„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“
—

Jökull Ari Haraldsson
2. nóv, ’26

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í Evrópu og hugðist forsetinn fara í mikla herför gegn þeim. Til þess þurfti Truman heimild þingsins og árið 1947 var samþykkt hernaðaraðstoð til að berjast gegn kommúnismanum í Grikklandi og Tyrklandi. Það teiknaði útlínurnar að utanríkisstefnu Bandaríkjanna í kalda stríðinu, sem varð þekkt sem Truman-kenningin.

Kalt stríð

Á fyrstu árum kalda stríðsins mótaðist útbreiddur andkommúnismi í Bandaríkjunum. Því var tekið sem staðreynd að alþjóðlega kommúnistahreyfingin, leidd af Sovétríkjunum, ætlaði sér að koma af stað heimsbyltingu og eyðileggja hinn vestræna heim. Enn í dag ímynda margir sér að á þessum tíma hafi lönd annað hvort fylkt sér bak við Bandaríkin eða Sovétríkin, valið sér annað hvort kapítalisma eða kommúnisma. Sú mynd er aðeins hálf sagan. Mörg lönd reyndu að halda góðum samskiptum við bæði stórveldin.

Indónesía var eitt slíkt land. Eyjaklasinn í Suðaustur-Asíu var meðal fjölmennustu landa heims og bjó yfir ógrynni náttúruauðlinda, þar á meðal timbri, gúmmíi, tini, báxíti, nikkel, kopar og öðrum jarðefnum, og var þá mikilvægasti olíuframleiðandi Asíu austan Persaflóa. Indónesía hafði unnið sjálfstæði frá Hollendingum undir forystu forsetans Sukarno árið 1949. Sjálfstæðishreyfingin hafði snemma orðið samtvinnuð vinstri stjórnmálum, enda voru vinstrimenn t.d. nánast einu Evrópubúarnir sem studdu baráttuna gegn nýlenduherrum. Sukarno var samt ekki kommúnisti og hafði barist gegn þeim í frelsisstríðinu. Því töldu Bandaríkin hann nægilega hliðhollan sér. Sú afstaða Washingtons, að láta hlutlaus ríki í friði, kallaðist Jakarta-kenningin eftir höfuðborg Indónesíu.

Árin 1953 og 1954 var nýjum og dafnandi sjálfstæðum lýðveldum í Íran og Gvatemala umturnað af vestrænum heimsveldum í þágu breskra og bandarískra stórfyrirtækja og til að verjast meintri ógn kommúnismans. Á forsetatíð Eisenhowers var hlutleysið ekki lengur talinn raunhæfur kostur og Jakarta-kenningin var þar með úr sögunni. Annaðhvort væru ríki þriðja heimsins holl Bandaríkjunum eða gerð að óvinum.

Hlutleysis- og fullveldisstefna Sukarnos

Sukarno fylgdist með þessum atburðum og hélt ræður þar sem hann sagði Indónesíumönnum að þeir yrðu að berjast áfram fyrir sjálfstæði sínu. Hann kallaði tíðindin ný-nýlendustefnu: þegar nýjar þjóðir sem reyndu að byggja sig upp á eigin forsendum, en ekki samkvæmt vilja vestræns kapítals, voru neyddar í sömu undirgefnu stöðu og áður án formlegrar nýlendustjórnar.

Indónesía var ekki kommúnistaríki. Þrátt fyrir að hreyfingin væri stór var Kommúnistaflokkurinn aðeins einn margra minnihlutaflokka, en studdi stjórn Sukarno. Árið 1955 var Asíu-Afríku ráðstefnan haldin í Bandung í Indónesíu. Markmið Sukarnos þar var að sameina Þriðja heiminn gegn nýlendustefnu, gamalli sem nýrri, sem myndi hjálpa þessum þjóðum að þróa efnahag sinn. Hann vildi meðal annars að ríku þjóðirnar lækkuðu tolla á vörum fátækari landa og að þau gætu verndað eigin iðnað.  Ráðstefnan í Bandung var kveikjan að Samtökum hlutlausra ríkja (stofnuðum 1961).

Ráðstefnan fór illa í Washington, og viðbrögð embættismanna þar voru oft rasísk og yfirlætisleg. CIA eyddi milljón dollurum í að styrkja hægrisinnaðan flokk í kosningunum í Indónesíu árið 1955, en flokkur Sukarnos náði samt góðum árangri. Kommúnistaflokkurinn náði 17% atkvæða, besta árangri sínum í kosningum, enda hafði hann m.a. orð á sér fyrir skilvirkni, skipulag og að hlusta á þarfir fátækasta fólksins. Richard Nixon, þá varaforseti BNA, sagði að „lýðræðisleg ríkisstjórn væri líklega ekki það besta í stöðunni fyrir Indónesíu“ því „kommúnistarnir yrðu ekki sigraðir, svo vel skipulagðir væru þeir.“ Frank G. Wisner, aðstoðarforstjóri CIA, sagði að nú væri kominn tími til að herða tökin á Sukarno.

