Norður-Víkingur og ör vígvæðing Norðurslóða
—
Enn á ný kemur bandaríski herinn til æfinga við Ísland. Og hefur með sér lið og herbúnað frá NATO-bandamönnum. Æfingin Norður-Víkingur er haldin annað hvert ár. Að þessu sinni eru þátttakendur frá tólf löndum, 40 skip, 50 flugvélar og 1200 manns.
Æfingin Exercise Northern Viking stendur yfir frá 22. ágúst til 3. september. Hún er á vegum Sjötta flota Bandaríkjanna (höfuðstöðvar hans á Ítalíu) sem hefur með sér einingar frá NATO-ríkjum. Yfirlýstur tilgangur æfingarinnar er sá sami og endranær, að tryggja GIUK-hliðið.
Tilgangurinn reyndar er sagður tvöfaldur: a) Að verja Ísland og halda um leið upp á 75 ára afmæli herverndarsamningsins frá 1951, og b) að tryggja sjóumferðaleiðina um Grænlands-Íslands-Bretlands-(GIUK) hliðið.
Gegn hverjum á að verja Ísland og gegn hverjum á að tryggja GIUK-hliðið? Jú, gegn Rússlandi og Kína. GIUK-hliðið er tvöfalt, sitt hvoru megin við Ísland, tveir flöskuhálsar sem rússnesk skip og kafbátar þurfa gegnum ef þau yfir höfuð ætla út á Atlantshaf. Og Kína opnaði einmitt í sumar China-Europe Arctic Express fyrir gámaflutninga norðurleiðina, norðan Síberíu.
Alexus Grynkewich er æðsti yfirmaður alls bandaríska heraflans í Evrópu, og hann stjórnar Norður-Víkingi. Hann segir um viðfangsefnið og óvininn í GIUK-hliðinu: „Nú stunda rússnesk og kínversk rannsóknarskip í sameiningu þar eftirlit, við vitum það öll að þau eru ekki að telja lunda.“
Vígvæðing Norðurslóða leidd af Bandaríkjunum og NATO
Æfingar bandaríska flotans við Íslands verða auðvitð að skoðast í sínu geopólitíska samhengi:
Trump Bandaríkjaforseti tekur gjarnan meira upp í sig en Grynkewich hershöfðingi, ekki síst þegar hann talar um Grænland. Hann segist þurfa Grænland, og hann útilokaði ekki að beita þyrfti valdi til þess: „We have to have it… If we don’t do it, Russia or China will take over Greenland“. Þetta endurtekur hann bara nógu oft, og þarf þá ekki að rökstyðja það frekar.
Albert Jónsson hernaðarsérfræðingur og fyrrverandi sendiherra hafnar því að slík ógn vofi yfir:
að ógn steðji að Grænlandi frá Kínverjum og Rússum sem birtist í miklum umsvifum herskipa þeirra við Grænland, það eru einfaldlega staðlausir stafir. Það eru engin slík umsvif við Grænland og sama á einnig við hafsvæði milli Íslands og Grænlands og reyndar önnur hafsvæði við Ísland.
Rússland er ekki í neinum herleiðangri til vesturs, fyrir utan stríðið í rússneskumælandi héruðum Úkraínu, ekki á Norðurslóðum og hreint ekki inn á NATO-svæðið almennt. Hins vegar er rússneski börninn, að hætti híðisbjarna, styggur ef hann er áreittur.
En í Evrópu almennt og á Norðurslóðum sérstaklega er hins vegar önnur hervæðing og herleiðing í gangi: NATO hefur síðasta aldarfjórðung í nokkrum áhlaupum sótt austur að Rússlandi. Og eftir 2020 – einkum með inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO árin 2023 og 2024 – hafa orðið miklar geópólitískar breytingar hér á Norðurslóðum. Norðurlönd eru orðin einn samfelldur Nató-heimur hervæðingar. Í kringum áðurnefnda innlimun hlutlausu Norðurlandanna tveggja í NATO voru opnaðar 47 bandarískar herstöðvar á Norðurlöndum (12 í Noregi, 15 í Finnlandi og 17 í Svíþjóð og 3 í Danmörku). Í Finnlandi og Svíþjóð var herflugvöllum landanna einfaldlega breytt í bandarískar herstöðvar. Með þeirri herstöðvavæðingu hafa Norðurlöndin ekki aðeins breytt sér í lénsríki Bandaríkjanna heldur samtímis sett sig í framlínu bandarískrar hernaðarsóknar. Sjá hér:
Æfingin Norður-Víkingur er engin varnaræfing heldur snýst hún um vígvæðingu Norðurslóða. Hún snýst ennfremur um að halda Rússlandi og Kína í herkví með því að geta lokað á sjóumferð þeirra. Til þess er notað einmitt hafsvæðið við Íslands. Ekki eru það landvarnir fyrir Ísland heldur vígvæðing Íslands og íslensks yfirráðasvæðis fyrir komandi átök stórvelda. Í hnattrænu samhengi er tilgangurinn að reyna að viðhalda heimsyfirráðum Bandaríkjanna og NATO í heimi sem er að þróast í það að verða fjölpóla.
