Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!
—
Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma (hinna ervrópsku) og gamalla og nýrra tíma í bland (hins evrópska og hins vesturheimska). Minnt er á að þótt fyrrum evrópskar nýlendur í Afríku hafi flestar öðlast sjálfstæði á öldinni sem leið þá var arðráni ekki þar með lokið. Enn eru ræningjar að þótt vestrænir fjölmiðlar þegi yfirleitt svívirðuna í hel.

Merkilegum áfanga var náð í baráttu gegn evrópskum og bandarískum arðránsöflum með stofnun formlegs bandalags þriggja ríkja á Sahel svæðinu árið 2024. Sahel beltið liggur sunnan Sahara eyðimerkurinnar og teygir sig nánast yfir þvera Afríku, þúsundir kílómetra. Umrædd ríkin þrjú sem myndað hafa með sér bandalag eru Mali, Níger og Burkina Faso. Þessi ríki bundust um það samtökum að beita sér í sameiningu gegn tilraunum til valdaráns af hálfu íslamista sem tengjast Al Quaida og ISIS en ekki síður gegn vestrænum arðræningjum. Hefur þeim orðið ágengt í hvoru tveggja, að ráða niðurlögum uppreisnarafla og við að losa sig við setulið nýlenduvelda, nú síðast bandaríska hermenn frá Niger og franska frá Mali og Burkina Faso.

Rikið sem hér er staðnæmst við, Burkina Faso, heyrði til svæðis sem Frakkar lýstu sem sínu, Frönsku Vestur-Afríku, undir lok nítándu aldar og drógu síðan landamæri fram og til baka að sínum geðþótta. Þannig gekk landsvæðið sem Burkina Faso tekur nú til lengi vel undir heitinu Efri Volta (Haute-Volta). Landið er allvíðfemt, næstum þrisvar sinnum stærra en Ísland, 274 þúsund ferkílómetrar og íbúar rúmlega 23 milljónir.
Tilgangurinn með þessum orðum er ekki að fara á kaf í sögu þessa svæðis heldur vekja athygli á málflutningi Ibrahims Trarorés hershöfðingja, helsta valdamanns Burkina Faso eftir byltingu þar haustið 2022. Traroré er fæddur árið 1988 og er því aðeins 38 ára gamall. Í heimalandi sínu er hann sagður vinsæll svo og víða í Afríku en í Evrópu og BNA er litið á hann sem varasaman í meira lagi – sem raunverulegan ógnvald.
Margoft hefur verið reynt að ráða hann af dögum.
Hér er ástæðan. Ibrahim Traroré ávarpar heiminn eftir valdatökuna 2022, byltingarmaður og eldhugi – þá aðeins 34 ára gamall. Evrópumenn og Bandaríkjamenn hafa gott af þvi að hlusta á þessar átta mínútur – eða lesa ræðuna:
Skilaboð Ibrahims Traoré til heimsins – ræða 2022
1. kafli: Önnur saga sögð
Ég skrásetji hverja einustu rangfærslu. Ég er Ibrahim Traoré og í dag ríf ég af ykkur grímurnar. Já, þið heyrðuð rétt. Ég, sem þið kallið ungan herforingja, sem þið stimplið sem hættulegan öfgamann, sem þið kynnið sem einræðisherra andsnúinn Vesturlöndum, segi ykkur nú sannleikann.
Og í þetta sinn getið þið ekki slökkt á hljóðnemunum ykkar. Í þetta sinn getið þið ekki snúið myndavélunum ykkar undan. Í þetta sinn geta ritstjórar ykkar ekki klippt þessa ræðu, því heimurinn sem þið einokuðuð er ekki lengur til. Því að milljónir munu nú heyra þessi orð án þess að þau fari í gegnum síurnar ykkar, án þess að þau sæti rangfærslum ykkar, án þess að lygar ykkar gruggi þau.
