Sigrar verkafólks byggjast á sameiginlegum hagsmunum
—
Frambjóðendur sem ræddu efnahagslegan veruleika vinnuaflsins sigruðu víða í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum. Þeir hættu að lesa upp úr handriti sjálfsmyndarstjórnmálanna – lásu ekki yfir hausamótunum á verkafólki, heldur töluðu við það eins og félaga í mikilvægri baráttu.
Kannski hafa einhverjir þeirra lesið bók Joan C. Williams, Outclassed, um hvernig vinstrafólk getur á ný unnið með og fyrir verkafólk. Kannski hafa þeir gefið gaum orðum Catherine Liu, höfundar Virtue Hoarders, sem talar um „stéttahræsni“ fagmenntastéttanna: hvítum verkamönnum var stillt upp sem helsta vandamáli samtímans, ekki óheftu arðráni kapítalista og spilltri stjórnmálastétt, allt í þeim tilgangi að upphefja lífsstíl hinna menntuðu og vel settu á meðan kjör verkafólks versnuðu.
Sigurvegararnir eru vissulega fjölbreyttur hópur, en þeir unnu vegna áherslu á efnahagslegt réttlæti, ekki vegna uppruna eða færni í rétthugsun.
Daginn eftir kosningarnar ræddi Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, úrslitin á Alþingi. Hún fór beint í handrit sjálfsmyndarstjórnmálanna: „fjölbreytileikinn sigraði í Bandaríkjunum“ – fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, fyrsta svarta konan á ríkisstjórastóli, fyrstu trans manneskjurnar á tveimur ríkisþingum o.s.frv. Upptalningin er sönn en árangurinn náðist ekki vegna þátttöku í merkimiðakeppninni – viðurkenning á ömurlegum afleiðingum stéttaskiptingarinnar og þeirri kúgun sem arðránið veldur í lífi verkafólks færði framfarasinnuðum frambjóðendum sigurinn.
Róttækt fólk sem vill stuðning vinnuaflsins verður fyrst að skilja vandamálin sem fólk glímir við. Fyrrnefnd Liu minnir á hin fornkveðnu sannindi: stéttastaða er ekki spurning um sjálfsmynd heldur stöðu í efnahagskerfinu.
Árangursrík barátta verkafólks hefur alltaf byggst á sameiginlegum hagsmunum þvert á uppruna, kyn og bakgrunn. Sé vilji okkar að byggja samfélag frelsis og réttlætis er leið stéttastjórnmálanna sú sem við verðum sameinuð að feta.
Róttækt fólk verður að móta áherslur sínar út frá efnahagslegum veruleika. Verkafólk hefur engan áhuga á upplestrum úr speglasal framapotara – það á nóg með sín raunverulegu vandamál.
Skiptir jafnréttismælaborð dómsmálaráðherra, svo dæmi sé tekið, einhverju máli ef verkafólk getur ekki látið enda ná saman eða þarf að þola atvinnuleysi? Svarið er nei; hræsni dyggðaskreytinganna á heima á ruslahaugum sögunnar – hún er ekki bara gagnslaus, hún sundrar og skaðar.










