„Cope“ Illuga
—
Illuga Jökulssyni er mikið niðri fyrir þessa dagana. Á milli þess sem hann tekur þátt í jólabókaflóðinu þeytist hann helst fram á ritvöllinn til að hallmæla helvítinu honum Trump. En fátt fer meira í taugarnar á Illuga en það þegar hann telur undirlægjuhátt Trumps gagnvart „einræðisherrunum“ í austri keyra um þverbak.
Nú vill svo til að allir „uppáhalds“ leiðtogar Illuga (Trump, Pútín, og Xi) eru samankomnir á APEC-fundinum sem fer fram í Shenzhen borg í Kína þessa dagana. Við það tilefni sagði Illugi að það væri einfaldlega „viðbjóðslegt“ að sjá Trump „flaðra um og faðma stríðsglæpamann og morðingja sem sendir hermenn sína í önnur lönd að fremja ódæði“. Við skulum samt muna að lýsingin gæti allt eins – og enn betur – átt við Trump og Bandaríkin sem hafa allra ríkja oftast sent sína hermenn inn í önnur lönd til að fremja ódæðin. Það er staðreynd sem Illugi getur ekki afneitað en vill helst ekki viðurkenna.
Einræði kapítalsins
Bandaríkin eru eina ríkið sem hefur herstöðvar um allan heim, rúmlega 900 talsins, stundar endalaus stríð, stríðsglæpi, og studdi og fjármagnaði þjóðarmorðið á Gaza. Það sem leiðtogi íslenskra jafnaðarmanna, Kristrún Frostadóttir, hefur enn ekki viljað kalla þjóðarmorð. Það er varla til það land í dag sem Bandaríkin hafa ekki ráðist inn í, sett á viðskiptaþvinganir, stolið gullforða þess, eða reynt að grafa undan á einn eða annan hátt. Og þá skiptir nánast engu máli hvort það eru Demókratar eða Repúblikanar sem halda um stjórnartaumana. Heimsvaldastefnan gengur sinn vanagang óháð því hvaða flokkur er við völd.
Dæmin eru í raun óþrjótandi um ómennskulega hegðun Bandaríkjanna en Kristinn Hrafnsson bendir á í færslu á Facebook í vikunni að Bandaríkin og Ísrael hafa lengi verið einu ríkin sem hafa staðið gegn ályktun SÞ um að matur verði skilgreindur sem mannréttindi, hugsið ykkur. Matur!
Samt eru verk Pútíns talin jafnvel verri en syndir sjálfs heimsveldisins og hneykslun og reiði Illuga og annarra innan NATO-vinstrisins er sjaldan meiri en þegar Pútín er annars vegar, eða Maduro eða aðrir svokallaðir „einræðisherrar“ í liði andstæðinga vesturlanda. En það er auðvitað engin tilviljun að það eru einmitt þessir sömu leiðtogar, sem sérfræðingar frjálslyndu miðjunnar hata hvað mest, sem hafa af mestum krafti staðið upp í hárinu á hinu vestræna heimsveldi og áformum þess. Ekki vegna þess að þessi lönd séu í raun óvinir vesturlanda, heldur vegna þess að þau vilja einfaldlega rækta sitt sjálfstæði og nýta sitt fullveldi og auðlindir í eigin þágu og neita að beygja sig undir vilja kapítalisins í vestri.
Illugi hefur ekki haldið aftur af sér þegar hann lýsir Trump, en hann hefur kallað hann tröll, undirmálsmann, þjóf, Hómer Simpson, árásarsegg, og margt fleira. Og þó, hann hefur aldrei kallað hann einræðisherra svo ég viti. Eða stríðsglæpamann. Eða morðingja. En það virðast vera lýsingar sem ná aðeins yfir „stórhættulega“ menn líkt og Pútín og Maduro. Eða það sem margir stjórnmálskýrendur hafa kallað „Hitler mánaðarins“. En það er sá þjóðarleiðtogi sem Bandaríkin og NATO vilja kúga til hlýðni í það skiptið og listinn er ansi langur.
„Cope“
Það sem gerir þessa Rússlands-áráttu svo hjákátlega er hvernig hún réttlætir glæpi vesturlanda og Trumps. Þetta er ekkert annað en „cope“ eins og krakkarnir segja. Í meme-gerðarlist er „cope“ afsökun eða frávarp sem notað er til þess að réttlæta fyrir sjálfum sér og öðrum óþægilegar staðreyndir. Í þessu tilfelli leið til að réttlæta eigin „stríðsglæpamenn“ og „morðingja“. Auðvitað hafa Rússar og Pútín gert margt slæmt, en það væri einfaldlega dómgreindarbrestur að halda því fram að glæpir Rússa séu á einhvern hátt alvarlegri en NATO og Bandaríkjanna.
