum. Engu að síður kom fram á fundinum „skýring ESB á atkvæðagreiðslunni“ (European Union Explanation of Vote) sem fulltrúi Írlands flutti í krafti þess að Írland skipar nú sæti forseta leiðtogaráðs ESB. Sú skýring ber þess mjög merki að atkvæði ESB-landanna féllu á ýmsa vegu. Vísað er til sáttmála Sameinuðu þjóðanna, sagt að viðskiptabannið hafi neikvæð áhrif á efnahag og lífsskilyrði kúbönsku þjóðarinnar og vikið að því neyðarástandi sem ríkir á Kúbu. Jafnframt er bent á hvernig Helms-Burton-lögin frá 1996 [lög sett í stjórnartíð Bill Clintons sem hertu mjög á viðskiptabanninu, m.a. með aðgerðum gegn löndum og fyrirtækjum sem hafa samskipti við Kúbu] hafa áhrif utan Kúbu og þar á meðal innan Evrópusambandsins. Upplýst er að ESB hefur á árinu 2026 veitt 16 milljón evra í mannúðaraðstoð til Kúbu. Að aflétta viðskiptabanninu mundi skipta miklu máli til að breyta þeirri stöðu. En hins vegar er sagt að kúbönsk stjórnvöld beri líka mikla ábyrgð með efnahagslegri og pólitískri stefnu sinni og mannréttindabrot og skortur á lýðræði eru tíunduð. Þau þurfi að breyta stefnu sinni innanlands, „ESB mun halda áfram mikilvægum en uppbyggilegum samskiptum sínum við Kúbu til að styðja við stofnanalega, efnahagslega, félagslega og pólitíska nútímavæðingu landsins, en jafnframt þarf að hafa í huga að skjót framkvæmd umbóta er á ábyrgð Kúbu.“ Og afstaða Kúbu til stríðs Rússlands gegn Úkraínu er hörmuð og skorað á Kúbu að láta af öllum beinum eða óbeinum stuðningi við árás Rússa.
Afstaða Rómönsku Ameríku og þróun síðustu ára
Alls greiddu 19 Evrópulönd atkvæði gegn tillögunni eða sátu hjá, 13 ríki Rómönsku Ameríku og 9 ríki í öðrum heimsálfum.
Á allsherjarþinginu hafa verið greidd atkvæði um sambærilega tillögu árlega allt frá 1992 en Bandaríkin settu viðskiptabann á Kúbu árið 1960 og hefur það staðið óslitið síðan. Stuðningur við tillöguna hefur aukist mjög síðan fyrst voru greidd atkvæði um hana 1992. Þá greiddu 59 ríki atkvæði með henni, 71 sat hjá en reyndar greiddu aðeins 3 ríki atkvæði gegn henni þá. 46 ríki greiddu ekki atkvæði.
Í forsetatíð Baracks Obama slakaði Bandaríkjastjórn aðeins á fjandsamlegri stefnu sinni gagnvart Kúbu þótt viðskiptabannið væri ekki slegið af. En á þeim árum fékk tillagan mest fylgi, 191 atkvæði á árunum 2015, 2016 og 2017. Bandaríkin og Ísrael greiddu atkvæði gegn henni 2015 og 2017 en sátu bæði hjá 2016. (Þetta er skv. upplýsingum á vef SÞ og virðist samkvæmt því sem öll aðildarríki SÞ hafi greitt atkvæði öll þessi þrjú ár, sem vekur nokkra furðu. Auk þess hafa Bandaríkin árið 2016 setið hjá í tillögu um að afnema eigið viðskiptabann!)
Í fyrra, 2025, greiddu 165 ríki atkvæði með tillögunni, 7 gegn henni (Argentína, Ungverjaland, Ísrael, Norður-Makedónía, Paraguay, Úkraína og Bandaríkin) en 12 sátu hjá. Þá var Ungverjaland eina ESB-landið sem greiddi atkvæði móti en 6 sátu hjá.
