Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð
—

Þórarinn Hjartarson
18. nóv, ’26

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram að því benti eindregið til þess að grundvallarorsök stríðsins lægi í heimsdrottnunarstefnu Bandaríkjanna frá 1991, og því hvernig þau beittu verkfæri sínu NATO við það verkefni: Það var NATO sem skyldi tryggja öryggið í álfunni, undir bandarísku forræði, Pax Americana. Það var öryggiskerfið sem taka skyldi við af valdajafnvægi Kalda strísins.  NATO í Evrópu var svo tvöfaldað í áföngum og þanið upp að Rússlandi. Síðast var Úkraína fest í NATO-netið og gerð að  and-rúsnesku framlínuríki árið 2014. Þar með hófst forleikur þess stríðs sem kom.

Hinu megin frá liggja rætur stríðins í því að Rússlandi hafði vaxið ásmegin (frá eymd 10. áratugs) og Pútín dró upp rautt strik – sagði hingað og ekki lengra fer NATO, ef það fer lengra gerum við gagnárás.

Vestræni heimsdrottnunar-bryndrekinn  –  sem hafði herjað allt frá 1991 og „marga hildi háð“ en löngum valið sér viðráðanlega andstæðinga – mætti árið 2022 veruleik nýrra styrkleikahlutfalla í heiminum, þeim veruleik að nýir valdapólar voru orðnir til á hnettinum. Úkraínustríðið var fyrsta alvarlega skerið sem dreki þessi steytti á (Íranstríðið er sker númer tvö).

Atburða-rakning fyrri greinarinnar sýndi að Bandaríkin voru algjörlega leiðandi í að knýja áfram þróunina í átt til Evrópustríðs. Framan af voru Bandaríkin hinir virku gerendur en Evrópulöndin óvirkari áhorfendur í útþenslustefnunni gagnvart Rússlandi.

Um hvað er barist? Markmið stríðsaðilanna.

Úkraínustríðið hefur staðið í bráðum fimm ár. Eyðingarkraftur þess í mannslífum, samfélagslegum og efnislegum verðmætum er mikill og óskertur. Rússar héldu þegar 7% af Úkraínu áður en innrásin hófst í febrúar 2022. Strax á fyrsta mánuði innrásar bættu þeir við sig 12%, héldu þá alls 19%. Síðan hafa þau hlutföll haldist lítið breytt í þessi fimm ár. Það er þó rétt að undirtrika að þá er aðeins talað um landsvæði. Ef rætt er um mannfall, eignatjón, ástand herjanna og hernaðargetu, þá lítur dæmið öðru vísi út. En spurningin er: Um hvað er eiginlega barist?

Pútín berst fyrir yfirráðum á þessum (rússneskumælandi) fimmtungi Úkraínu sem hann náði á fyrstu vikum. Frekari landakröfur hefur hann ekki sett fram. En hann setur fram aðrar aðrar kröfur: Hann fer fram á öryggistryggingar fyrir Rússland; tryggingar fyrir því að útvíkkun NATO verði stöðvuð; að Úkraína verði ekki endurvopnuð. Hann fer raunar fram á víðtækan friðarsamning gagnvart Evrópu og NATO, evrópskt öryggiskerfi má segja – áður en Rússar stöðvi hernaðaraðgerðir sínar. Þessi markmið hafa lítið breyst í stríðsins rás.

Hver eru markmiðin hinum megin? Þar er þess að geta að stríðsaðilar eru tveir, a.m.k. fram að seinni Trumpstjórn: það eru Úkraína (stjórnvöld í Kiev) og Vestrið/NATO. Þar var afstaðan frá byrjun þessi: Rússland er í útþenslustríði líkt og Hitler og það á ekki að semja við þannig stríðsaðila, slíkt er friðkaupastefna (appeasement) . Rússland hefur ekkert neitunarvald um hvaða þjóðir geti gengið í NATO. Rússland verður að bakka að fyrri landamerkjum – ígildi uppgjafar Rússa.  Viðræðum um evrópskt öryggiskerfi var hafnað (af því öryggiskerfi Evrópu væri NATO), og framan af neituðu þessir aðilar m.a.s. alveg að ræða við Rússa.  

En þar sem Rússar töldu sig hafa bakið upp við vegg á degi innrásarinnar – með NATO komið upp að þeim vegg – var ljóst að þangað myndu þeir ekki bakka. Að gera þá óraunsæju kröfu að sínu stríðsmarkmiði var því í reynd krafa um að halda stríðinu gangandi, sama hvað það kostar fyrir Úkraínu. Sem þjónar því yfirmarkmiði að veikja Rússland.

Fundur um Úkraínustríðið í Hvíta húsinu 18 ágúst 2025

Bandaríkin að hætta í stríðinu?

Eftir að Trump tók við embætti heyrum við sí og æ í RÚV íslenskum fréttum að Trump og Bandaríkin séu að „yfirgefa“ Úkraínu, Donald vilji „frið við Rússa“ fyrir sitt leyti og dragi því úr stuðningnum við Úkraínu. Samkvæmt þessum málflutningi er Evrópa nú að mestu alein í hernaðarstuðningnum við Úkraínu, og talað er um vaxandi „gjá“ milli Bandaríkjanna og Evrópu. Og sameinaða Vestrið ekki lengur sameinað.

Sumar raddir í þessum kór eru vonglaðar í þessu sambandi og tala um aukið hernaðarlegt „sjáfstæði“ Evrópu, vilja jafnvel stilla Evrópuhluta NATO (og ESB) upp sem varnarmála-valkosti við bandarísku verndina. „[Við] þurfum að efla sambandið við Evrópu en reyna að gleyma Bandaríkjunum“ skrifar Illugi Jökulsson. „Evrópuvinstrið“ talar mikið í þessum anda, en því er einmitt mjög umhugað um að klekkja á Rússlandi og vopna Úkraínu sem mest.

