Vinstrið á að styðja sjálfsákvörðunarrétt Írans
—

Andri Sigurðsson
11. jan, ’26

Ísrael lítur á Íran sem sinn helsta andstæðing í vestur Asíu og Bandaríkin hafa lengi viljað steypa hinni svokölluðu klerkastjórn sem hefur verið einn öflugasti bakhjarl Palestínu og baráttunnar gegn heimsvaldastefnunni síðustu árin. Íran er eitt fárra landa sem hefur reynt að styðja Palestínu í verki. Það er erfitt að sjá hvað er að gerast þarna núna en ég get fullyrt að almenningur í Íran er ekki sameinaður gegn stjórnvöldum. Árás Ísraels og BNA í fyrra jók stuðning við stjórnvöld af augljósum ástæðum. Alveg eins og árásin á Venesúela mun auka stuðning við Chavismo hreyfinguna.

Ég sé að margt fólk er að túlka lokun internetsins í landinu sem merki um að stjórnin sé að fara að fremja voðaverk. Vandinn er að þetta gæti allt eins verið leið fyrir Íran til að verja sig gegn tilraunum Ísraels til að skapa upplausn í landinu og á endanum freista þess að fremja einhverskonar valdarán/valdaskiptaaðgerð til að koma að stjórnvöldum hliðhollum Ísrael og Vesturlöndum.

Trump segir á samfélagsmiðlum í dag að Íranir séu að leita að frelsi og að Bandaríkin séu tilbúin að hjálpa. Mike Pompeo fyrrverandi utanríkisráðherra sagðist á X fyrir nokkrum dögum óska Írönum sem mótmæltu gleðilegs nýs árs og líka „Mossad-útsendurunum sem gangi við hlið þeirra“. Samt er ekkert í Íslenskum miðlum um aðkomu heimsvaldasinna að þessum atburðum. Enda er heimsvaldastefnan einfaldlega ekki til í vestrænum fjölmiðlum. Bara í gær kom fram í Heimildinni að forsætisráðherra okkar „treysti“ Bandaríkjunum. Eftir allt sem á hefur gengið valdi hún þennan tímapunkt til að lýsa yfir stuðningi og trausti við Trump stjórnina.

Nei, Íran er ekki illt land, sósíalíska ríkisstjórn Venesúela er ekki ill og ekki Maduro heldur. Rússland er ekki illt land. Kína er ekki ólýðræðislegt einræðisríki. Gaddafi var ekki illmenni. Það voru engin útrýmingarvopn í Írak. Hamas nauðgaði ekki konum 7. október eða setti börn í ofna. Maduro er ekki eiturlyfjasmyglari. Donald Trump og ríkisstjórn hans eru hins vegar núna að réttlæta aftökur lögreglunnar og ICE á saklausum borgum í Minnesota. Samt kalla fjölmiðlar hann ekki harðstjóra.

Bandaríkin vilja veikja Íran því Íran er sjálfstætt ríki sem hefur neitað að beygja sig undir vilja Bandaríkjanna. Íran hefur líka yfir að ráða olíu og auðlindum og er hernaðarlega mikilvægt í áætlunum Bandaríkjanna við að einangra Kína.

Ekkert af þessu þýðir að ég styðji hugmyndafræði eða allt sem írönsk stjórnvöld geri. Slíkar ásakanir eru barnalegur og einfeldningslegur útúrsnúningur. Ég er sósíalisti, stjórnvöld í Íran eru ekki sósíalísk. Ég styð einfaldlega sjálfsákvörðunarrétt þjóða og sagan sýnir okkur að Bandaríkin hafa oft og mörgum sinnum notað óeirðir og mótmæli ákveðinna hópa innan þessara landa til að brjóta þau upp, grafa undan og fella, svo hægt sé að koma að stjórnvöldum hliðhollum Bandaríkjunum og Vesturlöndum. Bandaríkin hafa æði oft fjármagnað og skapað óeirðir í þessum tilgangi.

Því miður eru sósíalistar oft einir í því að mótmæla yfirgangi Bandaríkjanna, kratar eru oftar en ekki í stuðningsliði heimsveldisins með einum eða öðrum hætti. Segjast vera á móti íhlutunum Bandaríkjanna en endurvarpa áróðrinum gagnrýnislaust. Maduro er einræðisherra segja þeir allir í kór líkt og um einhverskonar trúarjátningu sé ræða. Líkt og Bernie Sanders í gær á X, hann byrjaði færslu sína um Venesúela bókstaflega á línunni: „Maduro is a dictator“. Lygar til að réttlæta yfirgang og blóði drifna sögu heimsveldisins.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.