Uppreisn suðursins – getur BRICS veikt yfirdrottnun Alþjóðabankans og AGS?

Júlíus K Valdimarsson
28. ágúst, 2023

Þann 24. ágúst sl. var haldinn heimssögulegur fundur BRICS landanna (Brasilíu, Rússlands, Indlands, Kína og Suður Afríku) í Jóhannesarborg í Suður Afríku þar sem 6 ný lönd bættust í hópinn. Þessi nýju lönd eru Sádi-Arabía, Egyptaland, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Argentína, Íran og Eþíópía.

Lítið hefur sést um þennan fund á meginstraumsfjölmiðlum Vesturlanda og er RÚV og aðrir skyldir íslenskir miðlar meðtaldir. Gott dæmi um undantekningu frá þessari meginreglu er pistill Kristins Hrafnssonar sem hann skrifaði á fésbókarsíðu sinni þann 24. ágúst sl.

Í pistli sínum fjallar Kristinn um heimssögulegt mikilvægi þessa fundar og grípur m.a. í því samhengi til líkingar við jarðsögulegar flekahreyfingar, hann skrifar: 

„Gríðarlegur áhugi á BRICS klúbbnum endurspeglar að hluta þessar flekahreyfingar en nú stendur yfir leiðtogafundur ríkjanna fimm sem standa að sambandinu (Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka). Um 40% af íbúum Jarðar tilheyra þessum 5 ríkjum og um fjórðungur af landsframleiðslu heimsins er í þessum löndum. Þessi ríkjahópur er rísandi og ef fram fer sem horfir stækkar hópurinn á næstu árum. Alls hafa 40 ríki lýst áhuga á að verða meðlimir BRICS og hafa 23 lönd þegar sótt um aðild.“ 

Og hann bætir við stuttu síðar: „Bandaríkin eru að missa tökin og hvert sem litið er, til Rómönsku Ameríku, Afríku og rísandi ríkja í Asíu sprettur fram einhver feginleiki við að losna undan þeim ofurtökum.“

Norski rannsóknarblaðamaðurinn Pål Steigan fjallar einnig um fundinn í Suður Afríku á vefsíðu sinni, fyrirsögn greinar hans er „BRICS skrifar veraldarsöguna“. Steigan skrifar m.a.:

„Með fjölgun BRICS landanna um hin sex nýju aðildarlönd mun hópurinn hafa stjórn á um 80% af olíuframleiðslu heimsins og standa fyrir 31,7% af landsframleiðslu heimsins (á móti 30% G7 landanna) sem svarar til um 30.000 milljarða Bandaríkjadollara. BRICS+ mun jafnframt ná til 46% af íbúum jarðarinnar.

Hinir nýju meðlimir eru Sádi-Arabía, Egyptaland, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Argentína, Íran og Eþíópía. Með þeim löndum sem fyrir voru verða þannig 11 lönd aðilar að BRICS sem  þýðir jafnframt að 3 lönd í Afríku verða aðilar að hópnum. Þetta er í góðu samræmi við þær spár að árið 2050 muni fjórðungur íbúa jarðar búa í Afríku.“

En Róm varð ekki til á einum degi og sama gildir um þann magnaða  árangur sem kynntur var til sögunnar þessu sinni á 15. fundi BRICS í Jóhannesarborg þann 24. Ágúst sl.. Það hefur verið markvisst unnið að þessum nýja valkosti við einráða Hegemony Bandaríkjanna eða frá því um og upp úr síðustu aldamótum einkum til mótvægis við fjármálastofnanirnar sem BNA hefur komið á fót eins og Alþjóðabankanum og AGS Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og sem haldið hafa heiminum í heljargreipum hátt í hálfa öld eða allt frá lokum kaldastríðsins.

Til þess að gefa mynd af þessu magnaða ferli á fyrsta fjórðungi 21. aldarinnar deila Neistar hér grein af Pressenza fréttaveitunni frá því í mars sl. eftir Dr. Ramzy Baroud sem áður hafði verið birt á Countercurrents. Í þessari grein rekur Dr. Baroud tildrög og ástæður þess að upphafslöndin 5 hófu sína vegferð og hvert þau stefna.

Uppreisn suðursins – getur BRICS veikt yfirdrottnun Alþjóðabankans og AGS?

