Hvernig ófullkomið G3 jarðsöng G1
—

25. nóv, ’26

SHENZHEN 20/11 – Ef talað er um myndræna sýnikennslu, þá birtist allur skriðþungi sögunnar í hnotskurn í liðinni viku í tæknihöfuðborg Kína. Hér var framtíðin – fjölpóla og margra tengipunkta – að raungerast á fleiri en einn veg: í efnahagsvexti, öryggismálum, aðfangakeðjum, linnulausri hreyfingu um allt heimspólitíska taflborðið.

Vestrið – ringlað og hrokafullt í tilburðum sínum – sat ekki við borðið í Shenzhen. Og var ekki einu sinni á matseðlinum. Aumkunarvert hlutverk þess fólst ekki einu sinni í því að tína upp mola af sögulegri veislu stórveldanna þriggja. Fjarri Shenzhen sá Sjóræningjaveldið til þess að bandarískir vopnaframleiðendur yrðu áfram helstu birgjar Evrópu og að Evrópa greiddi reikningana. Það er allt og sumt.

Myndin festist í hugum fólks vítt og breitt um hið hnattræna suður – og stærstan hluta hins hnattræna norðurs. Í stuttu máli neyddist Bandaríkjaforseti til að sitja augliti til auglitis, varla sem jafningi, við leiðtoga hins strategíska samstarfs sem Bandaríkin hafa linnulaust reynt að einangra, beita refsiaðgerðum og undiroka.

Hin íburðarmikla athöfn hlaut að fara fram í hinu afar seremóníukæra Miðríki, með nýjasta Himneska keisarann sem gestgjafa, í fyrrverandi fiskiþorpi sem Kína breytti í Valhöll tækni og iðnaðar á minna en fjórum áratugum, á meðan Sérstöðuistan var upptekið við að blaðra um „endalok sögunnar“.

Allt við það hvernig Shenzhen óx og dreifði úr sér, frá því að vera miðstöð útflutningsmiðaðrar framleiðslu yfir í að verða hnattrænt nýsköpunarstórveldi, er yfirþyrmandi. Á 45 árum hefur hagkerfi þessa fyrrverandi sérstaka efnahagssvæðis (SEZ), sem er helmingi minna en borgríkið Singapúr, vaxið meira en 14.300-falt!

Shenzhen er nú 31. stærsta hagkerfi heimsins. Klasinn Shenzhen–Hong Kong–Guangzhou er ennþá fremsta nýsköpunarmiðstöð heims. Og meira en 90% af nýsköpunarstökkunum eru þróuð þar heima, þökk sé rannsókna- og þróunarstofnunum, vísindamönnum og fjárfestingu sem beinist að staðbundnum lykilatvinnugreinum.

Það tekur Kísildal þrjá mánuði að smíða frumgerð [ákveðinnar vöru]. Shenzhen gerir það á þremur dögum. Og ef þú vilt geturðu hafið fjöldaframleiðslu strax.

Hvernig APEC og Shenzhen tengjast

Ó, þessi fjöll sem kínverskar vatnslitamyndir hampa svo mjög. Hér talar Xi forseti – á fyrsta mikilvæga tvíhliða fundinum á APEC, m.a.s. áður en Trump kom: „Undir styrkri forystu okkar Pútíns forseta hafa samskipti Kína og Rússlands haldist stöðug sem fjall.“

Einnig á fyrsta degi lýsti Pútín opinberlega yfir að refsiaðgerðir Vesturlanda gegn Rússlandi hefðu gjörsamlega mistekist. Þetta var fimmti fundur Xi og Pútíns á árinu 2026 einu saman. Tvíhliða fundur þeirra lagði grunninn að þríhliða fundinum.

Það er kaldhæðnislegt að allt þetta hafi gerst á APEC. Efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC), sem stofnað var í Ástralíu árið 1989, er bandarísk smíði. Þar koma saman 21 hagkerfi: Bandaríkin, Kína, Rússland, Japan, Suður-Kórea, Ástralía, Nýja-Sjáland, Kanada, Mexíkó, Síle, Perú, Indónesía, Malasía, Singapúr, Taíland, Víetnam, Filippseyjar, Brúnei, Papúa Nýja-Gínea, Hong Kong og Taívan undir nafninu Kínverska Taípei.

Hlutverk APEC var að steypa viðskipti á Asíu- og Kyrrahafssvæðinu (ekki „Indó-Kyrrahafssvæðinu“ sem er fáránlegt hugtak frá Pentagon sem enginn notar) í mót hins margumtalaða „frjálsa“ viðskiptakerfis undir forystu Bandaríkjanna (sem er aðeins frjálst meðan við segjum það).

Fyrstu kynni mín af APEC voru árið 1994, árið sem ég flutti til Asíu: þetta var í Indónesíu, í tíð Clintons 1.0, sem var tekið þar eins og rokkstjörnu. Það voru aldeilis tímar: Austur-asíska kraftaverkið, eins og Alþjóðabankinn skilgreindi það, var í algleymingi, þremur árum fyrir asísku fjármálakreppuna.

