Fólkið á myndunum
—
Á dögunum var mikið úr því gert hérlendis að forsætisráðherra Íslands hefði talað við tvo breska uppgjafar stjórnmálamenn sem halda úti hlaðvarpi, svo málefnalega gjaldþrota kappa að þeir áttu sér þessa einu von viðreisnar, að skipa sér í kjaftastétt allra kjaftastétta, podcast-hópinn. Spjall forsætisráðherrans við þessa menn var ósköp vinalegt og meinlaust, en þó var það merkingarþrungnara en ætla mætti í fyrstu. Ekki vegna innihalds, heldur umbúða, einnig vegna þess að persónugalleríið var áhugavert.
Ljósmyndarar
Við könnumst öll við ljósmyndirnar. Það er fundur í útlöndum, þar eigum við Íslendingar fulltrúa, þátttakendur stilla sér upp, gjarnan á tröppum fyrir utan sögufræga byggingu, kannski höll, nú eða mannvirki sem ber nútíma arkitektúr fagurt vitni.
Þessar myndir vekja upp einfaldar spurningar: Hvaða fólk er á þessum fínimannamyndum sem teknar eru af ráðherrum okkar á marmaratröppum erlendis? Hverjir standa þar við hlið þeirra? Hverjir eru viðmælendur íslenskra stjórnmálamanna þegar stórmál Evrópu og heimsins eru rædd? Og hvaða veruleika endurspeglar sá hópur – viðmælendurnir?

Þegar myndirnar eru skoðaðar blasir við býsna, vægast sagt, einsleit hjörð. Þar má sjá fjármálaráðherra á borð við Daða eða Bjarna, forsætisráðherra á borð við Katrínu eða Kristrúnu og utanríkisráðherra á borð við Þórdísi eða Þorgerði, í félagsskap fólks sem nánast allt kemur úr sama jarðvegi. Fólks sem hefur gengið sömu stofnanaleiðir, lært sama tungumálið, mál valdsins. Starfar á sömu lendum: stjórnmála, fjármála, stjórnsýslu og alþjóðastofnana. Á myndunum stendur og tyllir sér á tá hin gamla Evrópa. Evrópa þar sem hvítt forréttindafólk stendur teinrétt á tröppum glæstra bygginga og stillir sér upp eins og heimurinn hafi í grundvallaratriðum ekkert breyst. Eins og allt sé með sama sniði og þegar Ólafur Thors eða Gylfi Þ. Gíslason stóðu á sambærilegum myndum um miðja síðustu öld með Östen Undén eða Viggo Kampmann, Jan de Quay eða Pierre Wigny.
Það er ekkert athugavert við marmarann. Byggingar Evrópu og um leið tröppurnar framan við þær eru margar hverjar stórfenglegar og hlaðnar sögu. Þær eru vitnisburður um sigra og áföll, veldi og hnignun, menningu og ofbeldi. Það er verra þegar fólkið sem stendur á tröppunum verður sjálft að eins konar minnismerki um veröld sem var.
Það er þá sem myndirnar verða óþægilegar. Þá verða þær fast að því trúarlegar sjálfsímyndir, líkar myndastyttum sem stjórnmálamenn allt frá dögum Rómaveldis hafa gert sjálfum sér til dýrðar en lýðnum til áminningar. Vissulega skýrast þessar ljósmyndir í eigin óþægindum og hlutverk þeirra verður ljósara; þær fjalla um sjálfsupphafningu og völd en sá sem á horfir gerir sér grein fyrir því að þetta er ritúal, guðirnir eru að horfa niður af Ólympsfjalli, nú eða kirkjunnar æðstu prelátar ofan úr kór hinnar hátimbruðu kirkjubyggingar. Fólkið, myndefnið, vonar að dýrkunargildi ljósmyndarinnar eigi enn erindi – og því til ánægju kemst það að því að svo er – dýrkunargildið er enn við líði meðal þeirra sjálfra og þeirra viðhlæjenda.
Evrópa?
