Íslenskir fjölmiðlar hylja aðkomu Ísraels að óeirðum í Íran
—

Andri Sigurðsson
18. jan, ’26

Enginn Íslenskur fjölmiðill fyrir utan Neista hefur sagt frá því að Ísrael og Bandarísk yfirvöld séu viðriðin mótmælin og óeirðirnar í Íran eða að fall Íranska gjaldmiðilisins tengist áratuga löngu viðskiptastríði og þvingunum Bandaríkjanna sem hafa staðið yfir nánast óslitið frá byltingunni 1979 sem steypti af stóli konungsveldi Írans sem var hliðholt Bandaríkjunum.

Glenn Greenwald er reyndur blaðamaður sem birti Snowden skjölin á sínum tíma sem staðfestu að Bandaríkin hefðu tæknilega burði og vilja til að njósna um nánast allt og alla. Hann eins og margir sjálfstæðir blaðamen benda á að Ísraelska leyniþjónustan hafi verið „all over“ upphaflegu mótmælin í Íran sem breyttust í óeirðir og blóðbað. Og núna hefur Financial Times staðfest að svart klæddir “óeirðaseggir” hafi verið innan um mótmælendur sem hafi farið um og kveikt í rusli. Annað vitni sá hóp svart klæddra sérsveitarmanna fara á milli húsa og hvetja fólk til að taka þátt í mótmælunum. Áður höfðu Íraelskir fjölmiðlar fjallað um aðkomu Ísraelsku leyniþjónustunnar sem lengi hefur stefnt að því að fella Íslamska lýðveldið.

Ísrael réðist á Íran í fyrra en varð að draga í land og semja um vopnahlé því viðbrögð Írana og loftárásir á ísraelskar borgir voru meira en Netanyahu réði við. Núna liggur önnur árás í loftinu.

Mótmælin breyttust frá réttmætum og friðsamlegum mótmælum yfir efnahag landsins yfir í blóðugar óeirðir þar sem hundruðir hafa látið lífið. Írönsk yfirvöld hafa ekki gefið út neinar tölur svo ég viti en bæði lögreglumenn og almennir borgara hafa fallið. Vestrænir fjölmiðlar vilja hins vegar mála upp þá mynd að yfirvöld í Íran séu illmenni sem myrði eigin borgara að ósekju en nefna ekki að hryðjuverkaríkið Ísrael sé með puttana í öllu saman. Ííslenskir fjölmiðlar segja okkur að Trump vilji bjarga Írönskum almenningi og allt í einu er allir orðnir Trumpistar. Líka frjálslynda fólkið sem sagðist hata Trump.

Íran hefur verið undir lamandi viðskipta- og efnahagsþvingunum af hendi Bandaríkjanna og vesturlanda allt frá byltingunni 1979 sem varð til þess að Íran neyddist til að koma sér upp eigin tækni líkt og flugskeytum og öðrum varnar- og hernaðartólum. Íran hefur mun meiri hernaðarmátt heldur en t.d Venesúela sem gerir allar árásir á landið mun dýrari fyrir heimsvaldasinna, líkt og sást í tólf daga stríðinu í fyrra.

Upphaflegu mótmælin voru að hluta til viðbragð við falli Íranska ríalsins en stjórnvöld saka Bandaríkin og vesturlönd um að skipuleggja árás á efnahag Írans með fyrrgreindum afleiðingum. Indverski fjölmiðlamaðurinn og Marxistinn Vijay Prashad skrifar og segir: „hið skjóta 30-40% fall gjaldmiðilsins er klassískt einkenni utanaðkomandi íhlutunar“.

Á meðan Íslenskir og vestrænir fjölmiðlar flytja almenningi valdaskiptaáróður þriggja stafa stofnunarinnar (CIA) um að Írönsk yfirvöld hafi myrt þúsundir mótmælenda hafa önnur mótmæli tekið yfir en þau eru til stuðnings Íranska lýðveldinu þar sem milljónir Írana hafa tekið þátt og farið út á götur.

Vijay Prashad lýsir hvernig mótmælin hafa breyst:

„Mótmælin“ breyttust á einni nóttu frá friðsamlegum samkomum yfir í öflugar óeirðir og skemmdarverk sem leiddu til dauða um það bil 100 lögreglumanna, og fullyrt er að sumir lögreglumenn hafi verið brenndir lifandi, öryggisvörður hálshöggvinn og læknastofa hafi verið brennd til grunna, sem kostaði til dæmis hjúkrunarfræðing lífið. Notkun skotvopna úr návígi gegn almennum borgurum bendir enn fremur til tilraunar til að hámarka spennu innanlands og skapa átyllu fyrir erlenda íhlutun. Pólitíska skipulagningin á bak við ringulreiðina varð óumdeilanleg þegar utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og Mossad fögnuðu opinskátt ofbeldinu í rauntíma. Þegar yfirvöld lokuðu fyrir aðgang að internetinu misstu mótmælin verulega styrk sinn, sem setur spurningarmerki við sjálfstæði hreyfingarinnar og styrkir þá kenningu að um sé að ræða tilraun til að skapa óstöugleika, þar sem reynt sé að hagnast á núverandi aðstæðum í heiminum.“

Alltaf má treysta því að Íslenskir fjölmiðlar þýði gagnrýnislaust áróður Bandaríkjanna sem ætlað er að grafa undan andstæðingum eða öllu heldur fórnarlömbum vesturlanda. Eitt er víst, tilraunir Bandaríkjanna og Ísraels til að steypa stjórnvöldum í Íran af stóli munu ekki leiða til neins nema hörmunga fyrir almenning í landinu. Það vita Afghanir, Sýrlendingar, Líbíumenn, Síelbúar, Kúbanir, og Írakar sem hafa fengið að bragða á svokölluðu lýðræði og valdaskiptaaðgerðum vesturlanda.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.