CIA-studdar uppreisnir og 30. september hreyfingin

Árið 1957 brutust út uppreisnir á Súmötru og nokkrum öðrum eyjum Indónesíu gegn ríkisstjórn Sukarnos. Margir Indónesíumenn þóttust sjá að Bandaríkin væru að styrkja uppreisnarmennina til að taka yfir landið, líkt og þau höfðu gert annars staðar í kalda stríðinu. Bandaríkin neituðu sök, en vorið 1958 skutu Indónesíumenn niður flugvél sem hafði varpað sprengjum á íbúa og reyndist flugmaðurinn vera bandarískur CIA-liði.

Þá kom í ljós að CIA hafði hjálpað uppreisnarmönnum síðan 1957 og styrkt þá um 10 milljónir dollara. Markmiðið var að steypa ríkisstjórninni af stóli. Aðgerðirnar voru hannaðar eftir valdaráninu í Gvatemala, en mistókust að þessu sinni og indónesíski herinn barði niður uppreisnirnar. Fram að þessu hafði Indónesía tekið stranglega hlutlausa afstöðu í kalda stríðinu, en eftir að hlutverk CIA varð ljóst fór landið að þiggja meiri hjálp frá Moskvu.

CIA hélt áfram að skipuleggja fall ríkisstjórnar Sukarno, og greip til uppátækis sem varð eitt hið vandræðalegasta í sögu stofnunarinnar. Leyniþjónustan fékk lið frá Hollywood leitt af Bing Crosby, réð leikara sem átti að líkjast Sukarno, einnig fallega ljósku til að leika flugfreyju sem reyndist vera KGB-njósnari og framleiddi úr því klámmynd í því skyni að eyðileggja orðspor hans. Ekki er víst að planið hefði virkað, allir í Indónesíu vissu að Sukarno var ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum, og loks fór myndin ekki í dreifingu.

Í borgarastyrjöldinni 1957–1958 öðlaðist indónesíski herinn sífellt meiri völd og þar sem æðstu hershöfðingarnir voru allir hægrisinnaðir fóru Bandaríkin að mynda sterkari tengsl við hann. Árið 1954 höfðu um tylft indónesískra herforingja stundað nám í Bandaríkjunum, en árið 1962 voru þeir orðnir yfir þúsund. Með hjálp BNA varð herinn eins konar andkommúnískt „ríki í ríkinu“ með mikil umsvif í efnahagslífinu, meðal annars í sjávarútvegi, landbúnaði og byggingariðnaði. Á sama tíma hallaðist Sukarno sífellt meira til vinstri, enda höfðu Bandaríkin þegar reynt valdarán gegn honum. Það varð æ augljósara að tvær pólitískar fylkingar voru að myndast: Kommúnistar og Sukarno gegn hernum og Bandaríkjunum (minna má á að á sama tíma magnaðist stríð í Víetnam og Indókína ár frá ári).

Árið 1963 átti efnahagskerfi Indónesíu í erfiðleikum, meðal annars vegna himinhárra herútgjalda. Ríkisstjórn Sukarnos var farin að endurskoða starfsemi erlendra olíufyrirtækja í landinu, sem vakti miklar áhyggjur í Washington. Til að tryggja aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum neyddist Sukarno til að skera niður ríkisútgjöld, flytja út meiri hrávörur, fella gengi gjaldmiðilsins og hætta ríkisstyrkjum. Afleiðingarnar voru hrikalegar og verðlag margfaldaðist. Kommúnistaflokkurinn mótmælti aðgerðunum. Þegar Sukarno gagnrýndi skilyrðisbundna aðstoð Bandaríkjanna opinberlega hætti öll fjárhagsaðstoð til ríkisstjórnar hans, en Washington hélt hins vegar áfram að styrkja herinn. Andúð í garð Bandaríkjanna jókst meðal almennings og leyniþjónustur BNA og Bretlands efldu starfsemi sína í landinu.

Aðfaranótt 1. október 1965 gerði hópur foringja í indónesíska hernum, sem kallaði sig 30. september-hreyfinguna, misheppnaða valdaránstilraun innan hersins. Þeir sögðust vilja verja Sukarno gegn valdaráni, en hreyfingin entist aðeins skamma stund. Hálfum degi síðar var hún sigruð og Indónesía komin undir stjórn hægrisinnaðs hershöfðingja, Suharto. Ekki er vitað hver stóð að baki 30. september-hreyfingunni. En þrátt fyrir að engin gögn sýni fram á þátttöku Kommúnistaflokksins hóf Suharto strax ofsóknir gegn kommúnistum. Hann sakaði flokkinn um morðin á hershöfðingjunum og ýmsa hryllilega glæpi til að kynda undir hatri gegn vinstrimönnum.

Bandaríkin voru fljót að senda leynilegan fjarskiptabúnað til Suharto og hjálpuðu áróðursherferð hersins. Vestrænir miðlar birtu fréttir sem studdu frásögn hersins, þar á meðal ósannar sögur um að kommúnistar hefðu beitt pyntingum og framið morð í helgiathöfnum.

