Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar
—
Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu og hvatti hann til að senda hermenn á vígvöllinn í Úkraínu og gera kjarnorkuvopnin tilbúin til að skjóta þegar í stað. Hann sá fljótt sóma sinn í að eyða færslunni þegar hann áttaði sig á að hún var varla tilhlýðileg.
Á þingfundi 2. nóvember spurði þingmaður Framsóknarflokksins, Stefán Vagn Stefánsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hvort hún teldi þessi ummæli framkvæmdastjóra eins stjórnarflokksins geta haft orðsporsáhættu fyrir land og þjóð. Hún gerði í rauninni lítið úr þessu, lét sér nægja að segja að Heimir Már hefði beðist afsökunar á þessu. „Það sem við erum hins vegar samhuga og einhuga hér um, er að styðja við Úkraínu gagnvart grimmdarárásarstríði Rússa. Það er undirtónninn. Það er skilningurinn sem ég sé út úr þessu og það er það sem ég tek með mér.“
Stefáni Vagni þótti þetta heldur ófullnægjandi og ítrekaði spurninguna, hvort utanríkisráðherra teldi það nóg að Heimir Már hefði dregið orð sín til baka, hvort það væru einu viðbrögðin við því sem þingmaðurinn kallaði grafalvarlegt mál. Utanríkisráðherra lét sér nægja að svara því aftur að „viðkomandi einstaklingur er búinn að biðjast afsökunar á þessu“ og ítrekaði það sem kom fram í fyrra svari að „við styðjum afvopnun stórveldanna varðandi kjarnorkuvopn.“ Sem var svo sem ágætt út af fyrir sig. En benti svo á að enginn í stjórnarandstöðunni hefði sagt neitt þegar „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“, sem mun vera Ólafur Ragnar Grímsson, vakti athygli á grein eftir Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa um norðurslóðamál.
Þetta er þekkt og heldur ómerkileg aðferð við að gera lítið úr einhverju að fara út í aðra sálma og færast undan að svara með því að spyrja: „af hverju talarðu ekki um þetta?“
En í þessu tilviki var ekki einu sinni um neitt sambærilegt að ræða.
Hér mun Þorgerður Katrín vera að vísa til deilingar Ólafs Ragnars Grímssonar á samfélagsmiðlinum X á tilvísun utanríkisráðuneytis Rússlands á sama miðli í grein eftir Lavrov. Hún hafði gert þetta að umtalsefni í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni 18. október en sagt er frá því í Morgunblaðinu sama dag þar sem ummæli Ólafs Ragnars eru einnig birt. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins gagnrýndi hún hann „fyrir að taka undir málflutning Sergeis Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, um aðgerðir Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðum“.
Þegar að er gætt sagði Ólafur Ragnar ekki annað en þetta: „For all involved and interested in #Arctic – #geopolitical affairs this declaration by #Lavrov is a key document.“
Hvort hann sé með þessu að „taka undir málflutning Sergeis Lavrovs“ verður hver að dæma fyrir sig.
Grein Lavrovs má lesa á vef utanríkisráðuneytis Rússlands. Og hún er reyndar um ýmislegt fleira en aðgerðir NATO á norðurslóðum, það er til dæmis athyglisvert sem Lavrov segir um aukið samstarfi Rússlands við Kína, Indland og fleiri BRICS-lönd varðandi norðurslóðir. Mér þykir það nokkuð umhugsunarvert. Hvort þessi grein er beinlínis „lykilskjal“ (a key document) skal ég ekki segja, en hún er allrar athygli verð.
Hvað sem Ólafi Ragnari gekk til með að vekja athygli á grein Lavrovs má segja að það hafi raunar verið mjög eðlilegt.
Ekkert ríki hefur í rauninni jafnmikla hagsmuni varðandi þær breytingar sem eru hafnar á norðurslóðum og Rússland. Mikilvægur hluti þessara breytinga er æ meira ísleysi norðan Síberíu, sem er hluti Rússlands, sem gerir hina löngu strandlengju Rússlands opna fyrir skipaumferð. Eftir innrásina í Úkraínu drógu hin ríki Norðurskautsráðsins mjög úr samstarfi við Rússland og með inngöngu Finnlands og Svíþjóðar eru öll aðildarríki ráðsins nema Rússland í NATO. Og meðan Rússland er meira og minna einangrað í ráðinu færist viðbúnaður NATO á norðurslóðum í aukana og spenna milli Rússlands og NATO fer vaxandi.
Það er satt að segja mjög einkennilegt ef utanríkisráðherrum NATO-ríkjanna á norðurslóðum þykir ekki forvitnilegt hvað utanríkisráðherra Rússlands hefur að segja um málefni norðurslóða og telja það einhverja goðgá að sérstakur áhugamaður um norðurslóðir, maður sem stendur að baki hinu merka framtaki Arctic Circle, veki athygli á grein hans. Og að það þýði að hann taki þá endilega undir allt sem í greininni stendur.
Hvort það á við um fleiri utanríkisráðherra en þann íslenska veit ég ekki.










