Hver á þetta stríð í Úkraínu?
—

Þórarinn Hjartarson
3. nóv, ’26

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna ríkja. Sömu aðilar segja að stríðið snúist um rétt Úkraínu til að velja sér bandamenn og bandalög. Donald Trump sagði í kosningabaráttunni að Úkraínustríðið væri „stríð Joe Bidens“. Nú segir hann æ oftar að það sé „stríð Evrópu“ og skikkar Evrópu til að „endurhervæðast“. Og Evrópa axlar skikkju stríðsins fumlaust og marsérar hugumstór í átt að víglínunni (sú lína er þó hengiflug), tilbúin til að breyta Úkraínustríði í Evrópustríð, ef ekki heimsstríð. Þeim skipulagsbreytingum til staðfestingar samþykkti NATO í sumar að aðalábyrgð á stríðsrekstrinum skyldi færast frá Bandaríkjunum og til Evrópulanda – að viðbættu Kanada.

Hver á eiginlega þetta stríð? Hver ber ábyrgð? Hver eru stríðsmarkmiðin? Dómar manna um stríðið nú um stundir eru hlaðnir áróðri, bannhelgi og siðferðisstóryrðum (ætlum við að hjálpa bróður í neyð eða ekki?) svo erfitt er að ræða málefnið. Auk þess er algjörlega ómögulegt að rökræða þetta stríð neitt nema taka nokkra forsögu með í reikninginn. Alla vega til ársins 1991, og rekja þarf rás mikilvægustu viðburða þaðan. Atburðarásin myndar nefnilega röklega samfellu þó hún sýnist stundum kaótísk, enda er henni stjórnað frá einni miðstöð. Frásögnin sem hér fylgir verður því annáll eða kronika. Hér verður því haldið fram að Úkraínustríðið sé fyrst og fremst stríð Bandaríkjanna. Eftirfarandi annáls-rakning er fyrri hluti greinar.

Ekki frið takk heldur skal neyta fallsins

  • Staðan fyrst eftir 1991. Kalda stríðinu var lokið, múrinn hruninn, Varsjárbandalag leyst upp, Rússland á hnjánum. Fyrir bandaríska heimsvaldastefnu/ fjármálafáveldi opnuðust leiðir breiðar og greiðar þegar helsti keppinautur á heimsvísu var úr leik. Og Bandaríkin tóku nú stefnu á heimsyfirráð. Aðalmálið að hindra mögulega keppinauta að koma fram, sagði Wolfowitzkenningin. Einpóla heimsskipan. Með jeltsínisma í Rússíá varð sú von alveg raunveruleg að ná stjórn á Rússlandi sjálfu og Evrasíu til nýlendulegrar arðnýtingar. NATO og þar með Evrópa gegndi lykilhlutverki í þeim áformum. Aðallega sem verkfæri þó.

  • Bandaríska fjármálafáveldið hafði aldrei gramm af áhuga á friði þó að Kalda stríði lyki. Miklu heldur kaus það að hámarksnýta fall Járntjaldsins og Sovétríkjanna. Í stað þess að leggja niður eigið hernaðarbandalag á móti hernaðarbandalagi andstæðingsins var NATO og áhrifasvæði Bandaríkjanna þanið út eins og gengið gat.

  • Í bók sinni frá 1997 The Grand Chessboard: American Primacy And Its Geostratemeð gic Imperatives, lagði hinn áhrifamikli bandaríski strategisti Zbigniev Brzezinski línuna um útþenslu NATO í áföngum („salami-taktík“) allt austur að Rússlandi. Sérstaklega taldi hann mikilvægt að ná Úkraínu undan áhrifum Rússlands, af því Úkraína væri „heimspólitískur veltipunktur“ (geopolitical pivot) vegna staðsetningar sinnar á taflborði stórveldanna „the Grand Chessboard“. Brzezinski áleit sem sé að Úkraína, staðsett rétt við hjartastað Rússlands, gæfi möguleika á að veikja Rússland. Í bókinni undirstrikar Brzezinski þetta atriði mjög: „án Úkraínu hættir Rússland að vera evrasískt stórveldi“. Í viðbót við staðsetninguna var Úkraína land með nægar innbyrðis þjóðernis- og menningarlegar mótsetningar og efni í innri ófrið.

