ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu
—

Einar Ólafsson
26. ágú, ’26

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og dóma í Evrópusambandinu undanfarin 20 ár þar sem kjör og réttindi launafólks eru skert, meðal annars í krafti markaðsfrelsisins.

Það er ýmislegt gott í regluverki ESB varðandi vinnumarkaðsmál og kjör og réttindi launafólks, án þess ég þekki það til hlítar. Sama dag og grein Jóns Ferdínands birtist var á RÚV frétt þar sem sagði: „Innganga í Evrópusambandið myndi breyta litlu fyrir vinnuréttarlöggjöfina á Íslandi, að mati lögfræðings sem starfaði á innra markaðssviði ESA. Þegar hefur nær öll löggjöf ESB um réttindi launþega verið tekin upp á Íslandi í gegnum EES-samninginn.“ Án þess að gera lítið úr því sem hér hefur verið tekið upp í gegnum EES-samninginn er kannski rétt að árétta að flest eða allt hið veigamesta varðandi réttindi launafólks hefur verið tekið upp á Íslandi án tilkomu ESB, oftast eftir þrautseiga baráttu verkalýðshreyfingarinnar með mismiklum stuðningi vinstri flokkanna.

Félagsleg undirboð

En hvað sem segja má um þau kjör og réttindi launafólks sem hefur verið fest í regluverk ESB hefur verkalýðshreyfingin þurft að eyða miklum kröftum í að verja það þegar það hefur stangast á við markaðsfrelsið sem er grundvöllur sambandsins.

Eitt af því sem veldur verkalýðshreyfingunni miklu áhyggjum eru félagsleg undirboð (social dumping).

Í kynningu á vefsíðu Evrópusambands byggingaverkamanna (European Federation of Building and Woodworkers (EFBWW)) um ýmsar herferðir sambandsins er frá herferð gegn félagslegum undirboðum:

„Félagsleg undirboð og hagnýting launafólks eru útbreidd fyrirbæri innan Evrópusambandsins, þar sem erlendir starfsmenn eru nýttir sem „ódýrt vinnuafl“ til að auka hagnað fyrirtækja. Á hverju ári starfa milljónir farandverkamanna í byggingariðnaði og fjölmörgum öðrum greinum án félagslegrar verndar, við bágborin kjör og ómannúðlegar aðstæður.“

Í formála rits sem kom út á vegum European Trade Union Institute (ETUI), sem er rannsóknarstofnun á vegum Evrópusambands verkalýðsfélaga (European Trade Union Confederation – ETUC), árið 2014, „Social dumping and the EU integration process“ segir:

„[a]ðgerðir markaðsaðila sem fela í sér félagsleg undirboð eru hvattar áfram af stefnumótun sem miðar að frjálsum markaði og afnámi reglugerða. Til að varpa ljósi á þetta er [í þessu riti] sýnt fram á hvernig tvö stór verkefni í evrópskri samrunaþróun – stofnun innri markaðarins og stækkun ESB til austurs og suðurs – hefur ýtt undir félagsleg undirboð með því að veita markaðsaðilum ný tækifæri til að ögra viðteknum félagslegum viðmiðum.“

Vert er að benda á kaflann „Evrópa: Frá félagslegu líkani til félagslegra undirboða?“.

The 28th Regime Corporate Legal Framework – ‘EU Inc.’

Í lok ofannefndrar greinar sinnar minnist Jón Ferdínand Estherarson á nýja löggjöf sem Framkvæmdanefnd ESB vinnur nú að því að innleiða fyrir öll aðildarríkin og felur í sér staðlaða vinnumarkaðs- og fyrirtækjalöggjöf sem mun gilda samhliða löggjöf hvers og eins aðildarríkis.

Framkvæmdanefndin birti þessa tillögu 18. mars 2026, tillögu að nýrri löggjöf um „The 28th Regime Corporate Legal Framework – ‘EU Inc.’“ eins og það heitir í fyrirsögn tillögunnar .

Þessari nýju viðbót við fyrirtækjalöggjöf sambandsins er ætlað að vera til hliðar við þá löggjöf sem er í hinum 27 ríkjum sambandsins og því kennd við 28. ríkið sem er sem sagt ekki til. Þetta er út af fyrir sig hugmynd sem væri vert að staldra við.

Í maí síðastliðnum birtist umfjöllun um þetta á vefsíðu ETUI.

Þessi tillaga er hluti af yfirlýstri stefnu um að styrkja samkeppnishæfni ESB og er ætlað að greiða fyrir nýsköpunarfyrirtækjum og gera þeim kleift að starfa undir samræmdum reglum sem varða meðal annars skatta og kjör og réttindi starfsfólks og ná yfir allt sambandið til hliðar við löggjöf einstakra aðildarríkja. Þess vegna er þetta kennt við 28. ríkið. Frumkvæðið að tillögunni kemur frá hátæknifyrirtækjum sem kostuðu herferð fyrir hugmyndinni undir nafninu EU-Inc, en það er það sem þau fyrirtæki, sem falla undir reglugerðina, eiga að geta einkennt sig með eins og Hf og Ehf á Íslandi, GmbH í Þýskalandi, A/S í Danmörku og svo framvegis.

Tillagan byggist á 114. gr. Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (sem er annar af tveim hlutum Lissabon-sáttmálans). Þetta er fyrsta grein í kaflanum um samræmingu laga sem felur í sér „ákvæði um hvernig ná skuli markmiðunum sem eru sett fram í 26. gr.“. 26 gr. er inngangsgrein kaflans um innri markaðinn, þar sem meðal annars er kveðið á um að Ráðið skuli, „að tillögu framkvæmdastjórnarinnar, kveða á um nauðsynlegar viðmiðunarreglur og skilyrði til að tryggja jafnar framfarir í öllum viðkomandi geirum.“

Tillagan miðar að því að skapa samræmdan lagaramma fyrir fyrirtæki sem getur verið til staðar samhliða landslögum. Þótt eitt af markmiðum hans sé að „skapa sameiginlegan lagalegan ramma fyrir fyrirtæki, einkum sprota- og vaxtarfyrirtæki, í ESB“ (provide a common corporate legal framework for companies, in particular startups and scaleups, in the EU) er þessi rammi samkvæmt greininni á vefsíðu ETUI í raun opinn alls konar fyrirtækjum.

Samkvæmt greininni felur tillagan í sér afar litla tryggingu fyrir réttindum launafólks og hefur valdið áhyggjum vegna þess. Í niðurstöðum greinarinnar segir:

„Sérstaklega er skortur á skýrum verndarráðstöfunum fyrir einstaklingsbundin og sameiginleg réttindi vinnumarkaðarins […]

Í núverandi mynd er tillagan að „EU Inc.“ reglugerðinni ekki fyrst og fremst verkfæri til að einfalda reglugerðir eða efla nýsköpun og fjárfestingar á innri markaðnum, heldur frekar verkfæri sem hvetur markvisst til „corporate regime-shopping“ [þ.e. að fyrirtæki skrái sig og komi sér fyrir í landi sem hefur hagstæðasta regluverk og lægstu laun og lélegustu réttindi starfsmanna] á þann hátt að það er kerfisbundin ógnun við bæði einstaklingsbundin og sameiginleg réttindi á vinnumarkaði, rétt starfsmanna til aðkomu að stjórnun fyrirtækja  og félagslega vernd á öllum innri markaðnum.“

Vert er að benda einnig á umfjöllun Corporate Europe Observatory, A social dumping disaster? EU’s ‘ 28th Regime’ plans could help corporations bypass member state rules.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.