Vinstrið er ekki vinstri lengur
—

Andri Sigurðsson
1. ágú, ’26

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það minnsta ákveðinni þekkingu. Þekking á sósíalískum fræðum er oft afskrifuð því hún þykir of gömul. Ég er sagður klæðast ullarnærfötum og hljómi eins og ég sé fæddur 1926 því ég er ekki hræddur við að nota orð eins og auðvald og „kratar“. Sem er furðuleg hugmynd enda virðist þetta aðeins eiga við stjórnmál en ekki önnur fræði. Það eru ekki margir að afneita afstæðiskenningunni þó að Albert Einstein (sem var sósíalisti!) sé löngu dauður. En af einhverjum ástæðum finnst mörgum innan frjálslynda vinstrisins í lagi að afskrifa Karl Marx og hugmyndir hans því hann sé bara einhver gamall kall. Þessi afneitun á sögunni og hunsun á þekkingu helst í hendur við tilfærslu vinstrisins til hægri og inn á miðjuna.

Hitt er svo auðvitað að það eru sósíalísk ríki sem eru á margan hátt að leiða tækniþróun og vísindi í heiminum í dag. Kínversk stjórnmál og samfélag byggja að miklu leyti á marxisma og sigrar Kína eru að öllu leyti vegna þess að landið er sósialískt og hefur þannig getað byggt upp og framkvæmt alls konar hluti sem ómögulegt er að gera innan vestursins þar sem auðvaldið hefur neitunarvald. Frjálsræðisþróun Kína undir Deng Xiaoping var líka möguleg vegna þess að landið er sósíalískt. Kína gat þannig aukið framleiðslu og velsæld án þess að gefa kapítalinu nein pólitísk völd. Sem er í raun allur vandinn á vesturlöndum, auðvaldið hefur allt of mikil völd.

Ekki að allt sem Marx hafi sagt hafi gengið eftir. Alls ekki, en að afneita þekkingu á svona yfirborðskenndan hátt sýnir okkur hvernig vinstrið í dag er upp fullt af and-intellektúalisma og andúð á þekkingu sem ekki passar við þeirra hugarheim.

Einn stærsti vandi vinstrisins er þessi afneitun á þekkingu og sósíalískum fræðum. Vinstrið er týnt og hefur glatað þekkingu á stéttarbaráttunni og stéttarhugtakinu. Skilur ekki hvar við erum stödd í sögunni. Veit ekki einu sinni hvernig skilgreina eigi sósíalisma ef það hefur þá einhvern áhuga á því. Þetta er auðvitað líka hluti af ástæðunni hvers vegna vinstrið vill fara í ESB. Það telur það lausn á vanda samfélagsins. Að það sé hægt að kjósa betri framtíð í þjóðaratkvæðagreiðslu án þess að þurfa að hafa neitt fyrir því. Að ESB muni á einhvern hátt færa okkur betri lífskjör á silfurfati.

Stundum langar mig að spyrja þetta fólk: Ef sósíalismi og kommúnismi eru svona hræðilegar hugmyndir, hvers vegna er þá allt versta fólk veraldar líkt og Donald Trump og Marco Rubio logandi hrætt við kommúnisma? Hvers vegna er Trump að handtaka og ofsækja sósíalista og kommúnista? Hvers vegna Bandaríkin hafi í áratugi verið í stríði gegn kommúnisma? Svarið ætti að vera augljóst.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.