2. kafli: Ímynd Afríku
Ég er 34 ára gamall. Hvern einasta dag ævi minnar ólst ég upp við lygar ykkar. Sem barn horfði ég á Afríku í sjónvarpinu. Alltaf sömu myndirnar. Börn þakin flugum, skrælnað land, vopn, dauði. Þetta er Afríka, sögðu þeir okkur. Svona er Afríka. Og við trúðum því. Við skömmuðumst okkar fyrir okkur sjálf. Við skömmuðumst okkar fyrir okkar eigið land, fyrir okkar eigið fólk. En svo óx ég úr grasi. Ég las. Ég rannsakaði. Ég spurði spurninga. Og ég skildi að Afríkan sem þið sýnduð okkur var ekki raunveruleg. Sagan sem þið sögðuð okkur var lygi. Örlögin sem þið þröngvuðuð upp á okkur voru handrit sem þið höfðuð skrifað. Hvernig hafið þið dregið upp mynd af Afríku árum saman? Hvernig hafið þið sýnt hana? Hvernig hafið þið selt hana áhorfendum ykkar? Eins og við værum verur sem ættu enga hlutdeild í mannkyninu. Eins og við værum villimenn skildir eftir utan siðmenningarinnar. Eins og við værum vesalingar sem biðu eftir því að þið björguðuð okkur. Á hverjum degi, hverri klukkustund, hverri mínútu birtist sama sagan á skjánum ykkar. Hungur, stríð, sjúkdómar, spilling, ógn, ringulreið. Þetta eru orðin sem koma upp í hugann þegar Afríka er nefnd. Í Afríkuorðabók ykkar eru engin önnur orð. Engin von, engin velgengni, engin þróun, engin mótspyrna, enginn heiður, ekkert stolt, enginn sigur.
3. kafli: Falin velgengni Afríku
Þannig að ég spyr ykkur, New York Times, Washington Post, Guardian, Le Monde: Hafið þið nokkurn tíma gert velgengni Afríku að fyrirsögnum ykkar? Hversu oft hafið þið skrifað um tækniundur Rúanda? Hversu oft hafið þið sýnt skógræktarverkefni Eþíópíu? Hversu oft hafið þið lofað lýðræðislegan árangur Botsvana? Hversu oft hafið þið lýst frumkvöðlaumhverfi Kenía? Nei, því þetta passar ekki inn í handritið ykkar. Afríka ykkar getur ekki verið farsæl. Hún getur það ekki, því hvernig ætlið þið þá að réttlæta arðrán ykkar?
Ef hún þarf ekki á hjálp að halda, hvernig ætlið þið þá að skerast í leikinn? Ef hún er ekki aftarlega á merinni, hvernig ætlið þið þá að líta niður á hana? Hafið þið nokkurn tíma spurt ykkur sjálf, hefur nokkur ritstjóri við skrifborðið sitt, nokkur fréttastjóri á fundi, nokkur pistlahöfundur við lyklaborðið nokkurn tíma hugsað: „Hvers vegna er fólkið í auðugustu löndum heims fátækt?“ Hér eru tölurnar handa ykkur. Raunverulegar tölur.
4. kafli: Þversögn auðs og fátæktar
Afríka á 70% af kóbaltforða heimsins. Farsíminn ykkar, tölvan ykkar, rafbíllinn ykkar virkar ekki án kóbalts. Þetta kóbalt kemur frá Kongó, en Kongóbúar hafa ekki efni á farsímum. Afríka á 90% af platínuforða heimsins. Hvarfakútar, raftæki, lækningaígræðslur – allt þarfnast þetta platínu. Þessi platína kemur frá Suður-Afríku. En Suður-Afríkubúar eru að kikna undan atvinnuleysi.
Afríka stendur fyrir 30% af gullframleiðslu heimsins. Malí, Búrkína Fasó, Gana, Tansanía. Gull streymir eins og fljót úr löndum okkar. En fólkið okkar syndir í fátækt. Afríka sér fyrir 65% af demantaframleiðslu heimsins. Botsvana, Angóla, Kongó, Síerra Leóne. Demantar að verðmæti milljarða dollara eru unnir úr jörðu.