APEC snerist því alfarið um afnám regluverks, einkavæðingu opnnun allra mögulegra markaða fyrir bandarísku fjármagni, fyrirtækjum og tækni. APEC skilgreindi aðfangakeðjur og hampaði ávallt bandaríska módelinu eins og náttúrulögmáli: Köllum það ameríkuvæðingu Asíu!

APEC 2026 í Shenzhen sneri þessu öllu á hvolf – fyrir fullt og allt. Í Shenzhen eru Huawei, DJI, Tencent og BYD með höfuðstöðvar. APEC var fundið upp til að halda aftur af Kína, en það sem agndofa útlendingar sáu í Shenzhen í liðinni viku var kínversk dýrð í miðpunkti tækniheimsins.

Og þarna var Rússland, strategískur samstarfsaðili Kína, sem meðleikandi – þrátt fyrir ótal refsiaðgerðir og brottrekstur úr SWIFT, G7 og vestræna fjármálakerfinu. Miðað við raunvirði framleiðslu [mælt í kaupgetu] er Rússland nú stærsta hagkerfi Evrópu: það er meira en óþolandi fyrir ESB-elíturnar sem eru staðráðnar í að fremja pólitískt harakiri. Eins og Pútín benti á, nánast með þórðargleði [skaðagleði], var það dollarakerfið sem sneri baki við Rússlandi, ekki öfugt.

Kína er stærsti viðskiptaaðili Rússlands. Strategíska samstarfið hefur nánast útrýmt Bandaríkjadal og evru úr tvíhliða viðskiptum þeirra. Alexei Overtsjúk, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, staðfesti að 95% þeirra tvíhliða viðskipta séu nú gerð upp í rúblum og júönum. Kínverska millibankagreiðslukerfið yfir landamæri (CIPS) er burðarás kerfisins.

Kína og Rússland gengu því samstiga til fundarins með Trump: tvö aðskilin siðmenningarríki sem starfa sem samherjar.

Raunverulegt vald APEC liggur hjá viðskiptaráðgjafarráði APEC – þar sem fyrirtæki sitja með stjórnmálaleiðtogum og semja tillögur um stafræn viðskipti, gagnaflæði, staðla fyrir gervigreind, mikilvæga jarðmálma og viðnámsþrótt aðfangakeðja.

Samt snerist APEC 2026 í Shenzhen ekki aðeins um viðskiptasamninga, vofu tollanna, aðfangakeðjur og stafræna hagkerfið. Þríhliða viðræðurnar snerust aðallega um Úkraínu, stríðið gegn Íran, Hormússund, kjarnorkuafvopnun og mögulegt nýtt öryggiskerfi.

„Fjalla“-áhrifin – og stríðið gegn Íran

Myndin af stórveldunum þremur í sama herbergi endurspeglaði tilfærslu á þungamiðju heimsins að nýju til Asíu- og Kyrrahafssvæðisins, sem stendur nú undir meira en 60% af vergri landsframleiðslu heimsins og meira en 68% viðskipta fara fram innan þess svæðis. Hinn skerti siðblindingi-í-æðsta-embætti – sem sýndist oftast staddur alveg á flæðiskeri – hefði vissulega ekki getað svarað lykilspurningunni: hvort heimsdrottnarinn muni sætta sig við að hann semji ekki lengur reglurnar.

Ásýnd þríhliða fundarins gerði það einnig kristaltært að ekkert meiri háttar alþjóðlegt mál verður leyst án tveggja öflugustu velda Evrasíu, sem starfa samstíga í gegnum strategískt samstarf sitt. Það hlýtur að vera hin nýja starfsrökfræði. Evrópsku sjálfsmorðingjarnir – sem framleiða hvorki né byggja mikið – geta bara kennt sinni eigin vanhæfni um.

Á hversdagslegri nótum má færa rök fyrir því að Trump hafi, augliti til auglitis við Xi og Pútín, hugsanlega íhugað möguleikann á að breyta óhjákvæmilegri hnignun heimsveldisins í eins konar mjúka lendingu, án þess að þurfa að sprengja allt í loft upp.

Enn og aftur: þetta var því engin Jalta 2.0. Peking er í raun ekki hrifin af Jalta-líkingunni því Kína var útilokað á þeim tíma, þegar gamla „heimsskipanin“, sem nú er liðin undir lok, var mótuð af þremur mönnum frá Vesturlöndum.

Það sem við sáum í Shenzhen voru tveir sigurvegarar – tengdir í samstarfi – andspænis hálfgildings tapara. Ekkert í hinni rýru lokayfirlýsingu bendir til þess að þeim hafi tekist að finna – að minnsta kosti á þessum fyrsta fundi – leið til að koma í veg fyrir heimsstyrjöld.