NATO sjálft skýtur hins vegar hugmyndirnar um „sjálfstæði“ Evrópu alveg niður svona við og við. Mark Rutte framkvæmdastjóri, sem veit að „gjáin“ umrædda er ekki raunveruleg, talar oft býsna skýrt um hlutverk NATO, t.d. 25. júní í sumar: 

NATO er ekki aðeins hér til að vernda Evrópu. NATO er hér líka til að hjálpa til við að verja Bandaríkin og tryggja að Bandaríkin geti gegnt sínu áhrifamikla hlutverki á heimsvísu, við það að framfylgja bandarísku valdi (project American power) sem er svo mikilvægt til að tryggja öryggið í heiminum.

Hlutverk NATO er að „framfylgja bandarísku valdi“. Enda er hernaðarlegt sjálfstæði Evrópu tálsýn. Líka hvað varðar Úkraínustríðið. Verkefninu „Hjálpum Úkraínu“ eða „Úkraínuverkefninu“ (Project Ukraine) hafa Bandaríkin, þ.e. bandarískir heimsvaldahagsmunir, stjórnað alveg frá byrjun og ráðið ferðinni. Hagsmunir Evrópu eru þar víkjandi. Hagsmunir Úkraínu koma málinu ekkert við.

Höldum þess vegna áfram að greina þróun Úkraínustríðsins og ekki síst hinn bandaríska þátt þess.

Stefnan að „yfirteygja Rússland“

Í fyrri grein töluðum við um bandarísku hugveituna RAND Corporation sem gerir stefnuáætlanir fyrir stríðsráðuneytið Pentagon og lagði árið 2019 fram grundvallarstefnu gagnvart Rússlandi sem nefndist:   „Extending Russia – Competing from Advantageous Ground “ (Að teygja Rúsland – keppt á hagstæðum grunni). Bók á 354 bls. Hún leggur fram mikinn lista efnahagslegra og heimspólitískra aðgerða sem fara þurfi í gagnvart Rússlandi, til að veikja það og lækka í því rostann.

Það merkilegasta við þennan aðgerðalista er einfaldlega það að honum hefur verið fylgt síðan hann var saminn – nánast í stóru sem smáu, skref fyrir skref. Og hann var saminn 2019, nærri þremur árum fyrir innrás Rússlands í Úkraínu. Sem sýnir að þarna mörkuðu stefnuna aðilar sem raunverulega réðu og stjórnuðu ferðinni, sókninni gegn Rússlandi.

Þið þurfið ekki að lesa annað en efnisyfirlit bókarinnar á netinu til að sjá og skilja. Í bókarhlutanum „Efnahagsagerðir“ eru kaflarnir eftirtaldir: „Hindra olíuútflutning“, „Hindra hindra jarðgasflutninga og byggingu flutningsleiðslna“ [Nord Stream er nefnt sérstaklega]. „Koma á efnahagslegum refsiaðgerðum“, „Auka rússneskan atgervisflótta“.

Í hlutanum „Heimspólitískar agerðir“ (Geopolitical measures) eru kaflarnir svohljóðandi: „Sjá Úkraínu fyrir vopnum“ (Provide Lethal Aid to Ukraine), „Auka stuðning við uppreisnarmenn Sýrlands“, „Ýta undir valdaskipti í Hvítarússlandi“, „Hagnýta spennuna í Suður-Kákasus“ [Georgíu, Armeníu] „Minnka rússnesku áhrifin í Mið-Asíu“, „Bjóða rússneskri viðveru í Moldóvu byrginn“.

Ef við krossum við þær af þessum aðgerðum farið hefur veri í að framkvæma sjáum við að þær hafa allar verið framkvæmdar, það „tikkar í öll box“. Og það voru sem sé ekki viðbrögði við illvirkjum Rússa, s.s. „tilefnisrausri innrás“ þeirra á Úkraínu, heldur voru þær allar hluti af bandarískum hernaðaráætlunum þremur árum fyrir innrásina. Ef við til dæmis skoðum sérstaklega kaflann „Sjá Úkraínu fyrir vopnum“ kemur eftirfarandi fram:

Aukin hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu myndi að öllum líkindum leiða til samsvarandi aukningar bæði á aðstoð Rússa við aðskilnaðarsinna og á rússneskum herafla í Úkraínu og þannig viðhalda átökunum á nokkuð ákafara stigi… Þetta gæti valdið hlutfallslega miklu mannfalli Úkraínumanna, landmissi og flóttamannastraumi. Það gæti jafnvel leitt Úkraínu til óhagstæðs friðar…

En þeir ókostir og allt það tap fyrir Úkraínu er yfirskyggt af kostunum, þ.e.a.s. mikilvægi þess að taka Rússlandi blóð:

Slík stigmögnun teygir á Rússlandi; Austur-Úkraína er nú þegar byrði á Rússlandi. Landvinningahernaður í Úkraínu gætu aðeins aukið byrðina, þótt það vissulega komi niður á úkraínsku þjóðinni… Aukin aðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu, þar á meðal hernaðaraðstoð í formi vopna, myndi að öllum líkindum auka kostnað Rússlands, bæði í mannslífum og fjármunum.

Krísur á nógu mörgum stöðum munu fella Rússland!