  • Tíundi áratugurinn var bandarísk gullöld.  Flest lék þá í lyndi. Pax Americana. Vestræn hnattvæðing gekk víða friðsamlega fyrir sig, ekki þó við Persaflóa eða Balkanskaga. NATO réðist á Júgóslavíu 1998. BANDARÍKIN léku þar aðalhlutverk, Evrópulönd í aukahlutverkum. Ári síðar kom fyrsta stækkun NATO til austurs.

  • Á fyrsta áratug nýrrar aldar hófu Bandaríkin hernaðarsókn í Vestur Asíu. Þau hertu sóknina eftir 11. september 2001, og kölluðu það „stríð gegn hryðjuverkum“ eða stundum „verndun lýðræðis“ og sýndu útvöldum aðilum lista yfir „sjö stríð á næstu fimm árum“. Innrásirnar og valdaskiptaaðgerðir komu eins og perlur á bandi.

Sjálfstæðisviðleitni í Evrópu?

  • Á fyrsta áratugnum bar svolítið á sjálfstæðisvilja Evrópuríkja gagnvart hinu bandaríska valdi. Þetta birtist best í Íraksstríðinu. Frakkar og Þjóðverjar fordæmdu innrásina í Írak sem ólöglega. Sá þýski Schröder og franski Chirac héldu á fyrstu vikum stríðsins (11/4 2003) blaðamannafund ásamt með rússneska Pútín þar sem innrásin var fordæmd. Bandaríkin svöruðu slíkri óþægð m.a. með því að treysta meira á Austur-Evrópuríki, sem voru afar fylgjusöm Washington, og þrýsta á um inngöngu þeirra í NATO. Þar með hófu Bandaríkin líka að færa herlið frá Vestanverðri Evrópu (m.a. frá Íslandi) yfir í herstöðvar í Austur-Evrópu.

  • Á leiðtogafundi NATO í Búkarest 2008 knúðu Bandaríkin í gegn samþykkt um að Úkraína og Georgía “muni ganga í Atlantshafsbandalagið“. Þetta var gegn andstöðu í Evrópu sem leidd var af leiðtogum Frakklands og Þýskalands, sem sögðu slíkt vera allt of mikla og beina ögrun við Rússland. 
Kortin sýna austurþenslu NATO á 24 árum fyrir innás Rússa í Úkraínu, NATO-lönd rauðmáluð.
  • Stefnan „Úkraína í NATO“ var líka í andstöðu við vilja mikils meirihluta Úkraínumanna sjálfra. Á tímanum 1991-2014 var fylgi við NATO-aðild í Úkraínu að jafnaði um 20%. Einum mánuði eftir Búkarest-samþykktina 2008 sýndi t.d. Gallup-könnun í Úkraínu að aðeins 15% þjóðarinnar töldu að aukin vernd og öryggi fælist í mögulegri NATO-aðild.

  • Fleiri merki voru á lofti um sjálfstæðisviðleitni Evrópuríkja á fyrsta áratug aldarinnar. Rússland var að reisa sig upp úr kreppu, og efnahags- og orkumálasamstarf sérstaklega milli Þýskalands og Rússlands fór hraðvaxandi. Samið var um leiðsluna Nord Stream 1 þeirra á milli árið 2005. Bandaríkjunum líkaði stórilla.

  • Í ytra umhverfinu gerðist það að Kína steig fram sem risaframleiðandi og útflytjandi. „Kína tók fram úr Bandaríkjunum á sviði iðnaðar og framleiðslu árið 2010“,  segir Google. Rússland reisti sig upp úr eymd 10. áratugarins. Það var farið að örla á „fjölpóla“ heimi, nokkuð sem fól í sér ógn við stöðu Bandaríkjanna sem heimsdrottnari. Viðbröfð Bandaríkjanna voru þessi: það sem tapast á sviði framleiðslu er hægt að endurheimta á sviði hernaðar svo þau urðu nú bara ennþá herskárri.

