Úrslitin stéttgreind
—

Þórarinn Hjartarson
1. sep, ’26

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á þeim. Evrópuumræða er mjög vítt svið en helstu efnissvið átakanna urðu einkum þrjú:

Þrjú efnissvið átaka: fullveldi, markaðsvæðing, öryggismál

a)  Á fjarlægt vald að setja okkur Íslendingum lög og reglur og ráða skipan helstu mála hér á eynni – þ.e.a.s. þeirra málaflokka sem hafa ekki þegar verið afhentir fjarlægu valdi – gegn því að fulltrúar okkar fái að sitja við borð þar sem ráðunum er ráðið og um þau fjallað, eða á kannski að halda ákvörðunarvaldinu hér á eynni? M.ö.o. leggja kjósendur megináherslu á sjálfsákvörðun þjóðarinnar eða frekar á fulla aðild hennar að fjarlægu fjölþjóðlegu valdi? Á að fjarlægja hluta af fullveldi Íslands fyrir aukna þátttöku í fjölþjóðlegu samráði eða ekki? (ég held því þó ekki fram að fullveldi Íslands nú sé fullt og óskert).

Þessu fylgir líka spurningin um möguleika Íslands á undanþágum frá því regluverki sem undirgengist er við ESB-aðild. Já-sinnar töldu góða von um slíkt. Sögðu þeir.

b) Afstaðan til þeirrar markaðsvæðingar samfélagsins sem er kjarni ESB, eftir Maastricht (1992) og Lissabon (2009) sáttmálana. Þá breytti ESB sér að fyrirmynd Bandaríkjanna í átt að markaðsvæðingu og stóraukinni einkavæðingu samfélagsstofnana, þ.á.m. innviða. Völdin voru færð frá hinum pólitíska vettvangi yfir á markaðinn. Andstaða gegn þessum eiginleikum, og kjarna, ESB er nokkuð sem vinstri hlið Neisins horfir mjög til, meðan hægrið hefur lítið á móti slíku. 

Þá er þess að geta að við Íslendingar höfum þegar fengið þessa markaðsvæðingu samfélagsins yfir okkur. Við fengum hana í tengslum við EES-samninginn. Markaðsvæðingin ruddi sér til rúms á Íslandi í kringum og í tengslum við innleiðingu EES-samnings 1992. Og undirritun Maastreichtsáttmálans sama ár. Með frjálst flæði fjármagns, vöru og vinnuafls landa á milli. Að vísu varð sjávarútvegurinn á Íslandi markaðsvæddur þegar ári áður, 1991 með framsali aflaheimilda (leiddi í reynd af sér einkavæðingu miðanna og auræði í greininni), en þetta var engu að síður hluti af sömu innreið markaðsfrjálshyggju og áhrifum hennar – í Evrópu og Íslandi í senn. 

Vinstri rökin góðu gegn markaðsvæðingu ESB eiga að verulegu leyti við um EES líka. Sama gildir um fullveldisisrökin, af því inn streyma tilskipanir og reglugerðir sem Íslendingar hafa ekki verið með um að móta. Þess vegna er ofurlítill sannleikur í þeim málflutningi Jásins að við þurfum að komast að borðinu – þó það gæfi okkur lítið meira en áheyrnarvald – af því þeir vilja fara alla leið.

c) Öryggismál eru líka átakasvið í þessari deilu, en línurnar þar eru hvorki skýrar né hreinar. Þorgerður Katrín vill „fjölga stoðum undir öryggi Íslands á breyttum tímum“, og sækja þær stoðir til ESB. Það eru hins vegar sjálfnefndir vinstri já-sinnar sem mest tala um ESB sem beinan valkost við Bandaríkin í varnarmálum, valkost sem eigi jafnvel að vernda okkur fyrir Bandaríkjunum. Þeir gera líka mikið úr því að nú sé í gangi mikill klofningur – bæði í viðskiptum og hernaðarlega – milli USA og ESB. 

Því miður fyrir þetta fólk er sá „klofningur“ í meginatriðum ekki raunveruleiki heldur pólitískt leikhús. Evrópa (ESB) gerir það sem Bandaríkin segja henni að gera, en hún getur samt ekki viðurkennt að hún sé bara að hlýða heldur gerir hún mikinn hávaða – en gerir svo það sem henni var skipað að gera; jafnt í tollamálum sem í varnarmálum. Hún semur um og samþykkir 15% toll á flestar evrópskar vörur til Bandaríkjanna meðan bandarískar vörur í Evrópu eru tollfrjálsar. Hún setur 5% af landsframleiðslu til hermála, að kröfu Trumps. Evrópulönd yfirtaka meginkostnað og höfuðábyrgð á stríðsrekstrinum í Úkraínu, þau gefa Bandaríkjunum aðgang að flugvöllum sínum í Íranstríðinu, Norðurlönd gefa Bandaríkjunum aðgang að eigin flugvöllum til að koma upp 47 herstöðvum gegn Rússlandi. Viðbrögð Dana við hótunum Trumps varðandi Grænland er að leggja sig á magann og setja síðan í gang mikla NATO-vígvæðingu og heræfingar gegn Rússum og Kína, á Grænlandi og á Norðurslóðum, byrja strax að semja við Bandaríkin um opnun a.m.k. þriggja nýrra herstöðva á Grænlandi o.s.frv. Vinstri flokkar í Danmörku tala eins og þessar æfingar  tengdar Grænlandi (m.a. Arctic Sentry) beinist gegn Bandaríkjunum, en þegar betur er að gáð er æfingunum stjórnað af einmitt Bandaríkjunum! „Nýjar stoðir undir öryggi Íslands“ reynast vera alveg sömu stoðirnar og áður. Þess vegna segi ég að pólitísku línurnar á þessu sviði ESB-deilunnar séu hvorki skýrar né hreinar.