Það ætti að vera öllum ljóst sem fylgjast með að það er aðeins ein hernaðarleg blokk sem spannar alla jörðina og það er bandalag vestrænna ríkja leitt af Bandaríkjunum, þar sem NATO spilar stórt hlutverk. Að kalla NATO varnarbandalag, líkt og margir innan frjálslynda vinstrisins gera enn, er ekkert annað en sprenghlægilegt eða verra: vísvitandi upplýsingaóreiða.
Þetta er leið til að viðhalda virðingu frjálslyndisstefnunnar og þeirri heimsmynd að vesturlönd, sem Illugi segir leidd af einhverskonar lifandi Hómer Simpson en ekki morðingjum, séu enn glitrandi borg á háheiði, fallegur garður sem verði að vernda fyrir frumskóginum í suðri og austri. En ekki það fallandi, örvæntingafulla, og hættulega heimsveldi sem það raunverulega er.
Kjarnorkufótboltinn
Í nýjustu færslu Illuga virðist hann vera í fullkomnu uppnámi: „Í hvaða stöðu eru Bandaríkin eiginlega komin? Rétt fyrir fund Bandaríkjaforseta og einræðisherra Rússlands sjá Rússar til þess að vinalegur dáti sjáist veifa töskunni sem geymir lyklana að kjarnorkuvopnum Rússlands, sem beint er að bandarískum borgum.“
Vandinn við þessa frásögn er að hún er algjör vitleysa. Allir sem fylgjast með bandarískum stjórnmálum vita að forsetinn fer hvergi nema að vera með fótboltann svokallaða með sér. En það er taska sem hefur að geyma lyklana að bandarísku kjarnorkuvopnunum. Þetta hefur verið vitað í áratugi og að Rússar séu með sína eigin tösku sem heitir Cheget eftir fjallinu Mount Cheget.
En þessar einföldu staðreyndir hafa víst farið framhjá Illuga. Taskan var ekki hluti af þaulskipulagðri aðgerð til þess að senda Trump og vesturlöndum skilaboð, heldur einfaldlega taska sem leiðtogar bæði Rússa og Bandaríkjanna hafa ferðast með í áratugi.
Þar að auki hafa það verið háttsettir bandarískir embættismenn sem hafa nýlega rætt opinberlega um mögulega beitingu kjarnavopna. Á ráðstefnu herstjórnar Bandaríkjanna í Omaha 5. ágúst 2026 sagði Elbridge Colby, yfirmaður stefnumótunar í varnarmálaráðuneytinu, að markmiðið væri að veita forsetanum og varnarmálaráðherranum „trúverðuga og skynsamlega“ valkosti til beitingar kjarnavopna. Richard Correll aðmíráll ræddi sama dag möguleika á beitingu kjarnavopna „í takmörkuðum mæli“. Í hvaða stöðu eru Bandaríkin eiginlega komin?
Heimsvaldastefnan alls staðar og hvergi
Því miður hefur vinstrið á vesturlöndum týnt sjónum á heimsvaldastefnunni eða því sem hefur verið kallað heimsdrottnunarstefna. En það er í stuttu máli raunsönn lýsing á hinu kapítalíska heimskerfi eins og það blasir við, þar sem fjármálavaldið í Bandaríkjunum beitir hernaðarmætti landsins til þess að viðhalda auði sínum og yfirráðum, en líka kapítalismanum sjálfum á sama tíma. Heimsdrottnunarstefnan er ekki aðeins þegar eitt ríki ræðst á eða arðrænir annað ríki, eins og frjálslyndir fræðimenn vilja halda fram, heldur núverandi valdablokk heimskapítalismans.
Fræðimaðurinn John Bellamy Foster gagnrýnir þennan viðsnúning vestræna vinstrisins og segir það hafi snúið baki við marxískri greiningu á heimsvaldastefnu og líti nú á hana sem lítið annað en hernaðarárásir einstakra ríkja eða samkeppni stórvelda, fremur en kerfi efnahagslegra yfirráða og arðráns. Hann bendir á að Bandaríkin, Evrópa og Japan ráði enn mestu í þessu kerfi og dragi til sín verðmæti frá fátækari ríkjum með svokölluðum „ójöfnum viðskiptum“ (e. unequal exchange). Að mati Fosters getur sú tilhneiging að setja Kína og Rússland á sama stall og heimsvaldablokkin leitt til þess að vinstrimenn taki undir réttlætingar vestrænna ríkja á hernaðaríhlutun og efnahagsþvingunum. Hann telur baráttu gegn heimsvaldastefnu og samstöðu með kúguðum þjóðum óaðskiljanlegan hluta sósíalískrar baráttu.