Valdarán, Kríminnlimun, borgarastríð

  • 22. febrúar 2014 varð valdarán í Kiev. Lýðræðislega kjörinn forseti var rekinn frá völdum. Skipulagning valdaráns var hjá CIA, bandaríska sendiráðinu í Kiev ásamt bandarískum „frjálsum félaga- og mannréttindasamtökum“(NGO‘s) (mikilvægust þeirra voru USAID og CIA-staðgengillinn National Endowment for Democracy (NED)). Victoria Nuland aðstoðar-utantíkisráðherra var í burðarhlutverki. Tveimur vikum fyrir valdaránið lak út samtal hennar við bandaríska sendiherrann  í Úkraínu þar sem hún skipaði í forustustöður í komandi ríkisstjórn Úkraínu, tilnefndi hvaða stjórnmálaöflum Bandaríkin ætluðu að vinna með, skipan sem fylgt var í kjölfar valdaránsins. Nuland lagði þar áherslu á nána samvinnu við hægriöfgahópa.

  • Euromaidan mótmælin voru yfirtekin af hægriöfgahópum sem léku aðalhlutverk í framkvæmd litabyltingarinnar og sáu um ofbeldishliðina (risamynd var af Stepan Bandera yfir aðalinngangi Ráðhúss Kiev eftir að mótmælendur gerðu ráðhúsið að sínum „operational headquarters“.  Hér má sjá nánari umfjöllum um „Maidanbyltinguna“.

  • Eftir valdaránið varð samvinna við CIA eitt fyrsta mál á dagskrá. Google er spurð um formlegt samstarf CIA við stjórnvöld í Úkraínu eftir febrúar 2014 og hún svarar svona: „Samstarf CIA við Ukraínu hófst aðfararnótt 24 februar 2014, þegar nýskipaður yfirmaður leyniþjónustu Úkraínu, Valentyn Nalyvaichenko, hringdi í sendiráð Bandarikjanna og Bretlands beint frá skrifstofu sinni í Kiev … CIA hjálpaði við að byggja upp 12 leynilegar njósnamiðvöðvar (útpósta) við landamæri Rússlands“ Sem sagt strax á öðrum degi eftir valdarán.

  • Allra fyrsta lagabreyting úkraínska þingsins daginn eftir valdaránið var að afnema hina opinberu tungumálastefnu sem hafði gefið rússnesku stöðu sem önnur þjóðtunga í sumum landshlutum Úkraínu. Hin nýju lög voru sérsniðin til að koma á bogaraófriði í menningarlega tvískiptu landi.

  • Rússneskumælandi héruð landsins, fremst í flokki Krímskagi og Dobass-héruð viðurkenndu ekki valdaránsstjórnina í Kiev. Þremur vikum eftir valdaskiptin var haldin atkvæðagreiðsla á Krím sem færði skagann yfir til Sambandsríkisins Rússlands, í mars 2014. Kreml var þar með í ráðum, á Krím er enda ein mikilvægasta flotastöð Rússlands til 230 ára. Um líkt leyti hófst borgarastríð í Donbass, héruðin Donetsk og Luhansk lýstu yfir sjálfstjórn í maí. Þau vildu líka inngöngu í Rússland en Moskva vildi heimila slílkt, hins vegar veitti hún aðskilnaðarsinnum örugglega nokkra vopnaðstoð. 

  • Valdaskiptaaðgerðin í Úkraínu 2014 var fyrst og fremst BANDARÍSK valdataka. Í samanburði voið hina bandarísku íhlutun höfðu afskipti Evrópuríkja til þessa verið minniháttar. 

  • Eftir innlimun Krím í Rússland hófu BANDARÍKIN baráttu fyrir efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Rússlandi og stöðvun viðskipta. Evrópulönd fordæmdu vissulega innlimun Krím en voru samt misjafnlega fús til refsiaðgerða sem komu niður á þeim sjálfum. Til þess þurfti þrýsting.

  • Þann 3. okt. hélt Joe Biden varafoseti ræðu í Harward um Krímdeiluna og refsiaðgerðirnar, og sagði:  „Hún [Krímdeilan] hefur gefið okkur ástæðu til að safna helstu þróuðu ríkjum heims saman um að leggja verulegan kostnað á Rússland. Það er satt, þau vildu ekki gera þetta. En, aftur, það voru stjórnvöld Bandaraíkjanna og forseti okkar sem stóð á því, varð oft nánast að láta Evrópu skammast sín (embarrass Europe) til að standa upp og taka á sig efnahagsleg högg til að valda Rússum kostnaði.“  Svo er að sjá að Frakkar og Þjóðverjar hafi þá einmitt „skammast sín“, og þeir hættu þar með að andæfa hvers konar refsiaðgerðum gegn Rússlandi, og yfir höfuð að leika sjálfstætt hlutverk gagnvart Rússland.

