Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?
—

Andri Sigurðsson
8. nóv, ’26

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir sömu árás, að sögn CERT-IS, netöryggissveitar stjórnvalda. Þremur vikum fyrr, eða 12. október, höfðu mörg hundruð franskar matvöruverslanir þurft að farga öllum matvælum úr sínum kælum og frystum eftir sams konar árás. Tjónið hleypur á milljónum evra.

Stjórnbúnaður kælanna, að mestu frá danska fyrirtækinu Danfoss, stóð opinn á netinu svo að verktakar sem sjá um viðhald gætu breytt stillingum án þess að mæta á staðinn. Hugbúnaðurinn var gamall og lykilorðið var í sumum tilfellum dagsetningin þann daginn, að sögn RTÉ. Magni Reynir Sigurðsson, forstjóri CERT-IS, sagði við RÚV að árásirnar væru „tiltölulega einfaldar í framkvæmd“ og „á færi margra“. Við Vísi sagði hann að þetta gæti allt eins hafa verið unglingur sem leiddist, glæpahópur eða aðgerðasinnar.

Engin staðfesting eða rannsókn liggur fyrir

Strax 12. október lauk RÚV frétt sinni um frönsku árásirnar á því að Macron hefði „fyrirskipað aðgerðir til að koma í veg fyrir að Rússar geti truflað mikilvæga innviði með netárásum“, þótt engin opinber aðili hefði þá tengt Rússa við kælana. Vísir taldi 15. október upp nokkrar tilgátur „frá óvinveittum ríkjum eins og Rússlandi, sem hefur staðið fyrir aragrúa skemmdarverka í Evrópu, til stúdentamótmælenda sem fara nú mikinn í Frakklandi“.

Tveir hópar sem kalla sig NoName057(16) og Z-Pentest lýstu yfir ábyrgð á Telegram, en eyddu færslunum skömmu síðar. BBC greindi frá því 4. nóvember að netöryggisfyrirtæki sem rannsaka málið taki yfirlýsingunum með fyrirvara og að ekkert ríki hafi gefið út formlega niðurstöðu um hver beri ábyrgð.

Þann 3. nóvember birti SentinelLABS, rannsóknardeild bandaríska netöryggisfyrirtækisins SentinelOne, mat á árásunum sem víða hefur verið vitnað til. SentinelOne er fyrirtæki sem selur öryggishugbúnað, stofnað af ísraelskum frumkvöðlum. Í matinu kemur fram að ábyrgð á atvikunum í Evrópu hafi ekki verið staðfest.

Það er ekki útilokað að Rússar eða rússneskir hópar séu sekir en hingað til hafa ekki komið fram neinar sannanir sem benda til þess. Aðeins getgátur. Yfirlýsing á Telegram er ekki sönnun. Þjóðerni árásaraðilanna, ef það lægi fyrir, væri heldur ekki sönnun.

Það er ekki útilokað að Rússar eða rússneskir hópar séu sekir en hingað til hafa ekki komið fram neinar sannanir sem benda til þess. Aðeins getgátur. Yfirlýsing á Telegram er ekki sönnun. Bandarísk og dönsk stjórnvöld hafa áður tengt hópana tvo við rússneska ríkið, en þau gögn hafa ekki verið birt, þau varða önnur mál en kælana og bandarískar stofnanir eru ekki sammála um hvort Z-Pentest starfi á vegum rússnesku herleyniþjónustunnar. Þjóðerni árásaraðilanna, ef það lægi fyrir, væri heldur ekki sönnun.

Fuglar, loftbelgir og pólsk flugskeyti

Listinn yfir „fjölþáttaárásir Rússa“ sem reyndust eiga sér hversdagslegar skýringar er orðinn ansi langur, eins og Thomas Fazi hefur tekið saman. GPS-truflunin á flugvél Ursulu von der Leyen yfir Búlgaríu í ágúst 2025 átti sér enga stoð í gögnum Flightradar24, sem sýndu gott GPS-merki alla leið og vélina níu mínútum á eftir áætlun, og forsætisráðherra Búlgaríu sagði engin gögn um truflanir. Skemmdirnar á sæstrengjum í Eystrasalti í nóvember 2024 rakti sænska slysarannsóknarnefndin til kínversks flutningaskips sem dró akkeri sitt eftir botninum, án þess að sönnur fyndust fyrir ásetningi. DHL-flugvélin sem fórst í Vilníus sama mánuð hrapaði að mati litháískra saksóknara vegna mannlegra mistaka. Eldurinn í spennistöðinni sem lokaði Heathrow í mars 2025 stafaði samkvæmt skýrslu breska raforkukerfisstjórans NESO af raka í spenni sem einkarekna flutningsfyrirtækið hafði vitað um síðan 2018 en aldrei lagfært.

Maðurinn sem flaug dróna inn í bannsvæði Frankfurt-flugvallar í október 2025 var 41 árs tómstundaflugmaður, flugvellinum í Vilníus var ítrekað lokað vegna loftbelgja sígarettusmyglara frá Hvíta-Rússlandi, og drónanum yfir stjórnarbyggingum í Varsjá stýrði 21 árs Úkraínumaður ásamt sautján ára hvítrússneskri kærustu, mál sem saksóknarar sögðu brot á flugreglum en ekki njósnir. Rannsókn hollenska blaðsins Trouw á um sextíu drónatilkynningum í ellefu löndum haustið 2025 fann aðeins fjögur tilvik með staðfestum rússneskum drónum, fjörutíu sem ekki var hægt að sannreyna og fjórtán sem reyndust flugvélar, þyrlur, skip eða stjörnur. Húsið í Wyryki í Póllandi sem sýnt var um allan heim sem sönnun um rússneska árás í september 2025 varð samkvæmt heimildum Rzeczpospolita fyrir flugskeyti úr pólskri F-16-þotu. Dróninn sem lokaði Vilníus-flugvelli og kallaði út NATO-orrustuþotu í september 2026 var fuglahópur. Dróninn sem „næstum hitti“ flugvél Zelenskís í Moldóvu sama mánuð sprakk samkvæmt moldóvskum yfirvöldum 160 kílómetrum frá flugvellinum. Og „CIA-skýrslunni“ um drónaárásir frá kaupskipum á Ítalíu, Spán og Frakkland, sem El Mundo birti, var hafnað af Macron og varnarmálaráðherra Ítalíu innan sólarhrings. Leiðréttingarnar fengu aðeins brot af þeirri umfjöllun sem ásakanirnar fengu.

Evrópa í vígahuga

Árásirnar koma á sama tíma og umræða fer fram um hvort Ísland þurfi leyniþjónustu, RÚV flytur sérstaka umfjöllun um „stigmögnun skuggastríðsins“ og hugtakið fjölþáttastríð er notað til að réttlæta hervæðingu, eftirlit og tortryggni í garð þeirra sem efast um yfirlýsingar NATO magnast.

Það sem við vitum er þetta: Matur skemmdist, búnaðurinn stóð opinn, en enginn hefur sýnt fram á hver hafi staðið að árásunum. Samt voru Rússar orðnir sökudólgarnir um leið, fyrst í niðurlagi RÚV 12. október og síðan efstir á lista Vísis yfir tilgátur. Þegar yfirlýsingar hulduhópa á Telegram eru svo látnar duga er umfjöllunin orðin dæmi um hvernig fjölmiðlar framleiða samþykki fyrir frekari hervæðingu og stríði við Rússa.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Nýjustu greinar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.