Þú átt ekki ein orð þín Kristrún
—

Ögmundur Jónasson
19. jún, ’25

Ég er ábyrgur orða minna. Það er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra einnig. En sá er munurinn á okkur að hún er í stöðu til að tala fyrir mína hönd en ég ekki fyrir hennar. Þess vegna kemur mér það við hvað hún segir.
Og nú segist forsætisráðherrann vilja setja 70 milljarða á ári hverju í hernaðarútgjöld Íslendinga. Undir blossaregni ljósmyndara í Brussel á fréttamannafundi með forstjóra NATÓ sagði hún Ísland vilja verja hin „sameiginlegu gildi“ og að „fyrsta varnarlína“ Íslands væri í Úkraínu. Látum að sinni liggja á milli hluta hvar sé vörn og hvar sé sókn. Þar eru línur ekki eins afdráttarlausar í mínum huga og lagsmannanna í NATÓ og er fyrir löngu tímabært að spyrja hvers vegna það hernaðarbandalag þurfti að þenja sig út þegar „óvinurinn“ var að skreppa saman.
En það eru meint „gildi“ forsætisráðherra Íslands og ráðamanna Vesturheims almennt sem mig langar til að fara nokkrum orðum um því hrokinn á þeim bæ keyrir nú svo úr hófi fram að hann gæti beinlínis orðið okkur öllum að falli enda segir í Orðskviðum að dramb sé falli næst, hroki viti á hrun.

Donald Trump minnir heiminn á það þessa dagana hve nýlenduhugsunin stendur nærri hjarta hans og er hann þar enginn eftirbátur gamalla og nýrra nýlenduherra Evrópu. En hið grátbroslega er að í Evrópu skuli býsnast yfir orðum hans: Hann vilji Grænland og því aðeins vilji hann styðja Úkraínu að bandarískir „athafnamenn“ fái þar frían aðgang að auðlindum.

En hvað skyldu þeir Evrópumenn sem nú býsnast hafa aðhafst sjálfir síðustu misseri og ár í þessu sama landi?

Úkraína hefur verið kölluð matarkista Evrópu með gjöfulli mold sinni til kornræktar. Eftir fall Sovétríkjanna var landinu skipt upp á milli milljóna bænda og var ætlunin að halda eignarhaldinu innanlands. Hins vegar fylgdu hernaðarstuðningi og lánveitingum til Úkraínu að vestan skilyrði um markaðsvæðingu efnahagskerfisins og þar með að rýmkuð yrði takmarkandi umgjörð um landbúnaðinn. Gegn þessu var mikil andstaða í Úkraínu en þær deilur sem þessu fylgdu þóttu aldrei áhugaverðar í vestrænum fjölmiðlum.
Ekki leið á löngu þar til að aðþrengdir bændur tóku lán. Þeim fylgdu veð og veðunum fylgdi síðan breytt eignarhald. Samkvæmt rannsóknarskýrslu Oakland-stofnunarinnar bandarísku er heimilisfesti tíu stærstu eignaraðila ræktarlands í Úkraínu þannig: tveir í Lúxemborg, þrír á Kýpur, tveir í Bandaríkjunum, einn í Hollandi, einn í Saudi-Arabíu og einn í Úkraínu sjálfri. Þessir eiga þegar þriðjunginn af ræktarlandi Úkraínu.
Augljóst er að eigendurnir, oligarkar og alls kyns fjárfestingarsjóðir, kjósa að eiga heima í skattaskjólum en þarna eru á ferðinni gammar sem jafnan flögra yfir svæðum sem lenda í þrengingum. Í Úkraínu eru þeir í boði Vesturlanda, ekki síst þeirra sem hneykslast yfir Trump sem er þegar allt kemur til alls bara reiður yfir að hafa ekki fengið meira, helst miklu meira!

Starmer hinn breski lýsti því kokhraustur yfir fyrir skömmu að Bretar hygðust bæta í við hernaðarstuðning sinn við Úkraínu. Þessu var ákaft fagnað þótt neðanmáls kæmi fram, eins og fyrri daginn, að stuðningurinn væri ekki óskilyrtur heldur lán – og að sá sem kæmi til með að borga væri Pútín og óligarkarnir, rússneskar eignir hvar sem til þeirra næðist myndu renna til vopnasalanna. Vitaskuld koma hvorki Pútin né rússneskir stórþjófar til með að borga herkostnaðinn, það gera milljarðamæringar aldrei, heldur rússneskur almenningur, óháð stjórnarfarinu í heimalandinu.
Evrópuálfan gaf heiminum svo ágengan iðnaðarkapítalisma að hann er á góðri leið með að granda þessum sama heimi. Hún stóð fyrir þrælahaldi og nýlenduarðráni um heimskringluna alla, efndi til tveggja heimsstyrjalda og ber ábyrgð á milljónamorðum í Helförinni, bjó til viðvarandi misskiptingu heima fyrir og teiknaði heimskort með reglustriku þar sem hagsmunir arðræningjanna einna voru hafðir í huga. Ekkert ríkjanna fyrir botni Miðjarðarhafs, svo dæmi sé tekið, var til fyrir rúmum hundrað árum – öll búin til í París og London. Þar var dregið upp heimskortið sem sundraði menningarheimum og bjó þannig til jarðveg ófriðar. Þetta var líka gert heimafyrir. Ítrekað hafa valdhafar endurteiknað landakort Evrópu, óháð vilja hins almenna íbúa á umdeildum landsvæðum.
Með þessa sögu að baki ber að fara varlega í tali um evrópsk gildi. Í Evrópu sem annars staðar hefur góð gildi vissulega verið að finna í tímans rás en þegar kemur að breytni valdamanna álfunnar fram á þennan dag ættu allir að gæta sín í yfirlýsingum. Líka Kristrún.
Og enn hef ég ekki minnst á þjóðarmorðið á Gaza-ströndinni þar sem fólk er myrt tugþúsundum saman með NATÓ vopnum.
Ísrael á rétt á tilveru sinni og hefur rétt til þess að verja sig segir NATÓ heimurinn einum rómi.
Það er ekki sagt í mínu nafni.
Ekkert ríki hefur tilverurétt óháð gjörðum sínum! Ekkert!
Það eina sem hefur ótvíræðan tilverurétt eru mannréttindi. Til þeirra gilda einna á Ísland að horfa á alþjóðavettvangi.
Svo skulum við gleyma þessum 70 milljörðum.

Tekið af heimasíðu höfundar og hefur áður birst í Morgunblaðinu og á Samstöðinni.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.