Shireen Al-Adeimi: Hvers vegna ómögulegt er að sigra Húta
—
Radhika Desai: Með mér í dag er Shireen Al-Adeimi, rithöfundur og álitsgjafi um alþjóðamál og málefni Vestur-Asíu. Hún var gestafræðimaður (án búsetu) við hina virtu bandarísku hugveitu um utanríkismál Quincy Institute for Responsible Statecraft og hún er jafnframt dósent í tungumálum við Michigan State University.
[Viðtalið er svolítið stytt og spurningum Radhiku Desai er sleppt svo svörin koma hér sem samhangandi fyrirlestur.]
Hverjir eru Hútar?
Shireen Al-Adeimi: Hópurinn sjálfur rekur uppruna sinn til fræðimannafjölskyldu, al-Houthi-fjölskyldunnar, sem er frá Norður-Jemen, nánar tiltekið frá Saada-héraði, sem á landamæri að Sádi-Arabíu. Það er hérað sem er miðstöð zaydí-íslams. Zaydí-íslam er grein af sjía-íslam sem er frábrugðin öðrum meginstraumsgreinum sjía-íslams. Hún er sérstök fyrir Jemen.
Hussein Badreddin al-Houthi var fræðimaður sem hélt fyrirlestra á tíunda áratugnum og fólk tók fyrirlestra hans upp á kassettur. Að lokum varð hann þingmaður og var opinskár gagnrýnandi einræðisherrans Ali Abdullah Saleh, sem leyfði Sádi-Arabíu að seilast inn í Jemen með útbreiðslu wahhabí-íslams [wahhabí-íslam: grein innan súnní-íslams í viðvarandi bandalagi við Sádi-konungsættina]. Árið 2002 afhenti Saleh í raun bandarísku leyniþjónustunni CIA landið í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ í forsetatíð Bush (t.d. loftárásin í Marib).
Saleh lét drepa hann árið 2004. Hreyfing al-Houthis tók um það leyti upp nafnið Ansar Allah. Hún óx eftir það og stóðst hin svokölluðu „sex Saada-stríð“ við ríkisstjórnina. Með tímanum tók bróðir hans við forystu hreyfingarinnar: Abdul-Malik Badreddin al-Houthi, sem var þá á þrítugsaldri. Síðan þá hefur Ansar Allah látið að sér kveða, ekki aðeins sem hernaðarhreyfing, heldur einnig í stjórnmálum Jemen á tímum hins svokallaða „arabíska vors“ og jemensku byltingarinnar í janúar 2011.
Frá ánauð til sjálfstæðis
Áður fyrr, frá 1839 til 1967, var Jemen skipt á milli Breta í suðaustri, (svokallað Suður-Jemen), og Tyrkjaveldis í norðvestri (svokallað Norður-Jemen). Höfuðstaður Bretanna, Aden, lá beint í suður frá núverandi höfuðborg, Sanaa.
Norðrinu var stjórnað af Tyrkjaveldi til 1918, en eftir það færðust völdin aftur til jemensku Zaydi-ættanna sem höfðu ríkt yfir þeim hluta Jemen í þúsund ár. Frá 1918 réð því ímamsdæmi þar ríkjum, Mutawakkilíta-konungsríkið, allt til 1962, þegar lýðveldisbylting var gerð. Sádar skárust í leikinn til stuðnings Mutawakkilíta-konungunum og næstu átta árin sátu þeir um Sanaa.
Á sama tíma var Gamal Abdel Nasser, forseti Egyptalands, fús til að styðja byltingarmennina sem hluta af arabískri and-nýlendustefnu sinni. En því miður sneru flestir egypsku hermennirnir sem sendir voru til Jemen ekki aftur heim. Þetta hefur oft verið kallað „Víetnam Nassers“.
Sádar viðurkenndu loks Arabíska lýðveldið Jemen árið 1970. Á meðan hafði bylting einnig brotist út í suðausturhluta Jemen og Bretar neyddust til að fara á brott árið 1967.
Norðrið varð þannig arabískt lýðveldi og suðrið varð, merkilegt nokk, fyrsta og, hingað til, eina marx-lenínska ríkið í Mið-Austurlöndum. Og Jemen var enn tvö ríki.