Hver hefði búist við því að BRICS-ríkin gætu risið upp sem hugsanlegur keppinautur G7 ríkjanna, Alþjóðabankans og AGS til samans? En sá möguleiki, sem áður virtist fjarlægur, hefur nú raunverulegar horfur sem gætu breytt pólitísku jafnvægi í heimspólitíkinni.

BRICS er skammstöfun fyrir Brasilíu, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríku. Hún var talin búin til af aðalhagfræðingi Goldman Sachs árið 2001, sem tilvísun í vaxandi hagkerfi heimsins. Fyrirbrigðið var þá þekkt sem BRIC, en „S“ bætt við síðar, þegar Suður-Afríka gekk formlega í hópinn árið 2010.

Fyrsti opinberi leiðtogafundur BRIC fór fram árið 2009. Þá virtist umræðan að mestu leyti óhlutbundin. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 2014 að BRICS fór að taka alvarleg skref í átt að aukinni sameiningu, þ.e. þegar upphafsbandalagið, þá ásamt Suður-Afríku, setti af stað Nýja þróunarbankann með stofnfjármagni upp á 50 milljarða dollara. Þessi ákvörðun þýddi að hópurinn væri nú tilbúinn að stíga sín fyrstu raunverulegu skref í átt til þess að ögra yfirráðum Vesturlanda yfir alþjóðlegum peningastofnunum, nánar til tekið Alþjóðabankanum og AGS.

Hin heimspólitísku hnattrænu átök færðust síðar til, breyting sem stafaði af stríðinu milli Rússlands og Úkraínu, en þau átök reyndust hins vegar verða drifkrafturinn á bak við hina miklu stækkun sem var í gangi hjá BRICS, sérstaklega eftir því sem fjársterk lönd tóku að sýna framtakinu áhuga. Meðal þessara landa eru Argentína, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Mexíkó, Alsír og sérstaklega Sádi-Arabía.

Nýlegar fjárhagsskýrslur benda til þess að BRICS standi nú þegar fyrir mestri þjóðarframleiðslu á heimsvísu, þar eð það leggur nú 31,5% til heimsframleiðslunnar, eða meira en G7, sem leggur til 30,7%.

Eitt af stærstu tækifærunum og áskorunum sem BRICS stendur frammi fyrir núna er hæfni þess til að stækka aðildargrunn sinn á sama tíma og  það viðheldur núverandi vexti. Markmiðið um að hjálpa nýjum meðlimum að viðhalda efnahagslegu og pólitísku sjálfstæði er sérstaklega mikilvægt.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn eru alræmdir fyrir að byggja peningalegan stuðning sinn við lönd, sérstaklega í hnattræna suðurhlutanum, á pólitískum skilyrðum. Þessi afstaða er oft sett fram og réttlætt undir yfirskyni mannréttinda og lýðræðis, þó að hún sé í raun algjörlega tengd einkavæðingu og opnun markaða fyrir erlenda fjárfesta – lesist vestræn fyrirtæki.

Eftir því sem BRICS styrkist mun það hafa möguleika á að hjálpa fátækari löndum án þess að ýta undir sjálfhverfa pólitíska dagskrá eða óbeina ráðskun og stjórn á staðbundnum hagkerfum.

Þar sem verðbólga er að herja á mörg vestræn ríki, sem aftur leiðir til minni hagvaxtar og félagslegar ólgu, nota þjóðir í hnattræna suðurhlutanum þetta sem tækifæri til að þróa eigin efnahagslega valkosti. Þetta þýðir að hópar eins og BRICS munu hætta að vera eingöngu efnahagslegar stofnanir. Baráttan er nú mjög pólitísk.

Í áratugi hefur stærsta vopn Bandaríkjanna verið dollarinn sem með tímanum hætti að vera venjulegur gjaldmiðill sem slíkur, en varð raunveruleg verslunarvara. Stríð hafa verið háð til að tryggja að lönd, eins og Írak og Líbýa, haldi áfram að skuldbinda sig við dollara. Eftir innrás Bandaríkjanna í Írak í mars 2003 fór Bagdad aftur að selja olíu sína í Bandaríkjadölum. Þessi barátta um yfirráð dollars var einnig sársaukafull í Venesúela, sem hefur stærsta olíubirgðaforða heims, en var samt sem áður færð niður í sára fátækt fyrir að reyna að ögra yfirburðum Washington sem gjaldmiðils.