Minsksamningar til að „kaupa tíma“

  • Friðarsamningar hófust milli stjórnvalda í Kiev og uppreisnarahéraðanna í Donbass – í tvígang og þeim lauk í Minsk í Hvíta-Rússlandi í febrúar 2015. Þar var Kievstjórninni gert skylt að hefja samningaviðræður við uppreisnarmenn um aukin sjálfstjórnarréttindi Donbasshéraða, og sömu leiðis tungumálaréttindi. Samningurinn var staðfestur af Sameinuðu þjóðunum og Þjóðverjar og Frakkar skyldu ábyrgjast framkvæmd hans. En Kiev hóf aldrei neinar samningaviðræður heldur hélt stríðinu áfram, og Frakkar og Þjóðverjar þrýstu heldur aldrei á um framkvæmdina. Hollande Frakklandsforseti og Merkel Þýskalandskanslari viðurkenndu svo eftir á að aldrei hefði staðið til að standa við Minsksamning heldur aðeins vinna tíma til að búa Úkraínu fyrir stríð. Sjá hér.  Hið sama sagði líka úkraínski forsetinn Porosjenko eftirá: við vorum að „kaupa tíma“ fyrir stríð.

  • Borgarastríðið í austurhéruðunum hélt því áfram. Úkraína gekk ekki formlega í NATO, en með valdaránsstjórninni var landið samt komið inn í NATO að flestu nema nafninu. Farið var að veita Úkraínu vopn og byggja upp úkraínska herinn. Árið 2016 samþykkti NATO „Samþættan stuðningspakka við Úkraínu“ (Comprehensive Assistance Package for Ukraine). Tilgangur hans var að  „endurbæta her landsins í samræmi við staðla og kröfur NATO, og að ná samvirkni þeirra við NATO-heri árið 2020.“ Í þjálfuninni voru Bandaríkin og Bretland í aðalhlutverkum. Google er spurð um það og svarar: „The United States and the United Kingdom played a major role in training the Ukrainian Armed Forces before the 2022 invasion“. Hinn virki herafli Úkraínu hundraðfaldaðist að stærð á tímanum 2014-2022.

Friðarframboð Zelenskys 2019

  • Úkraínska þjóðin vildi alls ekki stríð. Í kosningum 2019 kaus hún út úr embætti sitjandi forseta, Porosjenko , fulltrúa andrússneskrar harðlínu. Í staðinn var kosinn leikarinn Zelensky með „frið“ sem aðalstefnumál, vildi að staðið væri við Minsksamninginn, samið við aðskilnaðarhéruðin og Rússland, endurreist réttindi hinna rússneskumælandi m.m.  Zelensky fekk heil 73% atkvæða.

  • Þá stigu fram samtökin Ukraine Crisis Media Center, UCMC, sem stofnuð voru skömmu eftir valdaránið, mjög mikilvæg „non-governmental organization that relies heavily on financial and institutional support provided by Western governments, international bodies, and prominent pro-democracy foundations, segir Google. UCMC birtu nú lista yfir „rauð strik sem Zelensky á ekki að fara yfir“, að öðrum kosti muni það „leiða til pólitísks óstöðugleika í landi okkar og skaða alþjóðlegu samböndin“. Þetta voru skýr skilaboð frá NATO, Bandaríkjunum og vestrænum ríkisstjórnum. Rauðu strikin sem Zelensky mátti ekki fara yfir voru t.d. a) að hefja samningaviðræður við aðskilnaðarsinna í Donbas eða við Rússland, b) tefja aðildarferli Úkraínu að ESB eða NATO, c) endurskoða hina nýju tungumálalöggjöf… Rauðu strikin voru í stuttu máli friðarstefnuskráin í heild, sem Zelensky hafði borið fram og 73% þjóðarinnar stutt. Sjá nánar hér. 

