Til íhugunar um ESB klúbbinn
—

Ögmundur Jónasson
5. sep, ’26

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. Mættir á fundinn gegnum fjarfundarbúnað voru Alfred de Zayas, Husseyin Dogru, Thomas Fazi og Jeffrey Sachs. Þá umræðu tel ég eiga mikið erindi við alla þá sem greiða atkvæði um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Inngangur (brot)

Augnablik sem allur heimurinn deilir getur breytt þeim heimi; ljósmynd af lítilli stúlku brennandi eftir napalm-árás gerði einmitt það. Víetnamstríðinu lauk ekki þar með, en heimurinn var vaknaður; á Vesturlöndum fóru milljónir manna út á götur og kröfðust afvopnunar og friðar, og í Austurblokkinni voru einnig mótmæli; fólk vildi meira frelsi, frelsi og frið – friðsælt frelsi; og lýðræðisbylgjurnar skoluðu leiðtogum heimsveldanna til Höfða í Reykjavík; það var ekki þeirra frumkvæði, frumkvæðið kom frá grasrótinni.
En „her-iðnaðarsamsteypan“ var ekki ánægð.
Hún fann svar við þessu í orðum rómverska lögspekingsins Cíceró: „á stríðstímum þagna lögin“.
Og þá þurfti stríð.
Og við fengum stríðið, stríðið gegn hryðjuverkum.
Og heimurinn þagnaði, eða öllu heldur var hann þaggaður niður.
Föðurlandslögin (e. Patriot Act) tóku gildi og við fengum Guantanamo.

Ég held það hafi verið Jeffrey Sachs sem vakti athygli mína á Cíceró; það gæti eins hafa verið Alfred de Zayas – hver sem það var þá tala þeir einni röddu um þessi mál. Báðir hafa verið mér og fólki um allan heim innblástur. Svo hefur einnig Thomas Fazi verið, sem einnig talaði á fundinum.

Nú notar Evrópusambandið sömu aðferðir og þeir notuðu þeir Bush yngri, Rumsfeld og Cheney.
Rússland er óvinurinn sem á að réttlæta harkalegar aðgerðir gegn öllum þeim sem þora að gagnrýna utanríkis- og hernaðarstefnu ESB. Sama gildir um NATO og ríki utan ESB í því hernaðarbandalagi.

Sú „refsiaðgerðastefna“ (sanctions policy) gegn einstaklingum, sem nú er framfylgt, er útskýrð á opinberri vefsíðu ESB: Þvingunum er ekki ætlað að vera „refsandi“ heldur aðeins leiðbeining um hvernig eigi að hugsa og hvernig eigi að bregðast við! Eins og ég sé það er þetta orðaforði valdboðsríkis eða lögregluríkis í mótun. Viðtalið við þýska blaðamanninn Husseyin Dogru ber þessu vitni.

Hugmyndin er að skapa undirgefni sem byggir á ótta. Og þar með eru dyrnar opnaðar fyrir „her-iðnaðarsamsteypunni“ til að taka forræðið eins og Eisenhower hafði varað við þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna árið 1961. Heimurinn er að breytast eða réttara: það er verið að breyta honum. Það á svo sannarlega við um Evrópusambandið.

Ég bað Alfred de Zayas, rithöfund og fræðimann og fyrrverandi óháðan sérfræðing Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega skipan, að útskýra (á 22:20 mínútu). Síðan kemur Husseyin Dogru (28:10), fórnarlamb viðskiptaþvingana ESB, þá Thomas Fazi, (34:95) ítalskur sérfræðingur um alþjóðamál sem er heimsþekktur, og loks Jeffrey Sachs (39:10), prófessor við Columbia-háskóla í New York, sem varla þarf að kynna. Velkomin þið öll á fundinn hér:

Grein þessi og upptakan af fundinum birtist á heimasíðu Ögmundar Jónassonar https://www.ogmundur.is/ þann 28. ágúst.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB

Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB

Jón Ferdínand Estherarson

Þessa dagana fnæsa margir á hinni pólitísku miðju af gremju í hvert sinn sem færð eru rök gegn ESB frá vinstri hlið stjórnmálanna. Þau …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands á mánudag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og fremst út á öryggismál. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segist …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.