Skipta bara sumir Úkraínumenn máli?
—

Jón Karl Stefánsson
29. maí, ’26

Fréttastofur eins og RÚV hafa verið duglegar að greina frá stríðinu í Úkraínu. Nú síðast var greint frá því að „Rússar skutu ofurfrárri eldflaug á Úkraínu“ þar sem fjórir voru drepnir. Í fréttinni segir svo að „[m]eðal þess sem Rússar réðust að voru vatnsveita, verslanahverfi, skólar og fjölbýlishús, að sögn úkraínskra yfirvalda.“ Svo grimmir eru Rússar.

Það sem fréttastofa RÚV, né heldur nokkur íslensk fréttaveita, greindi hins vegar ekki frá er að á sama tíma, eins og svo oft síðustu 12 ár, hefur her Úkraínu, með aðstoð NATO-ríkjanna, gert linnulausar árásir á eigin borgara, í austur Úkraínu. Um síðustu helgi voru til dæmis gerðar umfangsmiklar, af mjög yfirlögðu ráði, sprengju- og drónaárásir á borgaraleg skotmörk. Meðal skotmarkanna voru stúdentagarðar Starobelsk háskólans í Luhansk, þar sem 86 stúdentar voru til húsa. Fjöldi látinna í árásum helgarinnar þar í borg voru 21, og 63 særðust. Meðal hinna látnu voru 6 kornabörn. Gerendurnir voru her Úkraínu, með vopnum frá NATO.

Þetta er ekkert nýtt. Stríð hefur verið háð í austurhéruðunum, sem sameiginlega eru kölluð Donbass, í 12 ár. Þetta stríð hófst þegar kjörnum forseta landsins og í kjölfarið ríkisstjórnarinnar, var steypt af stóli af stjórnarandstæðingum, með dyggum stuðningi bandarískra, breskra og ísraelskra stjórnmálamanna og í kjölfar mikilla mótmæla í Kænugarði.  Í austurhéruðunum, þar sem stjórnin og forsetinn hafði mest fylgi, var valdaskiptunum harðlega mótmælt; svo mjög að gripið var til vopna. Frá sjónarhóli þeirra hafði verið framið valdarán og stjórn þeirra vikið frá með ólögmættum hætti. Þetta var þeirra forseti; þeirra ríkisstjórn. Í kjölfarið hófst stríð sem kostaði á 15 þúsund óbreyttra borgara, nánast alfarið íbúa í Donbass héruðunum, lífið á milli 2014 og 2022.

Ítarlega var fjallað um þennan hluta m.a. hér. Það sem þar stendur er óþarfi að endurtaka nú. Það sem skiptir máli hér er kerfisbundin þöggun fjölmiðla hérlendis á stríðsglæpum annars aðilans, sem gefur lesendum falska mynd af því sem á sér stað í raun.

Frá innrás Rússa hefur árásum á íbúa austur Úkraínu, frömdum af herliði Kænugarðsstjórnarinnar, einungis fjölgað og þær versnað. Ákaflega lítill áhugi hefur verið fyrir að fjalla um árásir á stjórnarandstæðinga í Úkraínu. Meðal þeirra fáu sem hefur verið á svæðinu er fréttakonan Eva Bartlett, en hún hefur tekið viðtöl við íbúa þar og fylgst með ástandinu frá árinu 2019. Í samantekt hennar hér má lesa um hrikalegar árásir á útimarkað fylltan óbreyttum borgurum, vöggudeild spítala Donetsk, notkun jarðsprengna sem líta út eins og leikföng og hafa dregið fjölda barna til dauða, sprengiárásir á leikskóla, á hótel fyllt blaðamönnum, á sjúkrabíla og sjúkraflutningafólk, elliheimili, fjölbýlishús og svo mætti lengi halda áfram.

En áhuginn fyrir örlögum þessa fólks er enginn á Vesturlöndum. Ef minnst er á morð á óbreyttum úkraínskum borgurum af hendi stjórnarhermanna eða hersveita þeim tengdum er það annað hvort hunsað, eða gefið í skyn að þetta fólk eigi ekkert betra skilið þar sem það eru handbeinar sjálfs Pútíns. Höfum í huga að þetta eru óbreyttir borgarar; fólk sem reynir að lifa sínu lífi. En um árásirnar á það fólk ríkir algjör þögn. Þau eru ekki réttu Úkraínumennirnir.

Hér er ekki verið að réttlæta neitt; öll mannslíf eru jafnmikils virði. En spurningin til þeirra sem froðufella hvað ákafast yfir þeim sem óska friðsamrar lausnar á þessum hörmungum og þrástagast á hinni ákaflega  barnalegu Hitler-útskýringu á því sem á sér þarna stað er: Hvað veldur því að örlög þessara Úkraínumanna skipta svo litlu máli? Ef þið standið með Úkraínu, af hverju þá ekki Úkraínu allri, einnig þeim sem eru á móti Maidanstjórninni? Þeir sem vilja skrifa þessar árásir á innrás Rússa árið 2022, hvað útskýrir árásir Úkraínuhers, auk annarra vígasveita (stundum beinlínis nasistasveita), á þetta fólk átta árin áður?

Hvað varðar þessum bjagaða fréttaflutningi Rúv og annarra fréttastofa, þar sem einungis er greint frá illvirkjum annars aðilans, en illvirki mótaðilans þöguð í hel, þá skal þetta sagt: Almenningur hefur rétt á að mynda sér afstöðu sjálfur, án þess að vera leiddur af niðurstöðunni með valkvæmri þögn.

Eftirmáli

Eins og fram kom hefur árásin á Starobilsk-skólann þegar haft alvarlegar afleiðingar fyrir Úkraínu. Margt bendir þó til að afleiðingarnar geti orðið stórum víðtækari, jafnvel markað kaflaskil stigmögnunar. Rússneska utanríkisráðuneytið hefur lýst yfir að „,mælirinn sé fullur“. Sergei Lavrov hringdi í kollega sinn Marco Rubio þann 25. maí og tilkynnti honum að Rússar myndu nú ráðast skipulega á bæði hergagnaiðnað og stjórnstöðvar í Kiev. Þetta tjáir opinberi fréttamiðillinn RT. Útlendingar og diplómatar eru hvattir til að yfirgefa úkraínsku höfuðborgina hið skjótasta.

Mynd á forsíðu: Frá árinu 2015 til dagsins í dag hefur úkraínski herinn látið rigna yfir borgir Donbass svokölluðum „pedal mines“. Þessi vopn eru bönnuð skv. alþjóðalögum, enda bitna þær einungis á óbreyttum borgurum og líta út eins og leikföng. Sjá nánar hér.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.