Sameining norður og suðurs 1990
Suður-Jemen reiddi sig mjög á Sovétríkin og þegar ljóst varð að Sovétríkin væru að líða undir lok greindi sósíalíska leiðtoga þar í landi á um hvaða stefnu skyldi fylgja. Borgarastríð braust út árið 1986. Að lokum hófust alvarlegar samningaviðræður við Norður-Jemen. Ríkin tvö sameinuðust árið 1990. Ég tel að sameiningin hafi verið of snögg til að geta enst vel.
Í suðrinu býr um 20% íbúanna og í norðrinu um 80%. Þegar þingkosningarnar 1993 fóru fram og sunnanmenn fengu 18% atkvæða voru þeir eðlilega óánægðir. Suðrið er fámennara en auðugt af auðlindum.
Miklar vonir höfðu verið bundnar við ríkin tvö: Í suðrinu hafði náðst góður árangur í að draga úr eða útrýma ólæsi og koma á jafnara efnahagskerfi. Og í norðrinu var í fyrstu framsækinn forseti, það var al-Hamdi forseti. Engar sannanir eru fyrir því hundrað prósent, en í augum Jemena myrtu Sádar al-Hamdi árið 1977.
Markmið hans hafði verið að sameina Jemen, sem sögulega hafði verið eitt svæði. Þar hafa alltaf verið aðskildir ættbálkar og söguleg konungsríki, en allt er það hluti af Stór-Jemen. Því hafði alltaf ríkt sá skilningur að landið myndi sameinast á endanum. Morðið á al-Hamdi var mikið áfall fyrir framsækin, and-heimsvaldasinnuð og hugsanlega sameinandi öfl í Jemen.
Sterki maðurinn Saleh
Upp frá því varð Ali Abdullah Saleh valdamikill og hann varð forseti Norður-Jemens árið 1978 og alls Jemens eftir sameininguna. Hann gerði í meginatriðum hvað sem Sádi-Arabía vildi, með einni mikilvægri undantekningu: Árið 1990 var hann hlutlaus í Persaflóastríðinu. Jemenar guldu það dýru verði, því Sádi-Arabía rak á endanum yfir eina milljón Jemena úr landi, aðallega farandverkamenn, og það kom harkalega niður á efnahag Jemens.
Hann leyfði fótgönguliðum wahhabíta að setjast að, fyrst í norðurhluta Jemens en þeir höfðu tilhneigingu til að færa sig suður á bóginn. Margir þeirra bardagamanna sem börðust gegn Sovétríkjunum í Afganistan voru frá Jemen og þegar þeir sneru aftur til Jemens varð Suðrið fyrir áhrifum af wahhabísku íslam. Norðrið veitti wahhabískum áhrifum öllu meiri mótspyrnu, ekki síst vegna Ansar Allah.
Árið 1994, aðeins fjórum árum eftir sameininguna, studdi Sádi-Arabía sunnanmenn sem vildu nú segja sig úr sameinuðu Jemen. Saleh stýrði sprengjuherferð þar til leiðtogar sunnanmanna flýðu. Þetta varð í raun endalok sósíalískrar forystu í Jemen. Hann neyddi Suðrið til að lúta forystu sinni.
Ég held að Saleh hafi umfram allt verið tækifærissinni. Honum var í raun aðeins umhugað um að gera sjálfan sig, sinn ættbálk og pólitíska bandamenn sína ánægða og auðuga. Þegar hann var drepinn síðla árs 2017 áætluðu Sameinuðu þjóðirnar að hann hefði átt um 60 milljarða dollara í erlendum eignum.
Jemenar fengu minna en einn dollara á dag, eða tvo dollara á dag þegar betur áraði. Stjórn hans var því einræðisstjórn. Með árunum komst hann einnig í mjög náið samband við ríkisstjórn Bush. Hann leyfði al-Qaeda að skjóta rótum á Arabíuskaga en vann á sama tíma með þeim sem börðust gegn samtökunum. Hann lék því tveimur skjöldum.
Í norðurhluta Jemens tók Ansar Allah að tala opinskátt gegn stjórn hans og gegn því að wahhabítum væri leyft að reisa wahhabíska skóla og fjármagna fjölda miðstöðva í Jemen. Wahhabismi getur ekki þrifist samhliða neinu öðru kerfi.
Heimspólitík og bylting
Sádi-Arabar og Vesturlönd, Bandaríkin, Bretland og fleiri, eru mjög upptekin af Bab al-Mandeb sundi. Ég hef sagt þetta árum saman, því fólk spurði gjarnan: „Jemen á enga olíu, hvers vegna eru allir að skipta sér af Jemen?“ Jú, Jemen á Bab al-Mandeb sund, sem er gríðarlega mikilvægur landfræðilegur flöskuháls í strategísku tilliti.