Hin víðari strategía Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi er þessi: ef útvíkka má NATO upp að útjöðrum Rússlands, og ef koma má í veg fyrir að Rússland fái neitt öryggiskerfi eða öryggistryggingar við landamæri sín eða í nánasta umhverfi sínu, ef í framhaldi af því má skapa óstöðugleika og krísur (andrússneskar krísur helst) á nógu mörgum stöðum við útjaðrana; til dæmis í Úkraínu, Tsétsníu, Georgíu, Armeníu, Hvítarússlandi eða Sýrlandi þá munu Rússar „yfirteygja sig“ í brasi sínu að kljást við það.

Þegar Rússar bregðast við og reyna að verja áhrifasvæði sín mun heimspressa vor hrópa: Rússarnir koma!  Rússar í landvinningastríði! Sem mun einangra þá út á við. Og inn á við mun það ennþá frekar valda pólitískum og efnahagslegum kostnaði og vaxandi óánægju (allt þetta kemur þarna fram). Þá mun það að lokum koma  af stað einhverju í líkingu við hrun Sovétríkjanna. Í bókinni Að teygja Rússland er margsinnis vísað til Afganistans á 9 áratugnum og þætti þess stríðs í falli Sovétríkjanna.   

Hinn sláandi líkindi milli áforma og framkvæmdar, milli áætlunarinnar frá 2019 og þeirrar atburðarásar sem varð í kjölfarið sýnir að strategistarnir í Washington voru þeir sem réðu ferðinni. Auk þess birtir sama áætlun ágætlega í hnotskurn hver staða Úkraínustríðsins er í hinni víðari strategíu Washington gagnvart Rússlandi.

Tilgangurinn með að „yfirteygja“er alls ekki nauðsynlega að „sigra“ Rússland í Úkraínu, ekki heldur í Armeníu, Georgíu eða á einstökum öðrum svæðum. Tilgangurinn í strategíunni er í fyrsta lagi að halda stríðinu gangandi, framlengja það sem lengst til að þreyta/veikja Rússland. Í öðru lagi er tilgangurinn að skapa margar krísur fyrir Rússland, magna átök á sem flestum svæðum og með öllum ráðum, átök sem samanlögð valda sprungum og upplausn, krísum sem leiða til veikingar með tímanum, jeltsínisma, sundurlimunar, hruns… Áætlunin frá 2019 bendir hins vegar ekki til að Bandaríkin hafi sérstakan hug á að lenda sjálf í beinu stórstríði við Rússland.

Það er ástæða til að nefna að árið 2019, þegar áætlunin Extending Russia kom út, var síðasta ár Trumps á fyrra kjörtímabili hans. Það þarf samt ekki að tengja nafn Trumps mikið við samningu hennar, hann lá á öllu því tímabili undir áburði um samvinnufýsi við Rússa,  sbr. Russiagate. Hitt er líklegra að afgerandi stefnuplagg af þessu tagi sé samið alveg óháð sitjandi forseta – sem þýðir þá vissulega að forsetinn stjórni ekki utanríkisstefnu Bandaríkjanna.  

Pútín gekk í gildruna

 „Að teygja Rússland“ til íhlutunar í Austur-Úkraínu. Það var sem sé gildra sem strategistarnir í Washington lögðu og þeir sögðu það berum orðum að draumurinn væri rússnesk íhlutun, „aukning bæði á aðstoð Rússa við aðskilnaðarsinna og á rússneskum herafla í Úkraínu“ eins og áður var í vitnað.

Pútín gekk í þessa gildru og gerði innrás, augljóslega í blóra við alþjóðalög. Hann sagðist vera kominn upp að vegg og að sókn NATO – sérstaklega inn í Úkraínu ­– væri „tilvistarógn“ við Rússland. Það var auðvitað mikið til í því hjá honum, en samt er erfitt að álíta annað en að Pútín hafi gert mistök með því að láta ögrast til innrásar þennan febrúardag 2022. Hann mat það svo að rússnesk innrás myndi fljótt þvinga Úkraínu til samninga. Sem hún gerði, en gerði svo ekki.

Kremlverjar höfðu nokkrum vikum áður hótað NATO og Washington innrás í Úkraínu nema Rússland fengi öryggistryggingar, tryggingar um að útþensla NATO yrði stöðvuð, og reyndar að hýn yrði dregin nokkuð tilbaka. Því svöruðu NATO og Washington einfaldlega með neii. En þeir þögðu yfir hótuninni. Þegar innrásin var gerð steig Joe Biden á stól og sagði innrásina tilefnislausa, „unprovoked“: „þetta snerist aldrei um raunverulegar öryggisáhyggjur. Það snerist alltaf um nakta árásarhneigð, um löngun Pútíns í heimsveldi með öllum hugsanlegum meðulum.“ Ennfremur hrópaði Biden: „If anybody in this room thinks Putin will stop at Ukraine, I assure you he will not!“

Með ólöglega innrás Rússa uppi í erminni (þó hún hafi auðvitað komið eftir margfalda ögrun (var ekki „unprovoked“)) var auðveldur leikurinn fyrir Biden að safna liði – til fordæmingar, til efnahagslegra refsiaðgerða og til að „hjálpa Úkraínu“ hernaðarlega. Fyrst og fremst í Evrópu þar sem kjörorðið „Rússarnir koma“ hefur reynst svo vel í 300 ár.

Að skera Evrópu frá Rússlandi. Tókst prýðilega

Eins og fram kom í fyrri greininni var markmið Washington með að ögra Rússlandi til stríðs tvíþætt: „í fyrsta lagi að veikja Rússland og í öru lagi að skera Evrópu frá Rússlandi.“ Samkvæmt áætlun RAND-Corporation var efnahagsstríðið engu lítilvægara en hið hrein-hernaðarlega.