  • Í beinum samhljómi við NATO-skilaboðin komu hótanir hægriöfgahópanna um að drepa Zelensky ef hann dirfðist að semja við aðskilnaðarsinna í Donbas eða við Rússa. Í vefriti einu birtist vital við nasistann Jarosh, foringja flokksins Hægri sector, og hann mælti á þessa leið: „Framkvæmd Minsk-samkomulagsins er dauði fyrir lýðveldið okkar… [Zelensky] myndi tapa lífi sínu. Hann myndi hanga í tré á Khreshchatyk [miðborgarstræti í Kíev] – ef hann sviki Úkraínu og fólkið sem lét lífið í byltingunni og stríðinu.“ Þarmeð steinhætti Zelensky að tala um Minsk-samninginn. Fasistarnir sem höfðu hótað að myrða hann fengu bara fleiri mikilvægar stöður í stjórnkerfi hans. Búið var nú að fyrirbyggja framkvæmd Minsk-samkomulagsins og stríðsundirbúningurinn gat því haldið áfram ótruflaður.

Aðferðin að „yfirteygja Rússland“

  • Stefnan sem Bandaríkin höfðu tekið var að áreita og ögra Rússlandi til hernaðarátaka – sem víðast. Markmið Washington me þessu var tvíþætt: í fyrsta lagi að veikja Rússland og í öru lagi að skera Evrópu frá Rússlandi og viðhalda stöðu hennar sem undirsett bandarískt „lén“.

  • Hugveitan RAND Corporation, að miklu leyti kostuð af Pentagon („The Pentagon finances a major share of RAND’s research“ segir Google) og vinnur áætlanir fyrir ráðuneytið, lagði fram mikilvæga áætlun gagnvart Rússlandi árið 2019. Sú nefnist „Extending Russia – Competing from Advantageous Ground “ (Að teygja Rúsland – keppt á hagstæðum grunni). Það merkir að „yfirteygja“ Rússland, eins og segir í inngangi: „að láta Rússland yfirteygja sig hernaðarlega eða efnahagslega“. Þetta stefnuplagg er vopnabúr hugmynda um veika betti á Rússum sem stinga mætti og stinga bæri í, sem sagt tillögur um ögrunaraðgerðir: Við getum styrkt Al Kaída og vopnuðu andstöðuna í Sýrlandi (við stjórnvöld sem Rússland studdi hernaðarlega)! Við getum torveldað olíuútflutning Rússlands, m.a. Nord Stream! Við getum komið á valdaskiptum í Hvíta Rússlandi! Við getum komið á valdaskiptum í Kasakstan! En númer eitt var þó þetta: Við getum veitt miklu meiri vopnum inn í Úkraínu, sem getur svo „leitt til þess að Rússland auki beina þáttöku í átökunum í Dobass-héruðunum“. Bandaríkin hafa raunar síðan í grofum dráttum fylgt þessum áætlunum, þessum aðgerðalista. Við minnum á að plönin eru lögð fram þremur árum fyrir innrásina í Úkraínu. Og rússnesk innrás var þegar orðin til sem BANDARÍSK ÁÆTLUN. Ekki rússnesk áætlun, og ekki evrópsk áætlun. Og Úkraína hafði þegar verið byggð upp og virkjuð fyrir hinn andrússneska málstað, sem öflugur staðgengill (proxy).

  • Chas W. Freeman, sem starfaði í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna, m.a. sem aðstoðarvarnarmálaráðherra undir Bill Clinton, útskýrir hér að Rússar hafi haft ástæðu til að líta á NATO-uppbygginguna í Úkraínu sem ógn: „Á þessu tímabili [eftir 2014] vopnaði NATO her Úkraínu og þjálfaði hann, og þegar Rússar gerðu innrásina í febrúar 2022 mættu þeir úkraínskum her upp á meira en 700.000 manns, þeim stærsta í Evrópu fyrir utan þann tyrkneska, stærri en herir Bretlands, Frakklands og Þýskalands samanlagðir, sem var þjálfaður samkvæmt gæðakröfum NATO. Og hvar var sá her í febrúar 2022? Hann var staddur við landamæri hinna rússneskumælandi yfirlýstu Alþýðulýðvelda í austurhluta Úkraínu. Þannig að rússneska innrásin var ekki bara viðbragð við höfnun Vestursins á öllum viðræðum, hún var líka viðbragð við yfirvofandi árás í rússneskumælandi héruðin.“

