Vinstri vængurinn verður að segja nei við ESB
—

18. ágú, ’26

Mímir Kristjánsson, þingmaður Rauðra á norska Stórþinginu, segir Íslenska vinstrið verði að segja nei við ESB. Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.

ESB er maskína sem færir vald og ríkidæmi frá almenningi í hendurnar á skrifræðislegum og efnahagslegum elítum. Sjálfur grundvöllur sambandsins er fjórfrelsið og þar erum við ekki að tala um tjáningarfrelsi eða prentfrelsi heldur fjögur svið viðskiptalegs frelsis sem gerð hafa verið heilög: Frjálst flæði vöru, þjónustu, vinnuafls (fólks) og fjármagns.

Með þetta að leiðarljósi hefur verið byggð upp í Brussel maskína skrifræðis með miklum lýðræðishalla þar sem samtök almennings mega sín lítils gegn fjölmennum og fjársterkum hagsmunavörðum. Afleiðing þessa er að í Noregi líta menn bæði á EES og ESB sem áskriftarþjónustu fyrir hægristefnu, sem skilar af sér stríðum straumi krafna um einkavæðingu og samkeppnisumhverfi.

Náttúruleg endastöð fjórfrelsisins er fullkominn sameiginlegur markaður Evrópu, þar sem „samhæfa“ þarf launakjör í löndum eins og Íslandi og Noregi við launakjör í Portúgal eða Rúmeníu. Við sjáum þegar merki um þessa þróun þegar frjálst flæði vinnuafls innan EES leiðir af sér víðtæk félagsleg undirboð, nema eftirliti sé sinnt þeim mun betur. Á slíku sameiginlegu markaðstorgi yrðu þjóðþingin í raun alveg rekin út af vellinum, eða a.m.k. undirskipuð hinu efnahagslega regluverki markaðarins. Niðurstaðan yrði miklir ósigrar bæði á sviði verkalýðsmála og lýðræðislegra stjórnarhátta.

Þess vegna er lykilatriði að vinstri vængurinn á Íslandi beiti sér í baráttunni gegn ESB, fyrst í þjóðaratkvæðagreiðslunni um viðræður þann 29. ágúst og síðan, ef til þess kæmi, í endanlegri kosningu um inngöngu Íslands í ESB.

Þetta er miklu fremur spurning um lýðræðislega stjórnarhætti en „hægri“ eða „vinstri“. Það er langt frá Bolungarvík til Brussel. Fámennt land eins og Ísland með 400.000 íbúa mun varla hafa nokkur áhrif sem um er að tala á Evrópuþinginu. En það skiptir reyndar litlu því Evrópuþingið ræður nánast engu. Í ESB eru það peningarnir sem ráða. Það litla sem eftir er af almannavaldi er rammað inn í víravirki laga og reglna þannig að völd lögfræðinga aukast enn á kostnað þeirra fulltrúa sem almenningur kýs, bæði í þjóðríkjunum og á Evrópuvettvangi.

Spurningin um yfirráð þjóðríkisins yfir eigin náttúruauðlindum er sérstaklega afgerandi hvað Ísland varðar. Á síðustu árum höfum við upplifað í Noregi hvernig ESB hefur reynt að taka völdin yfir vatnsaflinu okkar í gegnum EES og orkustofnunina ACER. ESB-reglur hindra norska stjórnmálamenn í að endurheimta valdið yfir orkukerfi Noregs sem ræður ekki lengur við að útvega fólki og fyrirtækjum orku á stöðugu og fyrirsjáanlegu verði.

Segi Íslendingar já við ESB, verða bæði landbúnaður þeirra og sjávarútvegur hluti af sambandinu. Það mun gera miklu erfiðara að verja íslenskan landbúnað fyrir samkeppni við þaulniðurgreiddan landbúnað ESB. Og opna íslenskum kvótagreifum leið til að selja fiskveiðiauðlindina úr landi. Skiljanlegt er að einhverjum Íslendingum finnist að kvótaskiptingin geti ekki orðið mikið óréttlátari en hún er. En nýfrjálshyggjan í fiskveiðistefnu ESB mun varla færa með sér nokkurt uppgjör við kvótagreifana. Miklu heldur leiða til þess að auðlindin safnist á enn færri hendur.

ESB hefur látið á sér skilja að Ísland eigi að fá einhvern sveigjanleika á þessu sviði. En það er ógerningur að gera slíka samninga við ESB. Þegar Írland gekk í ESB á áttunda áratugnum var það með því skilyrði að írskir fiskimenn skyldu hafa betri aðgang en aðrir að aflakvóta í írskri landhelgi. En nýlega var þessi sérregla afnumin. Nú hvetja írskir fiskimenn yfirvöld sín til að lögsækja ESB.

Hvaða tryggingu mun Ísland fá fyrir því að sá fiskveiðisamningur sem landið gerði við ESB stæði til frambúðar? Enga.

Það er auðvelt að sitja í Noregi og segja Íslendingum hvað þeir eigi að kjósa og ég get vel skilið þótt einhver sem lesa þetta sjái ekki ástæðu til að hlusta á mig. Sjálfsagt hugsuðu margir eins í Noregi þegar íslenskur faðir minn tók þátt í baráttu Nei til EU í Stafangri fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 1994. En sannleikurinn er sá að við verðum að standa saman, austan sem vestan hafsins. Grænland, Ísland, Færeyjar, Stóra-Bretland og Noregur standa öll utan ESB. Saman höfum við möguleika á að þróa á jafnréttisgrunni samstarf við ESB sem ekki byggist á tilskipunum frá Brussel. Ég vona að Íslendingar kasti þeim möguleika ekki frá sér.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.