Með ólöglega árás Rússa í  bakhöndinni gekk bandarískum stjórnvöldum greiðlega að virkja Evrópu til efnahagsstríðs. Strax í byrjun mars samþykktu Bandaríkin og ESB sameiginlegar efnahagsaðgerðir gegn Rússlandi. New Yort Times skrifaði 4. mars um þá samþykkt:

Með efnahagsaðgerðnuum stefna Bandaríkin og Evrópa á að refsa Pútín og valda rússneskri þjóðfélagsólgu… [þau] heyja nú allsherjar efnahags- og fjármálastríð gegn Rússlandi“ […til þess að] valda hruni rússneska hagkerfisins. 

Þar með var Evrópa komin í efnahagslegt stríð gegn Rússlandi, og Bandaríkjunum þar með orðið vel ágengt með að „skera Evrópu frá Rússlandi“.  Þó það kæmi verst niður á Evrópu sjálfri. Næsta stóra aðgerð í því efni var sprenging Nord Stream 2. Skömmu fyrir innrás Rússa lýsti Joe Biden yfir að í tilfelli innrásar í Úkraínu „munum við binda enda á … Nord Stream 2“. Og beinum orðum: „If Russia invades… then there will be no longer a Nord Stream 2. We will bring an end to it.” Sem varð reiðarslag fyrir efnahagslega samþættingu Þýskalands og Rússlands. Þýsk stjórnvöld kenndu fyrst Rússum um sprenginguna, í seinni tíð kenna þeir einhverjum Úkraínumönnum um, samt án teljandi rannsóknar á málinu.

Hin ódýra rússneska orka var sá þáttur sem helst hefði gert Evrópu samkeppnishæfa um iðnaðarframleiðslu. Biden bauð strax fram bandarískt fljótandi jarðgas (LNG) í staðinn. Bandaríkin eru stærsti útflytjandi fljótandi jarðgass í heiminum, en verðið er margfalt miðað við rússneska gasið. Sprenging leiðslunnar var þess vegna efnahagsleg katastrófa, svo að þýsk stjórnvöld kusu að rannska ekki málið. Það var merki um að Þýskaland hefði þegar „selt djöflinum sál sína“ alla og að landið, ásamt Evrópulöndum, væri komið fylgdarlið myrkrahöfðingjans, í flokk lénsmanna lénsherrans, og orðið háðari Bandaríkjunum en nokkru sinni.

ESB hefur með Bandaríkjunum sett á yfir 20 refsiaðgerðapakka gegn Rússlandi. Rússar hafa brugðist við því með að segja að þeir hafi ekki áhuga á hinni ömurlegu Evrópu lengur. Þeir leggja nú flestar nýjar olíu- og jarðgasleiðslur til Kína  og Asíulanda. Evrópa þjáist í vaxandi orkukreppu, en Bandaríkin kætast eins og púkinn í fjósi Sæmundar.

Er líka „stríð stríðsins vegna“ –  vald MICsamsteypu  

Við sögðum áður að tilgangur Bandaríkjanna með að koma af stað þessu stríði væri tvíþættur: „í fyrsta lagi að veikja Rússland og í öru lagi að skera Evrópu frá Rússlandi.“ Það eru tvær heimspólitískar ástæður (geopolitical motives) og stríðsmarkmið. En þá er a.m.k. einn tilgangur ótalinn: stríð stríðsins vegna, efnahagsleg þörf Hernaðar-iðnaðar samsteypunnar (MIC) í Bandaríkjunum fyrir stríð, og vald hennar til að fylgja þeim hagsmunum eftir. Hugmyndafræðingur Kalda stríðsins George Kennan sagði í viðtali 1987: „Ef Sovétríkin myndu á morgun sökkva í saltan mar þá yrði bandaríska hernaðar-iðnaðar samsteypan að halda áfram efnislega óbreytt þar til finna mætti einhvern annan óvin.“

Jæja. Stríðið í Úkraínu var frá innrásinni 2022 staðgengilsstríð. Úkraínski herinn var að stærstum hluta vopnaður og kostaður frá Bandaríkjunum, alla vega á fyrrihluta þessa stríðs, og þess vegna var þetta fyrst og fremst bandarískt staðgengilsstríð. Úkraína hafði 700.000 manna virkan her við upphafi innrásarinnar (innrasáraher Rússa var 100 til 200 þúsund manns) svo slíkur staðgengilsher átti að geta valdið Rússum umtalsverðum vandræðum, og gerði það.                   

Leon Panetta var varnarmálaráðherra Obama-stjórnarinnar 2011-2013. Í viðtali hjá Bloomberg nokkrum vikum eftir innrásina 24. febrúar skilgreindi hann verkaskiptingu Bandaríkjanna og Úkraínu í stríðinu með skýrum hætti:

Við [Bandaríkin] erum þátttakendur í átökum þarna. Það er staðgengilsstríð við Rússland hvort sem við segjum það eða ekki. Það er það sem í reynd á sér stað. Og af þeirri ástæðu verðum við að vera viss um að við veitum eins mikið af vopnum og mögulegt er … Ekki vera í vafa, diplómatík er gagnslaus nema við höfum áhrif. Og aðferðin til að hafa áhrif er að fara inn og drepa Rússa. Það er það sem Úkraínumenn verða að gera. Við verðum að halda áfram hernaðaraðstoðinni … Af því þetta er valdatafl.

