Ný stefna Írans gæti breytt stöðunni í Miðausturlöndum
—

Larry Johnson
10. jún, ’26

Íran segist ekki lengur ætla að bíða eftir ógnunum, heldur lýsir yfir nýrri svæðisbundinni varnarstefnu, að sögn Sadeq Larijani. Larijani er áhrifamikill íranskur sjía-klerkur, íhaldssamur stjórnmálamaður og háttsettur innan íranska stjórnkerfisins. Hann er þekktastur fyrir að hafa gegnt embætti yfirdómara (yfirmaður dómskerfisins) í Íran frá 2009 til 2019 og sem formaður Ráðgjafarráðsins (Expediency Discernment Council) frá lokum árs 2018. Bróðir hans, Ali Larijani, sem nú er látinn, var þingforseti og þjóðaröryggisráðgjafi æðsta leiðtogans áður en hann var drepinn af Ísrael. Larijani-fjölskyldan er trúarlegur og pólitískur aðall í Íran.

Sérhverri árás á Andspyrnuöxulinn nú svarað frá Íran

Sem núverandi formaður Ráðgjafarráðs Írans tilkynnti Larijani formaður að íhlutun Teherans til stuðnings Líbanon væri formleg yfirlýsing um nýja hernaðarkenningu. Samkvæmt þeirri kenningu munu árásir á hvaða hluta Andspyrnuöxulsins sem er (einkum á Hizbollah og Palestínumenn) kalla á svör frá Íran sem ná út fyrir landfræðileg mörk og endurreikna svæðisbundnar valdajöfnur. Íran útvíkki þannig fælingu sína.

Larijani útskýrði að Íran væri komið á nýtt stig þar sem það bíður ekki lengur eftir að ógnir komi fram áður en gripið er til aðgerða til að vernda svæðisbundna stöðu sína, heldur muni það taka frumkvæðið. Hann varaði einnig við því að hvers kyns stigmögnun átakanna eða árás á mikilvæga íranska innviði yrði mætt með alhliða og fælandi viðbrögðum. 

Ný krafmikil breyta í Levant-löndunum

Þetta kynnir nýja, kraftmikla breytu inn í útreikningana fyrir Levant-löndin við Miðjarðarhafsbotninn [Levant-lönd: einkum Palestína, Ísrael, Jórdanía, Líbanon, Sýrland]. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun íslamska lýðveldisins árið 1979 sem Íran hefur beinlínis skuldbundið sig til að grípa til hernaðaraðgerða fyrir hönd Hezbollah og líbönsku þjóðarinnar auk Palestínumanna. Íhaldssama ísraelska dagblaðið Israel Hayom greindi frá því að öryggisfulltrúar hefðu viðurkennt að Ísrael hefði ekki búist við því að Íran myndi fylgja hótunum sínum að fullu eftir en það hjefði verið misreikningur. Fram kom gremja yfir því að Íran hefði sett skilmálana með nýju „jöfnunni“, og að Ísrael hefði staðið frammi fyrir þrýstingi (meðal annars frá Bandaríkjunum/Trump) um að takmarka viðbrögð sín til að forðast allsherjarstríð.

Ísrael hélt áfram árásum sínum í suðurhluta Líbanon á mánudag, réðst á borgina Týros og drap marga almenna borgara. Enn sem komið er hefur Íran ekki brugðist við því. Ef Ísrael heldur þessum árásum áfram munum við komast að því hvort herra Larijani hafi verið með innantóma hótun eða hvort Íran sé alvara með að refsa Ísrael með nýrri flugskeytaárás fyrir árásir sínar á líbanska almenna borgara.

Pakistan reynir að miðla málum

Á sama tíma staðfesti sendiherra Írans hjá Sameinuðu þjóðunum í dag að Pakistan gegni lykilhlutverki í tilraunum til að miðla friðarsamkomulagi milli Írans og Bandaríkjanna. Sendiherra Írans hjá SÞ, Amir-Saeid Iravani, sagði:

Við höfum ekki enn náð endanlegum texta, en við erum að vinna að honum.

Bandaríkin og Íran eru að leggja fram og skiptast á skoðunum til að ná endanlegum texta með milligöngu Pakistans.

Ísrael eflir njósnir sínar

Þetta staðfestir að hluta til fréttina sem Pepe Escobar og ég fluttum síðasta mánudag og er í samræmi við nýlega fullyrðingu Donalds Trump um að Bandaríkin og Íran séu að nálgast samkomulag um að binda enda á stríðið. Þetta útskýrir einnig hvers vegna Ísrael, samkvæmt nýlegri frétt NY Times, hefur eflt njósnir sínar um lykilmenn í stjórn Trumps til að komast að smáatriðum fyrirhugaðs samkomulags.

Fyrrverandi lögmaður Trumps, Robert Barnes, sagði í Jim Webb hlaðvarpinu í dag (Jim Webb podcast) að samningamenn Bandaríkjanna og Írans hefðu náð samstöðu um sex aðskilin viljayfirlýsingar-skjöl á síðustu þremur mánuðum og að Trump hefði hafnað hverju og einu á síðustu stundu. Við munum sjá hvort það nær í mark að þessu sinni.

Annar annasamur hlaðvarpsdagur í dag. Judge Napolitano og ég ræddum njósnir Ísraels um stjórn Trumps

 
Grein þessi birtist á hlaðvarpi Larry Johnson, SONAR21 þann 9. júní:  Iran’s New Policy Could Be a Middle East Game Changer

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.