Atlantshafshyggja
Atlantshafshyggja eða atlantismi byggist á nánu pólitísku, hernaðarlegu og efnahagslegu samstarfi Norður-Ameríku og Evrópu, þar sem NATO gegnir lykilhlutverki og Bandaríkin fara með forystuna. Í reynd felur hún í sér að Evrópuríkin reiði sig á Bandaríkin og lagi utanríkisstefnu sína að bandarískum hagsmunum. Sem kunnugt er hafa Evrópuríkin þangað til mjög nýlega ekki haft neina sjálfstæða utanríkisstefnu. Hún hefur lengi verið sameiginlegt stef hægrimanna og stórs hluta frjálslynda vinstrisins. Hægrið og frjálslynda vinstrið takast á um um mannréttindi heima fyrir en standa svo saman um að verja yfirburði og forræði Vesturlanda út á við en standa líka vörð um kapítalismann sjálfan. Þetta hagsmunabandalag frjálslynda fólksins og hægrisins er auðvitað hin raunverulega „skeifukenning“ sem sýnir hvernig hægrið og frjálslynda vinstrið vinna saman og eiga mun meira sameiginlegt en er viðurkennt.
Egill Helgason er meðal þeirra sem hafa varið þessa afstöðu hér á landi auk Illuga og hægri-krata í Samfylkingunni. Í skrifum Egils er skipan eftirstríðsáranna arfur sem beri að varðveita og NATO er hluti af honum. Gagnrýni á Bandaríkin rúmast innan þeirrar afstöðu, jafnvel hörð gagnrýni. En hún raskar ekki þeirri sannfæringu þessara manna að hið vestræna atlantíska bandalag (sem er óumdeilanlega undir bandarískri forustu) eigi að leiða heiminn. Þess vegna eru þeir í þeirri stöðu – sem þeim mögulega líður hálfilla í – að vera bara riddarar í því mikla liði sem lýtur og fylgir bandarískri stjórn. Ill örlög sem maður ætti líklega að vorkenna þeim fyrir.
Innan þessarar heimsmyndar verður Trump fyrst og fremst vandamál vegna þess að hann sýnir okkur nakta heimsvaldastefnuna án fagurgala Bidens eða Obama. Hann skemmir samstöðuna í bandalaginu og gerir Bandaríkin að athlægi. Frjálslynda miðjan fer þá að sakna þess þegar forseti Bandaríkjanna talar fallega um frelsi og mannréttindi og allir geta tekið undir án þess að skammast sín. En sprengjurnar féllu auðvitað þá eins og undir Trump. Þjóðirnar sem urðu fyrir þeim þurfa ekki kurteisari forseta í Washington. Þær þurfa að fá að vera í friði og fá að byggja upp sín eigin samfélög án afskipta vesturlanda.
Leiksýning Trumps
Sérfræðingar líkt og Ben Norton og KJ Noh benda raunar á í nýlegu viðtali að lítið ef eitthvað sé að marka veru Trumps á fundinum sem sé þar mest til að þóknast eigin markmiðum og koma fram sem sterkur leiðtogi við hliðina á Xi og Pútín á stóra sviðinu. En við vitum að Trump hefur alltaf verið mikið fyrir sjónvarpsmyndavélarnar. Norton og Noh benda raunar líka á að allir þessir fundir Trumps og Xi hafa án undantekninga verið leiksýning og ekkert hefur komið úr þeim. Ekki heldur fundi Trump og Pútín í Alaska fyrir nokkru.
Ég ætla að láta eftirfarandi orð Illuga Jökulssonar verða lokaorðin. Þetta er eitthvað svo fallegt við þetta „cope“. Að setja inn svona lummu um sovéska fangelsið, sem hefur ekki verið til í hálfa öld, á sama tíma og vesturlönd eru á barmi enn annarrar kreppu og styrjaldar, er kannski síðasta haldreipi þeirra sem enn ríghalda í fallandi heimsmynd vestrænnar yfirburðahyggju.
„Örfá þeirra sem hurfu inn í Gúlagið í Rússlandi á tímum Stalíns.“

(Viðbót: Þegar þetta er skrifað stendur hæsti turn Sádi-Araba í ljósum logum. Ástæðan er ekki dýrsleg árásarhneigð Pútíns eða Xi. Heldur afleiðingar árásarstríðs Bandaríkjanna gegn Íran og þjóðarmorðið á Gaza sem Jemen, eitt fátækasta ríki heimsins hefur nú svarað fyrir svo eftir er tekið).