Ekki voru það samt Bandaríkin ein sem kostuðu stríðið þó þau væru langstærsti aðilinn. Stríðið var vopnað og kostað af NATO-löndum. Lönd utan NATO komu í reyndinni aldrei neitt að þessu stríði. Jens Stoltenberg, þáverandi framkvæmdastjóri, undirstrikaði gjarnan mikilvægi síns bandalags í stríðinu, svo sem á blaðamannafundi í mars 2024:

Rússland heldur áfram að elta heimsvaldadrauma sína. Og í Úkraínu er staðan á vígvellinum enn erfið. Því er mikilvægt að við höldum áfram að auka stuðning okkar. Bandalagsríki NATO veita 99 prósent allrar hernaðaraðstoðar við Úkraínu.  

Hvert rann hinn mikli kostnaður við hernaðaraðstoðina? Langstærstur hluti þess fjár rann til að kaupa bandarísk vopn. Bandarísk háskólarannsókn frá nóvember 2023 komst að þeirri niðurstöðu að heil 90% af fjármununum í bandarísku hernaðaraðstoðinni við Úkraínu færi aldrei úr landi í Bandaríkjunum. Þeir rynnu til leiðandi varnarmálaverktaka og framleiðenda þar í landi. 

Hitt er kannski merkilegra að líku er farið með vopnaaðstoð annarra NATO-landa. Jens Stoltenberg lagði áherslu á að það sannaði hina miklu forustustöðu Bandaríkjanna í þessu stríði að miklum meirihluta þeirra fjármuna sem færi í vopnaaðstoð til Úkraínu væri varið í kaup bandarískra vopna og búnaðar, skv. rannsókn American Enterprise Institute.

Næstum 70% af þeim 175 milljörðum dala sem Bandaríkin hafa veitt Úkraínu í aðstoð frá innrás Rússa árið 2022 var varið í Bandaríkjunum eða í þágu bandarísks herafla, samkvæmt rannsókn American Enterprise Institute sem birt var í maí 2024.  

Með öðrum orðum: Hinir miklu fjármunir frá Bandaríkjunum og NATO til hernaðaraðstoðar við Úkraínu komu ýmist úr vasa bandarískra skattgreiðenda eða frá opinberu fé annarra NATO-ríkja og runnu til bandarísku her-iðnaðarsamsteypunnar sjálfrar. Af því þetta er bandarískt stríð.

Og Bandaríkin stjórna – frá Ramstein og Clay Kaserne

Á öðrum mánuðinuði stríðsins, í apríl 2022, var sett á fót í bandarísku Ramstein-herstöðinni í Þýskalandi  Ramstein Contact Group, afar mikilvæg stjórnarsamkunda fyrir hernaðinn í Úkraínu. „„Ramstein” er óformleg en gríðarlega áhrifamikil samkoma, stofnuð til að samþætta og samræma hernaðaraðstoðina við Úkraínu“, skrifar úkraínska blaðið The Ukrainian Review. 

Það talar sínu máli að herstöðin Ramstein í Þýskalandi er bandarísk herstöð, og hún geymir m.a.s. höfuðstöðvar bandarísks flughersins í Evrópu, en er samtímis helsta samþættingarmiðstöð fyrir heri NATO. Það talar líka sínu máli að á fyrri hluta Úkraínustríðsins voru samkomur Ramstein Contact Group yfirleitt kallaðar saman af bandaríska utanríkisráðherranum, Lloyd Austin, sem jafnframt stýrði samkomunum.

Annað hlutverk Ramstein herstöðvarinnar er að vera mikilvægasta stjórnstöð fyrir gervihnattanjósnir í Evrópu, í seinni tíð einkum fyrir Starlink og  Starshield njósnakerfin. Önnur slík stjórnstöð var einnig sett á fót vorið 2022 í Clay Kaserne í Wiesbaden, þar sem eru höfuðstöðvar bandaríska landhersins í Evrópu.

Þá er að minnast á bandarísku leyniþjónustuna CIA sem hefur gegnt meginhlutverki í Úkraínustríðinu a.m.k. frá 2014 þegar CIA hóf að byggja upp 12 leynilegar njósnamiðvöðvar (útpósta) við landamæri Rússlands. Google segir„lekin leyniskjöl hafa staðfest að Ramstein þjónar sem mikilvæg aðgerðamiðstöð bæði fyrir Bandaríkjaher og CIA.“ Einnig að „Clay Kaserne í Wiesbaden þjónar sem gríðarstór taugamiðstöð fyrir bandaríska leyniþjónustusamfélagið í heild“

Hver verkaskiptingin er milli bandarískra Stríðsráðuneytisins (DOW) og CIA í stríðsrekstrinum þekki ég ekki gjörla, en frá herstöðvunum Ramstein og Clay Kaserne hefur hernaðinum í Úkraínu verið stjórnað í samvinnu CIA og DOW, a.m.k. flughernaðinum, loftskeyta- og drónahernaði. Það talar auðvitað sínu máli um valdahlutföllin að þessar herstöðvar eru höfuðstöðvar bandarísks landhers og bandarísks flughers í Evrópu. „Leyniþjónustuupplýsingar Bandaríkjanna og bandamanna staðsetja í rauntíma „áhugaverða staði” og samþætta fremur en beinlínis ákveða skotmörk” skrifar New York Times. 

Hvað breyttist við endurinnkomu Trumps?

Hvað um Trump. Varð ekki raunveruleg breyting á Úkraínustefnu Bandaríkjanna með seinni innkomu Trumps í embætti? Samanber ummæli hans: „Stríðið milli Rússlands og Úkraínu er stríð Bidens ekki mitt“. Hvað um friðmæli hans við Pútín? Hvað með hina vaxandi „gjá“ milli Bandaríkjanna og Evrópu? Er þetta raunveruleiki eða fals? Bæði og.