Eftir innrás Rússlands í Úkraínu var Rússlandi vikið úr Norðurskautsráðinu (án þess þó að vera formlega rekið úr því). Þar með hrundi allt Norðurslóðasamstarf sem orð er á gerandi. Skarðið er fyllt af NATO og vígvæðingu Norðurslóða. Þorgerður Katrín fagnar breytingum síðustu ára þegar hún segir:
Það góða við alla þessa erfiðu þróun í varnar- og öryggismálum er samt sú að fókusinn er að færast meira á Norður-Atlantshafið.
Úkraína og Persaflóaríkin upplifa það harkalega nú um stundir að bandarísk hervernd og NATO-hervernd er hvorki vernd né öryggi heldur setja viðkomandi þjóðir í mikla hættu. Bandarískar herstöðvar við Persaflóa eru byggðar út frá hagsmunum heimsveldisins, og ef til átaka kemur milli stórvelda eru þær fyrst og fremst segulstöðvar fyrir sprengiárásir. Það er mikið umhugsunarefni fyrir Ísland.
Spurður um hlutverk Íslands í vörnum bandalagsins sagði Alexus Grynkewich í Reykjavík 17. ágúst „að staðsetning Íslands sé strategískt mikilvæg og það væru hagsmunir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins að hér yrði herlið til lengri tíma“:
Við [NATO] höfum verið með viðveru við Ísland meira og minna samfellt undanfarið, bæði hvað varðar kafbátavarnir í Keflavík og flugvarnaeftirlit NATO-ríkja við Ísland… Ástæðan er sú að lega Íslands er gríðarlega mikilvæg frá hernaðarlegu sjónarmiði og því held ég að Íslendingar megi búast við aukinni hernaðarlegri viðveru við landið.“
Orðalagið bendir til að Keflavíkurvarnarsvæðið sé að breytast í herstöð á ný, en þar verði um að ræða „hreyfanlegt“ fyrirkomulag heraflans líkt og í bandarísku herstöðvunum á Norðurlöndum. Enda er þá hin endurnýjaða herstöð þar fyrst og fremst hluti af Norðurslóða-blokkinni í bandaríska herstöðvanetinu. Endurnýjun herstöðvarinnar hefur aldrei verið rædd á Alþingi Íslendinga
Falsklofningur Bandaríkjanna-ESB
ESB-vinstrið og NATO-vinstrið – reyndar líka RÚV og NATO-Erlingur [Erlingsson] – þykjast nú víða sjá markverða hernaðarlega sjáfstæðisviðleitni Evrópu, viðleitni sem beinist m.a.s. gegn Bandaríkjunum. Ýmsir meðal ESB-vinstrisins líta á ESB sem varnarmálavalkost við Bandaríkin, ESB á að losa okkur undan bandarísku „verndinni“. Málflutningurinn kemur m.a. af því hvað vinstrið þolir illa trumpismann, og enn meira áberandi varð þetta eftir að Bandaríkin glötuðu endanlega ærunni á Gaza.
En því miður fyrir þetta fólk byggist það að langmesty leyti á misskilningi. Ekki bara það. Hin mikla „gjá“ milli Bandaríkjanna og ESB, og allt talið um vaxandi „sjálfstæði Evrópu“ er pólitískt leikhús. Allt talið um að Bandaríkin séu jafnvel að „yfirgefa Evrópu“, núna meðan Rússar stefni gegn okkur úr austri, er fyrst og fremst aðferð bandarískra stjórnvalda til að kúska Evrópuríki og aðra bandamenn til hlýðni. Aðferðin þjónar þeim tilgangi að fá þjóðir (og almenning) Evrópu til að samþykkja aukna vígvæðingu, að Evrópa taki aukinn þátt í eigin hervörnum og axli auknar byrðar og þátttöku í átökum. Að kröfu Trumps hafa
Atriði úr þessu pólitíska leikhúsi má sjá þegar Trump hótar að „yfirgefa NATO“, þegar hann segist vilja reka Spán úr NATO vegna gagnrýni á Íranstríðið eða Trump aflýsir sameiginlegum heræfingum með Suður-Kóreu í síðustu viku af því landið vildi ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn Íran o.s.frv. Reynsla Trumps er að slík tiftun fái NATO-bandamenn til að beygja sig dýpra og hlýða betur.
Frá því Trump kom til valda hefur Bandaríkjastjórn lagt áherslu á aukna ábyrgð Evrópuríkja á vörnum Evrópu. Sjálfir kalla þeir það „verkaskiptingu“ og „deilingu byrða“. Hegseth stríðsmálaráðherra lagði strax þessa línu gagnvart NATO-bandamönnum, að skipta yrði verkum í hernaði af því Bandaríkin setji nú stríð við Kína í forgang. Bandaríkin krefjast þess að Evrópa verði meira sjálfbjarga og margfaldi framlög sín til hermála. Það tók hann 5 mánuði eftir valdatöku að fá NATO-ríkin til að samþykkja 5% af landsframleiðslu til hermála og fá ESB til að gangast inn á hernaðarlegan keynesisma.
