Gegn stríði með sannleikann að vopni
—
Norski fræðimaðurinn Glenn Diesen hefur sagt skilið við Noreg, búinn að fá nóg af ofsóknum í sinn garð. Þessi prófessor í alþjóðastjórnmálum hefur ekki farið hina troðnu slóð fræðimanna og meginstraumsfjölmiðla í umfjöllum um aljóðastjórnmál og oft sett fram gagnrýni á þær túlkanir sem helst er hampað af hálfu ráðandi afla. Slíkt kallast hins vegar „samsæriskenningar“. Honum er aldrei mætt með rökum, aðeins fullyrðingum um annarleg viðhorf.
Hér á þessari heimasíðu hefur stundum verið vikið að skrifum Genns Diesen með velþóknun og vísað í þætti þar sem hann kemur fram, einn á báti eða ræðir við aðra. Ég hef oft hlýtt á Diesen og þykir hann afbragðsgóður. Ég er í hópi þeirra sem undirrita bréfið hér að neðan enda smþykkur hverju orði sem hér er sagt. Dapurlegt er til þess að hugsa hve langan veg Norðurlöndin eru komin frá því sem þau voru fyrir ekki svo ýkja löngu síðan. Eða var það alltaf (sjálfs)blekking? Ég held þó ekki.
Og hér fylgir hið opna bréf.
Fighting War With Truth
Prófessor Glenn Diesen kveður Noreg með reisn.
Norskir fjölmiðlar, með Aftenposten og NRK í fararbroddi, hafa varið furðu stórum hluta umfjöllunar sinnar um stríðið í #Úkraínu í það að sverta einn tiltekinn norskan prófessor, Glenn Diesen. Eftir sex ár segir Diesen „nú er nóg komið“ og yfirgefur Noreg. Skömmin er alfarið þeirra.
Það sem fjölmiðillinn [Aftenposten] segir norskum almenningi aldrei er að Diesen deilir skoðunum og innsýn sem eru í samræmi við fremstu fræðimenn á sviði heimsstjórnmála [geopolitics] og evrasískra stjórnmála, einkum við virtustu háskólana á borð við Columbia og Chicago. Tjáningarfrelsi og akademískt frelsi virðast vera vandamál fyrir blaðið, sem hefur, það verður að viðurkennast, ríkt orðspor fyrir að lenda röngum megin í sögunni.

Blaðið bergmálar áhyggjur Johns Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, (á fundi WEF) af því að fólk kunni að „hlusta á einhvern annan“ og þannig „gera mönnum erfitt að stjórna“. Hann gaf í skyn að „við“ yrðum að gera eitthvað í þessu. Aftenposten hefur tekið að sér að „gera eitthvað í“ fyrsta viðauka [bandarísku] stjórnarskrárinnar.
Aftenposten er meistari í áróðri og beitir öllum brögðum: þann 21. nóvember leggur blaðið sig í líma við að gera lítið úr prófessornum með ásökunum um að hann „gangi erinda Pútíns og Rússlands“. Blaðið spyrðir Diesen einnig saman við lýsingu á máli gegn öðrum prófessor sem er sakaður um gyðingahatur og vonast þannig óbeint til að ata Diesen líka auri þeirrar svívirðu.
Sem mótvægi við Jeffrey Sachs frá Columbia-háskóla, John Mearsheimer frá Chicago-háskóla eða Scott Ritter, fyrrverandi vopnaeftirlitsmann SÞ (svo fáeinir séu nefndir), sem eru í liði Diesens, teljast til herliðsins á móti honum meðal annars samstarfsmaður hans, kennari í samskiptum sem „dregur í efa“ fræðilega hæfni og framkomu Diesens. Svona lagað fer fram úr flestum skáldskap!
Auk öflugs stuðnings frá þungavigtarfólki hefur Diesen skrifað 11 bækur um þau efni sem hann kennir í heimsstjórnmálum. Maðurinn er einfaldlega viðurkenndur sem sérfræðingur á heimsmælikvarða af alþjóðlega virtum starfsbræðrum sínum.