Það þjónaði einnig hagsmunum þessara drottnandi stórvelda að Jemen væri klofið. Þau sáu til þess að hafnir landsins byggðust ekki upp, því þá myndu þær keppa við hafnir við Persaflóa, t.d. hafnir Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Ástæða þess að Bretar vildu Aden á sínum tíma – og hernámu og gerðu Suður-Jemen að nýlendu – var höfnin í Aden og mikilvægi hennar fyrir heimsviðskipti.
Saleh þjónaði hagsmunum þeirra og það var orsök byltingarinnar 2011, sem hófst í fyrstu sem friðsamleg mótmæli gegn Saleh, sem að lokum varð að víkja.
Þáttur trúarbragðanna í sögu Jemens
Sögulega hafa um 60% Jemena verið súnnítar sem fylgja shafi’i-skólanum, sem er ekki aðeins umburðarlyndur heldur ber virðingu fyrir öðrum skólum. Margir innan shafi’i-skólans eru einnig súfistar og aðhyllast því andlegri hliðar íslams. Afi minn og amma voru til dæmis shafi’ítar og jafnframt súfistar. Hin 40% Jemena eru zaydí-sjítar (eða zaydí-sjíamúslimar)
„Tólfungar“ eru meginstraumur sjía-íslams. Þeir trúa á tólf ímama, eða leiðtoga, á eftir spámanninum. Svo eru aðrar greinar sjía-íslams sem klufu sig frá við fimmta eða sjöunda ímaminn, og sumar sem halda áfram, til dæmis ismailítar, sem hafa ennþá lifandi ímam. Zaydítar urðu þekktir sem „fimmungar“ þegar þeir klufu sig frá við fimmta ímaminn. Ástæða ágreiningsins skiptir miklu máli hér, því hún varpar ljósi á þá hugmyndafræði sem þeir fylgja enn. Klofningurinn varð vegna þess að einn hópur/söfnuður taldi að bróðirinn sem háði stríð gegn hinum kúgandi valdhafa ætti að verða næsti ímam fremur en eldri bróðir hans. Þeir eru kallaðir zaydítar því þeir fylgdu ímaminum Zayd. Kjarni guðfræði þeirra er að berjast opinberlega fyrir réttlæti og gegn kúgandi valdhöfum. Þaðan kemur þessi framsækna sýn. Tólfungar fóru aðra leið. Þennan þátt er einnig að finna í tólfunga-íslam, en hann var sérstaklega það sem bókstaflega skapaði zaydí-íslam.
Þetta eru því þeir skólar sem urðu ríkjandi í Jemen, zaydítar og shafi’ítar, og þeir lifðu saman í sátt öldum saman. Eins og ég sagði var Jemen í þúsund ár stjórnað af zaydískum ímömum og það var ekkert vandamál. Súnnítar voru samt meirihlutinn og engin kúgun átti sér stað. Það eru engar zaydískar moskur andspænis súnnískum moskum. Hjónabönd milli hópanna eru fullkomlega eðlileg.
Svo kom hið wahhabíska íslam til sögunnar, ofbeldisfullt og umburðarlaust kerfi sem notar trúarbrögð til að sundra fólki og breiddist út með ofbeldi á 18. og 19. öld. Margir í Suður-Jemen sérstaklega fóru að aðhyllast wahhabíska hugmyndafræði. Margir þeirra vilja ennþá sjálfstætt Jemen, en þeir vilja ekki snúa aftur til sósíalisma.
Margir þessara hópa eru í raun nú salafískir, wahhabískir hópar og það má þakka það Sádi-Arabíu og virkni hennar í Jemen.
Sádar hafa líka flutt wahhabíska hugmyndafræði út til Pakistans, Bangladess og Indlands. Um allan heim tóku einkum fátækari lönd fagnandi við sádi-arabísku fjármagni og peningum til að styrkja skóla, moskur og þess háttar. En þetta er svo hættuleg hugmyndafræði, hún ól líka af sér al-Kaída, al-Shabaab, ISIS og alla þessa öfgahópa sem sýna algert umburðarleysi gagnvart tilvist hvaða minnihluta sem er, hvort sem það eru sjítar eða aðrir súnnítar – svo ekki sé minnst á jasída eða saraþústratrúarmenn.