Það kann að vera of snemmt að kalla þetta fyrirkomulag Shenzhen-skipanina – þar sem vald byggist ekki aðeins á hinu heimspólitíska taflborði heldur á tækniframförum í helstu lykilatvinnugreinum, allt frá vélmennum til gervigreindar. Þótt þetta sé vissulega „Líkaböng“ hringjandi yfir G1, er það enn ekki fæðing G3. Því að G2 – Bandaríkin og Kína – vegur ennþá þyngra en G3 [G1 vísar til einpóla heimsskipanar eftir Kaldastríð en G3 vísar til þessarar þríhliða samkomu stórveldanna en getur líka vísað til komandi fjölpóla heimsskipanar, þýð]

Fremstu greinendur Kína áttuðu sig vel á blæbrigðunum: Shenzhen sýndi okkur: umfram einhvern þríhliða G3-hóp, að ekkert þessara mála – Úkraína, Íran, kjarnorkuvopn, stjórnun gervigreindar eða aðfangakeðjur – verður leyst án hins strategíska samstarfs Rússlands og Kína.

Hið hnattræna suður skildi líka hvað klukkan sló: öfuga Nixon-áætlunin [það bragð, kennt við Nixon/Kissinger, að nýta klofning milli Sovétrússlands og Kína, þá með því að vingast við Kína, nú með því að vingast við Rússland, þýð] misheppnaðist hrapallega frá upphafi. Aldrei í lífinu hefði Trump getað selt Rússum „samning“ um að einangra Kína. Shenzhen gerði í raun út af við hana.

Fjallið, enn og aftur. Xi: samskipti Kína og Rússlands eru „stöðug sem fjall, haggast ekki af vindi eða regni“. Kissinger-brögð blikna í samanburði við stórveldi sem fara með raunverulegt fullveldi.

Áður en hann kom til Shenzhen hafði Trump gortað af að hann vildi binda enda á stríð Bandaríkjanna og Írans – sem hann hóf sjálfur – og ræða kjarnorkuafvopnun (án þess kjarnorkuvopn dauðadýrkendanna sjálfra væru tekin með).

Þegar upp var staðið fékk Trump þess vegna engan „samning“ um Íran, þar sem strategíska samstarfið styður Teheran alla leið. Auk þess hitti Xi Pútín fyrst, líkti sambandi þeirra við fjall og fór aðeins eftir það að taka á móti Trump á flugvellinum. Meginstraumsfjölmiðlar í Bandaríkjunum og öðrum hlutum hins sundra Vesturs geta ómögulega viðurkennt að þríhliða fundurinn hafi í raun falið í sér viðurkenningu Washington á því að einhliða drottnuninni sé lokið.

Það segir sitt að Trump hinn hávaðasami skyldi yfirgefa Shenzhen án blaðamannafundar. Það þýðir meðal annars að Rússland og Kína sögðu honum umbúðalaust að hann ætti að binda enda, eftir diplómatískum leiðum, á hið sjálfvalda stríð sitt gegn Íran.

Ekkert bendir til þess að þau skilaboð hafi komist til skila. Eftir vonarglætuna austur í tækni-himnaríkinu gætu stríðshundarnir tekið að gelta á ný strax um þessa helgi.

Birtist á vefsíðunni Geopolitics Prime 20. nóvember

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

„Cope“ Illuga

„Cope“ Illuga

Andri Sigurðsson
Illuga Jökulssyni er mikið niðri fyrir þessa dagana. Á milli þess sem hann tekur þátt í jólabókaflóðinu þeytist hann helst fram á ritvöllinn til…
Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Ögmundur Jónasson

Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Dauði akademísks frelsis í Noregi

Dauði akademísks frelsis í Noregi

Glenn Diesen

Aftenposten, stærsta dagblað Noregs, hélt því fram í leiðara nú í vikunni að ég ætti ekki að fá að kenna við norskan háskóla. Hvers …

Sigrar verkafólks byggjast á sameiginlegum hagsmunum

Sigrar verkafólks byggjast á sameiginlegum hagsmunum

Sólveig Anna Jónsdóttir

Frambjóðendur sem ræddu efnahagslegan veruleika vinnuaflsins sigruðu víða í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum. Þeir hættu að lesa upp úr handriti sjálfsmyndarstjórnmálanna – lásu ekki …

„Cope“ Illuga

„Cope“ Illuga

Andri Sigurðsson
Illuga Jökulssyni er mikið niðri fyrir þessa dagana. Á milli þess sem hann tekur þátt í jólabókaflóðinu þeytist hann helst fram á ritvöllinn til…
Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Afríka talar – Þú verður að heyra þessa rödd!

Ögmundur Jónasson

Æ oftar gerist það að okkur berast róttækar raddir með veraldarvefnum sunnan úr Afríku; raddir sem afhjúpa kúgunar- og arðránsstefnu nýlenduveldanna, bæði gamalla tíma …

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Úkraínustríð breytist í Evrópustríð – en áfram er það bandarískt stríð

Þórarinn Hjartarson

Í fyrri grein, Hver á þetta stríð í Úkraínu?, voru skoðaðar rætur og upphaf Úkraínustríðsins. Við vorum komin fram í apríl 2022. Atburðarásin fram …

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.