‘Það urðu engin valdaskipti’ – segir fyrrv. utanríkisráðherra Venesúela um forsetaránið
—

Ritstjórn
9. jan, ’26

Fáum aðilum er betur treystandi til að greina pólitísk deilumál, ekki síst á alþjóðavettvangi, en bandaríska rannsóknarmiðlinum The Grayzone. Sérstaklega þegar vestrænt fjölmiðlamoldviðri ákafast villir mönnum sýn.

Í einkaviðtali við Max Blumenthal hjá The Grayzone ræðir Jorge Arreaza, fyrrverandi utanríkisráðherra Venesúela, um hernaðarárás Bandaríkjanna á Caracas þann 3. janúar sem hafði í för með sér mannrán á Nicolás Maduro forseta og Ciliu Flores konu hans og dauða allt að 100 manns.

Jorge Arreaza slær föstu að aðgerð þessi hafi brotið í bága við alþjóðalög, stjórnarskrá Bandaríkjanna og friðhelgi þjóðhöfðingja og kallar hana „villimannlega“. Hann fullyrðir að Maduro og Flores hafi verið á öruggum stað og hafi verið varin af lífvörðum sem allir „fórnuðu lífi sínu“, en að tæknilegir yfirburðir Bandaríkjanna hafi gert mótspyrnu árangurslausa.

Hann hafnar fullyrðingum og sögusögnum um að Maduro hafi verið „svikinn innan frá“, vísar þeim á bug sem sálfræðihernaði sem ætlað er að sá sundrungu og fullyrðir að herinn og forysta Chavista-hreyfingarinnar séu enn sameinuð. Í meiri mæli en nokkru sinni.

Að sögn Arreaza „urðu engin valdaskiptiskipti“ þar sem Delcy Rodríguez varaforseti tók við forsetaembættinu og ríkisstjórnin starfar áfram með eðlilegum hætti; skólar hafa verið opnaðir á ný, olíuframleiðsla heldur áfram og lög og regla ríkja. Hann bendir á þann stöðugleika sem sönnun fyrir styrk Chavismo-hreyfingarinnar og einurð almennings sem hana styður. Hann heldur því fram að án þeirrar hreyfingar myndi Venesúela standa frammi fyrir borgarastyrjöld eða hruni líkt og í Líbíu 2011.

Arreaza lýsir Delcy Rodríguez, starfandi forseta, sem afar tryggum og hugrökkum leiðtoga Chavista-hreyfingarinnar. Hann segir að forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sé að tryggja lausn og endurkomu Maduro og Flores með lögfræðilegum málarekstri fyrir bandarískum dómstólum. Hann fordæmir ákærurnar á hendur þeim sem tilbúning og heldur því fram að friðhelgi Maduro ætti að knýja fram lausn hans.

Þótt Arreaza fordæmi hótanir og kröfur Trumps – eins og kröfur um að skera á tengsl við Kína, Rússland, Kúbu og Íran – heldur hann því fram að Venesúela sé áfram opið fyrir samningaviðræðum við Bandaríkin, en aðeins á grundvelli fullveldis, alþjóðalaga og gagnkvæmrar virðingar. Hann setur deiluna í heild í samhengi við sögulega baráttu milli annars vegar „Donroe-kenningar“ (hugtak sem Donald Trump sjálfur notar) um yfirráð Bandaríkjanna og hins vegar sjálfstæðis Rómönsku Ameríku með rætur í Bólivarískri hugmyndafræði.

***

Og meiri Max Blumenthal. Í viðtali við Glenn Diesen leitast Blumenthal við að skýra nánar hina dularfullu atburðarás kringum árásina á Caracas 3. janúar. Svo virðist sem árásinni hafi að takmörkuðu leyti verið svarað af her Venesúela. Hann talar um niðurbrot eða mögulega meðvitaða eftirgjöf í varnarkerfi landsins. Hann telur að einhvers konar samningur hafi verið gerður frammi fyrir árásaraðilanum, en tekur undir með Arreaza að ekki hafi nein valdaskipti orðið, ekki heldur svik. Chavistahreyfingin haldi völdum en þurfi líklega að lúta einhverjum þvingandi skilyrðum. Sjá hér: Glenn Diesen | Substack

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.