Talið um „klofning“ er hins vegar pólitískt leikhús, talið um „hernaðarlegt sjálfstæði Evrópu“ þjónar þeim tilgangi að réttlæta stórfelldan flutning fjármagns frá velferðarmálum til hermála í þessari guðsvoluðu álfu okkar, í stríði sem er þó fyrst og fremst bandarískt stríð.
„svo evrópskir bandamenn geti tekið höfuðábyrgð á evrópska átakasvæðinu“
Flotaæfingin við Ísland er ljóst merki um „verkaskiptinguna“ og þörf Bandaríkjanna fyrir „deilingu byrða“. „Exercise Northern Viking 2026 er hannað til að styrkja gagnvirkni og skjót viðbrögð milli Bandaríkjanna, Íslands og annarra bandalagsríkja“, sagði J. T. Anderson, yfirmaður Sjötta flotans, og hann bætti við:
Norður-Víkingur 2026 er birtingarmynd ásetnings okkar um samvirkar varnir Norður-Atlanthafs. Með bandamönnum okkar höldum við áfram að skapa umhverfi sem leyfir gagnvirkni í sjó-herafla NATO, svo að evrópskir bandamenn geti tekið yfir höfuðábyrgð á fælingu og vörnum á hinu evrópska átakasvæði.
Það sem Exercise Northern Viking 2026 opinberar – eins og kemur skýrt fram í orðum áðurnefndu bandarísku yfirmannanna tveggja sem höfðu orðið á opnunarsamkomunni – er að allt fer hér fram í fullu bróðerni milli Bandaríkjanna, evrópska NATO og íslenskra yfirvalda.
Bróðernið blífur, þó svo að Donald Trump beiti óspart bandamenn sína refsingum og auðmýkingum sem þrýstitækni. Hann aflýsti t.d. í síðustu viki sameiginlegri heræfingu með Suður-Kóreu, sem refsingu fyrir að Suður-Kórea neitaði að senda herafla til átakanna við Hormuz-sund. Í æfingunni við Ísland ríkir hins vegar bróðerni undir bandarískri forsjá, enda hefur Ísland líklega aldrei neitað Washington um eitt eða neitt.
En Bandaríkin stjórna – og herða taumhaldið
Vígvæðing Evrópu er ekki merki um „klofning“ eða „sjálfstæði“ Evrópu. Æfingin Norður-Víkingur er á vegum Sjötta flota Bandaríkjanna og yfirmaður hennar er Alexus Grynkewich, æðsti yfirmaður bandaríska heraflans í Evrópu, skipaður af Trump. Grynkewich er jafnframt yfirhershöfðingi NATO. Endurnýjuð herstöð í Keflavík er bandarísk herstöð. Herstöðvarnar 47 á Norðurlöndum eru bandarískar, eins og herstöðvarnar á Grænlandi sem eru í endurnýjun. Evrópska NATO er þarna vissulega í vaxandi hlutverki, en er áfram fyrst og fremst í undirsettu stuðningshlutverki við Bandaríkin og herstyrk þeirra.
Sterkt samband við Bandaríkin og Evrópu er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga og til dæmis mun það, að verða aðili að Evrópusambandinu, að mínu mati frekar efla NATO sem heild og líka samband okkar við Bandaríkin.
Segir Þorgerður Katrín í samtali við Morgunblaðið. Kristrún Frostadóttir styður að fullu kröfu Trumps um 5% framlag NATO-ríkja til hermála. Hún gengst inn á hana fyrir Íslands hönd á þeirri forsendu að 3,5% af framlaginu sé landið sem hernaðarleg fótfesta og strategísk staðsetning þess, en 1,5% komi úr ríkissjóði. Ísland stendur við sitt, segir hún státin. Hvort sem nú önnur NATO-lönd samþykkja það í framhaldinu eða ekki.
Samkvæmt ákveðinni rökfræði er það alveg rökrétt. Þannig var litið á málið í Kalda stríðinu, en fjárframlög Íslands eru að vísu margfölduð frá öllu sem þá var. Herstöðvasamningurinn við USA er í fullu gildi. Bandaríkin hasla sér hér völl á ný eins mikið og þeim hentar, og útvista varnarverkefnum til annarra NATO-ríkja eins mikið og þeim hentar. Þeim hentar nú að því er virðist að fara að auka eigin viðveru á Íslandi, sem lið í vígvæðingu Norðurslóða. Íslensk stjórnvöld eru full áhuga um hið sama, og andstaðan gegn því á sér engan fulltrúa á Alþingi Íslendinga.









