Bandaríkin: Stéttaandstæður þungvægari en rasismi
—

Þórarinn Hjartarson
12. jún, ’20



Í mótmælaólgunni miklu í Bandaríkjunum eftir dráp lögreglunnar á George Loyd í Minneapolis felst augljóslega gríðarmikil grasrótaruppreisn gegn ríkjandi kerfi. Sterk öfl reyna þó mjög að koma því til leiðar að broddur mótmælanna sneiði framhjá valdakerfi bandaríska auðvaldsins. Hér verða settar fram nokkrar ályktanir um mótmælahreyfinguna.


Rasismi – ofbeldi – misskipting

rasismi
Frá kynþátta – og stéttaátökum í Chicago 1919
  • Í Bandaríkjunum eru svartir hlutfallsega miklu oftar drepnir en hvítir.
  • Svartir íbúar í Bandaríkjunum eru að jafnaði miklu fátækari en hvítir og hafa verið það allt frá dögum þrælasölu og þrælahalds.
  • Í bandarískum fangelsum eru 33% vistmanna svartir, sem er nærri þrefalt hlutfall þeirra af þjóðinni (12%).
  • Ofbeldisglæpir í Bandaríkjunum eru mjög bundnir fátækrahverfum borganna. Þar búa hlutfallslega margir svartir.
  • Blökkumenn sem drepnir eru í BNA eru langoftast drepnir af öðrum blökkumönnum.
  • Þeir sem drepnir eru í Bandaríkjunum – af lögreglu og öðrum – eru fátækir.

Þessi tölfræði er tiltölulega óumdeild. En ef út frá henni er reiknuð sú rökrétta niðurstaða að aðalvandi Bandaríkjanna sé stéttaandstæðurnar væri slík fullyrðing fáséð í stóru fjölmiðlunum. Fátækt á þriðjaheimsstigi er útbreidd í þessu ríkasta landi heims þar sem auðurinn safnast á fáar og sífærri hendur með hverju ári. Rasisminn þar í landi er ærinn en stéttaandstæðurnar eru þó miklu þungvægari og meira böl.

Af fréttum frá BNA má skilja að grundvallarvandamál samfélagsins vestan hafs sé rasisminn og hann er skoðaður sem sjálfstætt og einangrað þjóðfélagsböl. Í því formi er kynþáttavandamálið raunar notað í stjórnmálabaráttunni í BNA.


Lögregluofbeldið

lögregluofbeldi
  • Kynþáttafordómar hjá bandarísku löggunni eru umtalsverðir. Þeir eru samt ekki gegnumgangandi.
  • Á hinn bóginn: bandaríska lögreglan er ofbeldisfull. Árlega drepur hún við störf sín yfir 1000 manns. Um 30% þeirra eru svartir sem er yfir helmingi hærra hlutfall en hlutfall þeirra af þjóðinni (rómansk-amerískir eru í litlu minni hættu). Af barsmíðum, ógnunum og ofbeldi lögreglu fá svartir tilsvarandi skerf.
  • Aðalmálið er samt ekki að lögreglan drepi blökkumenn. Málið er að hún drepur fátæka. Hún drepur næstum aldrei fólk meðal hinna auðugu. Lögregluofbeldið stjórnast fyrst og fremst af stéttakúgun en ekki kynþáttastefnu. Lögreglan er valdatæki ríkjandi stéttar.

Covid

Hin alvarlegu uppþot núna í Bandaríkjunum verða þegar samfélagið er í mikilli spennu. Nú hefur Covid-kreppan kastað nærri 40 milljón manns út í atvinnuleysi í viðbót við þær milljónir sem fyrirfram hjörðu í réttindalausri eymd. Efnahagslífið er í frjálsu falli og biðraðir í götueldhús gerast ævintýralega langar. Á sömu mánuðum hefur auður bandarískra milljarðamæringa (billionaries) aukist um 450 milljarða dollara.


Stórauðvald nútímans þarf ekki á rasisma að halda

Rasismi hefur verið samofinn bandarískum kapítalisma frá tíma þrælasölu og þrælahalds. Auðstétt BNA hefur lengi hagnast á klofningi alþýðu út frá húðlit og arðrænt réttindalausa minnihlutahópa aukalega. Evrópsku nýlenduveldin þróuðu rasisma á sinn hátt til að undirbyggja arðrán sitt. Hjá þeim þjónaði hugmyndin um æðri og óæðri þjóðir mikilvægum tilgangi þegar þær lögðu undir sig lönd til arðráns. Svo ekki sé minnst á hugmyndir Þriðja ríkisins um „undirfólk“ sem þjónaði þeim tilgangi að skapa þýsku auðmagni „lífsrými“. En þetta er í þátíð.

Það er hins vegar nokkuð ljóst að hið hnattvædda bandaríska fjármálaauðvald – sem er ríkjandi hluti bandarískrar auðstéttar nú ná dögum – hefur enga sérstaka þörf fyrir rasisma. Allar helstu fjármálastofnanir á Wall Street – sem jafnframt eru alstærstu eigendur í hinu hnattvædda vestræna auðvaldskerfi – hafa eftir drápið á George Loyd lýst yfir skilningi á og stuðningi við mótmælin og hreyfinguna Black Lives Matter. Það á við um æðstu forstjórana í BlackRock, Wells Fargo, JPMorgan Chase, Goldman Sachs og Citigroup. Sjá umfjöllun CNBC um þetta hér: https://www.cnbc.com/2020/06/01/wall-street-ceos-speak-out-about-george-floyd-and-protests-rocking-us-cities.html


Ekki má aðskilja andrasisma og stéttabaráttu

Einhver myndi segja að þarna sé mikil hræsni á ferð. Og þessi umræddu „mannréttindaöfl“ eiga nóg af hræsninni. En það breytir því ekki að hnattvætt fjármálaauðmagn kýs helst að arðræna okkur alveg óháð kynþætti, þjóðerni, kyni, eða kynhneigð. Hnattvætt stórauðvald er „alþjóðasinnað“. Ekki nóg með það, átök milli kynþátta hentar stórauðvaldinu vel. Og ekki síst hentar því vel sú tegund vinstrimennsku sem gerir átökin milli rasisma og andrasisma að höfuðandstæðum í samfélagi nútímans í staðinn fyrir stéttaandstæðurnar. Meðan slík stefna stendur sterkt verður töf á því að verkalýður sameinist þvert á húðlit gegn hinu sífámennara einokunarauðvaldi – og það getur því sofið rólega enn um sinn.

Þessi tegund af „andrasisma“ aðlagar sig bandaríska tvíflokkakerfinu þar sem íhaldsmenn standa gegn frjálslyndum. Báðar fylkingarnar eru jafnmiklir fulltrúar stórauðvaldsins. Þar hallar á hvorugan. Böl auðvaldsins er nefnt af hvorugum. Átökin milli þeirra snerta sem sagt ekki aðalatriðið. Takmarkanir mótmælahreyfingarinnar felast í því að hvaða marki þessum öflum tekst að aðskilja andrasismann og stéttabaráttuna.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Nýjustu greinar

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.