Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB
—
Þessa dagana fnæsa margir á hinni pólitísku miðju af gremju í hvert sinn sem færð eru rök gegn ESB frá vinstri hlið stjórnmálanna. Þau rök eru raunar ótalmörg og afhjúpa sambandið sem gerspillta nýfrjálshyggjuvél sem stjórnað er af ólýðræðislegum öflum bjúrókrata, embættismanna og lobbíista. Óhugnarleg aðför sambandsins að styrk og mætti verkalýðshreyfingarinnar í Evrópu, ekki síst á Norðurlöndunum eru víti til varnaðar í þeim efnum.
Bolkestein tilskipunin 2004 og 2006
Árið 2004 reyndi framkvæmdastjórn ESB að þröngva í gegn tilskipun sem heimilaði fyrirtækjum að borga verkafólki laun miðað við upprunaland þeirra í kjölfar aðildar margra landa frá Austur-Evrópu þar sem lágt launað vinnuafl þeirra landa stóð fyrirtækjunum til boða til innflutnings. Þökk sé öflugri andspyrnu verkalýðshreyfingarinnar, sem mótmælti þessu launakapphlaupi á botninn (niður á við), var tilskipunin barin til baka og loks samþykkt árið 2006 í útvatnaðri mynd.
Laval-dómurinn árið 2007
Lettneskt fyrirtæki, Laval, flutti starfsmenn inn til byggingarvinnu í Svíþjóð. Sænsk stéttarfélög fóru í aðgerðir gegn fyrirtækinu til að þrýsta á að það myndi borga laun í takt við sænsk viðmið og kjarasamninga. Málið fór fyrir Evrópudómstólinn sem dæmdi fyrirtækinu í vil. Aðgerðir sænsku stéttarfélaganna voru taldar óhóflegar og ganga gegn þjónustufrelsi ESB. Í kjölfarið var frelsi og réttur stéttarfélaga á Norðurlöndum til að taka á kjarabrotum og launamismunun innflutts vinnuafls erlendra fyrirtækja verulega veiklaður og takmarkaður.
Rüffert-dómurinn árið 2008
Í þýska sambandslandinu Lægra-Saxlandi var löggjöf sem krafði verktaka í opinberum framkvæmdum um að greiða laun í samræmi við svæðisbundna kjarasamninga. Verktakafyrirtæki sem ráðið var til að byggja fangelsi datt í hug að ráða frekar til sín undirverktaka frá Póllandi og greiddi verkamönnum þess aðeins 46% af lágmarkslaunum sem krafist var í kjarasamningum. Evrópudómstóllinn úrskurðaði gegn Lægra-Saxlandi og taldi yfirvöld þar ekki geta krafist þess að erlend fyrirtæki ráðin til að sinna opinberri framkvæmd skyldu borga starfsmönnum sínum tilskilin lágmarkslaun.
Lúxemborg-dómurinn árið 2008
Framkvæmdastjórn ESB hóf málsókn gegn Lúxemborg vegna innleiðingar ríkisins á tilskipun ESB um „útsenda starfsmenn“. Í stuttu máli sagt innleiddi Lúxemborg tilskipunina með auknum kjarasamningsbundnum skilyrðum og takmörkunum í samræmi við eigin vinnumarkaðslöggjöf. Evrópudómstólinn sagði nei og dæmdi gegn Lúxemborg í málinu, ríkinu var ekki heimilt að búa innfluttu tímabundnu vinnuafli aukin réttindi, né tryggja aðgerðir gegn innflutningi á ólöglegu vinnuafli.
Þýskalands-dómurinn árið 2010
Ákveðnir kjarasamningar í Þýskalandi voru þannig smíðaðir að lífeyristryggingar færu í gegnum opinberar lífeyrisstofnanir og væru því undanþegnar útboði á markaði. Framkvæmdastjórn ESB var ekki sátt við þetta og höfðaði mál og Evrópudómstóllinn dæmdi gegn þessum þýsku stéttarfélögum. Ekki væri hægt að gera slíka undanþágu, sama hvað stéttarfélögin vildu semja um.
Tilskipun um lágmarkslaun árið 2022
Árið 2022 samþykkti ESB tilskipun sína um viðmið lágmarkslauna. Danska verkalýðshreyfingin hóf mikla herferð gegn þessum áformum, sem að þeirra mati yrði hraðleið niður á við í samkeppni launa og myndi þrýsta enn meir á félagsleg undirboð á milli landa. Í kjölfar þess hóf danska ríkisstjórnin mál gegn sambandinu en tapaði því árið 2023 þegar að Evrópudómstóllinn dæmdi enn og aftur ESB í vil. Áhrif og völd yfir launaþróun og stefnumótun þar um hefur þar með færst enn frekar frá innlendum stéttarfélögum til yfirþjóðlegs valds ESB.
Framundan er EU Inc.
Framkvæmdastjórn ESB vinnur nú að því að innleiða nýja löggjöf fyrir öll aðildarríkin sem felur í sér staðlaða vinnumarkaðs- og fyrirtækjalöggjöf sem mun gilda samhliða löggjöf hvers og eins aðildarríkis. Fyrirtækjum væri gefinn kostur á að velja hvort þau vilji fylgja löggjöf hvers lands eða þessari algildu hverju sinni. Er löggjöfin liður í því að auka samkeppnishæfni ESB, en með innleiðingu verður óprúttnum alþjóðlegum fyrirtækjum gert kleift að versla á milli landa hvar auðveldast sé komast hjá vinnumarkaðslöggjöf, borga lægri laun og sniðganga erfiðari kjarasamningsbundin skilyrði og takmarkanir. Danska verkalýðshreyfingin hyggst mótmæla löggjöfinni af fullum krafti.
Sterk verkalýðshreyfing
Ég tel eitt það allra besta við íslenskt samfélag vera sú sterka verkalýðshreyfing sem við búum að sem hefur gætt þess að launastig á Íslandi sé með því hæsta í heimi. Framundan er ákvörðun um að gangast undir Evrópudómstól og framkvæmdastjórn sem hefur ekki leynt því markmiði sínu að tryggja sífellt meiri samþjöppun valds til Brussel. Samningsvaldið færist þannig frá stéttarfélögum til yfirþjóðlegs skrifræðis og alþjóðlega lobbístahersins sem á það herjar. Afleiðingin fyrir vinnumarkaðsmódel Norðurlandanna er félagslegt undirboð, samkeppni á botninn og rýrnun launa, réttinda og atvinnustigs til framtíðar. Segjum nei 29. ágúst, fyrir verkalýðshreyfinguna okkar.