Andspyrnan
Houthi-fjölskyldan og sú víðari hreyfing sem hún stofnaði, Ansar-Allah hreyfingin, fóru einnig að tala gegn heimsvaldastefnu, sérstaklega gegn íhlutun Bandaríkjanna í Jemen og innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003. Þá hafði Saleh alveg verið beygður undir Sádana og hann mótmælti ekki seinna Persaflóastríðinu [Íraksstríðinu]. En hann varð var við andspyrnuna innanlands. Bandaríkin ætla sér bara að arðræna og herja og valda dauða og eyðileggingu, en við, íbúar svæðisins, eigum að bera kostnaðinn.
Þetta er afstaða sem flestir Jemenar deila. Í gegnum söguna, þegar Ottómanar komu og fóru í meira en 500 ár, voru gerðar uppreisnir gegn þeim. Þegar Bretar voru þar, eins og ég nefndi, voru gerðar uppreisnir gegn Bretum. Stuðningurinn við Palestínu kom af sjálfu sér hjá Jemenum. Það var ekki bara vegna þess að þeir skildu hvað það þýddi að vera sveltir og í herkví, líkt og í herkví Sádanna á árunum 2015 til 2022.
Jafnvel undir stjórn konunganna, til dæmis árið 1947, gengu Jemenar út af þingi SÞ þegar Ísraelsríki var stofnað. Kommúnistarnir í suðrinu notuðu Bab al-Mandeb-sund einu sinni, og það var til stuðnings Palestínu árið 1973. Og m.a.s. Saleh sjálfur hýsti leiðtoga PLO sem voru reknir frá Líbanon í borgarastyrjöldinni þar. Ég man að þegar ég bjó í Aden áttum við marga, marga palestínska nágranna. Jemenar hafa því alltaf staðið sameinaðir með Palestínumönnum gegn síonisma og Ísrael, og það er rótin að því hvað við höfum öll tekið skýra afstöðu gegn heimsvaldastefnu.
Meðan á stríði Salehs gegn Ansar Allah stóð leitaði hann þess vegna stuðnings hjá Sádum, þótt hann væri sjálfur zaydíti. Hann hélt því fram að: „þessir menn eru við landamærin ykkar, þeir hata ykkur og sætta sig ekki við nærveru ykkar í Jemen, svo þið ættuð að vera jafnæstir og ég í að losna við þá!“ Sádar tóku síðan beinan þátt í „Saada-stríðunum sex“.
Hann leitaði einnig stuðnings hjá Bandaríkjunum og hélt því fram að: „þessir menn eru sjítar, þeir hljóta að fá vopn frá Íran.“ Það má lesa allt um þetta í skjölum WikiLeaks. Þáverandi sendiherra Bandaríkjanna í Jemen tók málið alvarlega og ákvað að rannsaka hvaðan Ansar Allah fengju vopn sín. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að þeir fengju í raun vopnin annaðhvort með því að hertaka þau í bardögum eða á svarta markaðnum. Þannig voru vopn sem streymdu inn frá Bandaríkjunum seld líka til Ansar Allah.
Þeir fá enn vopn með því að hertaka þau í bardögum. Við sjáum þetta á YouTube og Twitter. Í hvert sinn sem þeir ná tilteknum eftirlitsstöðvum á sitt vald og hersveitir sem njóta stuðnings Sádi-Araba skilja eftir ökutæki sín eða vopn, leggur Ansar Allah hald á þessi vopn og ökutæki og notar þau í næstu sókn.
Samskipti Írans og Ansar Allah eru góð, en á þeim tíma var engin ástæða fyrir Íran að blanda sér í málin. Jafnvel núna er engin ástæða fyrir Íran að blanda sér í málefni Jemens að neinu marki. Á árunum 2015 til 2022 veittu Íranar þeim vissulega einhvern tæknilegan stuðning og upplýsingar, en lítið annað, af því landið sætti hafnbanni í lofti, á landi og á sjó í átta ár.
Kúgun og yfirgangur Sáda
Á árunum 2015 til 2022 settu Sádi-Arabar grimmilegt hafnbann á Jemen sem kostaði hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið. Í raun vitum við ekki einu sinni hve margir voru drepnir eða létust af völdum hafnbannsins. Og þeir hættu ekki fyrr en Ansar Allah fór að ráðast á skotmörk innan Sádi-Arabíu og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Eftir að Saleh fór frá árið 2012 tók við bráðabirgðaforseti, Hadi, sem hafði verið varaforseti Saleh í 20 ár. Hann tilheyrði gömlu valdaklíkunni sem fólk var að rísa gegn. En honum var falið að stýra svokölluðum „þjóðarsamræðum“ sem voru samþykktar og undir eftirliti GCC, Samstarfsráðs Persaflóaríkjanna.
