Brooklyn-bröns: að svelta Gaza
—

Ari Tryggvason
1. maí, ’25

Í tvo mánuði hefur Ísraelsstjórn komið í veg fyrir að bæði matur og hjálpargögn berist inn á Gaza. Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hefur mætt við landamærin og lýst áhyggjum sínum. Almenningi út um allan heim blöskrar, jafnvel stjórnvöldum. Macron hefur hvatt palestínsku heimastjórnina til að taka yfir stjórn á Gaza. Þá gæti tveggja ríkja lausnin verið í sjónmáli. Hann talaði um að afvopna Hamas og koma þeim frá völdum. Enn fremur bauðst hann til að Frakkland tæki að sér að viðurkenna Palestínu sem ríki á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í júní. Auðvitað vakti það hörð viðbrögð í Ísrael.

Misskilningurinn eða öllu heldur blekkingin, felst í því að beina orðum sínum ætíð til ráðandi afla í Palestínu, hvort sem það er á Gaza eða á Vesturbakkanum. Ef Macron hefði eitthvert bein í nefinu myndi hann tala fyrir stjórnarskiptum í Ísrael, hann myndi beina orðum sínu til Ísraels. Þrátt fyrir allt, er það í höndum Ísraels að ákveða.  Öryggismálaráðherrann í stjórn Netanyahus er að ljúka vikuheimsókn sinni til Bandaríkjanna þegar þetta er skrifað. Vefmiðillinn the Greyzone hefur greint frá.

Síðastliðinn sunnudag, 27. apríl, var þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, boðið í bröns á heimili kaupsýslumannsins og áhrifamanns gyðinga í Brooklyn, Harry Ajimi.

Ben-Gvir boðinn til Trumps forseta og líka til þungavigtarmanna zíonista.

Ben Gvir er leiðtogi flokksins, Gyðingavald (Otzmah Yehnudit) og er öfgafyllsti maður sem nokkru sinni hefur gegnt ráðherraembætti í Ísrael. Hann er landtökumaður sem hefur verið sakfelldur af dómstóli í Jerúsalem fyrir að hafa aðstoðað hryðjuverkasamtök. Hann styður pyntingar og þjóðarmorð og var myndaður er hann fagnaði hryðjuverkaárás landtökumanna þar sem palestínskt barn var brennt til bana. Einnig leiddi hann hóp landtökumanna í ofbeldisfullri árás á palestínska kaupmenn.

Í heimsókn ráðherrans til Bandaríkjanna, 23. apríl síðastliðinn, var fyrsti viðkomustaður hans, einkaheimili Trumps forseta á Florida, þar sem hann beindi orðum sínum til öldunga Repúblikanaflokksins, sem hann sagði hafa lýst yfir stuðningi við afgerandi afstöðu sína, hvernig eigi að bregðast við á Gaza ásamt því að sprengja ætti matvæla- og hjálpargeymslur.

Hluti fyrirlestrarferðar ráðherrans var til Yale-háskóla á vegum Shabtai-félags háskólans. Þar kynnti hann áætlun sína um að svelta Gaza. Um 100 nemendur ásamt 30 kennurum sóttu viðburðinn.

Bröns-fundurinn í Brooklyn var ekki hluti auglýstrar dagskrár ráðherrans. Gestgjafinn, Harry Adjmi, kaupsýslu- og fasteignamógull frá Brooklyn og forstjóri On Step Up fyrirtækisins, hefur stutt fjárhagslega, bæði Repúblikana og Demókrata í New York.

Í Ísrael styður Adjmi fjölda samtaka Sephardic-gyðinga ásamt her Ísraels, IDF. Heima er hann nátengdur öfgasamtökum rétttrúnaðarhreyfingarinnar, Chabad-Lubavitch sem hýsti Ben Gvir í Brooklyn 24. apríl.

Í janúar 2021 gaf Trump bróður Harry Adjmi, Alex, upp sakir, sem var dæmdur fyrir peningaþvætti fyrir kólumbískan eiturlyfjahring. Hann studdi kosningabaráttu Trumps um 50.000$.

Samkvæmt the Times of Israel lauk ráðherrann heimsókn sinni á mánudagskvöld með fundi með fjórum þingmönnum Repúblikana í þinghúsinu þar á meðal þeim sem stýrir hinni öflugu utanríkismálanefnd fulltrúadeildarinnar. Að auki sagði öryggismálaráðherrann að hann hefði ekki verið hvattur í fundaferð sinni til að breyta stefnu Ísraels. Ekki nóg með það heldur hafi fjöldi þingmanna Repúblikana upplýst hann um viðleitni sína til að þrengja að efnahag stuðningshópa Palestínu.

Allt er þetta með þvílíkum ólíkindum; sýndarmennskan hjá ráðamönnum Evrópu og grímulaus stuðningurinn í Bandaríkjunum. Óhjákvæmilega dregur maður þá ályktun að um samstilltar aðgerðir sé að ræða gegn Palestínu. Að Ísrael skuli komast upp með þjóðernishreinsanir sínar er auðvitað hneyksli sem á rætur í samþykkt Sameinuðu þjóðanna 1947 um stofnun Ísraelsríkis. 

Að sjálfsögðu vakti heimsókn Ben Gvir usla, honum var fagnað og mótmælt. Brottfluttir frjálslyndir Ísraelar á Manhattan létu í ljós óánægju sína. Öfgar og ofbeldi stjórnvalda Ísraels eru á góðri leið með að leiða landið í glötun samhliða þjóðarmorðinu. Palestínu verður ekki eytt með þessari grimmd. Hins vegar gæti gerandinn glatað sjálfum sér svo tilvist Ísraelsríkis verði bara í sögubókunum.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.