24 febrúar 2022

  • Lengi vel létu Rússar ekki ögra sér til vondra verka. Þó kom að því í febrúar 2022 að Pútín hóf árásarstríð inn í Úkraínu. Það var löglaust  stríð samkvæmt alþjóðalögum. Ekki var árásin þó gerð fyrirvaralaust. Pútín hafði fyrst sent bréf á bæði NATO og Washington og boðist til að sleppa innrás – en með skilyrðum. Hann dró upp rautt strik og hann fór fram á öryggistryggingar fyrir Rússland. Jens Stoltenberg aðalritari NATO staðfesti það síðar.  „Og við verðum að muna bakgrunninn. Bakgrunnurinn var sá að Pútín forseti lýsti yfir haustið 2021, og m.a.s. sendi hann samningsuppkast sem þeir vildu að við undirrituðum, um að lofa engri frekari NATO-útvíkkun. Það var það sem þeir sendu okkur. Og var skilyrðið fyrir því að ekki yrði ráðist inn í Úkraínu. Auðvitað undirrituðum við það ekki.“   Rússland heimtaði öryggistryggingar fyrir sig og sagðist myndu gera árás að öðrum kosti. Washington og NATO höfnuðu boðinu, létu m.a.s. engan vita um þetta hótunarbréf. Frekar skyldi stríðið bresta á, og koma á óvart, til að sjokkera heiminn sem mest.

  • Frá þeim degi snýst umræðan einkum um TÚLKUN ÁRÁSARINNAR. Vladimir Pútín sagði hana gerða af því NATO-útþenslan, og NATO-uppbygging í Úkraínu sérstaklega, væru „ógn við Rússland“, m.a.s. „tilvistarógn“ við Rússland, aðgerðin væri varnaraðgerð, nokkuð sem Rússar myndu ekki bakka frá nema fá raunverulegar öryggistryggingar. Á degi innrásarinnar sagði Joe Biden afturá móti sagði að árásin væri „unprovoked“ útþenslustefna: „Þetta snerist aldrei um raunverulegar öryggisáhyggjur af þeirra hálfu. Það snerist alltaf um nakta árásarhneigð, um löngun Pútíns í heimsveldi…“
  • Túlkun innrásar. Ef innrásin var varnarviðbrögð og „öryggisráðstafanir“ Rússa þá var samningaborðið málið, diplómatía og leit að málamiðlun um öryggi. Ef hins vegar um var að ræða  útþenslu- og landvinningastríð Rússa, „unprovoked“ tilefnislaust, þá væri málið að stöðva útþensluna og „hjálpa Úkraínu“, „vopna Úkraínu“, jafnvel „valdaskipti í Moskvu“, og hvers konar málamiðlun væri þá friðkaupastefna (appeacement) og uppgjöf fyrir ofbeldinu.

Friðarviðræður í Istanbul

  • Strax á fyrsta degi innrásar leitaði Pútín hófanna um samninga. Hann vildi semja um hlutleysi Úkraínu, sagðist stöðva innrásina ef Úkraína féllist á hlutleysi. Samningamenn Rússa og Úkraínumanna með milligöngumönnum hittust í Antalya og Istanbúl í Tyrklandi 20-29. mars. Mikill árangur náðist og þeir voru nálægt samkomulagi, að samdóma áliti milligöngumannanna. Rússar munu hafa sagst jafvel tilbúnir að draga sig tilbaka að línunni frá 24. febrúar gegn tryggingum um hlutleysi Úkraínu. Hlutar samninganna voru m.a.s. undirritaðir til bráðabirgða. Sjá hér. Atburðarásin í Istanbul virtist ekki benda til að Rússar væru í landvinningastríði. En fleira var að gerast þessa daga: þann 24. mars var leiðtogafundur NATO í Brussel þar sem voru mættir Joe Biden og Boris Johnson ásamt leiðtogum. Og sá fundur tók neikvæða afstöðu til friðartillagnanna sem komnar voru fram í Istanbul. Ekki múkk af andstöðu við þá afstöðu kom nú fram, ekki frá Þjóðverjum, Frökkum né öðrum Evrópuleiðtogum (ekki Katrínu Jakobsdóttur sem sat fundinn).
Leiðtogafundur NATO 24. mars 2022. Bandaríski forsetinn skælbrosir, sá eini sem gerir það.
  • Þann 27.mars, þremur dögum eftir NATO-fundinn, sagði Zelensky í viðtali við The Economist sagði Zelensky eftirfarandi. „Þeir eru til á Vesturlöndum sem er sama um langt stríð af því það myndi þýða að þreyta Rússland, jafnvel þótt það þýði fall Úkraínu og kosti úkraínsk mannslíf. Ég held að allir hafi mismunandi hagsmuni. Þess vegna líka allir þessir sem vilja að þetta stríð haldi áfram. Vegna þess að það verður lausn gagnvart Rússlandi, á kostnað Úkraínu, á kostnað mannslífa. Það er nákvæmlega það besta fyrir mörg lönd.“   Athyglisverð ummæli sem sýndu í hnotskur hverjir VILDU og hverjir ÁTTU það stríð sem hafið var.  Á þessum tímapunkti var Zelensky greinilega ósáttur við Vestrið og á báðum áttum. Það sem hann var að segja var: Þetta eru ekki hagsmunir Úkraínu, þetta er ekki okkar stríð. Við værum þá að heyja stríð fyrir aðra. Fyrir hverja? Hann nefndi ekki hverja, sagði bara „fyrir mörg lönd… á Vesturlöndum“