Þjóðarsamræðurnar áttu að leiða saman ýmsa aðila. Ansar Allah, sunnanmenn, kvenna- og verkalýðshreyfingar og alls kyns stjórnmálaflokkar áttu fulltrúa. Áður en ráðstefnunni lauk voru tveir af fulltrúum Ansar Allah ráðnir af dögum. Sunnanmönnum fannst einnig að niðurstaðan myndi ekki fela í sér neina raunhæfa lausn á vanda suðursins. Því sniðgengu bæði sunnanmenn og Ansar Allah síðasta hluta þessara þjóðarsamræðna.
Árið 2014 rak Hadi síðasta naglann í líkkistuna þegar hann lét undan aðhaldskröfum AGS og afnam niðurgreiðslur á eldsneyti. Það leiddi til gríðarlegra mótmæla sem Ansar Allah skipulagði. Þeir unnu með verkalýðsfélögum og ýmsum hópum og skipulögðu gríðarleg mótmæli í ágúst sama ár og náðu að lokum höfuðborginni á sitt vald til að reyna að knýja Hadi til að leita annarrar lausnar fyrir framtíð Jemens, lausnar sem væri ekki bundin AGS eða Persaflóaríkjunum.
Næstu mánuði, síðla árs 2014 og snemma árs 2015, hafði SÞ umsjón með friðarviðræðum sem allir hinir mismunandi hópar tóku þátt í, og innan fárra mánaða náðist í raun að minnsta kosti bráðabirgðalausn. Jamal Benomar var sérstakur erindreki SÞ á þeim tíma og skrifar um þetta. Hann hafði umsjón með ferlinu og útskýrir að hann hafi verið í símasambandi við Ríad í mars 2015, þar sem Ríad hafði áhuga á því að samkomulagið yrði undirritað í Ríad. Hvers vegna það? Þeir áttu enga aðild að ferlinu og það var ekki líklegt til að falla þeim í geð, þar sem Ansar Allah var meðal aðilanna sem áttu þarna fulltrúa. Innan tveggja daga, segir Benomar, hófu Sádi-Arabar sprengjuárásir á Jemen.
Og héldu síðan áfram að varpa sprengjum á Jemen og svelta landið allt til ársins 2022.
Snemma árs 2022 skaut Ansar Allah eldflaug rétt fyrir utan sádísku borgina Jeddah einmitt þegar Formúlu 1 kappaksturinn var að hefjast þar, og einnig var gerð árás á Abú Dabí [í Sameinuðu arabísku furstadæmunum] og mánuðina á undan líka á borgina Aramco. Því Sádi-Arabía er að reyna að hrinda í framkvæmd „Framtíðarsýn 2030“ undir stjórn krónprinsins Mohammeds bin Salman, auka fjölbreytni efnahagslífsins og laða að mikla fjárfestingu. Þannig að árásin á Jeddah var afar vel tímasett árás.
Það fékk Sádi-Araba til að setjast að samningaborðinu af alvöru. Þeir samþykktu á sex mánaða vopnahlé. Það rann út í október, en þeir héldu það í raun allt til júlí 2026.
Nú vil ég taka skýrt fram: Á þessum fjórum árum vopnahlés gerðu þeir ekkert annað í friðarátt en að hætta beinum sprengjuárásum á Jemen og leyfa eina flugleið frá flugvellinum í Sanaa til Amman í Jórdaníu. Fram að því hafði flugvellinum verið lokað í sjö ár og 80% jemensku þjóðarinnar gat ekki farið úr landi. Þau höfðu ekki aðgang að neinum flugvelli nema með því að leggja upp í afar hættulegar ferðir um suðurhluta landsins, sem Sádi-Arabar réðu.
