Dauði akademísks frelsis í Noregi
—
Aftenposten, stærsta dagblað Noregs, hélt því fram í leiðara nú í vikunni að ég ætti ekki að fá að kenna við norskan háskóla. Hvers vegna? Blaðið sakar mig um að ljúga og dreifa samsæriskenningum. Þarf blaðið að leggja fram einhver gögn til stuðnings þessu mannorðsmorði? Alls engin. Þess í stað reynir það að réttlæta mannorðsmorðið með því að líkja mér við helfararafneitara, þó án neinnar sýnilegrar ástæðu.
Þetta er nýja viðmiðið í norskri blaðamennsku. Blaðamenn vitna í róg kollega sinna og vísa í „staðreyndavaktir“ [fact-checks] stjórnvalda, sem þeir geta þó ekki rökstutt. Þeir finna engar rangfærslur og verða því að saka mig um að dreifa „frásögn“ sem svipar til frásagnar Kremlverja. Ég er líka sagður „hliðhollur Rússum“. Ástæðan er sú að ég vil fara samningaleiðina í stað þess að senda fleiri Úkraínumenn í dauðann í staðgengilsstríði gegn stærsta kjarnorkuveldi heims.
Við þessu er ekkert að gera. Þeir geta haldið fram hvaða vitleysu sem er því enginn dirfist að koma manni til varnar af ótta við að lenda í skotlínunni. Þegar valdakerfi stjórnmála og fjölmiðla ræðst á mann stendur maður aleinn.
Og hvers vegna ætti ég ekki að fá að kenna í Noregi? Ég kenndi áður rússneska öryggisstefnu, herfræði, kenningar í alþjóðasamskiptum og stjórnmálahagfræði í níu ár í Ástralíu og Rússlandi. Mér dytti þó aldrei í hug að kenna námskeið í Noregi þar sem ég þyrfti að nefna orðið „Rússland“. Blaðamenn myndu óhjákvæmilega finna eitthvað sem víkur frá opinberri línu NATO og mætti því stimpla sem „rússneskan áróður“.
Fyrsta árið mitt við kennslu í Noregi hafði norskur blaðamaður samband við mig. Hann var að rannsaka hvort ég dreifði rússneskum áróðri í kennslustofunni. Þeim ásökunum var auðvelt að vísa á bug, enda kenndi ég rannsóknaraðferðir og hafði aldrei nefnt orðið „Rússland“ í kennslunni. Síðastliðin sex og hálft ár hef ég kennt félagsfræði og rannsóknaraðferðir. Norskir blaðamenn eiga erfitt með að slaufa manni fyrir „rússneskan áróður“ meðan hann er að kenna Max Weber og Émile Durkheim.
Hunsa ég fyrirspurnir?
Aftenposten leyfði sér líka að skrifa: „Prófessorinn hunsar að mestu fyrirspurnir frá hefðbundnum norskum fjölmiðlum.“ Algjört bull. Hvaða fyrirspurnir hef ég nokkurn tímann fengið frá norskum blaðamönnum? Síðastliðin sex og hálft ár hafa þeir haft samband við mig um 25 til 30 sinnum til að ég svari ásökunum. Þá á ég að vera „umdeildur“, „hliðhollur Rússum“, „hliðhollur Georgíu“, „hliðhollur Íran“, „hliðhollur Kína“, „áróðursmaður“ eða „dreifa frásögnum Kremlverja“. Samskipti mín við fjölmiðla hafa því einskorðast við að ég fæ að svara rógi og stimplum sem aldrei eru studdir neinum gögnum.
Fyrir vikið fylgja hverri fyrirspurn fyrirsagnir á borð við: Diesen prófessor „hafnar“ því að hann dreifi rússneskum áróðri. Eða: Diesen prófessor „neitar“ því að vera á launum hjá Kreml. Hverju á ég að „neita“ þegar aldrei eru færð fram nein rök eða gögn sem hægt er að svara?
Á þessum sex og hálfu ári hef ég aðeins einu sinni verið spurður álits á pólitísku máli. Það var árið 2022. Blaðið lét síðan undan þrýstingi frá múgnum og baðst afsökunar. Það birti jafnvel grein um að það hefði átt að upplýsa almenning um að ég væri „umdeildur“. Blaðið hafði tækifæri til að véfengja rök mín í viðtalinu, sem var í beinni útsendingu, en gerði það ekki. Það útskýrði aldrei hvað ég hefði farið rangt með og gaf mér heldur ekki tækifæri til að verja mig gegn fordæmingunni.
Síðan þá hefur meira að segja varnarmálaráðherrann varað tvo hlaðvarpsstjórnendur við því að ræða við mig. Ég var sakaður um að dreifa „rússneskum áróðri“. Ég hafði haldið því fram, og stutt það gögnum, að stækkun NATO hefði verið kveikjan að stríðinu í Úkraínu. Ég spyr því aftur: Hvaða fyrirspurnir hef ég hunsað? Blaðamennirnir keppast við að móta frásögnina af uppsögn minni í stað þess að lýsa veruleikanum.
Herferðin eftir að ég sagði upp
Fyrst hugleiddi ég að taka mér tímabundið hlé. Ég bað háskólann um eins árs launalaust leyfi til að komast burt og losna undan fyrirsögnunum. Í umsókninni óskaði ég eftir „eins árs launalausu rannsóknarleyfi til að stunda rannsóknir á sérsviði mínu, og umsóknin er einnig studd af öðrum aðstæðum, svo sem líflátshótunum, áreitni á vinnustað og öðrum erfiðleikum sem hafa gert það nauðsynlegt að taka börnin mín úr skóla og selja húsið okkar“.
Umsókninni var hafnað án nokkurra skýringa. Háskólinn sýndi heldur engan áhuga á að ræða áreitnina á vinnustaðnum, sem ég hafði þó lagt fram gögn um. Ég átti þá ekki annarra kosta völ en að segja upp starfi mínu við háskólann.
Á liðinni viku hafa þó hvorki meira né minna en fimmtán norskir fjölmiðlar birt níðgreinar um mig. Enginn þeirra gat bent á neitt tiltekið sem ég hef í raun haldið fram. Ekki vantaði þó innihaldslausa stimpla og tilvísanir í órökstuddan róg. Ég er gáttaður á ákefðinni og fáránleikanum í þessu öllu, ekki síst af því greinarnar eru allar að flytja þá frétt að ég hafi sagt upp prófessorsstöðu minni við háskólann.
Þeir hafa þegar unnið … Endalaus rógurinn, ritskoðunin, hótanirnar og ógnanirnar báru árangur. Samt hætta þeir ekki. Þessari nýju herferð virðist aðeins ætlað að tryggja að ég yfirgefi landið rúinn æru og trausti.
Það er afar sárt að vera hrakinn úr landi og í útlegð. Ég hugga mig þó við að eftir fáeinar vikur get ég snúið aftur til eðlilegrar kennslu og eðlilegs lífs. Þá verð ég laus úr þessari norsku búbblu stríðsæsinga, upplýsingaóreiðu og ritskoðunar, þar sem akademískt frelsi deyr drottni sínum.
***
Athugasemd
Glenn Diesen er líklega mikilvirkasti og þekktasti norski fræðimaðurinn nú um stundir. Hlaðvarp hans býr við miklar og ört vaxandi vinsældir. Þetta getur norska stjórnmálastéttin, eða raunar norska fræðasamfélagið, ekki umborið. Er Noregur svo smár í sniðum þegar allt kemur til alls? – ekki þó í íþróttum.
Ritstjórn