Evrópa í dag er ekki sú Evrópa sem þessar myndir gefa til kynna. Álfan er marglaga og síbreytileg. Hún er gljúpur jarðvegur þar sem þjóðerni, menning, stétt, trúarbrögð og uppruni skarast á nýjan hátt – eða skarast alls ekki, því miður. Þau sem hafa ferðast um Evrópu undanfarna áratugi hafa séð breytingarnar. Þau sem hafa búið þar hafa lifað þær. Í borgunum hafa orðið til ný samfélög sem verður ekki lengur lýst með gömlu myndinni af hinum hvíta Evrópubúa í jakkafötum, með Le Monde, El País eða The Daily Telegraph undir hendinni. Jú, hann er enn til staðar sá góðborgari – ekki síst miðsvæðis í borgunum, í kringum stjórnsýsluna, fjármálamiðstöðvarnar og alþjóðastofnanirnar. En hann er ekki lengur samfélagið allt. Hann er hluti af því, jafnvel minnihluti.
Og þó virðist það oft vera einmitt þessi hluti samfélagsins sem stjórnmálamenn okkar eiga hvað auðveldast með að tala við. Þetta skiptir máli. Það skiptir máli um hvað við tölum, við hverja við tölum og fyrir hverja þeir tala sem við tökum tali. Það skiptir máli hvort viðmælendur séu raunverulega fulltrúar þeirra samfélaga sem þeir segjast tala fyrir eða hvort þeir séu fyrst og fremst fulltrúar sjálfra sín, sinna flokka, sinna stofnana og sinna félagslegu tengsla. Að spjalla um daginn og veginn við hvíta samherja sem flestir eru komnir úr sama félagslega og menningarlega umhverfi, koma úr ámóta háskólum, hafa sótt sömu ráðstefnur, setið sömu fundi og talað sama tungumál valdastofnana, getur verið þægilegt – saman ber viðtalið sem Kristrún fór í. En það getur líka orðið tragíkómísk uppákoma og fáránleg með leiktjöldum, lýsingu og öllu saman. Það sem meira er, þessi mynd er hættuleg þegar henni er ruglað saman við raunveruleikann.
Hún verður ljót þegar hún gefur í skyn að Evrópa sé enn fyrst og fremst vettvangur gamalla valdastétta sem hittast á marmaratröppum og ræða framtíðina sín á milli. Hún verður ósanngjörn gagnvart þeim sem lifa í öðrum veruleika en tröppufólkið. Og hún verður jafnvel meiðandi þegar þeir sem hafa minnst vald yfir eigin lífi eru aðeins til staðar í samtalinu sem viðfangsefni, vandamál eða tölfræði – nú eða sem hin fullkomna eyða, vöntun. Það sem ekki er.
Í þessu samhengi verður líka að spyrja hverjir séu raunverulegir fulltrúar verkalýðsins í evrópskum stjórnmálum, hverjir eru fulltrúar þeirra sem byggðu hallirnar og blóðrisa lögðu tröppurnar og reisa nú glæst stórhýsi glers og stáls. Er það fólkið sem skipar hina svokölluðu jafnaðarmannaflokka? Fulltrúar jafnaðarmanna á tröppunum?
Það er orðið algengt að stjórnmálamenn sem kenna sig við jafnaðarstefnu komi úr allt öðrum heimi en þeim sem verkalýðurinn lifir í og ekki bara verkalýðurinn heldur einnig hin puðandi millistétt sem enginn vill vita af nema á fjögurra ára fresti. Þessir stjórnmálamenn eru sorglega oft einvörðungu skólaðir í stórkapítalískum fræðum, sem þeir svo hafa praktíserað í fjármálafyrirtækjum og kauphöllum. Síðan hafa þeir fengið inni í alþjóðlegum stofnunum sem flestar mæla peningana virði og alltaf á kostnað þeirra sömu. En, öðlast að endingu pólitísk áhrif á grundvelli hugmynda um betri heim. Þá ber þess að geta að stundum virðist vanta það sem mestu máli skiptir: náin þekking á þeim heimi sem á að bæta. Þetta er ekki spurning um hvort flokkurinn heiti Breski verkamannaflokkurinn, Samfylkingin eða sé sagður flokkur jafnaðarmanna í Danmörku, Svíþjóð eða Þýskalandi. Nafnið segir ekki endilega til um félagslegan uppruna, hagsmunatengsl eða sjónarhorn þeirra sem fara með völdin.