Breytingin er fals. Að nokkru leyti.  Trump boðaði það að hann myndi binda skjótan endi á Úkraínustríðið. Það er þó þannig að Bandarískir kjósendur hafa mikla tilhneigingu til að kjósa sig frá stríði og kjósa frið. Og Trump var kosinn út á að ætla að hætta við „stríð án enda“, í Miðausturlöndum og ekki síður í Úkraínu. Þetta hefur að nokkru leyti mótað tungutak hans og ýmsa hegðun í embætti, enda þurfa menn að einhverju leyti að þykjast fylgja eftir þeim stefnumálum sem þeir voru kosnir út á. Raunveruleg utanríkisstefna stjórnast hins vegar ekki af væntingum kjósenda, hún stjórnast af öðrum öflum, Her-iðnaðarbatteríinu, fjármálafáveldinu og djúpríkinu. Sem birtist t.d. í stefnuplöggum eins og áðurnefndu „Extending Russia“. Hlutverk pólitíkusa er ekki að marka stefnuna heldur „markaðssetja“ hana í hentugum pakningum og ljúga til um innihaldið.  

Breytingin er raunveruleg. Að nokkru leyti. Á seinni árum og hafa komið fram nýjar áherslur í bandarískri heimsstrategíu, án þess að þeir láti neitt af stefnunni að heimsyfirráðum. Breytingin er vissulega viðbrögð við uppkomu nýrra valdapóla í heiminum. Stefnubreytingin varð að nokkru leyti þegar Obama markaði stefnuna „snúning til Asíu“ (Pivot to Asia) ári 2011, en breyttar áherslur urðu þó enn skýrari með komu Trumps í embætti annað sinn 2025.

Útvistun Úkraínustríðsins til Evrópu – vegna Kína og fjölpólunar

Hinar nýju áherslur gagnvart Evrópu komu fram þegar Pete Hegseth stríðsmálaráðherra kom til Brussel í febrúar 2025 á fund varnarmálaráðherra NATO, þegar Trump-stjórnin var nýtekin við. Hann kom með ákveðinn boðskap til hinna undirsettu evrópsku kollega sinna í NATO. Hann sagði að það yrði að vera verkaskipting. Það yrði að koma miklu meira varnarmála-framalg frá lénsmönnunum. „Þið í Evrópu ætlið að halda þessu stríði áfram [í Úkraínu] á meðan við förum og tökumst á við Kína“ Orðrétt sagði hann:

Við stöndum frammi fyrir jafningjasamkeppni frá Kínverjum sem eru kommúnistar og hafa getu og ásetning til að ógna heimalandi okkar og kjarnaþjóðarhagsmunum okkar á Kyrrahafssvæðinu. Á sama tíma og Bandaríkin setja í forgang að takast á við þær ógnir verða bandamenn þeirra að taka forustuhlutverk. Í sameiningu getum við komið á verkaskiptingu sem hámarkar samanburðarforskot okkar – í Evrópu annars vegar og Kyrrahafssvæðinu hins vegar.

Áfram hélt Hegseth og talaði um aukin varnarútgjöld. Varnarútgjöld NATO ríkja höfðu vaxið allhratt og náðu 2% af landsframleiðslu að meðaltali árið 2024:

Við skorum á lönd ykkar og þegna að tvíefla sig og skuldbinda sig ekki aðeins til að sinna brýnum öryggisþörfum Úkraínu, heldur einnig til að sinna varnar- og varnarmarkmiðum Evrópu til lengri tíma… 2% duga ekki. Trump forseti hefur kallað eftir 5%, og ég er sammála því.

Áðurnefndur USA-ESB klofningur, eða leikrit um klofning, hafði annan mikilvægan tilgang – fyrir Evrópuleiðtogana gagnvart eigin þegnum. Stjórnvöld Evrópulanda þurftu hreinlega að láta eins og Bandaríkin væru að „yfirgefa“ þá, einmitt núna þegar Rússarnir hremma fyrst Úkraínu önnur lönd á eftir! Af því stjórnvöld þurftu að snúa sér til almennings og segja: Nú þarf að færa fórnir, nú þarf að taka mikla fjármuni úr velferðinni og beina þeim í Úkraínustríð og í vígbúnað! Stríðsæsingahundum NATO var beinlínis uppálagt að gelta nógu mikið: Bandaríkin eru að yfirgefa Evrópu! Þorgerður, Erlingur, Illugi gera akkúrat það, hvert á sinn hátt, hér heima.

Krafa Bandaríkjanna um verkaskiptingu var fyrsta skrefið. Næsta skref var tekið á leiðtogafundi NATO í Hag í júní 2025. Fundurinn hafði þetta eina mál á dagskrá að afgreiða kröfu Trumps – um að varnarmálaframlög Evrópu og Kanada yrðu aukin upp í 5% af landsframleiðslu. Fundurinn samþykkti kröfur hans andspyrnulaust, að ná yrði 5% markinu fyrir 2035.

NATO 3.0 – strúktúrbreyting NATO og evrópuvæðing stríðsins

Þriðja skrefið var tekið á leiðtogafundi NATO í Ankara í júlí 2026. Raunar hafði Elbridge Colby aðstoðarstrísmálaráðherra á NATO-samkundum og hjá Ramstein Contact Group á vormánuðum lagt evrópsku bandamönnunum línuna, að þeir yrðu að taka aðalábirgðina í vörnum Evrópu, og sérstalkega stórauka hernaðarlegt og fjárhagslegt framlag sitt í Úkraínustríðinu. Þetta væri strúktúrbreyting á NATO sem hann kallaði „NATO 3.0.“ Sjá hér.  „Með NATO 3.0 þróar bandalagið „deilingu byrða“ yfir í það að vera „flutningur byrða“ þar sem evrópsku bandamennirnir taka forustuna í hefðbundnum átökum og svæðisbundinni  fælingu“ segir Google.

