Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir?
—

Viðar Hreinsson
25. ágú, ’25

Vesturlönd stæra sig af hugmyndum um jöfnuð, jafnræði, lýðræði og mannréttindi sem hampað er á tyllidögum og mynda kjarnann í starfi fjölda alþjóðastofnana sem virka einfaldlega ekki. Þessar hugmyndir þróuðust meðfram kapítalisma og nýlendustefnu sem byggjast á ofbeldi gagnvart umhverfi jafnt sem mannlegu samfélagi. Oft hafa þessar göfugu hugmyndirnar verið notaðar til að réttlæta eða breiða yfir ofbeldið, enda hafa lögmál viðskipta og kapítals lengi verið æðri öllum siðaboðum í praxis. Þetta misræmi boðunar og gjörða hefur lengi verið himinhrópandi en undanfarin tvö ár hefur það keyrt um þverbak.

Nú er svo komið að siðferðlegt og hugmyndalegt skipbrot Vesturlanda er algjört og birtist í pólitísku vanmætti. Almenningur um allan heim mótmælir morðæðinu á Gaza kröftuglega en það kemur fyrir ekki, því vestræn stjórnvöld aðhafast ekkert, en hafa uppi fögur orð að vanda. Þó er þetta morðæði hreinræktað afkvæmi vestrænnar þjóðernis- og nýlendustefnu og af þeim sökum á ábyrgð þeirra. Hvort eitthvað er meint með ótal fögrum orðum, ályktunum og yfirlýsingum, á borð við fálmandi mjálm utaríkisráðherra í kvöldfréttum sjónvarps, skiptir ekki minnsta máli. Orð ráðherrans væru hlægileg ef málið væri ekki jafn alvarlegt og raun ber vitni. Ekkert hefur áhrif nema beinar aðgerðir: viðskipta- og vopnasölubann, sniðganga (sem aðgerðasinnar standa fyrir af dugnaði), bann við komu Ísraelskra ferðamanna, slit á stjórnmálasambandi, útilokun frá alþjóðasamstarfi (ekki síst á sviði menningar og íþrótta), brottrekstur úr Sameinuðu þjóðunum og stuðningur við kæru til Alþjóðaglæpadómstólsins. Aðgerðaleysi íslenskra og annarra vestrænna stjórnvalda er fyrirlitlegt, Ísland hefur ekki einu sinni gengið í lið með Haag hópnum svokallaða sem reynir þó að grípa til aðgerða.

Í ofanálag er hugmyndin um tveggja ríkja lausn hrein klisja sem hver étur upp eftir öðrum með slefi og öllu. Eina lausnin er eitt lýðræðisríki þar sem allir hafa jafnan rétt, Palestínumenn og Gyðingar af öllum trúarbrögðum en til þess þyrfti að binda endi á þann banvæna og rasíska síonisma með tilheyrandi aðskilnaðarstefnu sem ríkt hefur. Það er hlálegt að þessi hugmynd er náttúrlega í góðu samræmi við þær lýðræðishugmyndir sem Vesturlönd stæra sig af en framkvæma ekki nema eftir hentugleikum.

Siðferðilegt og menningarlegt skipbrot Vesturlanda er skelfilegt. Það sýnir ekki aðeins djúpstætt vanmætti gagnvart hreinræktuðu þjóðarmorði og þjóðernishreinsun, botnlausri grimmd, afmennskun og kvalalosta. Það sýnir svart á hvítu að undirstöðurnar sem við teljum samfélag okkar og menningu byggjast á eru að bresta. Það er engin leið til baka, en það er enn hægt að stöðva þennan hrylling. En ef svo heldur fram sem horfir óttast ég að engin fær leið sé fram á við heldur, önnur en í átt að frekara ofbeldi og afmennskun. Ástandið er svo alvarlegt að göfugar áhyggjur af svokölluðu akademísku frelsi verða hlægilegar. Frelsishugmyndir mega sín lítils gagnvart afmennskandi ofbeldi sem fær að vaða uppi óáreitt. Því óáreitt er það enn af stjórnvöldum sem mjálma fálmandi og raddir menningar- og menntageirans eru strjálli og lágværari en hægt er að sætta sig við. Fái ofbeldið að halda áfram að vera jafnóáreitt verður það einfaldlega smátt og smátt viðurkennt, enda praktíserað af æ fleiri svkölluðum þjóðhöfðingjum. Og þá gleyma æ fleiri akademíkerar líklega frelsishugsjónunum og fara að einbeita sér að því að þóknast þeim sem ráða.

Hvað er það svo sem Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir samþykkja ásamt öðru framáfólki Vesturlanda með aðgerðaleysinu? Rúmlega 62.000 manndráp staðfest en talið er að tugir þúsunda séu grafin undir rústum. Af þessum 62.000 eru hátt í 19.000 börn og nærri 10.000 konur. Og samkvæmt nýjustu uppljóstrunum upp úr opinberum gögnum í Ísrael eru um 83% fallinna óbreyttir borgarar þótt þarlend stjórnvöld reyni stöðugt að ljúga öðru. Hátt í 160 þúsund manns eru limlest, og ekki þarf að fletta fjölmiðlum lengi til að rekast á myndir og frásagnir af hræðilega limlestum og bækluðum börnum. Um 1600 heilbrigðisstarfsmenn hafa verið myrtir og vel á þriðja hundrað blaðamanna eða fjölmiðlafólks og löngu orðið ljóst að þetta fólk er markvisst haft að skotmarki. Ekkert lát er á vopnasölu Vesturlanda til Ísraels svo hægt sé að halda uppi fjörinu.