Og nú hleypa Sádar fleiri skipum inn í Jemen. Þeir skoða samt enn allt og allt krefst enn samþykkis Sáda, en þeir hafa leyft meiri neyðaraðstoð og takmörkuð viðskipti að hefjast á ný. Á sama tíma hafa þeir verið að víggirða vesturströndina. Bróðursonur Saleh, Tareq Saleh, naut stuðnings Sáda, síðan Sameinuðu arabísku furstadæmanna og nú Sáda aftur, hann og hersveitir hans meðfram allri strönd Rauðahafsins og byggðu þar flugvelli, og þeir hafa í raun verið að undirbúa sókn til að ná Sanaa aftur úr höndum Ansar Allah.
Í apríl 2022 ákváðu Sádar einnig að hin svokallaða „lögmæta ríkisstjórn“ Jemens þjónaði þeim ekki lengur, því hún naut ekki neins lögmætis innan Jemens. Hún hafði haft aðsetur í Ríad allan tímann. Fólk kallar hana í kaldhæðni „hótelstjórnina“ eða „Facebook-stjórnina“. Sádar viku Hadi frá og settu á fót sitt eigið átta manna Forsetaráð (Presidential Leadership Council). Það er hin svokallaða „alþjóðlega viðurkennda ríkisstjórn Jemens“.
Í júlí á þessu ári, þegar Ansar Allah vildi senda sendinefnd í útför Khameneis ajatollah í Íran, fór farþegaflugvél frá Teheran til Jemens með fjölda óbreyttra borgara sem höfðu verið strandaglópar erlendis árum saman. Þeir fluttu þá heim til Jemens og sóttu síðan sendinefnd Ansar Allah til að vera viðstödd útförina, en einnig nokkurn fjölda fólks sem vildi leita sér læknisaðstoðar í Íran eða annars staðar.
Sádar hótuðu því að ef flugvélin sneri aftur til Sanaa myndu þeir sprengja hana og flugvöllinn í Sanaa. Þeir hótuðu að granda farþegaflugvél! Þeir sprengdu vissulega flugvöllinn í Sanaa, en flugvélinni var beint til flugvallarins í Hodeidah, sem hafði ekki verið notaður í mörg ár, og hún lenti heilu og höldnu. Það var það sem kveikti þetta stríð á ný.
Ansar Allah hefur náð töluverðu landsvæði. Öll strönd Rauðahafsins er nú á þeirra valdi. Tareq Saleh hefur gjörsamlega brugðist. Og þeir hafa tekið Taiz-hérað. Þeir hafa í raun umkringt allt héraðið, þótt borgin sé ekki enn á þeirra valdi. Og á síðustu dögum hafa þeir tekið hluta af Lahj-héraði í suðri, sem veitir þeim nú aðgang að Adenflóa líka, að tveimur höfum, ekki aðeins Rauðahafi heldur einnig Adenflóa.
Sádar hafa nýlega sent frá sér yfirlýsingu um að þeir búist við að átökin haldi áfram næstu sex mánuði. Það er athyglisvert val. Einhver þarf að eiga alvarlegt samtal við Mohammed bin Salman, því hann er augljóslega ófær um að taka skynsamlegar ákvarðanir í þessu máli.
STC og þáttur Sameinuðu arabísku furstadæmanna
Svo er það STC, Bráðabirgðaráð suðursins (Southern Transitional Council). Markmið þess er að segja sig úr lögum við norðrið. STC var stofnað árið 2017 með fjármagni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Furstadæmin hafa verið samsek í þessum stríðsglæpum ásamt Sádi-Arabíu í Jemen, en þau hafa alltaf haft aðra stefnu. Mér hefur alltaf fundist að eitthvað myndi gerast á milli Sáda og Furstadæmanna vegna ósamrýmanlegra markmiða. Sádar vilja sameinað Jemen og ná Norður-Jemen aftur úr höndum Ansar Allah. Furstadæmin styðja hópa sem vilja einungis hið hefðbundna Suður-Jemen, sem þeir hafa í raun ráðið frá 2015, en eru nú að tapa því til Ansar Allah.
Snemma á þessu ári, í janúar, efldist STC og tók að leggja undir sig hluta suðausturhluta Jemens í Hadramawt. Sádar brugðust við með því að sprengja þessar sveitir sem studdar eru af Furstadæmunum. Svo Emíratar og Sádar fóru í raun í stríð hvorir við aðra í Jemen í janúar á þessu ári.