Strúktúrbreyting NATO 3.0 var formlega viðtekin á leiðtogafundi NATO Ankara 7-8. júlí 2026, samþykkt var að skipta höfuðbyrðinni varðandi Evrópuvarnir og hernað yfir á Evrópulönd og Kanada. Byrðaflutningur frá Bandaríkjunum til Evrópu og Kanada. Sjá hér. Lénsmennirnir eru ekkert ánægðir, en gera þetta af því lénsherrann fyrirskipar. Sýnir hið mikla „sjálfstæði Evrópu“ í hnotskurn.

Mark Rutte kallaði þetta „rebalancing“: 

NATO horfist í augu við hættulegasta öryggismálaumhverfi í heilan mannsaldur: Rússland og stríð þess gegn Úkraínu; hryðjuverk; Íran; og landreks-breytingar [tectonic changes] í hinni hnattrænu samkeppni… Evrópsku bandamennirnir og Kanada eru á í því ferli að jafna varnarmálútgjöld sín við Bandaríkin.

Rutte ber boðskapinn frá Washington. Að Rússland sé hættulegra en áður merkir hjá Rutte að stríðið gangi ekki vel, eldsmatur í Úkraínu að verða búinn, nú verði Evrópulöndin að henda sér á bálið líka.

Trumpstjórnin tók vissulega upp samræður við Moskvu, öfugt við Biden og Evrópulönd, tók að senda þangað samningamenn, Tump hitti Pútín í Alaska o.s.frv. og á yfirborðinu var þa breyting. En það var ekki til að koma á friði í Úkraínu, heldur aðeins til að tala um skilyrðislaust vopnahlé og frystingu átakanna, sem er afstaða Evrópu líka – af því hernaðargeta Úkraínu molnar og þarf að byggja hana upp. Rússar lýsa alltaf jafn hraðan yfir að þeir séu ekki til tals um slíka frystingu.

Hlutverk og verkefni Evrópu skv. nýja NATO-skipulaginu er eftirfarandi: Að taka aðalhlutverk í stuðningnum við Úkraínu. Að greiða meginkostnaðinn í stríði sem er þó fyrst og fremst bandarískt stríð. Evrópa á ennfremur að hvetja Úkraínu áfram. Stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn Evrópu eiga að æpa: Úkraína er með þetta, Rússar eru með allt niðrum sig! Stríðið gengur vel og er góður bissniss, styrkið það, meira fé, fleiri dróna!

Hlutverk Evrópu er m.ö.o. að framlengja stríðið, koma í veg fyrir fyrir alla raunverulega friðarsamninga, gott væri að frysta átökin til að endurnýja megi byrgðirnar, halda svo áfram. Auk þess: frá sjónarhóli Washington er æskilegt að opna ný átakasvæði, Eystrasaltsríkin, Moldóva, Georgía, Finnland. Það væri samkvæmt stefnu Washington um að  „evrópuvæða“ stríðsreksturinn, sem sé að „úkraínugera“ Evrópu (gera hana að stagengli líkt og Úkraínu).

Finnland er nærtækt dæmi, það lét af hlutleysi sínu 2023 og veitti Bandaríkjunum aðgang að 15 herstöðvum í Finnlandi, breytti herflugvöllum landsins í bandarískar herstöðvar, og afnam í sumar bannið við því að geyma kjarnorkuvopn í landinu. Finnland hefur með þessu breytt sér í framlínuríki gegn Rússlandi og upprennandi staðgengil. Og ekki bara Finnland: Norðurlönd sem heild opnuðu 47 bandarískar herstöðvar á árunum 2021-24. Þau virðast æst í að gera sig að framlínuríkjum og gefa Rússland ærna ástæðu til að óttast um öryggi sitt úr þeirri átt.

Stigmögnunin, og Bandaríkin og Evrópa rækilega innblönduð

Þó að Bandaríkin hafi stigið ákveðið formlegt skref afturábak í Úkraínu með Trump 2 þýðir það ekki samt skref í átt til friðar. NATO 3.0 var innleitt sl. sumar, en þá þegar hafði Úkraína og stríðshöfuðstöðvarnar í Þýskalandi sett í gang mikla stigmögnun átakanna í formi drónastríðs. Um það sagði Brian Berletic í vor í viðtali við Glenn Diesen: 

Bandaríkin eru að firra sig ábyrgð, en þau eru enn mjög virk í stríðinu. Bandaríska herstjórnin er enn í Þýskalandi og hefur yfirumsjón með öllu stríðinu, svo sem öllum þessum drónaárásum djúpt inn á rússneskt landsvæði. Aftur, samkvæmt sjálfu New York Times og eins og öllum sem þekkja til leyniþjónustumála er ljóst: eftirlits- og könnunargetan sem þarf til að gera þessar árásir á árangursríkan hátt – hún hlaut alltaf að vera bandarísk. Þeir viðurkenna að það hafi verið CIA og Bandaríkjaher sem höfðu yfirumsjón með þessari drónaáætlun sem gerði árásir djúpt inn á rússneskt landsvæði. Þetta nær lengra: m.a. árásir sjódróna sem eiga sér stað um allan heim gegn olíuflutningaskipum sem flytja rússneska orku til útflutnings. Bandaríkin eru því ennþá rækilega blönduð í þetta og hafa yfirumsjón með því öllu, en þau firra sig beinni ábyrgð, setja Evrópubúa í fremstu víglínu og búa þá undir að verða næsti staðgengill sem fyllir skarðið á meðan Úkraína molnar hægt og rólega. 