En námuverkamenn okkar lifa á 1 dollara á dag. Afríka á 35% af úranforða heimsins. Níger, Namibía, Suður-Afríka. Kjarnorkuver ganga fyrir úrani okkar. Ljósin í París loga með úrani okkar. En þorpin okkar hafa ekkert rafmagn. Og samt spyrjið þið: Hvers vegna er Afríka fátæk?
5. kafli: Nútíma efnahagsleg nýlendustefna
Nei, rétta spurningin er: Hvernig var Afríku haldið fátækri þrátt fyrir að vera svona rík? Hér er svarið: Nýlendustefnunni lauk aldrei. Hún breytti um mynd. Áður komuð þið og hertókuð lönd okkar. Nú komið þið og stofnið fyrirtæki. Áður tókuð þið með valdi. Nú gerið þið samninga. Áður stjórnuðuð þið með svipunni. Nú stjórnið þið með lánsfé. Leyfið mér að nefna áþreifanleg dæmi með tölum, nöfnum og dagsetningum, þó þið munið aldrei skrifa um þau:
Glencore, svissneskur námurisi, vinnur kóbalt í Kongó. Tekjur árið 2022: 256 milljarðar dollara; skattur greiddur til Kongó: 500 milljónir dollara. Það er 0,2%. Er þetta réttlæti? Rio Tinto, bresk-ástralskur námurisi, vinnur báxít í Gíneu, 20 milljónir tonna á ári. Hvað situr eftir handa Gíneu? Umhverfismengun og krabbamein. Total, nú Total Energies, franskur olíurisi, vinnur olíu í Angóla, Nígeríu og Kongó. Hagnaður árið 2022: 36 milljarðar dollara. Fjárfesting í Afríku: óhreinar leiðslur. Anglo American, stofnað í Suður-Afríku en nú með aðsetur í London. Demantar, platína, járn – tekur allt. Það sem það skildi eftir í Suður-Afríku: 6 milljónir atvinnulausra námuverkamanna. Og þetta er aðeins toppur ísjakans.
6. kafli: Kerfi eignaupptöku
En hvað með það ósýnilega? Leynisamningana. Aflandsreikningana. Brellurnar með milliverðlagningu. Á hverju ári streyma 88 milljarðar dollara af ólöglegu fé út úr Afríku. Hver skrifar um þetta? Á hverju ári berast 45 milljarðar dollara í aðstoð til Afríku. Allir skrifa um það, en enginn segir að Afríka sé ekki álfan sem þiggur aðstoð. Hún er álfan sem veitir aðstoð. Á meðan þið beinið myndavélunum að uppþembdum mögum er risastórt kerfi að verki í kyrrþey í bakgrunni. Á hverjum degi yfirgefa tonn af gulli, demöntum, kóbalti, úrani og olíu land okkar. En hvernig?
Hér er kerfið, í fimm skrefum: Fyrsta skref: Skapið spillingu. Mútið leiðtogum okkar. Opnið aflandsreikninga. Lofið þeim lífi í munaði. Sendið börnin þeirra í skólana ykkar. Annað skref: Gerið samninga. Fáið sérleyfi til 50 ára, 99 ára. Krefjist skattaundanþágu. Verið undanþegin umhverfisreglum. Hunsið réttindi verkafólks. Þriðja skref: Náið stjórn á innviðunum. Takið yfir hafnir, flugvelli og járnbrautir, en aðeins frá námunni að höfninni. Ekki leggja vegi til þorpanna. Ekki leiða rafmagn í skólana. Fjórða skref: Tryggið öryggi. Komið á fót einkareknum öryggisfyrirtækjum. Vopnið þau. Lýsið mótmæli ólögleg. Fimmta skref: Þaggið niður í fjölmiðlum, kaupið innlenda blaðamenn, bælið niður andstæðar raddir, matreiðið fréttir af innanlandsólgu fyrir alþjóðlega fjölmiðla. Og þannig virkar kerfið. Það hefur virkað svona í 100 ár.
