Fullveldi til sölu
—

Stefán Karlsson
8. jan, ’25

 

Hátíðarfundurinn á Þingvöllum 17. júní 1944 markaði endalok á langri sjálfstæðisbaráttu íslensku þjóðarinnar.  Þá var lýðveldisstjórnarskráin fyrir Ísland löggilt og stjórnskipulag sjálfstæðs ríkis á Íslandi ákveðið.  Fullveldi landsins var óafturkræf ákvörðun, bindandi fyrir komandi kynslóðir.  

Sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar var ekki aðeins þjóðernislegt metnaðarmál heldur undirstaða þess að þjóðinni vegnaði vel efnahagslega.  Sjálfstæðisbaráttan var raunsæisstefna í fullvissu þess að þjóð, sem væri ráðandi málum sínum og óháð annarra íhlutun, gæti því aðeins orðið farsæl að hún væri fullvalda og sjálfstæð og í engu hluti af stærri ríkisheild eða heimsveldi.

Stefán Karlsson

Í tímans rás hafa þær raddir orðið sífellt áleitnari að fórna skuli fullveldinu á altari viðskiptahagsmuna.  Látið er að því liggja að ekki sé hægt að halda uppi viðskiptum við ríkjabandalag Evrópu öðru vísi en að vera þar fullgildur aðili.  Samkvæmt þessari afstöðu hefur fullveldi Íslands og sjálfstæði ekki meira vægi en svo að það hefur verið gert gert að pólitísku þrætumáli, söluvöru og skiptimyndt rétt eins og hvert það mál sem rekið er í sérhagsmunaskyni. 

Helstu talsmenn þessarar afstöðu eru einkum íslenskir fjármagnseigendur, verslunar og viðskiptaauðvaldið, tiltölulega fámennur hópur auðmanna, sem vill fá ótakmarkað frelsi til að flytja auð sinn úr landi og ávaxta hann þar sem arðsvonin er mest.  Þessir menn hafa uppi háværan áróður fyrir því að gera að engu rökin fyrir stjórnarfarslegu sjálfstæði landsins og ógilda þau andlegu verðmæti og pólitísku gildi sem þjóðin hefur ánunnið sé með því að verða stjórnarfarslega frjáls og fullvalda. Jafnframt hafa þeir unnið skipulega að því að gera sem minnst úr afrekum lýðveldistímans. 

Til að réttlæta fullveldisafsal Íslands beita Evrópusinnar (ESB-sinnar) þeim rökum að þjóðríkið hafi gengið sér til húðar.  Nauðsynlegt sé að endurskoða skilgreiningu sjálfstæðis- og fullveldishugtaksins, laga það að „staðreyndum nútímans“ eins og það er orðað.  Þessi afstaða birtist t.d. með skýrum hætti í grein eftir Þröst Ólafsson hagfræðing í Vísbendingu 6. september 2024 undir nafninu „Fullveldi – hvað er nú það?“  Þar segir Þröstur að fullveldi Íslands sé best borgið með því að deila því gegn hlutdeild í fullveldi annarra, einkum stærri ríkja.  Danir hafi t.d. afsalað sér óskoruðu fullveldi gegn því að fá í staðinn hlutdeild í fullveldi Þýskalands og annarra sambandsríkja ESB.  Spyrja má hvað Íslendingar hafa með það að gera að eignast hlutdeild í fullveldi Þýskalands. 

Það er líka með öllu ósannað mál að með inngöngu í Evrópusambandið sé verið að tryggja atvinnu- og viðskiptahagsmuni Íslendinga í heild.  Hitt er miklu líklegra að með aðild sé beinlínis verið að stofna atvinnu- og viðskiptahagsmunum landsins í voða.  Þegar litið er nánar á hverjir meginhagsmunir Íslendinga eru hvað varðar auðlindir og bjargræðisvegi þá verður fyrst fyrir að nefna auðlindir sjávarins – fiskinn í sjónum – og nýtingu þeirra, fiskveiðar og fiskiðnað. Það er enginn vafi á því að stjórnarskrá Evrópusambandsins gerir auðlindanýtingu að alríkismáli. Um það verður ekki samið.  Aðild Íslendinga að Evrópusambandinu er því frá efnahags- og viðskiptasjónarmiði hreint glapræði.

Nýja ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að Íslandi sæki um aðild að Evrópusambandinu, miðstýrðu meginlandsveldi sem er þjakað af stórfelldu atvinnuleysi og efnahagslegri stöðnun.  Í stað þess að líta á sig sem varnarmenn sjálfstæðis og fullveldis Íslands á grundvelli stjórnarskrár lýðveldisins gengur þessi stjórn erinda erlends alríkisvalds.

Með inngöngu í Evrópusambandið er hætt við því að Íslendingar glati svo miklu meira en fullveldinu.  Menningin er t.d. ekkert einangrað fyrirbæri.  Engum getur blandast hugur um það að viðtekin móðurmálsstefna er svo nátengd sjálfstæðis- og fullveldishugmyndinni að hún verður ekki söm því meira sem þjóðin afsalar sér fullveldi sínu.  Stórríki á borð við Evrópusambandið fær vart staðist til framtíðar nema dregið verði úr menningarmun innan þess með hliðstæðum hætti og það er grundvallarstefna að efnahagskerfið lúti einum, óundanþægum lögum.  Stefnt verður að því að koma á yfirþjóðlegri alríkismenningu sem m.a. byggist á því að fækka tungumálum.  Sterkum áróðri verður haldið uppi til að sýna fram á að lítil málsamfélög séu úrelt enda þándur í götu einingarhugsjónar Evrópuríkisins.  Það liggur beint við að álykta að í víðlendri margra hundraða milljóna ríkisheild verði talið of kostnaðarsamt og óarðbært, dýrt sport og fortíðarhyggja að halda við litlum málsamfélögum.                                

Aðildin að Evrópusambandinu er svo róttækt fullveldisafsal að hún þverbrýtur lýðveldishugsjónina frá 1944 og fullveldisviðurkenninguna frá 1918.  Með inngöngu er hætt við að Ísland verði eins konar gervilýðveldi af þeirri tegund sem látin yrði klæðast þjóðbúningi á bjórhátíðum til að undirstrika menningarfjölbreytnina í Bandaríkjum Evrópu.  Minningaratburðir í tengslum við sjálfstæðisbaráttuna verða þá hreinn skrípaleikur.

—

Birtist áður í Morgunblaðinu 31. desember

Höfundur er stjórnmálafræðingur og eftirlaunaþegi.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.