Íslandi umræðulaust markaður bás í alþjóðamálum
—

Ögmundur Jónasson
20. mar, ’26

Þær skuldbindingar sem ríkisstjórn Íslands er að undirgangast fyrir hönd þjóðarinnar eru afdrifaríkar. Reyndar afdrifaríkari en ég tel að fólk almennt geri sér grein fyrir.

Í Evrópu er byrjað að krauma undir vegna vígvæðingaráfergju helstu forystumanna Evrópusambandsins. Það hlálega er að í þann mund sem merki þessa eru að byrja að sjást skuli ríkisstjórn Íslands hlaupa til og vilja vera með – hernaðarhaukunum.

Í ESB eru í fararbroddi harðlínu hægri menn á borð við Kaju Kallas frá Eistlandi, núverandi utanríkismálastjóra ESB, sem lýsti því yfir við embættistökuna að markmiðið væri að koma Rússlandi á hnén helst sundra því með valdi, Macron Frakklandsforseti, sem vill dreifa kjarnorkuvopnabúnaði sem víðast í Evrópu, Merz Þýskalandskanslari sem atti kappi á sínum tíma við Angelu Merkel leiðtoga þýska íhaldsins en varð undir og hún vildi halda sem lengst frá valdastólum sökum harðlínustefnu hans og varð þá þessi höfundur bókarinnar Mehr Kapitalismus wagen gerður að stjórnanda í Þýskalandsdeild hinnar alræmdu alþjóðafjárfestingakeðju BlackRock. Merz vakti svo athygli þegar hann lýsti því nýlega yfir að nú yrði að vígvæðast hvað allt af tæki, sjálfur óttaðist hann ekki lengur stríð!
Svo er náttúrlega danski kratinn Mette Fredriksen sem lýsti því yfir að danska þingið mætti ekki þvælast fyrir foringjum hersins þegar þeir vildu meiri pening til hervæðingar. Getur það virkilega verið rétt? Já, allt er þetta er rétt og liggja heimildirnar opnar fyrir þá sem á annað borð vilja kynna sér þær.

Það er hægt að halda áfram upptalningu úr klúbbnum sem utanríkisráðherra Íslands vill hnýta okkur í taglið á – og hefur nú reyndar gert með undirskrift sinni. En varla má láta ótalinn hernaðarhaukinn Ursulu von der Leyen, sjálfan framkvæmdastjóra ESB, fyrrum varnarmálaráðherra Þýskalands af harðlínu hægrivængnum.

Við kynnumst þessu fólki á myndum, brosandi breitt að segja til nafns sem gestgjafar eða gestkomandi; sjáum faðmlög, kossaflangs og innilegheit. En öll eiga þau sér pólitíska fortíð og því miður líka pólitíska framtíð. Og það er þá framtíð sem utanríkisráðherra í umboði ríkisstjórnar Íslands er að skuldbinda okkur til fylgilags við (sjá frétt á visir.is).

En þá vakna spurningar. Hér eru nokkrar:

Þarf ekki að taka umræðu um svona ákvarðanir í samfélaginu og taka til þess góðan tíma?

Væri þetta ekki verðugt tilefni til þjóðaratkvæðagreiðslu?

Telur fólk að með þessu sé verið að auka öryggi Íslands, og ef svo er, mætti biðja um rök fyrir því?

Getur það verið rétt að eftirsóknarverðara sé að horfa til vígvæðingar í stað friðar?

Gæti verið að ríkisstjórn Íslands sé að grafa undan Íslandi sem ríkis í kjörstöðu sem friðelskandi sáttasemjari; ríkis sem nyti víðtæks trausts því allir mættu vita að því væri ekki fjarstýrt af hernaðardólgum hvorki vestan hafs né austan?

Greinin birtist upprunalega á heimasíðu höfundar, ogmundur.is.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.