7. kafli: Vestræn áhrif og skuldir
Og þið sjáið ekki þetta kerfi. Þið viljið ekki sjá það vegna þess að þið eruð líka hluti af kerfinu. Hverjir eru stærstu auglýsendur New York Times, CNN og BBC? Olíufyrirtæki, námufyrirtæki, vopnaframleiðendur, lyfjasamsteypur – fyrirtækin sem arðræna Afríku. Þið lifið á peningunum þeirra. Þið verjið hagsmuni þeirra.
Og það sem ég er í þann mund að segja ykkur gæti kostað mig lífið, en nú er ekki lengur tími til að þegja. Kerfi Frakklands í Afríku er CFA-frankinn. 14 Afríkuríki nota enn franskan nýlendugjaldmiðil. 50% af gjaldeyrisforða seðlabanka þessara ríkja liggja í franska ríkissjóðnum. Frakkland beitir neikvæðum vöxtum á þetta fé. Þannig að við borgum Frakklandi fyrir að nota okkar eigin peninga. Í gegnum þetta kerfi flytur Frakkland auðlindir að verðmæti 500 milljarða dollara frá Afríku á hverju ári. Skrifar einhver um þetta? Nei, en þegar Frakkland veitir Afríku 10 milljarða evra í aðstoð kemst það í fyrirsagnirnar.
Kerfi Bretlands er fágaðra. London er miðstöð peningaþvættis í heiminum. City of London, aflandsparadís. Hvert einasta penní sem stolið er frá Afríku fer í gegnum London. Jersey, Guernsey, Caymaneyjar, Jómfrúaeyjar, allt undir breskri stjórn.
Þar felst auður Afríku. Kerfi Bandaríkjanna er AFRICOM. Afríkuherstjórnin, 46 herstöðvar í álfunni. Opinber tilgangur: öryggi. Raunverulegur tilgangur: yfirráð yfir auðlindum. Drónar í lofthelgi okkar á hverjum degi, hlerunarbúnaður alls staðar. Þeir segjast berjast gegn hryðjuverkum, en það eru ekki hryðjuverkamenn heldur leiðtogar fólksins sem eru skotmörkin.
Kína er nýi leikmaðurinn og talar um ávinning beggja aðila. Byggir innviði, veitir lán, en í skiptum fyrir hvað? Hafnarleyfi til 99 ára, námuréttindi, landbúnaðarland, skuldagildruerindrekstur? Spyrjið Srí Lanka, spyrjið Sambíu.
8. kafli: Yfirráð fyrirtækja yfir fjölmiðlum
Og þið skrifið ekki um neitt af þessu. Hvers vegna? Vegna þess að þið eruð ekki frjáls fjölmiðill. Þið eruð fyrirtækjafjölmiðill. Yfirmenn ykkar eru milljarðamæringar. Jeff Bezos keypti Washington Post. Hvers vegna? Af ást á blaðamennsku? Fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, Fox News, Wall Street Journal, The Sun, The Times, allt úr sömu hendi, allt með sömu skilaboðin. Vesturlönd eru góð, aðrir eru vondir. Carlos Slim, mexíkóskur milljarðamæringur, er stærsti hluthafi New York Times. Hvaðan kemur auður hans? Einokun á fjarskiptum, hann auðgaðist á baki Rómönsku Ameríku og stjórnar nú virtasta dagblaði Bandaríkjanna, og þið segist stunda óháða blaðamennsku.
Hverjir eru ritstjórar ykkar? Úr hvaða skólum útskrifuðust þeir? Harvard, Yale, Oxford, Cambridge. Alltaf sömu elítuskólarnir, alltaf sama heimsmyndin, alltaf sömu fordómarnir. Hvernig eru fréttamenn ykkar valdir? Hversu mörg tungumál talar Afríkufréttaritari ykkar? Frönsku, ensku, það er allt og sumt. Svahílí, hása, jórúba? (hér stöðvast myndbandið, ræðan þó ljóslega ekki búin, en skammturinn kannski nógu stór)