Evrópa undirbýr sig og tekur sífellt beinni þátt í stríðinu, m.a. drónastríðinu og einnig hernaði gegn olíuútflutningnum. Bretar stærðu sig í sumar af árásum breskra dróna djúpt inn í Rússland. Og Zelenski gerði sl. vetur kunnug áform um að opna tíu samstarfsfyrirtæki um drónaframleiðslu í Evrópu  á árinu 2026. Í þessum áformum er Þýskaland alveg miðlægt. Merz-stjórnin ætlar að koma upp sterksta her í Evrópu og eykur mjög samvinnuna við Kíev. Í apríl undirrituðu löndin strategísk samstarf. Sjá hér. Þýskaland ætlar að reyna að fylla skarðið sem Bandaríkin skilja eftir. Sjá hér 

 Enn sem áður er það bandarískt stríð

En skilja Bandaríkin eftir mikið skarð? Hve mikið draga þau sig eiginlega út úr þessu stríði? Steven Starr prófessor í Missouri, sem ritað hefur mikið um stríð og einkum kjarnorkustríð, slær því föstu: „The CIA is running the show in Ukraine“. Í nýju samtali við Pascal Lottaz segir hann að núverandi þátttaka Bandaríkjanna í Úkraínustríðinu sé ekkert smáræði. Hann bendir m.a. á að  CIA hafi haft yfirumsjón með um 30 þúsund drónaárásum á og inn í Rússland bara í októbermánuði sl., þar sem drónarnir eru alveg háðir gervihnattaupplýsingum CIA (sjá samtalið þegar 6 mínútur eru liðnar af því).

Meginstraumsmiðlar halda því fram að Rússland hafi misst um 1/3 af olíuútflutningi sínum undanfarna mánuði, auk margra olíuhreinsistöðva, hvort sem það er raunhæft mat eða ekki. Rússar hafa til þessa kosið að endurgjalda skotárásir eingöngu gegn Úkraínu en ekki gegn NATO-ríkjum (væntanlega vegna 5. greinar NATO). Til samanburðar endurgeldur Íran ekki aðeins staðgenglinum Ísrael en ræðast líka gegn leppríkjunum við Persaflóa. En Evrópulönd gera alla vega „skyldu sína“ og erta björninn í híðinu sem allra mest, eins og þau vilji erta hann á sig. Með tíma gerist líklegra að það takist.

Viðræður í Abu Dhabi – Vestrið sameinað

Þá stökkvum við inn í núið, til nýafstaðinna friðarviðræðna í Úkraínudeilunni í Abu Dhabi í 10-11 nóv 2026 sem sýnir deiluna í hnotskurn, á líðandi stund. Viðræðurnar voru milli Rússlands og Úkraínu og með Bandaríkin formlega sem milligöngumann! Viðræðurnar birtu samt dável markmið og afstöðu hinna eiginlegu stríðsaðila. „Extending Russia“.

a) Þar kom í ljós að Úkraína og sameinað Vestrið berjast fyrir vopnahléi án skilyrða, fyrir frystingu deilunnar. Eins og þau hafa gert lengi. Enginn munur er þar á afstöðu Evrópu og Bandaríkjanna, engin „gjá“ sjáanleg.

b) Rússland hafnar öllum hugmyndum um „frystingu“ átaka, nema með hörðum skilyrðum. Hver eru þau? Þau snúast ekki um landsvæði. Ennþá gera Rússar ekki kröfur um landsvæði út yfir þennan fimmtung Úkraínu sem þeir halda og hafa í grófum dráttum haldið frá fyrstu vikum stríðsins: héruðin Donetsk, Luhansk, Zaporizjzja og Kherson. Hin hörðu skilyrði snerta öryggistryggingar fyrir Rússland. Moskva krefst þess að útvíkkun NATO sé stöðvuð, krefst takmarkana á vopnakerfum nærri landamærum Rússlands og að herir NATO-land í Austur-Evrópu dragi sig til baka í stöðu sem sem þeir voru í 1997.

Þetta sýnast hörð og víðtæk skilyrði, skilyrði Rússa fyrir að hætta hernaðaragerðum. Þegar betur er að gáð, og á það benti New York Times (NYT 13. nóv), þá endurtekur Pútín kröfur sínar um öryggistryggingar sem hann sendi NATO og Washington fyrir 5 árum, í desember 2021, sem þá voru skilyrði fyrir því að ekki yrði innrás gerð í Úkraínu.

Samningskröfur aðila eru athyglisverðar. Samningskröfur Rússa sýna í hnotskurn hvers eðlis stríð þeirra er. Þær benda til að fyrir þeim hafi ekki vakað útþensla, heldur öryggi. Og sú afstaða er óbreytt. Kröfurnar ganga út á nýtt evrópskt öryggiskerfi, hafna því að NATO geti verið í því hlutverki. Innrás Rússa hefur snúist um evrópst öryggiskerfi og það breytist ekki

Kröfur Rússa benda ennfremur til að þá skorti ekki sjálfstraust. Það er líka ljóst að það er vegna stöðunnar á vígvellinum í Úkraínu. Í krafti hennar þrýsta þeir á um það evrópska öryggiskerfi sem þeir fóru fram á fyrir stríðið en fengu engan hljómgrunn fyrir þá. Stríðsreksturinn munu þeir líklega ekki stöðva úr þessu fyrr en það öryggiskerfi liggur fyrir. Það er ekki alveg á næsta leyti.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.