Ég hef alltaf sagt að Furstadæmin séu stærra vandamálið hér, því þau hafa alltaf haft heimsvaldastefnumarkmið á svæðinu. Markmið þeirra er að ráða yfir strandsvæðunum, tryggja sér yfirráð yfir gasvinnslustöðvum og eyjum. Þau hafa í raun innlimað eyjuna Sókótru í Suður-Jemen. Þau höfðu áhuga á strönd Rauðahafsins vegna þess að eina herstöð Kína utan Kína er einmitt í Djíbútí, sem er beint handan við Bab al-Mandeb-sund.
Furstadæmin tóku einnig þátt í rekstri leynifangelsa í suðrinu, þar sem margir voru pyntaðir. Þau eru land með vissa heimsveldisdrauma. Við sjáum líka hvað Furstadæmin eru að gera í Súdan til að vinna gull og festa eigin völd í sessi á svæðinu með grimmilegum aðferðum. Þeir unnu einnig með málaliðum, Erik Prince, hvaða samtök sem hann rekur um þessar mundir, útvegaði málaliða í Jemen, gegnum Furstadæmin. Þar voru því Janjaweed-sveitirnar, sem urðu að RSF í Súdan, og fólk alls staðar að úr heiminum sem starfaði sem málaliðar í Jemen vegna SAF. Furstadæmin hafa því gegnt mjög þungvægu og hættulegu hlutverki í Jemen.
Það hentar þeim fullkomlega að halda Jemen klofnu, en Sádar vilja sameinað Jemen. Hins vegar mun yfirtaka Ansar Allah á Jemen hvorki gagnast Sádum né Furstadæmunum. Þeir munu því líklega aftur ákveða að vinna saman.
Ég held að Ansar Allah muni ekki taka Aden með valdi, því þeir skilja söguna. Þeir skilja gremju sunnanmanna í garð norðursins. Auk þess reyndi Ansar Allah það einu sinni og mistókst hrapallega: sumarið 2015, þegar Sádar hófu sprengjuárásir, sagði Hadi af sér og flúði til Aden, og Ansar Allah-menn fóru til Aden til að ná honum og láta hann svara til saka. Sunnanmenn veittu Ansar Allah harða mótspyrnu, því þeir litu á þá sem enn einn „norðlendinginn“ sem kæmi til að leggja undir sig suðrið, og Aden sérstaklega. Sú saga lifir enn, og hugmyndir um sjálfstæði suðursins eru enn mjög sterkar í Aden. Ég held að Ansar Allah vilji ekki endurtaka mistökin frá sumrinu 2015.
Ég held því að takist þeim að frelsa það sem eftir er af Jemen, yrði það að gerast með viðræðum við STC, svo framarlega sem STC njóti ekki stuðnings Furstadæmanna. Ég held að það sé útreikningur Ansar Allah eins og er. Sama gildir um Taiz. Þeir hafa ekki áhuga á að taka borgina Taiz sjálfa með valdi. Þeir vinna nú að einhvers konar pólitísku samkomulagi, til að fá fólk til að afhenda borgina eða sætta sig við stjórn þeirra án blóðsúthellinga, því Taiz er mjög þéttbýl borg. Þeir reyna því að beita þrýstingi og jafnframt vinna hylli fólksins. Á meðan varpa Sádar sprengjum á íbúa Taiz líka, og á markaði, skóla og þess háttar, og vinna með því sjálfum sér ógagn.
Á komandi mánuðum geri ég því ráð fyrir að Ansar Allah vinni meira land. „Forsetaráðið“ er algjörlega sundrað og gjörsamlega óhæft. Sádar munu halda áfram að fremja stríðsglæpi. Ef þeim er annt um eigið efnahagslíf og eigið land ættu þeir að draga sig út úr Jemen, og láta sér skiljast að það er sama hve lengi þeir reyna og sama hvað það kostar, þá mun Jemen halda áfram að veita þeim mikla mótspyrnu.
Aths: Viðmælandinn Shireen Al-Adeimi er fædd í Jemen en fluttist 12 ára til Kanada og síðan til Bandaríkjanna. Hún er dósent við Michigan State University. Hún hefur á undanförnum árum talað og ritað mikið um bandaríska utanríkisstefnu, um Vestur-Asíu og ekki síst stríðið í Jemen, m.a. fyrir The Nation, NBC, NPR, Al Jazeera og ekki síst fyrir hina virtu hugveitu Quincy Institute for Responsible Statecraft þar sem hún var um tíma gestafræðimaður. Viðtalið birtist á Substack Radhiku Desai, Geopolitical Economy Hour þann 19. nóvember.
Katjana Edwardsen bjó greinina til birtingar.