  • Í Aprílbyrjun kom svo Boris Johnson til Kiev með boðskap NATO: Samkvæmt Ukrainian Pravda kom hann með tvenn skilaboð til Kiev: „Það fyrra er að Pútín er stríðsglæpamaður, það á að þrýsta á hann, ekki semja við hann. Það seinna er að jafnvel þótt Úkraína sé tilbúin að undirrita einhvern samning um tryggingar við Pútín, þá eru þeir [þ.e.a.s. Bretland og Bandaríkin og NATO] það ekki.“ Og Arakhamiia, formaður úkraínsku sendinefndarinnar í Istanbul, sagði í viðtali við sama blað: „Boris Johnson came to Kyiv and said that we would not sign anything with them at all, and let’s just fight.“

Zelesky axlaði skikkju stríðsins – NATO var komið í takt

  • Boris Johnson gat sem sagt sannfært Zelensky um að vænlegra væri „að berjast“ en semja. Zelensky lét til leiðast, hann beygði sig og gekk til þjónustu við Vestrið, sem bauð gull og vopn í miklu magni. Til þjónustu við NATO. Fyrir hönd úkraínsku þjóðarinnar axlaði hann skikkju stríðsins, tók að sér hlutverk staðgengilsins, harmrænt og ömurlegt hlutverk. Zelensky sýnist ekki hafa horft um öx í því hlutverki síðan.

  • Þremur dögum eftir heimsókn Johnsons til Kiev hafði Zelensky sent svar til Kreml og Pútín lýsti yfir að friðarviðræðurnar væru runnar út í sandinn. NATO og Vestrið höfðu fengið vilja sinn: let’s just fight.

  • Varnarmálaráðherra hans Olexiy Reznikov lýsti þessu hlutverki Úkraínu ári síðar á þessa leið: „Þannig að nú vinnum við ætlunarverk NATO. Þeir fórna ekki blóði sínu, við fórnum okkar blóði, það útheimtir það að þeir sjái okkur fyrir vopnum.“   

  • Bandaríkjunum gekk nú allt í vil: Þau höfðu komið sér upp öflugum staðgengli í Úkraínu sem virtist til í slaginn, Minsk-samningurinn var runnin út í sand, Istanbulviðræðurnar strandaðar og. Andstaðan frá Evrópuríkjum gegn því að fara í fulla hörku við Rússa var yfirunnin svo að NATO gekk nú í takt. Allt gekk samkvæmt áætlun og útlit var fyrir langt stríð. Frá Washington séð var því alveg út í hött að gera fáránlegar málamiðlanir eða semja frið.

Þetta var í maí 2022. Innrás Rússa var nýhafian, en Úkraínustríðið hafði tekið á sig mynd. Þar með lýkur fyrri grein. Mörg orð fóru í aðdraganda stríðsins, en það er ekki hægt að skilja gang og gangverk Úkraínustríðsins árið 2026 og hvernig það er að þróast án þess að skilja hvernig það hófst og af hverju.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.