Þegar hvítt vald talar við hvítt vald verður það ekki sjálfkrafa fjölbreyttara samtal þó að umræðuefnið sé fjölmenning, jöfnuður eða alþjóðasamvinna. Þetta verður sérstaklega mikilvægt þegar rætt er um Evrópusambandið.
ESB
Sé gengið til liðs við Evrópusambandið er ekki aðeins verið að ganga inn í markaðs- eða stjórnsýslukerfi. Þá er verið að ganga inn í flókið net valdastofnana, fjármagns og stjórnmála. Þar eru hagsmunir ólíkra stétta og samfélagshópa ekki endilega þeir sömu. Þar er líka til stjórnmálastétt sem hefur áratugum saman þróað ákveðinn skilning á því hvernig Evrópa eigi að vera og hvernig alþjóðasamvinna eigi að fara fram – og sá skilningur endurspeglast í myndunum af fólkinu á tröppunum.
Það væri barnaskapur að líta svo á að þessi heimur sé og hafi verið hlutlaus. Hann á sér sögu. Sú saga er ekki bara saga lýðræðis, samvinnu og friðar. Hún er líka saga heimsvaldastefnu, nýlendustefnu, stéttaskiptingar og efnahagslegs ofríkis og gegndarlausrar kúgunar. Gætum að því að sum þeirra sem standa á tröppumyndunum í dag eru ekki annað en hvítar vofur fortíðar sem halda enn að Belgar hafi nú, svona upp að vissu marki, mátt strádrepa fólk í Kongó, nú eða telja, þrátt fyrir allt, að Frakkar ættu í raun að ráða Alsír – það væri betra.
Það er ekki verið að gera lítið úr Evrópu með því að minna á þetta. Þvert á móti. Þetta er forsenda þess að skilja álfuna. Vandinn verður til þegar valdastétt sem er alin upp við gamla heimsmynd tekur ekki eftir því, eða vill ekki taka eftir því, að samfélagið í kringum hana hefur breyst. Samt eru breytingarnar örar og bersýnilegar – þessar breytingar hafa ekki orðið á árhundruðum, en endurmatið hefur ekki enn hafist. Ástæða þess stendur í tröppunum.
Brexit
Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að Brexit er svo áhugavert. Brexit sem stundum er nefnt eins og einskonar Grýla til þess að minna fólk á hve ævintýrið endi hraklega sé Evrópusambandið ekki til staðar til þess að leiða barnið.
Það er enn of snemmt að kveða upp endanlegan dóm um Brexit. Sagan mun þurfa að meta þá ákvörðun, bæði félagsfræðilega og efnahagslega. Ekki eftir fimm eða tíu ár heldur yfir lengri tíma. Þegar um er að ræða ríki eins og Bretland, sem á sér margra alda sögu sem stórveldi, heimsveldi, kúgandi nýlenduveldi, iðnríki, herveldi, arðrænandi grimmdarríki, menningarríki og jafnframt samfélag sem hefur þekkt djúpa fátækt, er það einfaldlega barnaskapur að ætla sér að gera upp eina pólitíska ákvörðun á örfáum árum – jafnvel þótt hún sé stór, eða kannski einmitt þess vegna. Spyrjum eftir fimmtíu ár. Kannski eftir sjötíu. Þá verður auðveldara að sjá hvort Brexit hafi verið afturhvarf, mistök, aðlögun að nýjum veruleika eða upphaf einhvers sem við sjáum ekki enn – jafnvel einhvers sem síðar verður metið sem stórkostlegt framfaraskref. Við tölum gjarnan um afkomendur okkar og reynum að réttlæta eigin gjörðir og hugmyndir með því að við berum hag þeirra fyrir brjósti – samt höfum við ekki þolinmæði, okkur finnst að við – í dag – verðum að vita úrslit alls strax. Og ráða öllu til framtíðar. 50 ár er ekki langur tími, ef Guð lofar verða öll barnabörn mín á lífi þá og öll á milli fimmtugs og sextugs.