Samtals greiddu 12 Evrópuríki atkvæði gegn tillögunni eða sátu hjá árið 2025 miðað við 20 nú,
4 ríki Rómönsku Ameríku miðað við 13 nú og 3 ríki í öðrum heimsálfum miðað við 9 nú. Af þeim 6 ríkjum sem nú bættust við utan Evrópu og Ameríku voru Suður-Kórea, tvö smáríki, Palau og Sólómon-eyjar og þrjú Arabíu-ríki, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Katar og Bahrain. Auk þeirra bættist Marokkó við 2025.
Þau ríki Rómönsku Ameríku sem nú greiddu atkvæði með tillögunni eru Brasilía, Mexíkó, Nicaragua, Uruguay, Panama og 6 smáríki í Karíbahafinu en af þeim eru fjögur í breska samveldinu. Fulltrúi Venesúela var fjarverandi.
2024 greiddu 187 ríki atkvæði með tillögunni, tvö gegn henni (Bandaríkin og Ísrael) og eitt sat hjá (Moldóva).
Þessi mikil breyting á aðeins tveim árum er athyglisverð þar sem viðskiptabanninu hefur aldrei verið framfylgt af jafnmikilli óvægni og undanfarin misseri og er raunar farið að valda neyðarástandi á Kúbu.
Beittu Bandaríkin þrýstingi?
Bandarísk stjórnvöld hafa hvatt ríki til að greiða ekki atkvæði með tillögunni og vísbendingar eru um að þau hafi beitt þrýstingi. Viku fyrir atkvæðagreiðsluna sagði utanríkisráðherra Kúbu á blaðamannafundi í Havanna að bandarísk stjórnvöld beittu hótunum í því skyni, svo sem með því að hafna vegabréfsáritunum og jafnvel beita efnahagslegum refsingum. Án þess að tilgreina það nánar sagði ráðherrann: „Við þennan þrýsting er beitt aðferðum sem fela meðal annars í sér hótanir um að leggja á refsitolla, stöðvun samstarfsverkefna…, stuðning við öfl sem andsnúin eru stjórnvöldum, hótanir um að hvetja til stjórnarbyltinga eða skipta sér af kosningaferlum í viðkomandi löndum, auk hótana um að grafa undan pólitískum stöðugleika í þessu löndum.“
Sé þetta rétt er ekki ólíklegt að þessum þrýstingi hafi verið sérstaklega beint að ríkjum Rómönsku Ameríku. Samkvæmt tilkynningum frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna átti Marco Rubio utanríkisráðherra viðræður í október við forseta nokkurra ríkja Rómönsku Ameríku og á fundi með forseta El Salvador, Nayib Bukele, hvatti hann „El Salvador til að ganga til liðs við Bandaríkin og samherja sem deila sömu sýn, í því skyni að efla sameiginleg forgangsverkefni hjá Sameinuðu þjóðunum,“ og var sérstaklega vísað til Kúbu.
En Bandaríkin hafa líka beitt sér gagnvart Evrópuríkjum, einkum með því að vísa til samstöðu Kúbu með Rússum í stríðinu gegn Úkraínu og jafnvel að kúbanskir hermenn hafi barist þar með Rússum, nokkuð sem utanríkisráðuneyti Kúbu hafnaði alfarið í fréttatilkynningu 21. október. Það sama var uppi á teningnum í fyrra og þá skýrði fulltrúi Póllands afstöðu þess – og talaði einnig fyrir hönd Tékklands, Eistlands, Lettlands og Litháen – með stuðningi Kúbu við Rússa og þátttöku í stríðinu, og fulltrúi Rúmeníu tók undir þá skýringu.
Ályktunina má lesa hér en í stuttu máli er í henni tekin upp margítrekuð áskorun allsherjarþingsins til allra ríkja að hafna refsiverðri löggjöf Bandaríkjanna, svo sem Helms-Burton-lögunum frá 1996, sem brýtur gegn alþjóðalögum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Vakin er athygli á ráðstöfunum sem gripið var til á árunum 2015 og 2016 [í stjórnartíð Baracks Obama] til að breyta tilteknum þáttum viðskiptabannsins, „en þær eru andstæðar þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til frá árinu 2017 [í stjórnartíð Donalds Trump] í þeim tilgangi að herða framkvæmd bannsins.“










