Á enn eftir að sjá snilldina í þessu
—

Erna Ýr Öldudóttir
6. mar, ’26

Mynd: Stúlknaskólinn í bænum Minab sem sprengdur var ásamt um 160 stúlkum.

Gárungar hafa uppnefnt gjörsamlega misheppnaða hernaðaraðgerð ríkisstjórnar Donalds Trump í Íran, Epic Fury, „Epsteins Fury“. Bandaríkin og Ísrael eru nú nefnd Epstein-bandalagið um heim allan. Íranskur embættismaður sagði í viðtali að þjóðin hans væri nú í átökum við menn sem ýmist drepa litlar stúlkur eða nauðga þeim – og það virðist vera meira en lítið sannleikskorn í því. Viðurstyggilegir stríðsglæpir bandalagsins alræmda staflast upp, engin virðing er þar borin fyrir þeim mannslífum sem áður þurfti svo bráðnauðsynlega að „frelsa“ frá „klerkastjórninni“. Tíu milljón manna höfuðborg Írans hefur verið teppasprengd með manni og mús undanfarna daga af Epstein-bandalaginu. Ómetanlegir menningardýrgripir síðustu 5000 ára liggja undir skemmdum og eyðileggingu vegna árása Epstein-bandalagsins – þeirra á meðal fornar og fagrar kirkjur kristinna manna.

Epstein-bandalagið tapaði strax fyrsta daginn, þegar þeir gerðu trúarleiðtoga Sjía-múslíma að píslarvotti með því að myrða hann á heimili sínu, haldandi að raunveruleikinn sé eins og James Bond bíómynd og endirinn eins og Hollýwood mynd. Ef Ali Khamenei hefði verið allsherjargoði Ásatrúarfélagsins, þá sæti hann nú að veislu í Valhöll, í stað þess að lognast útaf í kör, 86 ára gamall og með krabbamein. Khamenei rakti ættir sínar til spámannsins Múhameðs í 38. lið og hefur hlotið æðsta mögulega hetju- og píslardauða, eins og hann hefði sjálfur óskað sér. Hann afþakkaði öll boð um að flýja land eða fara í felur, með þeim orðum að hann vildi vera með þjóðinni sinni á ögurstundu – á meðan Netanjahú flúði til Þýskalands við fyrsta hvell. Klerkar víða um heim hafa nú boðað heilagt stríð til að hefna síns heilaga manns. Áður sundraðar þjóðir hafa fundið sér sterkt sameiningartákn og fyrirmynd í píslarvættinu. Íranir eru sameinaðir sem aldrei fyrr.

Eins og það sé ekki nógu slæmt fyrir Epstein-bandalagið, þá versnar málið enn. Jemenar, sem fyllst hafa frekari eldmóði (ef það var þá mögulegt) við píslardauða Khameneis og munu loka Rauðahafinu fyrir skipaumferð. Íranir hafa lokað Hormuz-sundinu. Íranir hafa eyðilagt radarsjón, herstöðvar, hafnir og flugvelli Bandaríkjanna í nágrannaríkjunum með drónum og öðrum eldflaugum sem þeir eiga ein reiðarinnar ósköp af. Olíubirgða- og vinnslustöðvar Arabaríkjanna sæta sprengjuárásum og eru meira eða minna lokaðar eða að loka. Allir skattfrjálsu milljarðarnir eru á harðahlaupum frá OnlyFans- og Instagram borginni Dúbæ, ýmist með rútu eða á úlfalda þar sem að farþegaflug liggur niðri á öllu svæðinu. Ferðamannaiðnaðurinn er stopp. Valdamiklir milljarðamæringar eru að tapa gríðarlegum auðæfum og bandamönnum Epstein-bandalagsins finnst þeir hafa verið sviknir af „friðarljósinu“ Donald Trump. Kjósendur hans og aðdáendur um allan heim eru stjarfir af undrun og vonbrigðum.

Afleiðingin gæti orðið:

– Bandarískir, ísraelskir og sumir evrópskir ríkisborgarar gætu nú verið í hættu úti um allan heim

– Bandaríkjadollar, sem borinn er uppi af olíu og gasi úr Arabaríkjunum, gæti hrunið með miklum látum

– Allt að 80% af matvælum og vatni í Arabaríkjunum eru háð flutningum um áðurnefnd skipasund

– ESB, sem skrúfaði fyrir Rússland, fær ekki lengur gas frá Katar og þarf þá endanlega að slökkva ljósin

– Verslun Evrópu við Asíu með flestar vörur stöðvast eða þarf að sigla suður fyrir Afríku

– Olíuverð hækkar óskaplega

– Milljónir flóttamanna byrja að hafa sig af stað til Evrópu

Eins og ég segi, ég á enn eftir að sjá snilldina í þessu, kannski þarf ég bara að poppa meira og fylgjast með gangi málanna áfram. En Trump var ekki grobbinn síðast þegar ég sá til hans. Stríðsmálaráðherrann Hegseth virtist vera genginn af göflunum. Bandarískur fréttamaður spurði Araghchi utanríkisráðherra Írans hvort þeir óttuðust ekki að Bandaríkin gengju á land í Íran með herlið sitt. Maðurinn svaraði rólega: „Nei, við bíðum eftir að þeir geri það“. https://x.com/disclosetv/status/2029609861902696499

Þessi pistill er fésbókarfærsla 5/3 fenginn af fésbók Ernu Ýrar Öldudóttur

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.