Hvernig borðar maður spægipylsu?
—

Ögmundur Jónasson
27. mar, ’26

Ég er ekki með nýja uppskrift. Í rauninni ekki að segja neitt nýtt. Allir vita að spægipylsu setja menn ekki á matardiskinn heila og eina sér. Hún er jafnan sneidd í þunnar sneiðar, yfirleitt sett á ofan brauð og þá oft með einhverju öðru ljúfmeti. Og viti menn, svo ljúffeng getur samsetningin orðið að fyrr en varir er spægipylsan horfin af matardiskinum og ofan í magann. Ekki á svipstundu, heldur gerist allt smám saman. Það er lykillinn.

Þann lykil hefur ríkisstjórn Íslands fundið til þess að fá þjóðina til að fallast á að Ísland verði innlimað í evrópskt stórríki með tilheyrandi skerðingu á fullveldi landsins. Enginn smábiti þar, enda ljóst að drjúgur hluti þjóðarinnar tekur ekki í mál að gleypa við honum. Þá er bara að sneiða niður. Og kannski má finna eitthvað bragðaukandi – síðast voru það svokallaðir IPA-aðlögunarstyrkir (Instrument for Pre-accesion Assistance).

Spægipylsuvegferðin er þegar hafin. Utanríkisráðherra vor mundaði þannig undirskriftapennann í maímánuði síðastliðnum suður í Brussel og samþykkti að Íslendingar myndu samsama stefnu sína í utanríkismálum stefnu Evrópusambandsins og það sem meira er, Íslendingar myndu taka þátt í öllum efnahagsþvingunum sem ESB kynni að beita einstök ríki. Við þekkjum þessa aðferð sem mannréttindastofnanir telja að hafi drepið fleira fólk og valdið meiri hörmungum og þjáningum en stríðsrekstur þegar litið sé til síðustu áratuga. Þarna hafa Bandaríkin og Evrópusambandið verið sérlega aðgangshörð í langan tíma og hvergi hirt um að þessar þvinganir hafa sjaldnast verið í samræmi við alþjóðalög. Ríkisstjórnin okkar ætlar með öðrum orðum að vera þarna með í för. Svo þunn þótti þó þessi sneið pylsunnar vera, að ekki tæki því að eiga við þjóðina orðastað um hana.

Annað mætti nefna og það er undirskrift sjávarútvegsráðherrans frá því í júlí síðastliðnum um aðkomu ESB að sjávarútvegsmálum Íslands, einkum deilistofnum. Nýlega eftirgjöf í makrílsamningum túlkuðu margir sem eins konar manndómsvígslu.

En svo kemur stóra ákvörðunin, þjóðaratkvæðagreiðsla í haust um viðræður við ESB. En um hvað? Alls ekki neitt endanlegt! Varla nokkuð sem orð sé á gerandi, í rauninni bara könnun á því hvað sé í boði. Eða hvað?

Hér er byggt á reynslu frá árunum 2008 og 2009. Í skoðanakönnunum sem voru gerðar þegar þjóðin var nánast í áfalli í upphafi efnahagshrunsins mældist yfir 70% stuðningur við ESB aðild og jafnvel evru. Þegar leið að vori árið eftir var stuðningurinn í rénun en yfir 60% vildu enn viðræður – en vel að merkja aðeins könnunarviðræður því að þegar spurt var um aðild féll stuðningurinn enn niður og var nú orðið jafnt á með fylkingum. Enn átti stuðningurinn eftir að dvína þegar harðneskja ESB gagnvart Íslandi kom í ljós í Icesave deilunni, makríldeilunni og fleiru sem upp á kom.

Og hér erum við komin að hinum afgerandi þröskuldi. Hvernig megi komast yfir hann, sannfæra fólk um að saklaust og skuldbindingalaust sé að setjast að samningaborði og fá fram hverju hægt sé að landa þar umfram lög og regluverk ESB. Ef ekkert væri að hafa væri verkefnið einfaldlega að útskýra regluverkið og taka afstöðu til þess hvort við viljum heyra undir það. Kristrún forsætisráðherra segir ESB andstæðinga ekki treysta dómgreind þjóðarinnar. Þessu er öfugt farið. Það er dómgreind ríkisstjórnarinnar sem talið er að ekki sé treystandi á. Og það sem verra er, að reynt sé að afvegaleiða og blekkja þjóðina.

Þetta er þá deilan. Annars vegar segja stjórnvöld að í samningaviðræðum megi ná fram raunverulegum og varanlegum undanþágum fyrir Íslendinga. Síðan eru það hinir – og þeir finna fyrir samhljóm frá Brussel! – sem segja þetta vera blekkjandi tal; um sé að ræða aðlögun að laga- og regluverki ESB og það eina sem semja megi um séu innleiðingin, frestir og aðlögunarsvigrúm, en ekki sé um varanleg frávik að ræða. Endanlegt vald hvíli hjá Evrópusambandinu.

Ef þetta er svo, er eðlilegt að ríkisstjórnin geri grein fyrir því hvaða varanlegar undanþágur hún hafi í huga, með öðrum orðum hver séu markmið hennar við samningaborðið. Hvað er það nákvæmlega sem hún ætlar að kanna? Hverju hyggst hún ná fram og hvað mun hún ekki samþykkja? Það er grundvallaratriði að ríkisstjórnin svari þessu skýrt og skilmerkilega.

Eftir að ríkisstjórnin hefur gert hreint fyrir sínum dyrum gætum við látið lokið umræðu um einstakar sneiðar og tekið til við að ræða um pylsluna í heild sinni.

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 21/22.03.26

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.