Stóra núllið hennar Kristrúnar
—
Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. Á sama tíma lækkuðu skuldir ríkissjóðs umfram peningalegar eignir úr um 40% af landsframleiðslu árið 2011 í 23% árið 2025. Viðvarandi meðalhalli hefur því ekki komið í veg fyrir að fjárhagsstaða ríkisins styrkist.
Það er ekkert náttúrulögmál að fjárlög þurfi að vera hallalaus. Þegar þjóðinni fjölgar og framleiðslugetan vex getur hóflegur halli stutt nauðsynlega uppbyggingu án þess að skuldahlutfall hækki. Til dæmis getur um 1,7% árlegur halli samræmst stöðugu 40% skuldahlutfalli við 2% raunhagvöxt og 2,5% hækkun verðlags landsframleiðslu (sem er verðbólgumarkmið). Þessi viðmið eru ekki heilög eða endilega markmið – heldur er ég bara að sýna fram á að það á aldrei að vera markmið ríkisins að vera hlutlaust, heldur er hallinn eðlilegur til langs tíma og mikilvægur til að fara ekki í innviðaskuld og hafa efnisleg áhrif á þau verkefni sem er verið að fara í hverju sinni. Stóra núllið hennar Kristrúnar er hluti af verkefni nýfrjálshyggjunnar að gera ríkið að hlutlausum aðila – og sú pólitík falin á bak við lógík heimilisbókhaldsins sem meikar engan sense fyrir ríkið.
Spurningin er því hvað ríkið gerir fyrir peningana og hvernig það aflar tekna. Fjárlög sem auka húsnæðisframboð geta haft allt önnur áhrif en fjárlög sem hækka gjaldskrár og gera húsbyggingar dýrari. Við eigum að dæma árangurinn eftir lífskjörum, þjónustu og verðstöðugleika. Núll á blaði segir okkur ekki eitt og sér hvort vel sé stjórnað.
Aukin útgjöld þýða því ekki sjálfkrafa þyngri byrðar á axlir framtíðarkynslóða – heldur eru þetta nettó nýir fjármunir sem ríkið hefur látið renna inn í hagkerfið sem þynnast út með framtíðarverðbólgu eða verða innheimtir með sköttum seinna, á skattgrunni sem hefur stækkað hvort eð er. Verkefnin sem við fjárfestum í, menntaði mannaflinn og sameiginlegu innviðin munu móta þjóðina. Það er miklu frekar innviðaskuldin sem við fleytum áfram á framtíðarkynslóðir þegar við leyfum þakinu að leka of lengi eða erum of lengi að græja t.d. mjög basic almenningssamgöngur. Þar er skömm þeirra sem halda þessari „svartnúllsmýtu“ á lofti.









