Ekki í okkar nafni?
—

14. jún, ’26

Hópur flokksbundins Samfylkingarfólks hefur á Vísi birt grein (https://www.visir.is/g/20262895955d/ekki-i-okkar-nafni), þar sem þau gagnrýna harðlega aðkomu Samfylkingarinnar að frumvarpi um brottvísunarbúðir sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Greinarhöfundar vitna m.a. í umsögn Íslandsdeildar Amnesty International vegna frumvarpsins en þar sagði t.d.: „Frumvarpið er með þeim hætti að það felur í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum gegn þeim hópi sem frumvarpið beinist að, sem gjarnan er í viðkvæmri stöðu fyrir.“ Greinarhöfundar benda einnig á stefnu Samfylkingarinnar frá síðasta landsfundi flokksins þar sem segir af mannúð flokksins og mannvirðingu. Þá tala höfundar um krappa hægri beygju sem þarna sé tekin í stefnu Samfylkingarinnar, í andstöðu við meginstefnuna. 

Hvort sem við erum sammála eða ósammála skoðunum greinarhöfunda hlýtur okkur öllum að finnast áhugavert að hugleiða að meira og minna öll þau sem skrifuð eru fyrir greininni eru eldheitir stuðningsmenn þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hvers vegna er það áhugavert? Vegna þess að frumvarp Viðreisnar (og hinna stjórnarflokkanna) um brottfararbúðir er í algjöru samræmi við framkvæmd ESB þegar kemur að hælisleitendum. ESB hefur innleitt ferla og lög sem snúast um að hafa stjórn á komum flóttafólks og hraða brottvísunum. Áður en fólk fær að sækja um hæli þarf fyrst að komast í gegnum nálarauga sem minnkað hefur verið mjög verulega undanfarin ár. T.d. má geyma fólk innilokað í því sem kallað er móttökubúðir á landamærum Evrópu-landa. Málum sem fá efnislega meðferð hefur fækkað mjög og ESB hefur gert samkomulög við lönd utan Evrópu eins og Egyptaland og Túnis (samtök eins og No Borders og fleiri hafa lengi reynt að benda fólki á það sem þau kalla vopnvæðingu landamæra Evrópu og ábyrgð Frontex á dauðsföllum þeirra sem reyna að komast yfir Miðjarðarhafið í skjól undan stríðsátökum og hörmungum), til að geta hraðað brottvísunum þeirra sem gamla grimma álfan Evrópa metur sem óæskilegar tötrahypjur og farandfólk. 

Amnesty International hefur ítrekað gagnrýnt hvernig Evrópusambandið kemur fram við flóttafólk og hælisleitendur. Samtökin hafa bent á að móttökubúðir og áhersla á hröðun ferla auki verulega hættu á ýmsum mannréttindabrotum, og að þessi nálgun ESB sé sérstaklega skaðleg fyrir börn og barnafjölskyldur. Einnig hefur Amnesty gagnrýnt að fólk sé sent til landa sem eru kannski ekki sérstaklega góðir áfangastaðir eða ekki hleypt áfram frá upplausnarríkinu Líbíu (áhugasamir geta kynnt sér stuðning Samfylkingarinnar, þegar flokkurinn var við völd eftir hrun, við glæpaárásir siðvillinga vesturlanda á Líbíu árið 2011).

Það er undarlegt að greinarhöfundar sjái ekki að „umbætur“ (bæði íslensk stjórnvöld og ESB kalla allt sem þau gera þegar kemur að málefnum flóttafólks „umbætur“) Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins eru innileiddar ekki síst til að koma til móts við kröfur ESB um hvernig meðhöndla skuli afleiðingar allar þeirrar hörmulegu ógæfu sem hernaðarhyggja, heimsvaldastefna og and-diplómasía Vesturveldanna hefur leitt yfir heimsbyggðina. 

Við hljótum að spyrja: Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum? 

Í texta frá Amnesty International, frá árinu 2024, sem birtur var í tilefni „umbóta“ ESB á hælisleitendakerfum segir Eve Geddie, framkvæmdastjóri Evrópudeildar AI m.a. eftirfarandi: „The Pact will almost certainly cause more people to be put into de facto detention at EU borders, including families with children and people in vulnerable situations. There will be reduced safeguards for people seeking asylum in the EU, with more people channeled through substandard border asylum procedures, rather than receiving a fair and full assessment of their asylum claims.“ Einnig: „The Pact won’t solve the pressing problems facing asylum systems in the EU, including underinvestment in asylum and reception systems, unlawful and often violent pushbacks, policies that deny people the right to asylum, and impunity at EU borders. Without renewed commitment to enforcing EU law and ensuring accountability for pushbacks and other violations, the Pact will do nothing to improve protections for asylum seekers in Europe – or improve Europe’s common response to migration. We continue to call on the EU to address these well-documented violations and take steps to ensure a human rights compliant, sustainable, and well-resourced response to people arriving at Europe’s borders.“

Sjá hér: https://www.amnesty.ie/eu-migration-pact-reaction/

Sjá einnig skýrslu Human rights watch frá 2025: https://www.hrw.org/…/eu-migration-policies-fuel-abuses…

Hefur áður birst á Fb síðu höfundar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.