Lærdómur
Við þurfum að læra að greina á milli Evrópu fortíðarinnar og Evrópu samtímans. Við þurfum að horfa upp á marmaratröppurnar og spyrja hverjir séu ekki á myndinni. Við þurfum að spyrja hvort samtölin sem íslensk stjórnvöld eiga erlendis endurspegli þann veruleika sem venjulegt fólk í Evrópu lifir eða fyrst og fremst þann veruleika sem ríkir í ráðherrabústöðum, stjórnsýsluhöllum, ráðstefnumiðstöðvum, herráðsfundum og fjármálahverfum. Og við þurfum að vera sérstaklega tortryggin þegar fólk sem hefur lifað alla ævi innan einsleits valdahrings talar af mikilli sannfæringu um samfélög sem það hefur lítil tengsl við og vill gjarnan ekkert vita af. Því það er munur á því að tala við fólk og að tala við fulltrúa ákveðinnar heimsmyndar. Það er líka munur á því að vera í samtali við samtímann og að tala við drauga fortíðarinnar. Marmaratröppurnar eru ekki vandamálið. Vandamálið er þegar fólkið á þeim gleymir að heimurinn neðan við þrepin hefur breyst.
Ef íslensk stjórnvöld ætla að taka ákvarðanir um framtíð Íslands í Evrópu þurfa þau að tala við Evrópu eins og hún er – ekki eins og hún var og ekki eins og fólkið á tröppumyndunum segir að hún sé; vill að hún sé. Þetta er ekki krafa um að hætta að tala við ráðherra, fyrrverandi ráðherra, álitsgjafa eða stjórnmálamenn – jafnvel ekki hlaðvarpsstjórnednur. Krafan er miklu einfaldari: Gáum að því hverjir eru þátttakendur í samtalinu, gáum að því hverjum er haldið fyrir utan – og hver vegna. Og umfram allt skulum við ekki rugla saman þeim sem hafa aðgang að valdinu og þeim sem valdið á að þjóna.
Á meðan Evrópusambandið er eins og það er, eru fulltrúar þess ekki fulltrúar fólksins sem byggir sambandið heldur fulltrúar veraldar sem var. Við eigum ekkert erindi inn í slíkt samband. Við eigum ekki að gera svo lítið úr okkur að fara til fundar við fólk sem fyrirlítur fjölda íbúa á eigin grund og þeirra á meðal íbúa sem valdið flutti sjálft inn til að vinna skítverkin í viðkomandi landi. Og við eigum ekkert erindi inn í bandalag þjóða sem umkringir sig með tollmúrum sem bitna verst á þeim sem minnst mega sín, við eigum ekkert erindi inn í Evrópusamband sem greiðir fyrir arðráni og nútíma nýlendustefnu í mörgum ríkjum í Afríku og við eigum ekki að láta sjá okkur í bandalagi þjóða sem geta ekki með góðu móti tekið af skarið og fordæmt þjóðarmorð sem fer fram fyrir allra augum.
Evrópusambandið er afgirt heild og útilokandi, með frekar ógeðfelda deild á sínum snærum, FRONTEX, sem gætir virkisveggjanna. Bara slíkt apparat ber vitni um ótta sem aftur vitnar um stöðnun og firringu, ótta við það sem lagt hefur verið kapp á á útiloka, stöðnun vegna þess að alið er á andúð á fólki af með annan bakgrunn, firringu vegna þess að þetta lýsir því hvernig ráðamenn neita að horfast í augu við veruleikann. Evrópusambandið er ekki einu sinni gott fyrir sinn hatt, það er tímaskekkja sem nærir misrétti og kúgun, ofríki auðsins á kostnað þeirra sem minnst hafa og síðast en ekki síst fóðrar þau öfl sem viðhalda valdastétt sem hangir á fornri frægð (jafnvel að endemum) og vill hvorki né getur áttað sig á því að veröldin og þar með Evrópa er gjörbreytt. En valdastéttin sú, kýs vitaskuld að lifa í fölsuðum veruleika á fölskum myndum. Þannig fólk vill gjarnan spjalla í notalegheitum við sína líka – að gefinni réttri leikmynd.









