Styðjum Assange – og málfrelsið
—

Jón Karl Stefánsson
22. des, ’21

Það er óvenjulegt að dómsmálaráðherrar skipuleggi mótmælaaðgerðir á götum úti, líkt og Ögmundur Jónasson fyrrv. ráðherra gerir við breska sendiráðið í Reykjavík. Tilefnið: breskur áfrýjunardómstóll segir að framselja skuli Julian Assange til Bandaríkjanna. Sök: að upplýsa öðrum betur heimsins helstu stríðsglæpi undanfarinna tveggja áratuga.

Ritskoðun eru hömlur sem lagðar eru á tjáningarfrelsi til að koma í veg fyrir að upplýsingar komist á framfæri. Þetta er öflugt vopn og hættulegt. Verstu ógnar- og afturhaldsstjórnir sögunnar hafa ætíð stundað öfluga ritskoðun gegn þeim sem ógnaði veldi þeirra. Þúsundáraríki kirkjunnar byggðist á slíku einræði yfir sannleikanum. Trúvillingar voru þaggaðir niður og svo pyntaðir og brenndir. Þessi iðja er einungis á færi þeirra sem hafa mikil völd. Hinir valdalausu geta ekki beitt ritskoðun gegn hinum valdamiklu.

Skýrasta birtingarmynd þeirrar ritskoðunar og skoðunarstjórnar sem ríkir í upplýsingaheimi dagsins í dag sést á þögguninni og umræðuleysinu sem ríkir í málefnum Julians Assange. Í raun er hræið af Julian Assange látið dingla fyrir framan augun á fólki, okkur öllum til varnaðar. Skilaboðin eru skýr: Ef við beygjum okkur ekki undir meginstrauminn í hlýðni getur endað svona fyrir okkur. Ekkert ríki hefur rétt honum hjálparhönd, engin stærri mannréttindastofnun hefur tekið það ábyrgðarhlutverk að vinna í þessu bæði táknræna og raunverulega mannréttindabroti sem framið er fyrir framan augun á okkur. Assange er í þessari stöðu einungis fyrir eitt: Að dreifa upplýsingum sem henta valdamiklu fólki illa.

Meðferðin á einstaklingnum Julian Assange minnir um margt á aðfarir gegn villutrúarmönnum fyrri tíma og eru að skila tilætluðum árangri. Svona meðferð hræðir frá þá sem hugsa sér að birta almenningi sannleika sem er óþægilegur fyrir valdið. Raddir fólks eins og hans hafa smám saman þagnað í fjölmiðlum, eins og þær upplýsingar sem hann kom á framfæri. Við vitum öll innst inni hvert stefnir. Breytingin frá því sem var þegar Watergate-málið kom upp er sláandi: Bob Woodward og Carl Bernstein urðu þjóðhetjur; Assange, eins og aðrir uppljóstrarar og gagnrýnir blaðamenn í dag (Chelsea Manning t.a.m.) eru hundeltir. Assange er beinlínis pyntaður daglega. Munu menn þora að tjá sig í framtíðinni?

Ef við missum allar raunverulegar gagnrýnisraddir inn í þetta hyldýpi óttans er samfélagið komið langt frá þeim gildum sem fyrri kynslóðir börðust fyrir og við eigum á hættu að missa það frelsi og þau réttindi sem við höfum tekið sem sjálfsögðum hlut. Við getum endað á sama félagslega stað og Evrópumenn miðalda undir stjórn kirkjunnar, því það er ekkert sem segir að þessi þróun endi á þægilegum stað. Villutrúarmenn og gagnrýnendur voru fjarlægðir mjög hressilega úr umræðunni á miðöldum. Á dögum hins starfræna verður hægt að fjarlægja fólk mjög fljótt; það er einfaldlega hægt að kippa því úr sambandi. Við verðum algjörlega undir valdi auðvaldsins (samskiptarisanna) komin; förum við gegn þeim vitum við hvað verður um okkur; Assange er víti til varnaðar.

Stétt blaðamanna og embættismanna hefur algjörlega brugðist í málum Julians Assange og annarra uppljóstrara sem nú eru hundeltir. Þeir hafa fallið á prófinu og þetta verður þeim sem hópi til ævarandi skammar. Við hin getum ekki lengur beðið eftir viðbrögðum frá þeim. Ef við stöndum ekki gegn ritskoðun og árásum á borgaraleg réttindi núna, líka þegar þau beinast gegn einhverjum sem okkur kann að mislíka við hér og nú, munum við kannski aldrei endurheimta tjáningarfrelsið.

Fylgjum fordæmi Ögmundar Jónassonar. Mótmælum fangelsun og framsali Julians Assange, og krefjumst þess um leið að Assange fái frelsi og pólitískt hæli á Íslandi. Sjá nánar á http://ogmundur.is/greinar/2021/12/fangelsun-og-framsali-julian-assange-motmaelt


Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.