Þegar fórnar­lamb verður böðull
—

Sigurður Skúlason
31. okt, ’23

áður veröld steypist
mun engi maður
öðrum þyrma…
Vituð ér enn, eða hvað?
Völuspá

Það er ófrávíkjanlegt lögmál í mannheimum, gott ef ekki í gervallri náttúrunni, að öll kúgun fæðir af sér mótspyrnu. Sagan sýnir það, reynslan sannar það. Á meðan mannskepnan er eins og hún er verður þetta viðloðandi stef í samskiptum manna og þjóða. Hversu langt er hægt að ganga í ofríki og niðurlægingu manns eða þjóðar áður en viðkomandi svarar fyrir sig?

Hörmungarnar í Palestínu virðast engan enda ætla að taka og sífellt er gengið lengra í grimmdarverkum. Mistök Sameinuðu þjóðanna með því að samþykkja árið 1947 að Gyðingar fengju land í Palestínu eru einhver mestu afglöp sögunnar. Búin var til kenning um land án fólks fyrir fólk án lands. Gallinn var bara sá, að það var ekki til land án fólks. En samviskubitið yfir örlögum Gyðinga í Helförinni blindaði ráðamönnum á Vesturlöndum sýn og leiddi líka til botnlausrar meðvirkni með gjörðum Ísraelsmanna allar götur síðan. Þessi afglöp hafa leitt til landráns, hernáms og gegndarlausrar kúgunar Gyðinga á Palestínumönnum samfellt í sjötíu ár, þar sem öllum óþverrameðulum er beitt í því að niðurlægja fólk, loka það inni og síðan að sprengja það í loft upp. Gaza svæðið er stærsta fangelsi í heimi. Og um leið stærsti pyntingarklefi í heimi. Hversu lengi halda menn að hægt sé að sætta sig við slíkar þrengingar? Eða hvað heldur þú að þú myndir gera í sporum þessa fólks?

Gyðingar sem áttu alla okkar samúð og samkennd í Helförinni hafa nú tekið að sér hlutverk böðulsins. Og ofbeldi fæðir af sér ofbeldi. Yfirráð Ísraelsmanna eru algjör á öllum sviðum, hernaðarlega, efnahagslega og pólitískt, þar sem þeir eiga greiðan stuðning flestra þjóða á Vesturlöndum með Bandaríkin, Bretland og Evrópusambandið fremst í flokki. Þessar þjóðir (Ísland meðtalið) styðja þar með í verki yfirgang og ofbeldi Ísrarelsmanna gagnvart Palestínumönnum og lengja þetta hörmungarástand von úr viti.

Hvenær ætli okkur skiljist að það sem við gerum öðrum það gerum við okkur sjálfum? Í leikritinu Galdra-Lofti segir Steinunn á einum stað: „Þegar valurinn heggur rjúpuna í hjartað, vælir hann, því að þá skilur hann, að rjúpan er systir hans.“ Þetta minni úr gamalli þjóðsögu miðlar djúpstæðum sannleik. Okkur virðist fyrirmunað að skilja það að við erum öll eitt – að það sem við gerum öðrum gerum við okkur sjálfum, sbr. orð Jesú Krists: „Það allt sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.“ Og að sjálfsögðu á hann ekki við sína persónu, heldur það sem við erum öll innst inni, okkar sanna sjálf, vitundina sem er allt sem er. Undir yfirborðinu erum við öll eitt, allt eitt. Þar af sprettur boðorðið um að koma fram við náungann eins og okkur sjálf – að sjá sjálf okkur í öðrum.

Ofbeldi fæðir af sér ofbeldi. Hatur fæðir af sér hatur. Þannig er hinn endalausi vítahringur mannlegra samskipta. Annar mesti vitringur sögunnar, Búdda, sagði þessi orð fyrir meira en tvö þúsund og fimm hundruð árum: „Í þessum heimi verður hatur ekki yfirunnið með hatri, aðeins með kærleik. Þetta er hinn ævarandi sannleikur. Sigra reiði með ást, sigra illt með góðu, sigra nísku með örlæti, sigra lygi með sannleika.“

Sú kaldranalega heimsmynd sem við okkur blasir í dag sýnir hvað við eigum langt í land. Og hún á ekki aðeins við um það sem er eitthvað langt í burtu. Orsök hennar stendur okkur miklu nær en við viljum vita.

Höfundur er eftirlaunaþegi.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.