Afleiðingarnar í nærmynd á bak við tölurnar: Litla stúlkan með vatnsbrúsann sem sprengd var upp, sundurskotin lík á sjúkrahúsi, fljúgandi lík og útlimir, hungurmorða börn, sveltandi fólk með tóm matarílát, hrunin hús, skotgöt á tjöldum, fólk á flótta undan sprengingum, grátandi fólk með barnslík í fanginu, fólk grafið látið og lifandi úr rústum, skurðaðgerðir á sjúkrahúsgólfi, jafnvel án deyfingar – við lítum undan í hryllingi en megum það samt ekki, því við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þetta. ‚A meðan malar síoníska áróðursvélin. Það verður að liggja milli hluta hvort stjórnvöld skilja samhengið eða hvort þau vilja það ekki. Við hversdagsfólkið getum ekki litið undan lengur. Almenningur verður að þrýsta á þau af öllum lífs og sálar kröftum.

Með aðgerðaleysinu eru vestræn stjórnvöld og viðskiptalíf samsek og ómögulegt að vita hvað framtíðin ber í skauti um réttarhöld, annað hvort alþjóðadómstóla eða sögunnar. Meginstraumsfjölmiðlar, jafnvel þeir virtustu, eru undir sömu sök yfirhylmingar felldir, þótt þar sé að verða einhver breyting á. Síoníska áróðursvélin hefur mallað lengi og verið óhugnanlega skilvirk.

Það er hægt að bregðast við með ýmsum hætti. Fjöldaþátttaka í mótmælum er mikilvæg og nota þarf allar hugsanlegar leiðir sem hver og einn hefur til að koma skilaboðum áleiðis til stjórnvalda. Beinn stuðningur í gegnum samfélagsmiðla og söfnunarsíður við nauðstatt fólk á Gaza er önnur leið sem orðin er nokkuð áberandi. Það er smátt í stóra samhenginu, Íslendingar eru fáir og við erum ekki mjög mörg sem erum virk í þessari hjálp en vildum gjarnan að fólki í slíkum hjálparaðgerðum fjölgaði stórlega. Gleymum því ekki að hvert mannslíf er dýrmætt, og sambandið sem komist hefur á við töluverðan fjölda fólks, einkum barnafólks, er líka verðmætt. Það stækkar heim okkar, við öðlumst dýpri innsýn í þetta hörmungarástand þegar við kynnumst fólki á Gaza persónulega, sorgum þess og jafnvel gleði, meira að segja draumum þess sem eru alltaf að bresta. Augljósasta leiðin er hjálparsamtökin Vonarbrú, sem safnar fé í sjálfboðavinnu og kemur því eftir öruggum leiðum til nauðstaddra en það er auðvelt að kynna sér fleir hliðar hjálparstarfsins á netinu og Facebook. Við sem í því stöndum erum flest fús til að fræða og leiðbeina. Og ekki má gleyma Reykjavíkurmaraþoni, fjöldi fólks hleypur fyrir Vonarbrú, sem hægt erð að kynna sér á heimasíðunni.

Persónulega er sú djúpstæða vinátta sem myndast dýrmæt. Að setja sig inn í kjör fólks og aðstæður, og uppskera einlægt þakklæti fyrir viðleitnina. Það er ekki auðvelt, að fylgjast með hjartfólgnum vinum veikjast og nánast veslast upp af næringarskorti, lýsa börnum sínum grátandi af sulti, segja frá stöðugum sprengingum, skotárásum og mannfalli í nánasta umhverfi. Áhyggjurnar geta líka verið nagandi þegar maður veit af sprengingum og skotárásum allt í kring um hjartkæra vini, jafnvel næturlangt. „Ég vona að öll ill öfl í heiminum hrynji“ segir ein vinkona í þessum skrifuðum orðum. „Mig langar til að geta sofið laus við flugvéladyn og sprengjugný“ segir önnur, þar sem enn einn brottflutningurinn vofir yfir.

Röd Íslands er kannski ekki sterk á alþjóðavettvangi en aðgerðir gætu vakið athygli sem hefði áhrif. Hjálparstarf einstaklinga og lítilla samtaka telur kannski ekki mikið á stóra sviðinu. En það þarf ekki stórar steinvölur til að koma af stað stækkandi skriðum. Ef til vill geta kærleiksverkin með tímanum gætt opinbert líf og stjórnmálin nýju inntaki.

En á meðan engin stjórnvöld gera neitt er bara haldið áfram að myrða börnin, mæðurnar, feðurna.

Greinin birtist á Vísi.is 22. ágúst. https://www.visir.is/g/20252765187d/thjodarmord-falmandi-mjalm-eda-adgerdir-

Höfundur er bókmenntafræðingur

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.