En Aftenposten fullyrðir í leiðara sínum 21. nóvember (2026) að Diesen breiði út samsæriskenningar og vísvitandi rangupplýsingar. Án snefils af sönnunum!
Við Háskólann í Suðaustur-Noregi, þar sem Diesen starfar, hefur samstarfsmaður hans, David Erland Isaksen, kennari í mælskulist og því varla sérfræðingur á fræðasviði Diesens, þá ósvífni að halda því fram að landfræðipólitísk þátttaka Diesens sæmi ekki fræðimanni. Isaksen gagnrýnir Diesen einkum fyrir að hafa fyrir þremur árum varað við líklegu stríði milli Rússlands og NATO, spá sem allir fjölmiðlar og stjórnmálamenn halda nú á lofti. Engin afsökunarbeiðni hefur enn borist frá Isaksen.
En auk meginstraumsfjölmiðla hafa kirkjan í heimabyggðinni og menningarmiðstöð nýlega gert aumkunarverðar tilraunir til að meina Diesen um vettvang. Engin skýring var gefin – en gefið skotleyfi á Diesen.
Þetta liggur í augum uppi: Diesen skyggir á alla samstarfsmenn sína við háskólann samanlagt; bækur hans eru gefnar út af virtustu útgefendum heims og milljón manns eru áskrifendur að hlaðvörpum hans. Auðvitað eru þeir öfundsjúkir. Það eru mannleg viðbrögð en varla verjandi á fræðilegum forsendum. 47 samstarfsmenn hans sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýstu sig ósammála skoðunum Diesens. Á listanum voru bókasafnsfræðingar, guðfræðingar og starfsfólk úr eldhúsinu.
Segja má að mesta synd Diesens sé að hann ögrar NATO-þjónkun Noregs og samstöðu norsku hernaðar-, fjölmiðla-, fræða- og stjórnmálasamsteypunnar. Kaldhæðnislega getur Diesen fundið huggun hjá Amund Osflaten, kennara við Norska herskólann, sem réttir stefnuna af (lausleg þýðing): „Ef fræðasamfélagið má ekki ögra viðteknum sannindum, hver á þá að gera það?“
Vinir Diesens í Noregi munu sakna hans þegar hann heldur í útlegð með eiginkonu sinni og þremur börnum, en við treystum því að hann verði áfram með okkur, milljón áskrifendunum, í gegnum hlaðvörp sín og bækurnar sem brátt verða 12!
Þannig munu Aftenposten, Klassekampen, NRK og hin alræmda Norska Helsinkinefnd, sem gengur erinda Bandaríkjaþings og CIA-útibúsins National Endowment for Democracy og er fjármögnuð af þeim, áfram verða „ofsótt af sannleikanum“ í gegnum fjölmörg hlaðvörp Diesens, gesti hans, skrif hans og bækur.
Skömmin er alfarið þeirra. Og þegar heilbrigð skynsemi snýr aftur til landsins verður hann boðinn velkominn heim á ný!
Vonandi getur Glenn Diesen fundið nokkra huggun í þeim stuðningi sem sífellt fleiri Norðmenn sýna honum og birtist áþreifanlega í nýlegri viðurkenningu: tjáningarfrelsisverðlaununum, Ny Tid-pennanum, fyrir árið 2026.
John Kiriakou Ray McGovern Jeffrey Sachs John Mearsheimer Fan Account Craig Murray Craig Mokhiber Alexander Mercouris Mick Wallace Clare Daly Patrick Henningsen Ögmundur Jónasson Truls Lie Marianne Solberg Danby Choi chris hedges Trita Parsi Jeremy Corbyn Joe Lauria Shoaib Sultan Sanjeev Prakash
Greinin birtist á vefsíðu Ögmundar Jónassonar 23. nóvember