Andkommúnískt blóðbað, Jakarta-aðferðin

Á Súmötru hófust ofsóknir gegn kommúnistum sem breiddust út um allt landið og urðu að blóðbaði. Herforingi þar skipaði hermönnum og almenningi að drepa alla kommúnista sem þeir fundu. Morðin fóru oft fram í leyni: fólk var handtekið um miðja nótt, skotið og líkunum fleygt í ár. Fjöldi líkanna var svo mikill að ár stífluðust og ódaunn breiddist um landið. Fjölskyldur þeirra sem hurfu vissu oft ekki hvort ástvinir þeirra væru enn á lífi.

Bandarískir embættismenn studdu nýju herstjórnina og ofsóknirnar. Bandaríski sendiherrann í Indónesíu taldi að ekki mætti láta sér nægja nokkrar handtökur og morð heldur þyrfti að ráðast á kommúnismann í heild sinni. Washington fékk ítarlegar upplýsingar um allar aðgerðir hersins og morðin sem áttu sér stað, og á fyrstu vikum fjöldamorðsins sagði þjóðaröryggisráðgjafinn McGeorge Bundy við Johnson forseta að tíðindin væru „sláandi sönnun á réttmæti stefnu Bandaríkjanna gagnvart þessari þjóð á undanförnum árum.“ CIA færði hernum njósnaupplýsingar og vopn, og mikilvægasta hjálpin var nafnalisti yfir þúsundir kommúnista sem bandaríska sendiráðið afhenti honum. Einnig gáfu sum bandarísk fyrirtæki hernum lista yfir kommúnista og verkalýðsleiðtoga sem þau vildu losna við. Í desember 1965 létu bandarískir embættismenn herinn vita að ef Kommúnistaflokknum yrði útrýmt, Sukarno færi frá völdum og rými yrði skapað fyrir bandarískt kapítal, myndi fjárhagsaðstoð hefjast á ný.

Suharto féllst á það.

Opinberlega var Sukarno enn forseti, en í samstarfi við borgarastétt Indónesíu lét Suharto takmarka framboð á nauðsynjum eins og hrísgrjónum, sykri og matarolíu, sem jók verðbólguna. Síðan hvatti hann námsmenn til mótmæla gegn verðhækkunum, og leiddi það til þess að Sukarno afsalaði sér loks völdum.

Um leið og Suharto komst formlega til valda bannaði hann Kommúnistaflokkinn og handtók marga úr gömlu ríkisstjórninni. Efnahagsþvingunum var aflétt og bandarískt kapítal flæddi inn í landið. Dæmi: Innan skamms kom bandaríska námafyrirtækið Freeport til Vestur-Nýju-Gíneu og hóf uppbyggingu Grasberg-námunnar miklu, sem í dag er ein stærsta gullnáma heims.

Talið er að 500 þúsund til ein milljón manna hafi verið myrt í fjöldamorðunum 1965–1966 og milljón til viðbótar sett í fangabúðir. Hæsta mat gerir ráð fyrir allt að þremur milljónum fórnarlamba, en nákvæmur fjöldi er óþekktur. 85% þeirra sem voru handteknir voru karlmenn. Enn þann dag í dag neita indónesísk stjórnvöld að birta allar heimildir um það sem átti sér stað. Eitt er þó ljóst: fyrir utan örfáa sem stóðu að baki 30. september hreyfingunni voru fórnarlömbin saklaus.

Indónesíski herinn ber stærstu sökina á fjöldamorðunum, en Bandaríkin studdu hann á öllum stigum aðgerðanna og höfðu árum saman unnið að því að veikja vinstriöfl í landinu og eru meðsek í öllu því sem gerðist. Valdaránið og fjöldamorðin í Indónesíu 1965–1966 eru líklega meðal árangursríkustu leyniaðgerða Bandaríkjanna og best varðveitta leyndarmál stjórnvalda í Washington. Samt er það kommúnismi sem er ólöglegur í Indónesíu enn í dag, og stjórnvöld bæla niður tilraunir fórnarlamba til að ræða atvikið. Þannig dóu hundruð þúsunda, mögulega yfir milljón, saklausra borgara í kapítalískri krossferð sem gjörbreytti stefnu Indónesíu og opnaði landið aftur fyrir vestrænu arðráni.

Heimildaskrá

Bevins, Vincent. The Jakarta Method: Washington’s Anticommunist Crusade and the Mass Murder Program That Shaped Our World. New York: PublicAffairs, 2020.

International Bank for Reconstruction and Development. Economic Development of Indonesia. Vol. 1, Main Report. Washington, DC: International Bank for Reconstruction and Development, February 12, 1968.

Kim, Jaechun. “U.S. Covert Action in Indonesia in the 1960s: Assessing the Motives and Consequences.” Journal of International and Area Studies 9, no. 2 (2002): 63–85. http://www.jstor.org/stable/43107065.

Leksana, Grace. “Collaboration in Mass Violence: The Case of the Indonesian Anti-Leftist Mass Killings in 1965–66 in East Java.” Journal of Genocide Research 23, no. 1 (2021): 58–80. https://doi.org/10.1080/14623528.2020.1778612. 

“National Scene: Police Raid Workshop on 1965 Purge.” The Jakarta Post, August 3, 2017. The Jakarta Post article

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.