Þó það taki tíma er ferlið við að draga úr þeirri stöðu að vera háður Bandaríkjadollara nú í fullum gangi.

Þann 30. mars tilkynntu Brasilía og Kína um viðskiptasamning sem myndi gera þeim kleyft að nota innlenda gjaldmiðla landanna tveggja, júan og reais, gagnkvæmt. Þetta skref mun reynast afdrifaríkt, því það mun hvetja önnur Suður-Ameríkuríki til að fylgja í kjölfarið. En þessi aðgerð var hvorki fyrsta skrefið né það síðasta sinnar tegundar.

Ein helsta ákvörðun fjármálaráðherra og seðlabankastjóra Samtaka Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN) í kjölfar fundar þeirra 30.-31. mars í Indónesíu er, að dregið verði úr því hve háð ríkin eru  Bandaríkjadal. Þeir voru sammála um að „efla fjárhagslegt viðnám … með því að nota staðbundinn gjaldmiðil til að styðja við viðskipti og fjárfestingar yfir landamæri á ASEAN svæðinu. Þetta breytir líka leiknum.

Einkum eru það BRICS löndin sem leiða baráttuna og hafa sett sér að þjóna sem fyrirgreiðsluaðilar (facilitors) við að endurskipuleggja efnahags- og fjármálakort heimsins.

Á meðan Vesturlönd eru upptekin við að reyna að halda eigin hagkerfum gangandi, eru þau enn á varðbergi gagnvart breytingunum sem eru í gangi á hnattræna suðurhlutanum. Washington og aðrar vestrænar höfuðborgir hafa áhyggjur. Þær ættu að hafa þær.

Eftir fund Joe Biden Bandaríkjaforseta og 40 leiðtoga Afríku í Hvíta húsinu í desember síðastliðnum var ljóst að Afríkuríkin höfðu engan áhuga á að taka afstöðu í yfirstandandi stríði í Úkraínu. Í ljósi þessa flaug Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna til Afríku 26. mars til að hitta leiðtoga í Afríku, í þeim eina tilgangi að ýta þeim burtu frá Kína og Rússlandi. Líklegt er að sú viðleitni mistakist.

Fullkomið dæmi um neitun Afríku á að yfirgefa hlutleysi sitt er blaðamannafundur Harris og forseta Gana, Nana Akufo-Addo, þann 28. Mars sl.; „ það kann að ríkja þráhyggja í Bandaríkjunum varðandi athafnir Kína í okkar heimsálfu, en það ríkir engin þráhyggja hér“, sagði Akufo-Addo við fréttamenn.

Að halda því fram að BRICS sé eingöngu efnahagslegur hópur er að hunsa stóran hluta sögunnar. Tímasetning útþenslu BRICS, harðorð pólitísk umræða meðlima þess, mögulegir nýir meðlimir og bandamenn, endurteknar heimsóknir háttsettra rússneskra og kínverskra stjórnarerindreka til Afríku og annarra svæða í hnattræna suðurhlutanum, o.s.frv., benda til þess að BRICS sé orðið hinn nýji vettvangur  í suðurhlutanum, vettvangur fyrir geopólitík, hagkerfi og diplómatíu.

Því farsælli sem BRICS verður, þeim mun veikari verða yfirráð Vesturlanda yfir ríkjunum í suðri. Þó sumir vestrænir stjórnmálamenn og fjölmiðlar kappkosti við að gera lítið úr hlutverki BRICS í mótun hinnar nýju heimsskipunar, virðist breytingin vera raunveruleg og óafturkræf.

Dr. Ramzy Baroud er blaðamaður, höfundur og ritstjóri The Palestine Chronicle. Hann er höfundur sex bóka. Síðasta bók hans, gefin út ásamt Ilan Pappé, er “Our Vision for Liberation: Engaged Palestinian Leaders and Intelectuals Speak Out“. Meðal annarra bóka hans eru “My Father was a Freedom Fighter“ og “The Last Earth“. Baroud er “a Non-resident Senior Research Fellow“ við The Center for Islam and Global Affairs (CIGA). Heimasíða hans er ramzybaroud.net

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.