Stéttirnar stéttirnar

Stéttastrúktúr Íslands birtist okkur nokkuð vel í atkvæðagreiðslunni – ef það er skoðað. Sem ég hef ekki gert nema afar yfirborðslega. En læt samt vaða. 

Sjómenn, útgerðarmenn, sjávarbyggðir tala einu máli, segjandi nei. Bændur og búalið eru líka með sitt nei á hreinu, til þess að halda landinu áfram utan sameiginlegar landbúnaðarstefnu ESB, svo áfram megi vernda heimaframleiðsluna og leggja tolla á innfluttar landbúnaðarvörur m.m. 

Verkalýðsstéttin sagði einnig mikið til nei. Fólk með styttri menntun (minna en háskólapróf) hefur skv. könnunum verið miklu neikvæðara bæði gagnvart ESB-aðild almennt og umræddum aðildarviðræðum. M.a. neikvæðara gagnvart frjálsu flæði vinnuafls.

Þá er það auðstéttin. Evrópsk borgarastétt er almennt mjög hlynnt evrópusamrunanum og er helsti drifkraftur hans, sérstaklega stóru auðhringarnir, bankarnir, einokunarauðvaldið. Það er útrásarsinnað auðvald og aðhyllist hnattvæðinguna sem fór á flug eftir lok Kalda stríðsins og hið frjálsa flæði sem er kjarni Evrópusamrunans. Hún yfirgaf gamla þjóðernishyggju, hætti að vera „þjóðleg“, kom sér upp sameiginlegri hugmyndafræði um evrópusamruna, „vestræn gildi“, líberal heimsskipan (undir bandarísku drottinvaldi) og fjölmenningu. 

Hins vegar hefur alþýðan í Evrópulöndum verið mun þjóðernissinnaðari og fullveldissinnaðri en auðvaldið og reynt að bremsa samrunaþróunina í Evrópu í hvert sinn sem hún hefur fengið að kjósa eitthvað þar um, en það er sjaldan. Dæmi: í þjóðaratkvæðagreiðslunum í Noregi 1972 og 1994 sögðu samtök atvinnulífsins og hægri flokkar já en alþýðan hins vegar sagði að mestu nei.

Íslenska borgarastéttin er undantekning gagnvart evrópsku samrunaþróuninni. Hún er klofin. Það á sér einkum landfræðilega skýringu: fiskimiðin og tilheyrandi sérstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum. Hluti sjávarútvegs í útflutningi Íslands hefur að vísu sigið niður á seinni árum en er eftir sem áður ansi mikil stærð fyrir þjóðarbúið og eðlilegt að þeir sem á einhvern hátt tengjast útgerðarhagsmunum hiki við að afhenda yfirráð og stjórnun fiskimiðanna til stofnana og auðhringa ESB. EES-samningurinn heldur sem kunnugt er Íslandi utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB, og skv. samningnum má Ísland líka takmarka erlenda fjárfestingu og eignarhald í sjávarútvegi. 

Guðmundur Brim-eigandi er jákvæður gagnvart ESB-aðild, en ég býst við að hann sé í minnihluta sægreifa. Hagsmunir útgerðarauðvaldsins hníga væntanlega að neii við fullri aðild, það er skiljanlegt og eðlilegt. Og það væri alls ekki heldur hagur íslenskra sjómanna eða alþýðu að forræði eða eignarhald í sjávarútvegi færi úr landi, það væri misskilin stéttvísi að halda því fram. Það er þrátt fyrir allt miklu vænlegra að slást um arðinn af auðlindinni við stéttarandstæðinginn hér innan lands en utan. 

Borgarastéttin sem sé klofin. Til dæmis hefur Verslunarráð Íslands og verslunarauðvaldið alltaf verið fylgjandi ESB-aðild, eins og útrásarvíkingarnir voru á sinni tíð. En reyndar nægði EES og hið frjálsa flæði fjármagns víkingunum til útrásar. En frammi fyrir þessari já-nei spurningu er nokkuð ljóst með hvorum hluta klofinnar borgarastéttar alþýðan telur sig frekar eiga samleið.

Svo er það háskólasamfélagið, menntaða millistéttin og sérstaklega menntaelítan. Sumir kenna þann hóp líka óvirðulega við „kjaftastéttir“. Og hópurinn býr að miklu leyti í Reykjavík. Hann er mótaður á menningarlegu áhrifasvæði hnattvæðingarsinnaðrar evrópskrar borgarstéttar, hann bindur í nokkrum mæli vonir við Evrópustyrki, og er undir litlum áhrifum af sjávarútveginum eða sérstöðu hans. Hnattvæðingarsinnar kalla sig gjarnan „alþjóðasinna“. Samkvæmt Íslensku kosningarannsókninni eru kjósendur Samfylkingarinnar og Viðreisnar þeir af kjósendum flokka á Alþingi sem hafa mesta langskólamenntun, og eru því menntamannaflokkar. Það er alveg ljóst að þessi þjóðfélagshópur kaus að langmestu leyti já, en átti þar með ekki samleið með alþýðunni. 

Íslensk þjóðerniskennd og fullveldishugsun lifir enn betra lífi en margur hyggur. Þar á ofan fylgir fólk sínum stéttarhagsmunum býsna vel, oft þvert á ríkjandi stjórnmálaumræðu og hávaða stjórnmálaflokkanna.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands á mánudag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og fremst út á öryggismál. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segist …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.