Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993
—

Árni Daníel Júlíusson
27. júl, ’26

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir fréttum við að harkaleg átök hefðu orðið á Nørrebro. Ellefu manns höfðu verið skotnir af dönsku lögreglunni eftir mótmæli og 80 lögregluþjónar slasast, sumir alvarlega. Lögreglan hafði skotið 113 skotum á mótmælendur.

Ástæðan fyrir mótmælunum var þjóðaratkvæðagreiðsla um nýjan samning við Evrópubandalagið. Árið áður höfðu Danir hafnað Maastricht-samningnum og þar með aðild að hinu fyrirhugaða Evrópusambandi. Nú höfðu þeir fengið fjórar undanþágur og samþykktu svokallaðan Edinborgar-samning í seinni atkvæðagreiðslu. Með því voru þeir taldir komnir aftur á „framfarabrautina“, en þeir sem höfðu barist gegn samningnum voru stimplaðir sem afturhaldssamir.

Mótmælendur höfðu margir verið á tónleikum með bresku hljómsveitinni Chumbawamba á Nørrebro. Hljómsveitin, sem síðar varð heimsþekkt fyrir lagið Tubthumping, átti rætur í anarkistapönki. Hún var frá Burnley í Norður-Englandi, svæði sem síðar varð eitt þeirra sem studdu Brexit hvað sterkast. Það eitt sýnir hversu flóknar pólitískar skilgreiningar geta verið.

Á Nørrebro hafði um árabil starfað BZ-hreyfingin, sem stóð reglulega í átökum við lögregluna vegna hústökuhreyfingarinnar í Kaupmannahöfn. Faðir minn varð vitni að einni slíkri viðureign í Ryesgade árið 1986 og hneykslaðist svo mjög á hörku dönsku lögreglunnar að hann tók afstöðu með mótmælendunum. Sjö árum síðar var sami hópur á meðal þeirra sem mótmæltu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Edinborgarsamninginn.

Á þessum árum varð það ítrekað hlutskipti Evrópusambandsins að bregðast við þjóðum sem höfnuðu frekari samþættingu. Danir höfðu sagt nei, Frakkar, Hollendingar og Írar gerðu það síðar við ýmsa samninga og Norðmenn höfnuðu aðild í annað sinn árið 1994. Slík úrslit voru gjarnan túlkuð sem tímabundið frávik sem þyrfti að leiðrétta fremur en lýðræðisleg niðurstaða sem bæri að virða.

Noregur stendur enn utan Evrópusambandsins. Landið er þó meðal þeirra landa sem standa fremst í rafvæðingu samgangna og búa við eitt öflugasta velferðarkerfi heims. Það sýnir að andstaða við aðild að Evrópusambandinu leiðir ekki sjálfkrafa til stöðnunar.

Finnland fór hins vegar aðra leið og gekk í Evrópusambandið árið 1995 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem 57% samþykktu aðild. Bændur voru meðal helstu andstæðinga aðildar Finnlands að Evrópusambandinu. Á næstu árum fækkaði þeim úr um 120.000 í 40.000 og afurðaverð lækkaði verulega. Tugþúsundir bænda urðu að hætta búskap og flytja til þéttbýlis. Fyrir margar fjölskyldur fól þetta í sér róttækar breytingar á lífsafkomu og búsetu.

Þetta rifja ég upp vegna þess að andstaða við frekari samþættingu Evrópusambandsins sprettur ekki aðeins af hugmyndafræði heldur einnig af reynslu. Margir sem hafa efasemdir um Evrópusambandið telja að sambandið hafi ítrekað brugðist við neikvæðum niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslna með því að leita leiða til að fá þær endurskoðaðar eða breyta forsendum þar til samþykki næðist. Þeir líta á það sem veikingu lýðræðis fremur en framfarir.

Í þeirri umræðu er einnig gjarnan litið fram hjá því að margir sem hafna frekari samþættingu eru fólk sem hefur orðið fyrir efnahagslegum áföllum vegna  síðustu áratuga: verkafólk sem missti atvinnu þegar iðnaður hvarf, bændur sem sáu afkomugrundvöll sinn breytast eða samfélög sem upplifðu að ákvarðanir væru teknar langt frá þeim sjálfum. Þegar slíkt fólk kýs Brexit, styður Marine Le Pen, Viktor Orban eða hafnar nýjum ESB-samningum er það oft afgreitt sem „afturhald“.

En sú skýring er einföldun. Að baki þessari afstöðu liggur gjarnan söguleg reynsla, efnahagsleg óvissa og vantraust á stjórnmálakerfi sem hefur ekki hlustað á vilja almennings þegar hann féll ekki að fyrirfram ákveðinni stefnu.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.